Dagur - 10.06.1995, Side 20
TVÖFALDUR
1. VINNINGUR
Drápa sporðrenndi
44 cm
egar Sverrir Reynisson,
bóndi á Bringu í Eyjafjarðar-
sveit, kom í fjósið á flmmtudags-
morguninn var, þann 8 júní, bar
tíkin hans hún Drápa sig heldur
aumlega. Drápa er hvolpur,
fædd í lok desember, minka-
hundur af hundakyni Vignis
Stefánssonar á Akureyri.
Tíkin húkti út í horni og virtist
sem eitthvað stæði fast í hálsi
hennar. Sverrir sá þó ekki neitt
þegar hann leit upp í Drápu en
ákvað að fara með hana til Akur-
eyrar á Dýraspítala Elfu Ágústs-
dóttur dýralæknis. Elfa taldi lík-
legast að rif eða eitthvað því líkt
stæði í tíkinni, gaf henni róandi
lyf og skoðaði á henni hálsinn.
„Þá sá ég eitthvað í kokinu á
henni og það endaði með því að
ég dró út úr henni 44 cnt langan
keyrisbút með skaftinu og öllu
saman. Drápa var eins og sverð-
gleypir í sirkus meðan á leiknum
stóð,“ sagði Elfa. Hún sagðist
aldrei Itafa heyrt um neitt þessu
líkt en keyrisbúturinn er stífur og
óbeygjanlegur og hefur því staðið
keyri
beint í gengum tíkina endilanga.
Eins og áður sagði er Drápa að-
eins tæplega hálfs árs og af
minkahundakyni og því ekki stór
vexti, í það minnsta ekki miðað
við að hún innbyrti 44 cm langan
hlut sem er úr plasti og gúmíi og
er þvermál skaftsins 2-3 cnt þar
sem það er breiðast.
Drápa var þó hin hressasta þeg-
ar eigandi hennar, Sverrir á
Bringu, sótti hana til Elfu og virð-
ist henni ekki hafa orðið nieint af
þessurn sérkennilega morgun-
verði.
Þess má geta að Drápa átti
nöfnu á Bringu, einnig tík af
minkakyni sem hvaif með svip-
legunt hætti þann 8. apríl síðast-
liðinn. „Drápa eldri, var að snúast
í kringum mig í fjósinu þennan
morgun og svo hvarf hún skyndi-
lega og síðan hefur ekkert til
hennar spurst og hvorki fundist
tangur né tetur af henni,“ sagði
Sverrir. Það má því segja að það
sé ekki ein báran stök í hunda-
ræktinni á Bringu í Eyjafjarðar-
sveit. KLJ
Enn eitt betlibréfið
frá Filippseyjum
Kona á Akureyri hafði sam-
band við blaðið og vildi
vekja athygli á bréfi sem hún
hafði fengið á dögunum í pósti
frá Filippseyjum. Bréfritari seg-
ist vera gamall, fátækur faðir
sem hafi tvö börn á framfæri.
Hann lætur ekki vel af brauð-
stritinu og leitar því eftir pen-
ingagjöfum frá húsmóðurinni á
Akureyri.
Fyrir nokkrum misserum síðan,
líklega hálfu öðru ári, greindi
Dagur frá ekki ósvipuðu bréfi frá
Filippseyjum sem hafði verið fjöl-
faldað og sent til fjölmargra á Ák-
ureyri og Eyjafjarðarsvæðinu.
Meira að segja rithöndin gæti ver-
ið sú sama, en undirskriftin önnur.
Þeir sem Dagur hefur rætt við
um þetta mál eru sammála um að
fólk ætti að Iáta það vera að svara
þessum bréfum, enda virðist
nokkuð ljóst að örbirgð bréfritara
sé ekki eins mikil og ætla mætti af
texta þeirra.
Eins og áður segir voru mörg
slík betlibréf frá Filippseyjum
send til íslands fyrir nokkrum
misserum og við athugun kom í
ljós að bréfritari hafði greinilega í
höndum gamla símaskrá, því
margir viðtakenda voru fyrir
löngu búnir að skipta um heimilis-
fang. Það santa er uppi á teningn-
O HELGARVEÐRIÐ
Samkvæmt spá frá Veöur-
stofu íslands mun veöriö
halda áfram að leika við
Norðlendinga. í dag er spáö
áframhaldandi góöviöri; hiti
á bilinu 15-20 stig. Á sunnu-
dag og mánudag verður
svipað veöur, vestlæg átt,
sólríkt og hlýtt.
i, Maaa u
um nú. Áðumefnd húsmóðir á
Akureyri var áður heimilisföst á
Isafirði og þangað var bréfið sent,
en er fyrir nokkru flutt þaðan til
Akureyrar. Svo virðist því sem
stuðst sé við gamla íslenska síma-
skrá á Filippseyjum, hugsanlega
þá sömu og áður. óþh
ínnanhúss-
málning
10 lítrar
L
kr. 4.640,-
KAUPLAND
Kaupangi - Sfmi 462 3565
1
Eins og sverðgleypir í sirkus
Elfa Ágústsdóttir, dýralæknir á Akureyri, er hér með tíkina Drápu. Elfa heldur á keyrinu sem á einhvern
undarlegan hátt hvarf ofan í Drápu. Þetta er í hæsta máta lygilegt, en samt dagsatt. Mynd: Robyn
Toyota um helgina
Komdu og reynsluaktu
einstökum jeppa. Það er
lygilega gott að keyr’ann!
Nokkrir Toyota Corolla
Hatchback Special Series
seldir á sérstöku
afmælistilboði
Toyota Landcruiser STW Thrbo Diesel STD á frábæru verði
Reynsluakstur á glænýjum risapick-up T-100
Repsluakstur á Toyota Camry GX V-6
Repsluakstur á RAV 4 5 dyra
BILASALAN ST0RH0LT
Óseyri 4 • Akureyri • Sími 462 3300
TOYOTA
\ji 5 dyra MV 4 jeppin
er Itominn og kostar
aðeins 2.389.000 kr.