Dagur - 12.07.1995, Qupperneq 12
NYJA Filmuhúsið • Hafnarstræti 106 • Sími 462 7422
Sláturhús KÞ:
Lambakjöt á
tveggja vikna
fresti til
Bandaríkjanna
Sláturhús Kaupfélags Þing-
eyinga hefur hafið reglu-
legan útflutning lambakjöts
til Bandaríkjanna og er
reiknað með að senda þangað
um 14 tonn á tveggja vikna
fresti. Einnig er Sláturhús KÞ
að hefja markaðssetningu á
nýrri vöru innanlands, svo-
köliuðum „Nöggum“, sem
eru skyndibitar úr lambakjöti
og gætu þeir farið að sjást í
búðum fljótlega.
Útflutningurinn er á vegum
Kjötumboðsins hf. en kjötið er
frá Sláturhúsi Norður- Þingey-
inga. „Fyrsta prufusendingin
fór út í maísegir Haraldur
Haraldsson, aðstoðarmaður
sláturhússtjóra, „og kjötið er
búið að vera bæði í verslunum
og veitingahúsum á New York
svæðinu. Alls hafa farið þrjár
sendingar frá okkur í skips-
gámum, svona 14 tonn í hverri
sendingu. Þetta er mjög vel
verkað kjöt og pakkað í neyt-
endaumbúðir.“
Haraldur segir að nú sé ætl-
unin að þessar sendingar verði
reglulega á tveggja vikna
fresti, alla vega í nokkra mán-
uði og hefur hann ekki heyrt
annað en að vel hafi gengið að
selja kjötið.
Naggar - nýir skyndibitar
Innlendi markaðurinn er ekki
síður mikilvægur en þeir er-
lendu og er Sláturhús KÞ að
undirbúa komu nýrrar vöru á
innanlandsmarkað. Það sem
um ræðir eru tilbúnir skyndi-
bitar úr formuðu lambakjöti og
eiga þeir að heita „Naggar“.
Ásgeir Baldurs, markaðsstjóri
hjá Sláturhúsinu, segir að
eingöngu frampartar séu notað-
ir í Naggana. „Bitarnir eru 50%
vöðvar og 50% hakkefni sem
er blandað saman og formað
með náttúrulegum bindiefnum.
Þeir haldast því vel saman en
eru alls ekki seigir. Bitamir eru
alveg beinlausir, Jæir eru for-
steiktir og tekur um tíu mínútur
að elda þá í ofni."
Ásgeir segir að bitarnir hafi
verið kynntir fyrir verslunar-
eigendum bæði í Reykjavík og
hér norðanlands og hafi jæir
fengið mjög góðar undirtektir.
„Afdráttarlaust hefur mönnum
líkað þetta mjög vel og eru
spenntir fyrir þessu,“ segir Ás-
geir og upplýsir að Naggarnir
verði líklega komnir í hillur
verslana eftir tvær vikur. AI
VEÐRIÐ
Á Norðaustur- og Norðvest-
urlandi verður í dag fínasta
veður, með austlægri eða
breytilegri átt, golu eða
kalda og gert er ráð fyrir að
víðast hvar verði léttskýjað.
Þó má búast við þokubökk-
um út við sjóinn, en þeir
ættu að hverfa þegar líður á
morguninn. Hiti verður 15-
20 stig inn til landsins en 5-
9 stig í þokunni.
Páll Þór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Húsavík:
Þurfum að stórauka beint
flug til Akureyrar
- mikið áhyggjuefni að lausatraffík bregst annað árið í röð á Norðurlandi
Það sem af er sumri er þetta
metsumar hjá okkur. Júní-
mánuður var alger metmánuður
og júlí virðist ætla að verða það
líka. Ágúsmánuður er enn svo-
lítið óljós. Þetta er því annað ár-
ið í röð sem við fáum mikla
aukningu og höfum náð mjög
góðri nýtingu,“ sagði Páll Þór
Jónsson, hótelstjóri á Hótel
Húsavík, um viðskiptin í sumar.
Hann sagði að þetta mætti án
efa þakka mörgum samverkandi
þáttum. „Við erum í mjög góðu
samstarfi við margar ferðaskrif-
stofur og höfum sterka stöðu á
svæðinu, þar sem við erum einn af
fáum stöðum sem bjóða upp á
gistingu í „hótelklassa“. Eins er ég
að vona að sú markassetning sem
við höfum lagt í sé að skila sér.“
Hótel Húsavík hefur m.a. verið
í samstarfi við ferðaskrifstofuna
Saga Reisen, sem einu sinni í viku
er með beint flug milli Sviss og
Akureyrar. „Við sjáum t.d. um
skoðunarferðir og gistingu hérna á
Húsavík. Það er talsvert mikið að
gera hjá okkur í tengslum við
þetta og sérstaklega var júnímán-
uður góður. Það er engin spurning
að við eigum að gera miklu meira
af þessu og þurfum að auka þetta
beina flug um Akureyri, en eins
og er þá er þetta eina beina teng-
ing Norðurlands við útlönd.
