Dagur - 12.07.1995, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 12. júlí 1995
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
KR lagði Þór í vítakeppni í 8 liða úrslitum bikarsins:
„Getum borið höfuðið hátt“
- sagði Nói Björnsson, þjálfari Þórs
Bikarmeistarar KR þurftu fram-
Iengingu og vítaspyrnukeppni til
þess að leggja annarrardeildarlið
Þórs í átta liða úrslitum bikar-
keppninnar í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Hvorugu liðinu hafði
tekist að skora mark eftir venju-
Iegan leiktíma og sama var uppi
á teningnum eftir framlengingu.
í vítaspyrnukeppninni fóru
fyrstu þrjár spyrnur Þórs í súg-
inn á meðan KR skoraði úr
tveimur af þremur. Liðin nýttu
svo eina hvort og lokatölur urðu
Knattspyrna:
Martin í eins
leiks bann
Aganefnd KSÍ kom saman í gær
og tók fyrir 27 mál knattspyrnu-
manna sem hafa unnið sér inn
leikbönn. Þrír leikmenn liða á
Norðurlandi fengu eins leiks
bann.
Dean Martin, leikmaður KA,
fékk eins leiks bann vegna brott-
vísunar í leik gegn HK um síðustu
helgi. Hann leikur því ekki með
KA gegn Skallagrím annað kvöld.
Ragnar Gíslason, leikmaður Leift-
urs, fékk bann vegna fjögurra
áminninga og missir af leik liðsins
við FH þann 20. júlí, en Leifturs-
menn fá nú langt frí þar sem leik
liðsins við Keflvíkinga í næstu
umferð hefur verið frestað til 9.
ágúst.
Sævar Ö. Þorsteinsson, leik-
maður SM, fékk eins leiks bann
vegna brottvísunar í leiknum gegn
Tindastól um síðustu helgi.
Leiðrétting
I grein á íþróttasíðu Dags í gær
um opna Islandsmótið í siglingum
var sagt frá því að tíu sterkir sigl-
arar væru staddir í Þýskalandi að
sigla þriggja mastra skútu. í grein-
inni var sagt að þar væru einungis
strákar á ferð en það mun vera al-
rangt því a.m.k. ein stúlka, Laufey
Kristjánsdóttir, er með í för. Beð-
ist er velvirðingar á þessum leiðu
mistökum.
3:1 KR í vil.
„Við getum svo sannariega
borið höfuðið hátt eftir þennan
leik. Þeir nýttu ekki sín færi og
við vorum því inni í leiknum allan
tímann. Við vorum að komast ein-
ir í gegn og hefðum við nýtt það
er aldrei að vita hvað hefði gerst.
Við lékum frábæran varnarleik en
kannski má segja að taugar manna
hafi brostið þegar komið var út í
vítaspyrnukeppni og fyrsta
spyrnan fór í súginn," sagði Nói
Björnsson, þjálfari Þórs, eftir leik-
inn.
„Við gerðum okkur þetta erfitt
og áttum að vera búnir að gera út
um leikinn í fyrri hálfleik. Þeir
fengu sín færi en í vítakeppninni
er þetta bara spurning um heppni.
Það var ekki amalegt að leggja
gömlu félagana að velli í víta-
spyrnukeppni," sagði Guðmundur
Benediktsson, leikmaður KR og
fyrrum leikmaður Þórs.
KR-ingar voru mun meira með
boltann í leiknum í gær og fengu
fleiri færi til þess að skora. Þórsar-
ar fengu einnig góð færi og hefðu
í raun getað gert út um leikinn í
síðari hálfleik þegar Árni Þór
Árnason slapp tvisvar sinnum
einn í gegnum vörn KR- inga.
Þórsvörnin var frábær í leiknum,
með þá Þóri Áskelsson og Pál
Pálsson sem bestu menn. Olafur
Pétursson var öruggur í markinu
og varði oft meistaralega. KR-Iið-
ið virkaði lítt sannfærandi og leik-
menn þess virkuðu á köflum and-
lausir.
I vítaspyrnukeppninni voru
Þórsarar lánlausir. Sveinbjörn
Hákonarson skaut í stöngina úr
fyrstu spyrnunni og Kristján Finn-
bogason varði tvær vítaspyrnur
fyrir KR og munar um minna.
Örn Viðar Arnarson skoraði úr
vítaspyrnu fyrir Þór og Mihajlo
Bibercic, Þormóður Egilsson og
Ásmundur Haraldsson fyrir KR.
