Dagur - 12.07.1995, Side 7
Miðvikudagur 12. júlí 1995 - DAGUR - 7
Ferðast á fljótandi fart
Skemmtiferðaskipin, sem sigla
inn á Pollinn á Akureyri á sumrin,
vekja jafnan töluverða athygli.
Skemmst er að minnast hins gífur-
lega stóra og íburðarmikla skips,
Oriana, sem fjallað var um á síð-
um Dags fyrir stuttu. Skipin eru
hinsvegar ekki einungis merkileg
vegna íburðar og stórra sala. í
þeim er líka fjöldi ferðamanna
sem hafa kosið þægilegan ferða-
máta skemmtiferðaskipanna til að
víkka sjóndeildarhringinn og
skoða heiminn. En hvers konar
ferðamenn eru þetta, hvað gera
þeir hér og hverju skila þeir í
þjóðarbúið?
Til að fá svör við þessum
spurningum brá blaðamaður sér
um borð í Astra II þegar skipið lá
við bryggju á Akureyri og ræddi
þar við Thomas GleiB, fulltrúa
ferðaskrifstofunnar Neckermann
Reisen, sem leigir skipið og selur í
það ferðir, og Böðvar Valgeirs-
son, framkvæmdastjóra ferðaskrif-
stofunnar Atlantik, en hún sér um
ferðamennina þegar þeir eru í
landi.
Óformlegur klæðnaður
„Við reynum að höfða til breiðari
hóps fólks á þessu skipi en hinna
hefðbundnu farþega sem ferðast
með skemmtiferðaskipum,“ segir
Thomas GleiB. „Yfirleitt klæðist
fólk mjög hefðbundum klæðnaði
um borð í svona skipum, jakkaföt-
um og kjólum í kvöldverðarveisl-
um, en við auglýstum að það væri
allt í lagi að vera óformlega
klæddur. Fólk getur verið í galla-
buxum og peysum ef það kærir
sig um og við styttum líka ferðirn-
ar sem við bjóðum upp á þannig
að nú eru þær að meðaltali 13
dagar. Þannig auðveldum við nýju
og yngra fólki að kaupa hjá okkur
ferðir."
Thomas segir að margir hefðu
verið hræddir um að með því að
slaka á kröfum um klæðnað
myndi skipið missa stíl. „Það hef-
ur hinsvegar ekki gerst. Meðalald-
ur hefur lækkað nokkuð en þetta
eru góðir farþegar og mjög áhuga-
samir um að gera sem mest. Við
erum einstaklega ánægðir með
þá“
Thomas GleiB hjá þýsku ferðaskrifstofunni Neckermann Reisen og Böðvar Valgeirsson, framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar Atlantik, um borð í Astra II þegar skipið var í höfn á Akureyri. Mynd: Al
Thomas tekur fram að þó með-
alaldur hafi lækkað um sex ár hjá
þeim þýði það alls ekki að farþeg-
ar séu ungir. „I heimsreisunum er
meðalaldur mjög hár, eða um 60
ár. Á þessu skipi er meðalaldurinn
49 ár. Við bjóðum ekki upp á
mikinn afslátt fyrir börn og því
eru fá börn um borð til að draga
aldurinn niður. Reyndar eru hinir
yngri ekki endilega áhugasamari
nema síður sé. Oft er það gamla
fólkið sem er athafnasamast. Mað-
ur sér oft afa og ömmur dansa á
fullu á diskótekunum sem eru hér.
Yngra fólkið er oft óvirkara.“
Áhöfnin úkraínsk
Um borð í Astra II eru 320 farþeg-
ar og tæplega 177 manns í skips-
höfn auk 15 starfsmanna ferða-
skrifstofunnar. Allir farþegarnir
eru þýskir en áhöfnin er frá Úkra-
ínu. Þeir sem eru í þjónustustörf-
um eru allir þýskumælandi þó
rússneska sé þeirra móðurmál.
Skipið er frekar lítið miðað við
mörg önnur skip. Á Oriana eru t.d.
um 1700 farþegar en algengt er að
farþegar á skipum séu á bilinu
500-600. Engu síður er skipið vel
búið með veitingastöðum, börum,
líkamsræktarstöð, útisundlaug og
öðru því sem skilur skemmtisigl-
inguna frá tjaldútilegunni. „Úti-
sundlaugin og útibarinn eru hins-
vegar ekki notuð á íslandi því hér
er svo kalt,“ segir Thomas og
hristir undrandi höfuðið yfir
blaðamanni, sem er í stuttbuxum.
