Dagur - 12.07.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 12. júlí 1995
FRÉTTIR
Lánshlutfall húsbréfa hækkaö úr 65% í 70% hjá þeim sem kaupa í fyrsta sinn:
II
Aðgerðin ekki nógu afgerandi
og flokkast undir hálfkák"
m * a m * m m a ■ ■■
- segir Pétur Jósefsson, fasteignasali
Vorum að taka upp nýjar
gerðir af handsturtum,
börkum og veggslám.
20% kynningar-
afsláttur.
Nú er tækifæri til að
lagfæra í baðherberginu.
Htih fagmanri.
Draupnisgötu 2 • Akureyri
Sími 4622360
ORÐ DAGSINS
462 1840
Félagsmálaráðuneytið gaf út 22.
júní sl. breytingar á reglugerð
um húsbréf og húsbréfaviðskipti
sem snýr að þeim sem eru að
kaupa íbúð eða eru húsbyggj-
endur í fyrsta skipti. Reglugerð-
in nær einnig til þeirra sem hafa
ekki átt íbúð eða hluta úr íbúð
sl. þrjú ár.
í 2. grein reglugerðarinnar seg-
ir svo m.a.: „Skipta má fasteigna-
veðbréfi og húsbréfum fyrir fjár-
hæð sem nemur allt að 70% af
matsverði íbúðarinnar ef umsækj-
andi er að kaupa eða byggja sína
fyrstu íbúð, en annars 65% af
matsverði íbúðar, þó aldrei fyrir
hærri fjárhæð en krónur 6.513.000
vegna nýrrar íbúðar og notaðrar
og vegna notaðra íbúða allt að
krónur 5.427.000, þó aldrei hærri
fjárhæð en krónur 4.256.000
vegna meiri háttar viðbygginga,
endurbóta og endurnýjunar á not-
uðu íbúðarhúsnæði, þó aldrei
meira en 65% af samþykktri
kostnaðaráætlun vegna viðbygg-
inga, miðað við byggingarvísitölu
1. apríl 1995.“
Pétur Jósefsson fasteignasali
hjá Fasteigna- og skipasölu Norð-
urlands segir að ekki hafi orðið
vart við neinn aukinn áhuga þeirra
sem eru að koma á fasteignamark-
aðinn í fyrsta skipti þrátt fyrir að
lánshlutfallið hafi verið hækkað úr
KJ0RBUÐIN
KAUPANGI
Miðvikudagstilboð:
Nautahakk 598 kr., áður 795,-
Kynning og tilboð
Frá Einarsbakaríi: Rúgbrauð 96 kr., áður 120.
Frá Ora: Luxus sælkerasíld 15% afsláttur.
Fimmtudagstilboð:
Svínapottréttur í súrsætri sósu 699 kr., áður 890,-
Föstudagstilboð:
Lambalærissneiðar 938 kr., áður 1120,-
Kryddlegnar lambalærissneiðar 999 kr. kg, áður 1190,
Fimmtudag og föstudag:
Kynning og tilboð frá Osta- og smjörsölunni
15% afsláttur á ostaköku með súkkulaðibitum og öllum
tegundum af ostarúllum.
Vikutilboð:
Maggi bollasúpur 50% afsláttur.
Federici pasta 500 gr. kr. 59,-
Federici spaghetti 500 gr. kr. 49,-
k
KJÖRBÚDIN
SÍMI 261 2933 - FAX 461 2936
65% í 70%, enda kannski full-
snemmt að segja til um áhrif
reglugerðarbreytingarinnar.
„Þetta nær ekki tilgangi sínum,
breytingin gengur of skammt, en
ástandið mundi batna ef lánshlut-
fallið yrði aukið úr 65% upp í
75%. Það mundi líka hafa áhrif á
aðsókina í félagslega kerfið, fólk
mundi frekar kaupa með húsbréf-
um heldur en kaupa félagslegar
íbúðir. Það mundi þá létta á að-
sókninni að félagslega kerfinu og
fjörga söluna á notuðum íbúðum.
Þessi aðgerð Páls Péturssonar, fé-
lagsmálaráðherra, er því ekki
nógu afgerandi, þessi aðgerð
flokkast undir hálfkák,11 sagði Pét-
ur Jósefsson.
Aðsókn þeirra að fasteigna-
markaðnum sem eru að kaupa í
fyrsta skipti er fremur dræm, fólk-
ið kannar í auknum mæli kaup á
íbúðum í félagslega kerfinu eða
fer á ieigumarkaðinn. Eftir að
skyldusparnaður var aflagður
kemur ekki Iengur fólk á fast-
eignasölur sem á fyrir stærsta
hluta útborgunar í fasteign í spari-
merkjum. Töluvert er þó að gera á
fasteignasölunum, mikið skoðað,
ekki síst raðhús og stærri eignir og
nokkur sala. Það er nokkur breyt-
ing frá því áður er hreyfing á
stærri eignum var í algjöru lág-
marki. GG
Togaraafiinn fyrstu fjóra mánuöi ársins:
Arnar HU-1 með
mesta verðmæti
frystitogara
Skagfirðingur SK-4 var með
næstmesta aflaverðmæti ískfisk-
togara fyrstu fjóra mánuði árs-
ins 1995, eða 116.6 milljónir
króna en alls var aflinn 913 tonn
og meðalskiptaverðmæti á út-
haldsdag 786 þúsund krónur.