SV
Lið KR: Kristján Finnbogason - Þor-
móður Egilsson, Sigurður Örn Jónsson,
Brynjar Gunnarsson (Óskar H. Þorvalds-
son), Salih Heimir Porca, Izudin Daði
Dervic, Hilmar Björnsson, Einar Þór
Daníelsson, Mihajlo Bibercic, Heimir
Guðjónsson (Asmundur Haraldsson),
Guðmundur Benediktsson.
Lið Þórs: Ólaur Pétursson - Páll Pálsson,
Þórir Askelsson, Örn Viðar Arnarson,
Sveinn Pálsson, Eiður Pálmason (Birgir
Karl Birgisson), Páll Gíslason, Svein-
björn Hákonarson, Dragan Vitorovic,
Radovan Cvijanovic, Árni Þór Árnason
(Hreinn Hringsson).
Dómari leiksins var Gylfi Orrason og
var hann slakur. Hann var ekki
samkvæmur sjálfum sér og bar of mikla
virðingu fyrir KR-ingum.
Sveinbjörn Hákonarson og félagar hans
eftir vítaspyrnukeppni í gærkvöldi.
í eldra liði Þórs töpuðu fyrir KR
Þorvaldur Orlygsson í viðræðum við Birmingham City:
„Ekki búið að ganga frá neinu“
- sagði Þorvaldur í samtali við Dag í gærkvöldi
Undanfarna daga hefur knatt-
spyrnumaðurinn snjalli Þorvald-
ur Örlygsson átt í viðræðum við
enska 1. deildarfélagið Birming-
ham City um að hann leiki með
félaginu næstu ár. í gær spurðist
þetta út í Englandi og fréttir um
að búið væri að ganga frá samn-
ingum birtust í breskum fjölm-
miðlum. „Þetta er mjög spenn-
andi dæmi og nokkuð líklegt að
ég fari til Birmingham en það er
ekki komið neitt blek á blað
ennþá,“ sagði Þorvaldur í sam-
tali við Dag í gærkvöldi.
„Það er ekki búið að ganga frá
neinu. Ég er búinn að eiga viðræð-
ur við Birmingham á síðustu dög-
um og aðra klúbba. Ég átti í við-
ræðum við framkvæmdastjóra
Birmingham í gærkvöldi (á mánu-
dagskvöld (innsk. blaðamanns))
og fram á nótt. Það var mjög góð-
ur fundur og þeir vilja fá mig til
félagsins. Við höfum komist að
samkomulagi í stórum atriðum en
það á enn eftir að ganga frá ýms-
um hlutum. Ég á væntanlega ann-
an fund með þeim í kvöld og það
er margt sem þarf að ganga frá og
margt sem gæti gerst ennþá,“
sagði Þorvaldur Örlygsson.
Knattspyrna -1. deild kvenna:
Dapur leikur hjá IBA
- þegar liöíö tapaði á Skaganum, 1:5
IBA lék á Akranesi í gærkvöldi í
1. deild kvenna í knattspyrnu.
Heimastúlkur í liði ÍA sigruðu
nokkuð örugglega í Iciknum,
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubaó
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080
5:1, eftir að staðan í hálfleik var
2:L
Stúlkurnar í ÍBA byrjuðu leik-
inn ágætlega og náðu ágætum
köflum í fyrri hálfleik en eftir hlé
datt leikur liðsins niður á lægra
plan. Skaga-
stúlkur höfðu
ávallt yfirhönd-
ina og á 15,
mínútu kom
fyrsta markið.
Það skoraði
Jónína Víg-
lundsdótdr úr
vítaspyrnu. Um
miðjan fyrri
hálfíeik jafnaði
Katrín Hjartar-
dóttir fyrir ÍBA
með fallegu
marki. Eftir að
hafa fengið
stungusend-
ingu inn
vörn heima
Katrín Hjartar-
fydr dóttir skoraði eina
mark ÍBA.
sætna renndi Katrín af öryggi í
markhornið. En eins og vant er
orðið náði ÍBA ekki að halda út
og skömmu fyrir leikhlé skoraði
Áslaug Ákadóttir annað mark ÍA
en skömmu áður hafði hún brotið
af sér án þess að dæmt væri.
