Dagur - 12.07.1995, Qupperneq 1
78. árg.
Akureyri, miðvikudagur 12. júlí 1995
131. tólublað
Skandia
Lifandi samkeppni
- lœgri i
Ceislagötu 12 • Sími 461 2222
Laxeldisstöð Nordic Seafarm hf.
Norska fyrirtækið NFO-
Gruppen í Lofoten í Noregi
hefur auglýst laxeldisstöðina
Nordic Seafarm hf. við Mikla-
vatn í Fljótum til sölu sam-
kvæmt auglýsingu sem birtist í
síðasta tölublaði Norsk Fiske-
oppdrett.
Þar kemur m.a. fram að í stöð-
inni sé framleiddur lax, urriði og
bleikja og þar sé hægt að fram-
leiða allt að 400 þúsund fiska í
sláturstærð og ársframleiðslan sé
um 1.000 tonn. Stöðin hafi eigið
sláturhús og framleiðslan sé stöð-
ug og góð.
NFO-Gruppen keypti stöóina í
byrjun þessa árs af Byggðastofn-
un sem eignaðist hana eftir gjald-
þrot Miklalax á árinu 1994.
Kaupverð var 25 milljónir króna,
sem greiða skyldi vió undirskrift
samnings. Síóar samdi NFO-
Gruppen með milligöngu skipta-
stjóra þrotabúsins, Kristjáns 01-
afssonar hdl., um að hluti kaup-
verðsins, 20 milljónir króna,
skyldi greiðast með skuldabréfi
en 5 milljónir innan skamms
tíma. Tvær milljónir af þeirri
upphæð hafa fengist greiddar en
ávísun að upphæð þrjár milljónir
króna hefur ekki fengist innleyst.
Kristján Olafsson hdl., skipta-
stjóri þrotabúsins, segir að erfið-
lega hafi gengið að ná inn fimm
milljón króna greiðslunni, en
hann hafi gert það til að ráðstafa
þeirri upphæð upp í lögveð sem
Byggðastofnun átti ekki að
greiða.
„Tvær milljónir hafði ég feng-
ið greidöar og ég taldi mig vera
kominn með greiðslu upp á þær
þrjár milljónir króna sem á vant-
aði, en innlendur aðili seldi fisk
fyrir Norðmennina erlendis og
átti greiðslan aó koma til þessa Þessi auglýsing í Norsk Fiskeoppdrett kemur mönnum hér heima í opna
innlenda aðila og af því átti að skjöldu. Forstjóri Byggðastofnunar hafði ekki heyrt af málinu þegar
greiða mér þrjár milljónir króna blaðamaður Dags spurði hann um það í gær.
. La.to.rt anlegg for protoi™ »
ogsjproyre, lokalisert pa Island.
. Firmaet har eget settefiskanlegg med produksjons
kapasitetpáca 400.000 smolt.
. Kapasiteten pá matfiskannlegget er pá ca. 1.000 tonn.
• Anlegget har eget slakten.
. A.legger er godt utstvtr. og er i dagltg dnft-
. Det e, ogsi muligheter til S benytte andre mariné
arter i anlegget-
Seriöst interesserte kan henvende seg t.l:|
og ég taldi það nokkuð örugga
greiðslu. Kaupandinn erlendis fór
í greiðslustöðvun þannig að hing-
aö til hefur ekkert fengist greitt.
Norðmennirnir áttu þá auðvitað
aó greiða þessar þrjár milljónir
króna með öðrum hætti,“ sagói
Kristján Olafsson hdl.
Guðmundur Malmquist, for-
stjóri Byggðastofnunar, segir að
ekki hafi vprið staðið viö greiðslu
kaupverðs á stöóinni vió Mikla-
vatn, en í gærmorgun hafi verið
fundað um málið. Honum hafi
hins vegar ekki verið kunnugt um
að NFO-Gruppen hafi auglýst
stöðina til sölu en Byggðastofnun
muni fylgjast náið með málinu.
„Ætli Norðmennirnir verói
ekki að ljúka við að kaupa stöð-
ina áöur en hún veróur seld.
Meira get ég ekki eða vil segja
um þetta mál að sinni,“ sagði
Guómundur Malmquist. GG
Beðið eftir steypunni
Múrararnlr Valdimar Þórhallsson og Kjartan Tómasson hvíldu lúin bein í
gær meðan þeir biðu eftir næsta steypubíl. Myndin var tekin við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, en þeir félagarnir voru í steypuvinnu við viðbygg-
ingu FSA, sem þokast hægt og örugglega upp úr jörðinni. óþh/Mynd: BG
Hlutabréf í íslenskum skinnaiðnaði:
Eyjafjarðarsveit
áformar sölu
Afmæli Ölafsfjarðar:
Brottfluttir Ólafs-
firdingar fjölmenna
Eyjafjarðarsveit:
Sveitar-
félagið
stendur vel
Arsreikningar ársins 1994 í
Eyjaíjarðarsveit hafa verið
lagðir fram og að sögn Stefáns
Árnasonar, starfsmanns Eyja-
fjarðarsveitar, stendur sveitarfé-
lagið ágætlega.
