Dagur - 03.08.1995, Page 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 3. ágúst 1995
LEIÐARI----------------------
Falinn fjársjóður
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285),
SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RIKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
íslendingar vísa gjarnan til þess á hátíðar- og
tyllidögum hversu mikinn auð þjóðin á þar sem
eru sögurnar og menning fyrri alda. Ör og góð
uppbygging safna hér á landi ber vott um þær
taugar sem fólk ber til verðmæta sem varðveist
hafa frá fyrri öldum og skemmst er að minnast
viðbragðanna í þjóðfélaginu við umræðunni um
Miðhúsasilfrið svokallaða. Allt það mál sýndi
skýrt og greinilega að íslendingum eru forn-
minjar ofarlega í huga.
Þó verður að viðurkennast að í þjóðfólags-
breytingum á undangengnum áratugum hafa
minjar frá fyrri öldum orðið fyrir barðinu á fram-
kvæmdagleðinni, minjar sem gætu verið þakk-
lát búbót í ferðaþjónustuuppbyggingunni í dag.
í fyrri viku var í Degi rætt við fornleifafræöinga
sem vinna nú að viðamikilli fornleifaskráningu
á Eyjafjarðarsvæðinu. í viðtalinu bentu þeir á
að íslendingar eiga langt í land að halda utan
um upplýsingar um fornleifar. „Fornleifavarsla
og umhverfisvernd eru mjög skyld hugtök og
við finnum fyrir viðhorfsbreytingu hjá fólki hór
á landi gagnvart fornleifum. Það er mjög aðkall-
andi að kortleggja minjar hér á landi því í þess-
um efnum erum við mjög aftarlega miðað við
önnur lönd. í nágrannalöndum okkar eru menn
búnir að þessu fyrir löngu á meðan við erum
komin í þá stöðu að stjórnvöld og framkvæmda-
aðilar kalla á upplýsingar en við höfum ekki
undan að útbúa þær fyrir þessa aðila. “
Það veit á gott að menn eru að vakna til vit-
undar um að rústir og sýnilegar fornminjar þarf
að skrá og varðveita þannig upplýsingar um
byggðina á fyrri öldum. Til þess þarf vilja og
fjármagn en ávöxtun þess fjár getur orðið góð
og skilað sér fyrr en menn grunar. „Þegar einu
sinni er búið að moka yfir fornleifar," sögðu
fornleifafræðingarnir í viðtalinu við Dag, „þá
verður þeim ekki bjargað en margir slíkir staðir
geta einmitt hentað sem ferðamannastaðir og
þar með skapað tekjumöguleika. Þá er ónefnt
sögu- og menningarlegt gildi fornleifanna. “ Til
mikils getur því verið að vinna að leggja fé í
þetta starf.
Kjarnaskógur:
I'jöLskylJu'
tjaldstæði
um helgina
Um verslunannannahelgina
mun Skógræktarfélag Eyfirð-
inga reka fjölskyldutjaldstæði í
Kjamaskógi í samvinnu við
skátafélagið Klakk og tjald-
svæði Akureyrarbæjar.
Tjaldstæðin verða opnuð í
dag og verða opin til þriðju-
dagsins 8. ágúst.
Af þessu tilefni verða bíla-
stæði við Kjamakot lokuð allri
umferð. Einnig verður aksturs-
leið að vestasta bílastæði lokuð
öðrum en gestum tjaldsvæðis-
ins. Útivistarfólki er bent á að
bílastæði við aðalveg verða op-
in.
Strætisvagnar Akureyrar
verða með fastar ferðir til og
ffá Kjamaskógi föstudag til
mánudags á klukkutímafresti.
Föstudag frá kl. 21.00-
04.30, laugardag frá kl. 13.30-
04.30, sunnudag frá kl. 13.30-
04.30 og mánudag frá kl.
10.30-15.30.
(Fréttatilkynning).
Minjasafnskirkjan
á Akureyri:
Söngvökur
Þórarins
og Rósu á
snældu
- síðustu vökurnar
í næstu viku
Út er komin snælda með lög-
um sem flutt eru á söngvöku f
Minjasafnskirkjunni. Flytjend-
ur eru þau Rósa Kristín Bald-
ursdóttir og Þórarinn Hjartar-
son en á snældunni flytja þau
úrval laga af söngvökunni.
Snældan er seld í Minjasafninu
og kostar kr. 1000
Söngvökur eru haldnar á
þriðjudags- og fimmtutíags-
kvöldum í Minjasafnskirkj-
unni. Vökunum fer þó fækk-
andi og síðasta kvöldvakan
verður á fimmtudag í næstu
viku. Því em að verða síðustu
forvöð að heyra í þeim Rósu
Kristínu og Þórarni í sumar en
Rósa Kristín er á förum til
Finnlands með Tjarnarkvartett-
inum, þar sem þau koma fram
á leiklistarhátíð í Tampere.
j Erlendir ferðamenn:
Á fjórtánda hundrað á
hverjum degi júlímánaðar
- gjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar gætu verið fjórir milljarðar í júlímánuði einum
Þjóðverjar eru fjölmennastir erlendra gesta á þessu ári.
lands, flestir Þjóðverjar.
I júlímánuði komu 41.600 er-
lendir ferðamenn til landsins, sem
er um 3,5% fleiri en í sama mán-
uði í fyrra. Flestir komu frá
Þýskalandi eða tæplega 11 þúsund
en frá Frakklandi, Bandaríkjunum,
Danmörku og Bretlandi komu á
bilinu 2900 til 4700 gestir.