Sér ura farþeganaílandi
Hér á íslandi hafa skipin sem
koma oftast tvo umboðsaðila.
Annars vegar er einhver sem fer
með skipsumboð, þ.e. sér um að
skipið geti lagst að bryggju, fái
vistir, samskipti við áhöfn og
fleira. Hinsvegar þurfa ferðaskrif-
stofurnar, sem leigja skipin, um-
boðsmann til að sjá um ferðir og
annað sem viðkemur ferðamönn-
unum og það er Böðvar Valgeirs-
son sem er umboðsmaður þess
hluta fyrir flest skemmtiferðaskip-
in sem koma hingað í sumar. „Við
erum samstarfsaðilar þessara
skrifstofa og sjáum um farþegana
þegar þeir eru í landi. Við komum
með tillögur að ferðum og sjáum
svo um alla framkvæmdina.“
Böðvar segir að skipunum hafi
fjölgað mikið á undanförnum ár-
um og hafi örugglega tvöfaldast á
síðustu fimm árum. Alls eru um
40 skipakomur til landsins í sumar
og er hann með umboð fyrir 30
þeirra. Langflest skipanna stoppa
á Akureyri og í Reykjavík en
sjaldgæft að þau stoppi annars-
staðar.
„Langstærstur hluti farþeganna
er frá Þýskalandi,“ segir hann, „og
þaðan koma jafnframt áhugasöm-
ustu ferðamennirnir. Ég er með
tvö bresk skip og þrjú amerísk.
Ameríkanar virðast hugsa meira
um skipið sem hótel og undir hæl-
inn lagt hvort þeir nenni í skoðun-
arferðir.“
Flestir í Mývatnssveit
Skemmtiferðaskipin stoppa oftast
á Akureyri í 6-9 klukkutíma og
gefst þá farþegum kostur á að fara
í land og ganga um bæinn eða fara
í skoðunarferðir sem Atlantik
skipuleggur í samvinnu við Sér-
leyfisbíla Akureyrar, sem Böðvar
segist hafa átt mjög góð samskipti
við. „Langflestir fara í Mývatns-
sveit, eða um 80 prósent. Einnig
er nokkuð um að fólk velji styttri
hring þar sem farið er í Laufás og
að Goðafossi. Við höfum líka
boðið upp á flug til Grímseyjar
sem hefur gengið nokkuð vel.
Reyndar hefur stundum þurft að
fella þær ferðir niður vegna þoku í
Grímsey en þá höfum við breytt
ferðinni í útsýnisflug sem hefur
mælst mjög vel fyrir.
- Ferðamennirnir á skipinu
stoppa stutt á Norðurlandi, gista á
skipinu og borða þar. Hvaða tekj-
um skila þeir inn í atvinnulífið
hér?
„ÖIl skip þurfa að borga hafn-
argjöld og geta tekjur bæjarfélags-
ins af þeim verið nokkuð drjúgar.
Einnig kaupir skipið eitthvað af
vistum eins og olíu og vatn þó
reyndar sé ekki mikið um það.
Síðan má reikna með að hver
ferðamaður eyði að meðaltali um
4000-5000 krónum í skoðunar-
ferðir og auk þess kaupa margir
sér minjagripi. Á þessu skipi kom
fólk frá Foldu t.d. um borð og var
að selja áhöfninni útsölupeysur.“
ísland hluti af stærra dæmi
- Er erfitt að fá skipin til að
stoppa á íslandi?
„Island er í rauninni hluti af
stærra dæmi þar sem Noregur er
þungamiðjan. Oftast byrja skipin
að sigla til Noregs í maí. Þegar fer
að líða á sumarið bætist ísland við
en þá er hápunkturinn að sigla upp
að Svalbarða og fylgjast með mið-
nætursólinni. Island er því nokk-
urskonar viðbót við Noreg og
miðnætursólina. Okkar þáttur er
fyrst og fremst að veita góða þjón-
ustu og bjóða upp á skemmtilegar
ferðir,“ segir Böðvar og nefnir
jafnframt að hann telji að það hafi
tekist vel, fá lönd geti boðið upp á
jafngóðar ferðir og ísland enda
ferðamennirnir yfirleitt ánægðir.