Ég held að framtíðin og það
markmið sem við setjum okkur,
hljóti að vera 3-4 flug í viku því
með þessu myndi ferðaþjónusta á
Norðurlandi stóreflast. Éins og nú
er þurfum við að bíða eftir því að
fólkið leggi af stað frá sv-horninu
eða Seyðisfirði. Með svona beinu
flugi fáum við fólkið strax og get-
um látið það flæða um allt Norð-
urland. I þessu tel ég vera að finna
ástæðu þess að ferðamanna-
straumurinn hér fyrir norðan byrj-
ar alltaf miklu seinna en fyrir
sunnan og endar fyrr. Þetta er ein-
faldlega hlutur sem er mjög brýnt
að menn fari að takast á við því
Aðkoman að brúnni yfir Kotá hefur löngum þótt hættuleg enda sést brúin alls ekki frá þessu sjónarhorni en hún er
staðsett beint neðan við hæðina framundan. Mynd: óþh
Skagafjörður:
Framkvæmdum við Kotá að Ijúka
Eins og Dagur hefur greint frá
áður standa framkvæmdir
yflr við brúna yflr Kotá í Skaga-
firði.
Þeir sem leið hafa átt um
Skagafjörðinn að undanförnu hafa
margir velt fyrir sér hvort í bígerð
væri að byggja nýja brú yfir ána.
Hjá Vegagerð ríkisins, Sauðár-
króki, fengust þær upplýsingar að
verið væri að bæta aðkomuna að
brúnni, Skagarfjarðarmegin, til að
ökumenn hefðu betri yfirsýn yfir
brúna.
„Vegurinn er færður ofar í hlíð-
ina til að auka sjónlengdina inn á
brúna, það hefur alla tíð verið
blint að brúnni þannig að nú eiga
menn að sjá inn á brúna svona 200
metrum áður en þeir koma inn á
hana,“ sagði Einar Gíslason hjá
Vegagerðinni.
Framkvæmdum við Kotá átti,
samkvæmt útboði, að vera lokið
þann 10. júlí en reiknað er með að
takist að opna hina nýju aðkomu
að brúnni um næstu helgi.
Aðspurður um hvort til stæði
að breikka brúna, sagði Einar að
það yrði ekki fyrr en eftir aldamót.
Hinsvegar verður ný brú gerð yfir
Húseyjarkvíslina á næsta ári og
yfirDalsá 1998. GH
Útboð í styrkingu grjótgarðs á Grenivík:
Mjög mikill áhugi
Hafnarstjórn Grenivíkur
óskaði í júní eftir tilboðum í
gerð grjótvarnargarðs og rann
útboðsfrestur út 28. júní. Fjöl-
mörg tilboð bárust og voru þau
opnuð í gær, samtímis á Vita- og
hafnamálastofnun og á hrepps-
skrifstofú Grýtubakkahrepps.
í útboðinu sagði að helstu
magntölur væru 25.000 m3 grjóts
og 14.500 m3 kjarna og skyldi
verkinu lokið eigi síðar en 30.
október 1995.
Eftirfarandi tilboð
Jöfnun hf.
Jöfnun hf. frávikstilboð
V. Brynjólfsson hf.
Steypustöð Dalvíkur hf.
GV gröfur sf.
ístak hf.
Jarðverk hf.
Háfell hf.
Suðurverk hf.
Klæðning hf.
bárust:
kr. 56.160.804.
kr. 52.215.088.
kr. 45.365.290.
°g
kr. 40.638.371.
kr. 39.577.742.
kr. 38.514.048.
kr. 37.357.750.
kr. 35.967.926.
kr. 35.176.604.
Amarfell hf.
Völurhf.
kr. 33.271.472.
kr. 32.788.146.
Kostnaðaráætlun hönnuða
hljóðaði upp á kr. 40.646.511 og
er því lægsta tilboðið, tilboð Valar
hf. rúmlega 80% af kostnaði en
það hæsta, tilboð Jöfnunar hf. rúm
138%.
Tilboðin eru farin í vinnslu og
er niðurstöðu að vænta í lok þess-
arar viku eða byrjun næstu. shv
það tekur alltaf mörg ár að vinna
upp svona dæmi.
Miðað við núverandi ástand er
júní alls ekki nógu sterkur hjá
ferðaþjónustu á Norðurlandi og
það má segja að tímabilið sé búið
um 20. ágúst. Það er auðvitað
fjarri því að vera nógu gott.“ Páll
segir að menn verði að gera sér
ljóst að það kostar mikið átak að
lengja ferðamannatímann og þar
sé beint flug frá útlöndum lykilat-
riði. Með því myndu áhrif Norð-
lendinga aukast í því hvers konar
ferðamennska byggist upp í land-
inu.
„Ég held að menn séu alveg
sammála um það hér á Norður-
landi að lausatraffík er mjög léleg
í sumar. Þetta gerist núna annað
árið í röð og er verulegt áhyggju-
efni. Menn eru að vona að þetta sé
að breytast núna, en það breytir
því ekki að júní 1995 er búinn og
góður hluti af júlí. Menn hafa tap-
að ákveðnu fé sem ekki kemur
aftur. Við verðum einfaldlega að
fara að taka á þessu," sagði Páll
Þór Jónsson. HA
Laugalandsskóli:
Samningar
framlengdir
Aðilar sem hafa haft aðstöðu
að Laugalandi undanfarið
hafa óskað eftir áframhaldandi
leigu, en ekki er hægt að tryggja
þeim langtímasaminga.
Á Laugalandi er rekið þróunar-
setur, handverkshópurinn Hagar
Hendur hefur haft aðstöðu í hús-
næðinu, Hótel Vín hefur verið
með veitingarekstur, sérstaklega í
tengslum við leiksýningar og auk
þess er bókasafn sveitarfélagsins í
húsinu.
Framangreindir fá áfram inni
að Laugalandi, en ekki var hægt
að gera samninga um langtíma-
leigu þar sem húsið er sameign
sveitarfélagsins og ríkisins. Því
voru Ieigusamningar einungis
framlengdir, með þriggja mánaða
uppsagnarfresti. shv
Allt fyrlr garðinn
í Perlunni við
0KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565