Dagur - 14.07.1995, Blaðsíða 16

Dagur - 14.07.1995, Blaðsíða 16
ijjlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll lllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Akureyri, föstudagur 14. júlí 1995 Tónar hafsins í Smiðjunni ásamt ljúffengum og nýstárlegum eftirréttum GuÖjón Pálsson spilar fyrir matargesti n1llllltltllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllllltlllllllllllllltltll!lllllllllllllllllllltllllllllllllltllllllllllllMllllllllllNllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllllllltll!llllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllf|ll||]||||ll||||||||||||||||||||||||||t||||||||||||||||||||| Félagar úr Hestamannafélaginu Létti: Fara ríðandi um Norðausturland Það var ekki hægt að kvarta yfir veðurblíðunni sem þeir félagar fengu við upphaf ferðarinnar og vonandi verður framhald á því. Mynd: B.G. Igær hófu nokkrir félagar Hestamannafélagsins Léttis ásamt fjölskyldum sínum níu daga ferð á hestum. Undirbún- ingur hefur staðið yfir í marga mánuði því það er að mörgu að hyggja, svo sem gistiaðstöðu, haga fyrir hross og svo framveg- is. Gestastofa formlega opnuð í skólanum í Reykjahlíð: Lýsir jarðfræði og náttúru sveitarinnar Undanfarin sumur hefur Nátt- úruverndarráð starfrækt svokallaða gestastofu fyrir ferða- menn í Mývatnssveit. í sumar varð sú breyting að gerður var 10 ára samningur við Skútstaða- hrepp um afnot af skólahúsinu í Reykjahlíð og á sama stað rekur hreppurinn upplýsingamiðstöð fyrir ferðamann. I gestastofunni eru margskonar upplýsingar í myndum og máli um náttúru Mývatns. í dag mun Guð- mundur Bjamason, umhverfisráð- herra, mæta í Mývatnssveit og opna gestastofuna formlega. I gestastofunni geta ferðamenn fræðst um öll helstu máttúrufyrir- bæri við Mývatn og um jarðfræði svæðisins, t.d. hvemig vatnið er myndað, landrekið og hvemig sveitin er staðsett á Mið-Atlants- Hrísey: Minna um ferða- menn en oft áður Ekki hefur verið mikið um ferðamenn í Hrísey í sumar samanborið við fyrri sumur og er fækkunin milli ára töluverð. Smári Thorarensen, skipstjóri á Sævari, sem siglir milli Arskógss- ands og Hríseyjar segir að í júní í ár hafi verið um 30-40% færri ferða- menn en á sama tíma í fyrra. „Þetta hefur verið mjög gott um helgar en dettur niður virka daga. Þetta er þó eitthvað að glæðast, það hefur verið mikið af hópum núna undanfarið og Islendingamir virðast eitthvað vera að vakna til lífsins. Síðasta helgi var nokkuð góð en þá fluttum við um 500 manns.“ Aðspurður um hvort það væm frekar erlendir eöa innlendir ferða- menn sem sæktu eyjuna heim sagði Smári að mest bæri á Islendingum í lausatraffíkinni, en hópamir saman- stæðu mest af útlendingum þó svo alltaf væri eitthvað um fyrirtækja- hópa. „Ég hef það svona á tilfinning- unni að landsmenn séu alltaf að fara seinna og seinna í frí, það er minnsta kosti reynsla okkar hér sem emm búin að standa í þessu í tíu ár. Agúst er reyndar orðinn góður og sá ferðamannastraumur sem áður fyrr var í júní virðist vera að færast yfir á ágúst,“ sagði Smári Thoraren- sen. GH hafshryggnum. Einnig er sagt frá lífríki vatnsins í myndrænu formi bæói á íslensku og ensku. Þá liggja frammi upplýsingar um ferðaþjón- ustu í sveitinni. Er þetta aðallega gert til þess að ferðamenn sem heimsækja gestastofuna geti betur áttaó sig á náttúm og lífríki vatns- ins. Ahersla er síóan lögð á aö þeir fari sjálfir og skoði sveitina en fái þama undirstöðuna hvemig þeir eiga að skoða hana. Náttúruvemd- arráð setti upp svipaða gestastofu við Gullfoss fyrir nokkru, en hún er öll minni í sniðum. Reynt er að hafa sýninguna sem líflegasta. Þama er t.d. stórt ker með kúluskít, sem er einkennis- planta í Syðriflóa og líka smásjár, þar sem fólk getur séð smærri plöntur og þömnga. Fólk sem ferö- ast á eigin vegum, bæði útlendingar og Islendingar, er duglegast að líta við en rútur hafa hins vegar lítió látið sjá sig til þessa. Með aukinni kynningu vonast menn hins vegar til að ná til sem allra flestra, en enginn vafa leikur á að fólk getur haft vemlegt gagn af að heimsækja gestastofuna áður en sveitin er