Miðað við tölurnar fyrir júlí-
mánuð hafa komið að meðaltali
1340 erlendir ferðamenn á degi
hverjum en þá eru ótaldir þeir
fjölmörgu sem koma með
skemmtiferðaskipum og hafa hér
viðdvöl.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ferðamálaráði liggur ekki fyrir
hve lengi fólk dvelur að meðaltali
á íslandi né um gjaldeyristekjur.
Sé á hinn bóginn reiknað út frá
meðaltekjum af hverjum ferða-
manni á síðasta ári lætur nærri að
gjaldeyristekjurnar af ferðamönn-
um í júlímánuði einum saman
nemi um 4 milliörðum króna.
JÓH
Um 4% fleiri erlendir ferðamenn
lögðu leið sína hingað til lands á
fyrstu sjö mánuðum ársins, sam-
anborið við sömu mánuði í fyrra.
Alls komu á þessu tímabili tæp-
lega 118 þúsund ferðamenn til Is-
Fimmtudaginn 27. júlí var efnt til
djasskvölds í Deiglunni í Grófar-
gili á vegum Klúbbs Kaffihússins
Karólínu og Listasumars ’95. Að
þessu sinni mættu fjórir tónlistar-
menn. Þeir voru Stefán S. Stefáns-
son, saxófónleikari, Hilmar Jens-
son, gítarleikari, Gunnar Hrafns-
son, bassaleikari, og Einar Valur
Scheving, trommuleikari. Allir
hafa þeir verulegan feril að baki í
tónlistinni, þó mislangur sé. Þeir
skipa kvartett sem ber heitið Kvar-
tett Stefáns S. Stefánssonar, en þeir
félagar hafa leikið saman um tals-
verða hríð og munu gefa út
geislaplötu innan tíðar undir heit-
inu I þorpi drottningarenglanna.
Það var greinilegt á tónleikun-
um að fjórmenningamir í Kvartett
Stefáns S. Stefánssonar hafa leikið
það lengi saman að þeir hafa náð
góðu sambandi hver við annan.
Frasar, áherslur og túlkunaratriði
vom tíðast töm og markviss. Þetta
setti þéttan svip á leik þeirra fé-
laga, sem iðulega vill skorta í leik
djassflokka. Tíminn til þess að
menn nái hver til annars er iðulega
of knappur. Hljómsveitarmennirnir
koma gjaman saman án ýkja mik-
ils undirbúnings, æfa kvöldstund
eða svo og síðan eru haldnir tón-
leikar. Slík vinnubrögð gefa al-
mennt ekki fullnægjandi árangur
og sjaldan það, sem fæst með nán-
um kynnum af þeim, sem leikið er
með.
Við bætist það í Kvartett Stef-
áns S. Stefánssonar, að hann er vel
skipaður. Höfuðpaurinn er lipur og
skemmtilegur saxófónleikari. Hann
hefur öruggan og breiðan tón sem
hann hefur lag á að vefja um lag-
línu og víkka hana. Þetta átti við til
dæmis í lögunum High Walk, sem
verður á væntanlegri geislaplötu
og er eftir Stefán, Oleo, þar sem
Stefán fór á kostum, I Remember
April, þar sem sveiflan var í stór-
fínu lagi, Round Midnight og víð-
ar.
Gítarleikarinn, Hilmar Jensson,
hefur bjartan tón, sem hann á ugg-
laust eftir að móta enn frekar, en
hann er enn ungur að ámm. Fæmi
hans í ýmsum tæknilegum atriðum
er mjög mikil og hugmyndaaugði
hans þegar verulega þroskuð og
eftirtektarverð. Hann hefur gott lag
TONLIST
HAUKUR ÁCÚSTSSON
SKRIFAR
á því að leika sér með litlar strófur
í gítarsólóum sínum og vinna þær
lipurlega hverja af annarri. Hilmar
fór víða á kostum í leik sínum svo
sem í lögunum Hymn for her, þar
sem hann beitti fallegum brigðum í
Iokin, Round Midnight, þar sem
Hilmar brá skemmtilega á leik í
sólói sínu, og Lífdagatali, sem
verður á geislaplötunni, þar sem
Ililmar sýndi getu sína til melód-
ískra tilþrifa í sólóleik.
Gunnar Hrafnsson lagði al-
mennt góða bassalínu og hana iðu-
lega talsvert fjölbreytta. Nokkuð
skortir þó á það á stundum, að
bassinn sveiflist í undirleik, en í
sólóum gerði Gunnar verulega vel
í nokkur skipti. Svo var í samleik
með gítamum í lögunum Nostalgia
in Times Square, þar sem hann fór
á kostum í sólói og kímilegum til-
þrifum, og Loðmundarfirði, þar
sem hann átti drjúgan hlut í seið
lagsins. Einnig má nefna lagið
Round Midnight, þar sem Gunnar
spann fallega í laglínubundnu
sólói.
Trommuleikarinn Einar Valur
Scheving stóð sig með prýði. Leik-
ur hans á slagverkið var langtíðast
innlifaður og mjög í samræmi við
ferð annarra hljóðfæra. Nær aldrei
var Einar Valur yfirþyrmandi há-
vær í leik sínum, heldur studdi
jafnan við af natni og mikilli fjöl-
breytni. Einar Valur tók nokkur
stutt sóló og sýndi í þeim að hann
hefur verulega getu á því sviði.
Tónlistarmennirnir fjórir gáfu
áheyrendum, sem fyiltu Deigluna,
margt eyrnakonfektið að taka með
sér út í nóttina í tónleikalok. Þeir
hafa sveifluna á valdi sínu og
verða kærkomnir gestir þá þeir
koma aftur.