í síðari hálfleik skoraði Ingi-
björg Ólafsdóttir, fyrrum ÍBA
stúlka, með glæsilegum skalla og
þær Anna Sólveig Smáradóttir og
Helga Lind Björgvinsdóttir bættu
mörkum við. Lokastaðan var því
5:1 fyrirÍA.
Tveir aðrir leikir voru í 1. deild
kvenna í gær. Haukar sigruðu ÍBV
í Eyjum 3:2 og Breiðablik sigraði
Stjörnuna, 2:0, í Garðabæ.
Lið ÍBA: Þórdís Sigurðardóttir, Hjördís
Ulfarsdóttir, Harpa Frímannsdóttir, Val-
gerður Jóhannsdóttir, Erna Rögnvalds-
dóttir - Harpa Hermannsdóttir (Lillý Við-
arsdóttir), Rósa Sigbjörnsdóttir (Bjarney
Jónsdóttir), Sara Haraldsdóttir, Rannveig
Jóhannsdóttir, Þorbjörg Jóhannsdóttir -
Katrin Hjartardóttir.
Þorvaldur Örlygsson hefur að öll-
um líkindum leikið sinn síðasta lcik
fyrir Stoke City.
Birmingham City hefur undan-
farin áratug verið „sofandi risi“ í
enska boltanum. Þetta er fornfrægt
félag sem hefur gengið illa og
fallið úr hópi efstu liða. Fyrir
nokkrum árum festi maður að
nafni David Sullivan kaup á
meirihluta í félaginu og hefur snú-
ið því til betri vegar. Birmingham
er án efa eitt af 10 stærstu félög-
um Englands í dag og það ríkasta í
1. deild. Liðið var í 2. deild á síð-
asta ári en vann deildina örugg-
lega og stefnan er sett upp á við
undir stjórn Barry Fry, eins litrík-
asta framkvæmdastjóra enska
boltans. Félagið hefur gért upp
heimavöll sinn á síðustu árum og
er búið að nota 10 til 15 milljónir
punda í að búa til leikvang sem
tekur 30.000 manns í sæti og á
næstu árum stendur til að bæta
10.000 sætum til viðbótar við.
„Það er ekki hægt að neita því
að ég er mjög spenntur fyrir Birm-
ingham en ég hef einnig talað við
tvo aðra klúbba í 1. deildinni og
það eru félög sem eru mjög líkleg
til að fara upp. Svo er ég búinn að
tala við tvö úrvalsdeildarfélög.
Það hafa verið mjög spennandi
dæmi en þó ekkert í líkingu við
þetta hjá Birmingham. Þeir hafa
mestan áhuga á að fá mig en það
er ekkert öruggt fyrr en maður er
búinn að skrifa undir,“ sagði Þor-
valdur.
Samkvæmt nýjustu heimildum
hafa Stoke og Birmingham ekki
komið sér saman um kaupverð en
Þorvaldur er á enda samnings síns
hjá Stoke og því frjálst að semja
við annað félag. Stoke fer fram á
u.þ.b. 1 milljón punda fyrir Þor-
vald en Birmingham er tilbúið að
borga helming þeirrar upphæðar.
Einnig hefur komið til tals að þrír
eða fjórir leikmenn fari frá Birm-
ingham til Stoke í skiptum fyrir
Þorvald. Ef Þorvaldur gerir samn-
ing við Birmingham og félögin
koma sér ekki saman um kaup-
verð mun mál hans fara fyrir sér-
stakan gerðadóm en sá dómstóll
kemur næst saman næstkomandi
þriðjudag.
Bimiingham hefur keypt þrjá
leikmenn í sumar en það eru fram-
herjarnir Ken Charlery frá Peter-
borough fyrir 350.000 pund og Ja-
son Bowan frá Swansea, sem hef-
ur verið í landsliðshópi Wales, og
er Ifklegt að hann muni kosta um
500.000 pund. Þá er Steve Castle,
tengiliður frá Plymouth, á leið til
félagsins en mál hans fer fyrir
gerðardóm á næstunni þar sem
Plymouth vill fá 750.000 pund
fyrir leikmanninn en Birmingham
er tilbúið að borga 150.000 pund.
Ef Þorvaldur gengur til liðs við
Birmingham verður fyrsti leikur
hans með nýju félagi væntanlega
æfingaleikur gegn stórliði Li-
verpool á St. Andrews 26. júlí.
Síðan taka við æfingaleikir við
Celtic, Sheff. Wed., WBA og
Chelsea áður en baráttan í 1.
deildinni hefst.