skoðuð. HA Stjórnunarálma Glerárskóla: Samið við Hymu hf. VEÐRIÐ I dag verður ríkjandi aust- læg átt og þurrviðri um allt land og hitastig 11 til 17 stig, hlýjast vestanlands, og þannig veður helst fram á sunnudag. Þá er sæluvist í faðmi sólar lokið í bili, því spáð er þokusúld með noró- urströndinni og jafnvel rign- ingu eða súld sums staðar á Norðurlandi fram eftir næstu viku. Byggingadeild Akureyrarbæj- ar hefur yfirfarið þau tilboð sem bárust í byggingu stjórnun- arálmu við Glerárskóla og reynd- usr þau öll reikningslega rétt. Lægsta tiiboðió var frá Hymu hf. á Akureyri, kr. 49.882.63, sem er 86,57% af kostnaðaráætlun og verður á næstu dögum gengið til samninga við Hymu hf. á gmnd- velli þess. Gert er ráð fyrir að verkið geti hafist strax í næstu viku en verklok em í maímánuði 1996 en um er að ræða fullnaðarfrágang að utan og á jarðhæð. Stjómunarálman verður 450fermetraraðgmnnfleti. GG Loðnuveiðin mjög dauf: 50 til 70 tonn í kasti Loðnuaflinn var í gær orðinn 69 þúsund tonn en þá var afl- inn fremur tregur og bátarnir að fá frá 50 til 70 tonn í kasti á Kol- beinseyjarsvæðinu. Krossanes- verksmiðjan hefur tekið á móti 3.530 tonnum en síðasta löndun var þar sl. mánudag er Sigurður VE landaði 1.330 tonnum. Til Vopnafjarðar höföu borist 3.200 tonn, til Þórshafnar 7.030 tonn, til Raufarhafnar 8.500 tonn, til Ólafsfjarðar 1.180 tonn og til Siglufjarðar 14.300 tonn, sem jafnframt er hæsta löndunarhöfn landsins. GG Ferðir sem þessar krefjast mik- illar og góðrar þjálfunar bæði hesta og manna vegna mikils álags. A Króksstöðum hittu Ijós- myndari og blaðamaður Dags þá félaga að máli og hafði Jón Ólafur Sigfússon fyrir þeim orð. „Nú í dag (gær innsk. blaðamanns) för- um við yfir í Sörlastaði og gistum þar eina nótt, síðan verður haldið upp Hellugnúpsskarð, yfir Vallna- fjall og í Stóruvelli, Bárðardal. Næsti náttstaður okkar er á Skútu- stöðum í Mývatnssveit. Þaðan er haldið austur frá Garði og gist að Hlíðarhaga við Eilifsvötn. A fjóröa degi verður farið gegnum þjóðgarðinn við Jökulsárgljúfur og niður að bæ sem heitir Undir- veggur. Þar verður stoppað í tvo daga og bæói menn og hestar hvíl- ast. Frá Undirvegg verður síðan haldið að Þeistareykjum þar sem gist verður eina nótt og farið það- an að Grend í Aðaldal þar sem einnig verður gist eina nótt. Dag- inn eftir verður haldið í vesturátt, upp hjá Mýlaugsstöðum og síðan suður meó Skjálfandafljóti að vestan í gegnum Fellsskóg að Fosshóli sem verður okkar síðasti náttstaður. Frá Fosshóli verður svo Ioks haldið heim um Ljósa- vatnsskarð og yfir Vaðlaheiði.“ GH Hið nýja íþróttahús er áfast sundlaugarbyggingunni. Mynd: óþh. Nýtt íþróttahús í Varmahlíð: Líklega í notkun íhaust Til stendur að taka nýtt íþróttahús í notkun í Varmahlíð í haust. Húsið ætti að verða mikil lyftistöng fyrir íþróttir á svæðinu því ekkert íþróttahús er nú í framhéraði Skagafjarðar og fer t.d. leikfimi- kennsla fram í félagsheimilinu að Miðgarði. Það eru átta hreppar sem standa að byggingu íþróttahússins. Þeir eru: Skarðshreppur, Staóar- hreppur, Seyluhreppur, Lýtings- staðahreppur, Akrahreppur, Auð- víkurhreppur, Hólahreppur og Fljótahreppur en þessir hreppar standa jafnframt að rekstri skólans í Varmahlíð. Ingimar Ingimarsson, rekstrar- stjóri skólans í Varmahlíð, segir að framkvæmdir hafi gengið ágætlega og gert sé ráð fyrir að nýja húsió verið tekið í notkun í haust. Það er Trésmiðjan Borg á Sauðárkróki sem að sér um bygg- inguna og þeir eiga aó skila af sér í lok ágúst. Ingimar segir að nýja húsió breyti miklu fyrir svæðið. „Þama verður fyrsta flokks aðstaða en hún var mjög léleg áður. Það er verið að horfa á það líka að nýt- ingin verði ekki bara í tengslum við skólann heldur efli þetta íþróttir og heilsurækt á svæðinu. Þar að auki vitum við að á Sauðár- króki er meiri eftirspurn eftir íþróttahúsunum þar en hægt er að sinna og því ekki ólíklegt að það skili sér eitthvað hingað fram í Varmahlíð. Þannig að viö gerum ráð fyrir að það verði góð nýting á þessu húsi.“ AI Allt fyrir garðinn í Perlunni við 0KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.