Dagur - 03.08.1995, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 3. ágúst 1995
FRETTIR
SvefnpoUar frá kl*. 1.596,-
GrillUol 4,5 Ug kr. 235,-
DisUar 50 stU. kf. 238,-
Glös 25 stU. kr. 142,-
Einnota grill ltr.198,-
Eldhúsrúllur 4 stU. kr. 158,-
Nemli uppþvottalögur ultra 500 ml. kr. 94,-
PH sjampó+tannbursti kr. 298,-
Ajax ultra shine 250 ml. kr. 158,-
Saxbauti 1/1 dós kr. 585,-
LambaUótilettur Uryddaðar kr. 599,- k$
NautagrillsteiU kr. 998,- k9
Hversdags ís 1 L. kr. 148,-
Ananas sneiðar 850 gr. kr. 98,-
Aspargus hv. bitar 425 gr. Itr. 62,-
Bláber 425 gr. kr. 98,-
Mc'Vities súUUulaðiUex 200 gr. kr. 76,-
Libby's tómatsósa 567 gr. kr. 88,-
Fanta 2 L. kr. 119,-
Lindu súUUulaðibitar 250 gr. kr. 89,-
Nói Súper Pipp 120 gr. kr. 119,-
Chili hnetur 200 gr. kr. 198,-
SUugga LaUUrísborðar/reimar 400 gr. kr. 189,-
Risa Ópal 3 pU. kr. 129,-
-JN" ;
;M3SÍÍtSÍ5
IIÉÉothS
'ftSISS
Útsala -
- Utsala
Allt að 69% ahláttur við kassa.
Þú sparar 15-25% í
ailQDEi
Þegar þú verslar ódyrt!
.
Áætlun um löndun Rússafisks
á Dalvík gekk ekki eftir:
Frystihúsi KEA lokað
kringum versiunar-
Frystihus KEA á Dalvík átti von
á frosnum físki til vinnslu í þess-
ari viku af rússnesku skipi sem
fleiri norðlensk frystihús áttu
einnig að njóta góðs af. Frysti-
hús KEA á Dalvík hefur að und-
anförnu í þrígang fengið Rússa-
físk með milligöngu Fiskafurða
hf. í Reykjavík, en farmurinn
hefur m.a. farið til Húsavíkur og
Þórshafnar auk Dalvíkur.
Farmurinn sem von var á í
þessari viku var þó fenginn með
milligöngu annars aðila en skipið
átti upphafiega að koma í byrjun
júlímánaðar. Skipið landar aflan-
um líklega í Danmörku og er
ástæða þess talin vera sú að skipið
þarf að vera í Eistlandi innan
fimm daga, væntanlega til endur-
nýjunar á haffærisskírteini. Kann-
að hefur verið hvort mögulegt
væri að kaupa Rússaþorsk sem
landað væri í Færeyjum en flutn-
ingskostnaður reyndist of mikill.
Síðasti vinnudagur hjá Frysti-
húsi KEA fyrir verslunarmanna-
helgi var í gær og vinna hefst ekki
aftur fyrr en fimmtudaginn 10.
ágúst. Þessi háttur hefur verið
hafður á undanfarin ár og öllum
starfsmönnum Iíkað vel að fá
verslunarmannahelgina lengda í
báða enda.
Gunnar Aðabjörnsson frysti-
hússtjóri segir að kannski væri
best að stöðva vinnsluna alveg um
tíma því botnfiskvinnslan í landi
sé rekin í dag með um 10% tapi. í
öllu falli sé rétt að bíða ákvörðun-
ar stjórnvalda. Gunnar segir
rækjuvinnsluna vera rekna á núll-
inu og sama sé með togaraútgerð-
ina en í heildina skili sjávarútveg-
urinn hvorki hagnaði né tapi að
meðtöldum loðnubræðslum. GG
mannahelgina
Vestur-Húnavatnssýsla:
Ástand túna slæmt
Ástand túna víðast hvar í austur-
Húnavatnsýslu er mjög slæmt en
mikið er um kal og spretta lítil.
Að sögn Gunnars Þórarinsson-
ar, ráðunauts hjá Búnaðarsambandi
V-Húnvetninga, er ástandið mjög
svipað víðast hvar um sýsluna en
þó er ástandið skást í Víðidal.
„Ég held að það séu fyrst og
fremst tvær ástæður fyrir þessu.
Annarsvegar að það hafi verið
komin sveli fyrir áramót áður en
snjórinn kom og hafi legið undir
snjónum allan tímann. Hinsvegar
hafí kuldar og næturfrost í vor þeg-
ar snjó fór að taka veitt náðarhögg-
ið víða. Þetta er víða svona grisjun
en ekki stórir kalblettir sem gerir
það að verkum að í slætti verður
uppskeran mun rýrari,“ sagði
Gunnar, aðspurður um ástæður
þessa mikla kals. Hann sagði enn-
fremur að sprettan hefði verið nær
engin á tímabili í júlí en síðustu
daga hafi komið mikill kippur.
Þrátt fyrir þennan kipp væri útséð
með það að heyfengur yrði mun
minni í ár en undanfarin ár.
Aðspurður um hvort útlit væri
fyrir að menn yrðu uppiskroppa
með hey í vetur sagði Gunnar:
„Staðan verður náttúrulega ekki
góð í haust en almennt séð held ég
að það verði nú engin veruleg
vandræði. Hinsvegar ræðst það
líka af vetrinum og hvað hrossin,
sérstaklega, þurfa að taka til sín í
vetur. Það verða allir blettir sem
hér er hægt að slá nýttir en menn
eru ekki ennþá famir að fara út fyr-
ir héraðið." GH
Varðskip verði
sent i Smuguna
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, hyggst leggja til á
fundi ríkisstjórnarinnar á föstu-
dag, að varðskip verði sent í
Smuguna í Barentshafí. Verði
tillagan samþykkt, verður varð-
skipið Óðinn væntanlega sent af
stað fyrr en seinna.
Fjölmörg íslensk skip eru við
veiðar í Smugunni um þessar
mundir og er talið að þar séu í
kringum 600 íslenskir sjómenn
við störf. Varðskipið Óðinn var
nokkrar vikur í Smugunni í fyrra-
sumar og var læknir um borð.
Hann hafði í nógu að snúast allan
þann tíma sem skipið var á svæð-
inu, enda gekk oft mikið á um
borð í íslensku togurunum.
KK
Siglufjörður:
Hagtak hf. með
lægsta tilboðið
I gær voru opnuð tilboð í rekstur
stálþils vegna nýrrar löndunar-
hafnar á Siglufírði. Eftirfarandi
tilboð bárust: Byggingarfélagið
Stapar 16.815.393 kr., Sigur-
björn Pálsson 16.989.145 kr.,
Einar Kristbjörnsson 17.962.196
kr., Hagtak hf. 12.760.979 kr. og
Völur hf. 15.555.503 kr.
Kostnaðaráætlun Hafnarstjórn-
ar Siglufjarðarbæjar hljóðaði uppá
18.998.196 kr. og það er Hagtak
hf. sem á lægsta tilboðið
12.760.979 kr. sem er um 67.2%
af kostnaðaráætlun. Ekki hefur
enn verið tekin ákvörðun um
hvaða tilboði verður tekið.
GH