Dagur - 14.07.1995, Blaðsíða 15

Dagur - 14.07.1995, Blaðsíða 15
IÞROTTIR Föstudagur 14. júlí 1995 - DAGUR - 15 SÆVAR HREIPARSSON Knattspyrna - 2. deild karla: Rislitið jafntefli KA og Skallagrímur skildu jöfn, 1:1, í rislitlum leik á Akureyrar- velíi í gærkvöldi. Leikurinn var lítið fyrir augað og knattspyrnan sem boðið var upp á var ekki upp á marga fiska. Baráttan var í fyrirrúmi og þegar upp var staðið var jafnteflið sanngjarnt. „Þetta var hörku leikur og það var allt annað að sjá til okkar heldur en í síðasta leik. Það var mikil barátta og góð hreyfmg á liðinu. Með smá heppni áttum við að vinna þennan Ieik,“ sagði Árni Stefánsson, harðjaxlinn í vörn KA, eftir leikinn. Gestirnir byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina fyrstu mínút- urnar án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Þeir náðu loks að leika á KA-vörnina á 14. mínútu og uppskáru mark. Valdimar Sig- urðsson slapp framhjá varnar- Úrslit: Stjarnan-HK 2:1 KA-Skallagrímur 1:1 í kvöld: Víkingur-ÍR Víðir-Þór mönnum KA og upp að enda- mörkum hægra megin. Fyrirgjöf hans fann kollinn á Haraldi Hin- rikssyni, fyrrum leikmanni ÍA, sem skallaði af öryggi í netið. Við þetta lifnuðu KA-menn til lífsins og jöfnunarmarkið kom aðeins þremur mínútum síðar. Það skor- aði Bjarni Jónsson með skalla af markteig eftir að Halldór Kristins- son hafði unnið lofteinvígi við Daða Lárusson, markvörð Skalla- gríms, 1:1. Óhætt er að segja að lítið hafi gerst það sem eftir lifði fyrri hálf- leiks og leikurinn fór að mestu fram á ntiðju vallarins. Síðari hálfleikur var öllu líf- legri og færin voru fleiri þótt svo lítið vit væri í spili liðanna. Bjarni Jónsson og Þorvaldur Sigbjörns- son voru nálægt því að skora fyrir KA og Brasilíumaðurinn Junior fyrir Skallagrím. Á 64. mínútu kom sennilega besta færi KA- manna. Daði markvörður gestanna hitti ekki boltann þegar hann hugðist sparka frá vítateig sínum og Þorvaldur var fyrstur að bolt- anum. Daði náði að koma fingur- gómunum í boltann og ýta honurn frá Þorvaldi og hefði þar átt að dæma óbeina aukaspyrnu á mark- vörðinn en dómaranunt yfirsást þetta. Stuttu síðar fékk Hermann Karlsson upplagt færi en skot hans af stuttu færi fór í varnarmann. Skallgrímur fékk líka sín færi en tókst ekki að nýta. Það hættuleg- asta kom undir lok leiksins þegar Eggert Sigmundsson varði með glæsibrag skot frá Haraldi Hin- rikssyni. Spilið hjá liðununt gekk illa og sóknirnar voru ómarkvissar. Skárstir í slöku KA-liði voru Bjarni Jónsson og Stefán Þórðars- son. Þá var Árni Stefánsson traustur í vörninni. Ungur nýliði, Þorleifur Árnason, kom inná í lið KA á 77. mínútu en hann er enn í 3. flokki KA og aðeins 15 ára. Lið KA: Eggert Sigmundsson - Árni Stefánsson, Halldór Kristins- son, Bjarki Bragason - Hermann Karlsson, Sverrir Ragnarsson (Þorleifur Árnason 77), Bjarni Jónsson, Helgi Aðalsteinsson, Jó- hann Arnarsson, Stefán Þórðar- son, Þorvaldur Makan Sigbjörns- son. Það var oft hart barist á Akureyrarvellinum í gærkvöld. Hér eru þeir Hall- dór Kristinsson og Rjarni Jónsson í einvígi við Daða Lárusson, markvörð Skallagríms. Mynd: BG íslandsmótiö í knattspyrnu - 3. deild: Jafntefli Völsunga og Dalvíkinga í bar- áttuleik á Húsavík „Við erum efstir í deildinni og ætlum að vera það áfram. Strák- arnir spiluðu ekki vel í þessum Ieik og verða vonandi betri í næsta leik,“ sagði Sigurður Lárusson, þjálfari Völsungs, eft- ir markalaust jafntefli gegn Dal- víkingum í gærkvöld á Húsavík. Það var ljóst frá fyrstu mínútu leiksins að það var mikið í húfi og bæði lið ætluðu að seija sig dýrt. Fyrir bæði lið var leikurinn í raun sex stiga, hann skipti vissulega miklu máli fyrir topplið Völsungs og ekki síður gestina frá Dalvík. Baráttan var í fyrirrúmi og hún var á kostnað áferðarfallegrar knattspyrnu. Völsungar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og tókst að skapa sér tvö góð marktækifæri, en náðu ekki að nýta