Mesta aflaverðmæti ískfisktog-
ara hafði Ásbjörn RE-50, sem
fiskaði fyrir 120 milljónir króna
og var aflinn 2.260 tonn.
Arnar HU-1 frá Skagaströnd
var með mesta aflaverðmæti
frystitogara fyrstu fjóra mánuði
ársins 1995 eða 222 milljónir
króna. Meðalskiptaverðmæti á út-
haldsdag var 1.478 þúsund krónur
og meðalafli á úthaldsdag 14,76
tonn en alls var aflinn á umræddu
tímabiii 1.653 tonn.
Meðalskiptaverðmæti á norð-
lenskum ísfisktogurum var 472
þúsund krónur fyrstu fjóra mánuði
ársins og hafði aukist um 13,3%
milli ára. Meðalaflinn á úthalds-
dag var 7,65 tonn á dag og hafði
aukist um 4,26% milli ára. Meðal-
skiptaverðmætið á Iandinu öllu
var 503 þúsund krónur og meðal-
aflinn 9,10 tonn.
Meðalskiptaverðmæti á frysti-
togurum á landinu öllu var 705
þúsund krónur og hafði aukist um
9,86% milli ára. Meðalaflinn á út-
haldsdag var 9,93 tonn sem er
lækkun um 6,21%. GG
Lánardrottnum
boðinn
^órðungur
kröfufjárhæðar
Eins og fram hefur komið í
Degi hefúr verið staðfest
frumvarp til nauðasamnings
fyrir Fjöregg hf. í Sveinbjam-
argerði á Svalbarðsströnd.
Frumvarpið var samþykkt á
fúndi með atkvæðismönnum
með 85,7% eftir höfðatölu og
94% eftir kröfufjárhæðum.
í nauðasamningnum felst
m.a. að lánardrottnum sem
fara með samningskröfur er
boðin greiðsla á 25% af höfuð-
stóli krafna í mars sl., þó þann-
ig að lágmarksgreiðsla til
hvers kröfuhafa verður 20 þús-
und og kröfur til og með þeirri
fjárhæð greiðast að fullu.
Miðstöð fólks
í atvinnuleit í
Punktinn
Miðstöð fólks í atvinnuleit á
Akureyri, sem hefur verið
starfrækt í safnaðarheimili
Akureyrarkirkju frá byrjun
árs 1993, mun á næstu mán-
uðum hafa hluta starfsemi
sinnar í tómstundamiðstöð-
inni Punktinum á Gleráreyr-
um.
Prestar munu koma í Punkt-
inn kl. 15 á miðvikudögum,
þar verður kaffi og brauð á
boðstólum og dagblöðin liggja
frammi. Það skal þó tekið fram
að Miðstöð fólks f atvinnuleit
verður í safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju fyrsta miðvikudag-
inn í hverjum mánuði, en í dag
verður Miðstöð fólks í at-
vinnuleit hins vegar í fyrsta
skipti í tómstundamiðstöðinni
Punktinum.
— Listasumar 95
Perry
stólar í sali
Staflanlegir
Léttir
Hreyfanlegt bak
Samtengjanlegir
Plastklæddir/Bólstraðir
Tíu ára ábyrgð
tClvutæici
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
k____________________A
Kvöldstund í
Davíðshúsi
í tilefni af því að 100 ár eru
liðin frá fæðingu Davíðs Stef-
ánssonar skálds frá Fagra-
skógi eru fluttar dagskrár um
skáldið í Davíðshúsi á Akur-
eyri á miðvikudagskvöldum í
sumar.
í kvöld og næstu miðviku-
dagskvöld verða þær Hólmfríð-
ur Benediktsdóttir, söngkona,
og Helga Bryndís Magnúsdóttir,
píanóleikari, með dagskrá í
Davíðshúsi sem þær nefna „Bak
við hina bláu jökla er brúðurin
hans“. Þær Hólmfríður og
Helga Bryndís fjalla í tali og
tónum um konurnar f Ijóðum
Davíðs.
Samstarf Hólmfríðar og
Helgu Bryndísar hófst árið 1991
er þær fluttu nokkur lög við ljóð
Davíðs í Davíðshúsi á afmæli
Akureyrarbæjar. Á undanförn-
um árum hafa þær haldið tón-
leika saman, auk þess að vera
báðar virkir þátttakendur í tón-
listarlífi hér nyrðra og taka þátt
í tónleikahaldi um land allt.
Tónleikarnir í Davíðshúsi í
kvöld hefjast kl. 21. Aðgangs-
eyrir er kr. 600.