Skatttekjur voru árið 1994 92,5
milljónir, lækkuðu um sjö milljón-
ir frá 1993, en rekstrargjöld hækk-
uðu örlítið, fóru í 73,3 úr 71,6
milljón. í gjaldfærða fjárfestingu
fóru 17,4 milljónir og í eignfærða
fjárfestingu 3,1 milljón, en helstu
fjárfestingar ársins voru gjald-
færðar. Stærstu fjárfestingar voru
vegna félagsheimila sveitarinnar,
5,6 milljónir, þar af mest í Sól-
garð, 3,1 milljón, vegna viðhalds
og endurbóta á grunnskólanum,
3,6 milljónir, 2,5 milljónir í skipu-
lagsmál, en verið er að vinna aðal-
skipulag fyrir Eyjafjaróarsveit, og
3,2 milljónir í götur, holræsi og
nýbyggingar.
Veltufé minnkaði um 6,7 millj-
ónir en langtímaskuldir lækkuðu
úr 21,3 milljónum í 17,2 milljónir
og voru engin ný lán tekin á árinu.
„Eg held aó það sé ekki hægt að
segja annað en að peningaleg
staða sveitarfélagsins sé mjög
sterk. Veltufjárhlutfallió, sem oft
er notað sem mælikvarði á stöðu
er 4,33 og þaó telst mjög gott.
Auðvitað verða menn að gæta sín
að ganga ekki á sjóðina, rekstur
málaflokka hefúr tilhneigingu til
að verða umfangsmeiri, eins og
fræðslu- og félagsmál, en ég held
að við megum vel við una.“ shv
Sveitarstjóri Eyjafjarðarsveit-
ar hefúr fengið heimild frá
sveitarstjórn til að selja öll
hlutabréf sveitarfélagsins í ís-
lenskum skinnaiðnaði, að nafn-
virði um 1,1 millj. króna.
Ástæðuna fyrir sölunni sagói
Stefán Ámason, starfsmaður Eyja-
fjarðarsveitar, vera þá að sveitar-
stjómin liti svo á að það væri ekki
hlutverk sveitarfélagsins aó standa
í atvinnurekstri. A sínum tíma
þegar bréfin hafi verið keypt hafi
sérstakar aðstæður verið fyrir
hendi og fyrir sveitarfélaginu hafi
þá vakað að leggja sitt af mörkum
til að aðstoða við endurreisn fyrir-
tækisins. Nú þegar fyrirtækið virt-
ist vera komið á réttan kjöl væri
hlutverki sveitarfélagsins í raun
lokið. Stefán sagði einnig að það
væri ekki þar meó sagt að rokið
yrði til og bréfin seld strax á
næstu dögum, heldur væri fyrst og
fremst verió að veita sveitarstjóra
heimild til að mögulegt væri að
selja bréfin ef vel þætti horfa til
þess. shv
Brottfluttir Ólafsfirðingar
ætla að fjölmenna á afmæli
kaupstaðarins og munu meðal
annars sjá um útigrill á afmælis-
hátíðinni laugardaginn 15. júlí.
Margrét Sigurðardóttir er ein
þeirra sem ætlar að sækja Ólafs-
fjörð heim og segir hún að þær
fjölskyldur brottfluttra Ólafsfirð-
inga sem ætli að fara á afmælió
skipti tugum.
Margir Ólafsfirðingar, sem
hafa flutt burt, hafa haldið sterk-
um tengslum við byggðarlagið og
hefur þaö verið árviss viðburður
að halda grillveislu einu sinni á
hverju sumri. Ólafsfirðingafélagið
í Reykjavík leigir land af Ólafs-
fjarðarbæ þar sem búið er að
byggja 5-6 sumarbústaði og um-
sóknir um fleiri liggja fyrir. Þetta
land er á jörðinni Hólakoti sem
bærinn keypti fyrir einum fimm
árum síðan og leigði félaginu til
fimmtíu ára. Svæðið hefur verió
skipulagt sem sumarbústaðaland
en nú standa yfir viðræður milli
bæjarins og Ólafsfirðingafélagsins
hvemig uppbyggingu á svæðinu
verði hagað varðandi girðingar,
skógrækt og þess háttar. AI
Útboö í hafnarmannvirki í Ólafsfirði:
■■■ *m ■ ■ ^
Einungis þrju
tilboð bárust
T T afnasamlag EyjaQarðar
JLTóskaði eftir tilboðum í
lagnir og þekju á Þverbryggju í
Ólafsfirði fyrir skömmu, og
voru tilboðin opnuð í gær, 11.
júlí, á bæjarskrifstofu Ólafs-
Qarðar og á Vita- og hafna-
málastofnun. Tilboðin voru
ótrúlega fá, einungis þtjú tals-
ins.
Tilboó bárust frá Eikarási hf.
á Egilsstöðum, Tréveri hf. í Ól-
afsfirói og sameiginlegt tilboð
frá Steypustöð Dalvíkur hf. og
Trésmiðju Ólafsfjaróar.
Tilboð Eikaráss hljóóaði upp
á kr. 19.379.446, tilboð Trévers
hf. var kr. 18.990.000 og tilboó
Steypustöðvar Dalvíkur og Tré-
smiðju Ólafsfjarðar var kr.
18.115.236.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um hver hljóti verkið en
búast má við að botn fáist í mál-
ið í enda þessarar viku eða byrj-
un þeirrar næstu. shv