þau. Dalvíkingar áttu líka sín færi í fyrri hálfleiknum, skutu meðal annars í stöng Völs- ungsmarksins. Dalvíkingar byrjuðu síðari hálfleik með mikíum látum og áttu heimamenn þá í vök að verj- ast. Með smá heppni hefðu Dal- víkingar þá átt að geta gert út um leikinn, en heilladísirnar voru ekki með þeim upp við mark Völ- sunga. Völsungar komust síðan smám saman meira inn í leikinn og síð- asta stundarfjórðunginn voru þeir sterkari og hefðu með heppni átt að geta skorað eitt til tvö mörk. Þegar á heildina er litið geta bæði lið vel við þessi úrslit unað, miðað við gang leiksins eru þau sanngjörn. HJ/óþh Jón Guömundsson, nýr þjálfari Þórsara í körfuknattleik, hélt sína fyrstu æfingu í gær. Þar var einnig mættur Böövar Kristjánsson sem gekk til liðsins frá Keflvíkingum. Jón er til vinstri á myndinni. Mynd:BG Arngrímur Arnarson og félagar hans í Völsungi eru enn á toppnum. Tröllaskaga- tvíþraut Eins og kom fram í Degi í síð- ustu viku mun Skíðadeild Leifturs halda Tröllaskagatví- þraut á morgun, laugardag. Hlaupið verður frá ráðhúsinu á Dalvík upp BÖggvisstaðadalinn og yfir Reykjaheiði og niður að Reykjum í Ólafsfirði. Þaðan verður hjólað eftir gamla þjóð- veginum sem liggur í vestan- verðum firðinum niður í bæ. Islandsmótið í knattspyrnu -1. deild kvenna: Baráttan var ekki til staðar - sagði þjálfari ÍBA eftir 2:1 tap í Eyjum „Það var eins og fyrri daginn, baráttan var ekki til staðar,“ sagði Hinrik Þórhallsson, von- svikinn þjálfari ÍBA-stúlkna, eftir tap þeirra gegn ÍBV í Vest- mannaeyjum í gærkvöld, 2:1. í fyrri hálfleik sóttu ÍBV-stúlk- ur meira undan strekkingsvindi, staðan í hálfleik var 0:0. Þegar um 15 mínútur voru liðn- ar af síðari hálfleik náðu heima- stúlkur forystunni eftir slæm mis- tök í vörn IBA og var þar að verki íris Sæmundsdóttir. Þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum náði Þorbjörg Jóhannsdóttir að jafna metin nteð háum „bananabolta“ utan af velli yfir markmanninn og í netið. Þegar síðan um fimrn mín- útur voru eftir af leiknum náðu ÍBV-stúlkur stungusendingu inn fyrir vörnina og í netið fór boltinn, 2:1 fyrir ÍBV og þar við sat. „Það er vissulega afar slæmt að tapa þessum leik, þetta var sex stiga leikur. Stúlkurnar virtust ekki vera tilbúnar til að leggja sig nægilega fram,“ sagði Hinrik Þórahallson. Lið ÍBA: Þórdís, Hjördís, Val- gerður, Erna, Rannveig (Bjarney), Sara, Ragnheiður, Harpa H., Þor- björg, Rósa og Katrín. ^ Knattspyrna: IBA fékk Val - í undanúrslitum bikarsins í gær var dregið um það hvaða lið mætast í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu. Eitt lið að norðan er enn með í bikarnum en það er kvennalið ÍBA. Stúlk- urnar höfðu heppnina með sér og fengu heimaleik gegn Val. Leikurinn er á dagskrá að viku liðinni, föstudaginn 21. júlí kl. 20.00. I hinum undanúrslitaleikn- urn mætast Breiðablik og KR í Kópavogi og verður sá leikur viku síðar, 29. júlí. í undanúrslitum hjá körlunum mætast Keflavík og KR á Suður- nesjum og Fram og Grindavík á Laugardalsvelli. Það er því enn mögulegt að sömu lið mætist í úr- slitum í ár og í fyrra, KR og Grindavík. Leikirnir verða leiknir mánudaginn 31. júlí. Golf: Meistaramót í Svarfaðardal Meistaramót Golfklúbbsins Hamars á Dalvík stendur yfír þessa dagana á Arnarholtsvelli. Mótið hófst á miðvikudag og stendur fram á laugardag. Keppt er í 1. og 2. flokki karla og kvenna og unglingaflokki og eru 28 þátt- takendur skráðir til leiks. í gær og í dag hófst keppnin kl. 17.30 en um helgina byrja kylfing- arnir að slá kl. 9.30 og fyrir þá sem vilja fylgjast með þegar síð- ustu kylfingar klára mótið er best að koma á milli 13.00 og 15.00. Glaðasólskin hefur verið í Svarf- aðardal fyrstu keppnisdagana og fuglarnir syngja glatt undir skrafí í leikmönnum og hvini kúlnanna. Það er því tilvalið að líta við og berja kylfingana augum enda mikil uppsveifla í golfinu í Svarfaðardal.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.