AI
Sýníng á skúlptúrum
í HaUormsstaðaskófii
..., ö
- frá 14. júlí og út september
Föstudaginn 14. júlí kl. 17 verður
opnuð í Hallormsstaðaskógi sýning
á höggmyndum eftir sautján ís-
lenska listamenn.
Stofnað var til sýningarinnar að
frumkvæði Skógræktarinnar á
Hallormsstað en myndlistarmenn-
imir Helgi Þorgils Friðjónsson og
Hannes Lárusson hafa haft umsjón
með vali á þátttakendum.
Flest verkin á sýningunni eru
unnin úr lerki úr Hallormsstaða-
skógi en önnur tengjast skóginum
á einn eða annan hátt.
Með sýningunni vilja aðstand-
endur hennar vekja athygli á skóg-
inum, þeirri starfsemi sem þar fer
fram og jafnframt gefa almenningi
kost á að kynnast iist í óvenjulegu
umhverfi. Markmið sýningarinnar
er einnig að gefa listamönnum kost
á að vinna út frá íslenskum efnivið.
Sýningunni hefur verið valinn
staður meðfram gönguleiðinni um
trjásafn skógarins, sem er það
stærsta á íslandi. Hugmyndin að
þessu verkefni varð til á síðast-
liðnu hausti og var þá þegar leitað
til listamanna sem tóku hugmynd-
inniafar vel.
Ákveðið var að allir listamenn-
irnir fengju tveggja metra lerkibol
sem grunn að listaverki. Þeir hafa
síðan útfært sínar hugmyndir, bætt
við bolinn, sagað hann niður eða
skorið út. Nokkrir listamannanna
munu þó ekki nota lerkibolinn sem
grunn að verki en það mun auka á
fjölbreytni sýningarinnar.
Verkin hafa verið unnin á
vinnustofum í vor og sumar en
nokkrir munu skapa verk sín á
Hallormsstað.
Eftirtaldir listamenn munu eiga
verk á sýningunni: Kristján Guð-
mundsson, Magnús Pálsson, Hall-
dór Ásgeirsson, Þorvaldur Þor-
steinsson, Helgi Þ. Friðjónsson,
Hannes Lárusson, Gunnar Árna-
son, Kristinn G. Harðarson, Sól-
veig Aðalsteinsdóttir, Valborg Ing-
ólfsdóttir, Finna B. Steinsson, Erl-
ing Klingenberg, Ólafur Gíslason,
Jóhann Eyfells, Inga Svala Þórs-
dóttir, Inga Jónsdóttir og Ingileif
Thorlacius.
Undirbúningsnefndina skipa
þeir Þór Þorfinnsson, skógarvörður
á Hallormsstað, Jón Guðmunds-
son, Hallormsstað, og myndlistar-
mennimir Helgi Þorgils Friðjóns-
son og Hannes Lárusson. Þeir
munu einnig veita allar nánari upp-
lýsingar.
Rangur
opnunartími
Opnunartími kaffihússins á Greni-
vík misritaðist í blaðinu sl.
fimmtudag. Hið rétta er að opið er
kl. 14.00-18.00 alla sunnudaga og
leiðréttist það hér með.
Skólaritari
Ritari óskast f hálft starf við Hrafnagilsskóla í
Eyjafjarðarsveit f.o.m. 14. ágúst nk.
Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli,
vera vanur ritvinnslu, geta unnið sjálfstætt og síðast en
ekki síst að vera lipur í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk. og skal umsóknum
skilað á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Syðra-Lauga-
landi, 601 Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir aðstoðarskólastjóri í síma
463 1127 og 463 1137.
Húsaskoðunarmaður
Vegna aukinna verkefna óskar Fasteignamat ríkis-
ins eftir viðbótar starfsmanni við húsaskoðun á
umdæmisskrifstofuna Akureyri.
Viðkomandi þarf að vera teikninga- og reikningsglögg-
ur húsasmiður, gæddur góðum samskipta- og skipu-
lagshæfileikum, ásamt því að vera nokkuð vanur vinnu
á tölvu.
Starfsvettvangur skrifstofunnar er Norðurland.
Upplýsingar um starfið veitir umdæmisstjóri.
Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí 1995.
Fasteignamat ríkisins Norðurlandsumdæmi,
Hafnarstræti 95, 600 Akureyri, sími 462 1763