Dagur - 03.08.1995, Síða 12

Dagur - 03.08.1995, Síða 12
Akureyri, fímmtudagur 3. ágúst 1995 aca Fjölskyldttvernd er ný þjónusta Tryggingar hf. Hún feíur í sér miklnn svefgjanleíka fVrir hvem og einn tíl að sníða tryggingarpakkann að sínum þörfum. ...eíns og þú vílt hafa hana TRYGGING HF Hofsbót 4 • Símí 462 1844 15% spenna ekki bílbeltin - eru í margfalt meiri hættu en aörir í umferðinni Jón Arnar Magnússon og þjálfari hans, Gísli Sigurðsson, cru hcr frcmstir á myndinni cn að baki þcim standa full- trúar styrktaraðila hans. Frá vinstri: Júlíus Hafstein, formaður Ólympíunefndar íslands, Snorri Björn Sigurðsson, bæjarstjóri Sauðárkróks, Knútur Óskarsson, framkvæmdastjóri FRI, Einar Einarsson, forstjóri Steinullarverk- smiðjunnar hf, hórólfur Gíslason, Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, Gcstur Þorsteinsson, bankastjóri Bún- aðarbanka íslands á Sauðárkróki, Einar Svansson, forstjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings hf. og Stcinunn Hjartardótt- ir, forseti bæjarstjórnar. Mynd: sh Jón Arnar styrktur til Ólympíufarar - fær 6,7 milljónir til undirbúnings næsta árið Igær var undirritað á Sauðár- króki samkomulag nokkurra aðila um að styrkja frjálsíþrótta- manninn Jón Arnar Magnússon, í Ungmennafélaginu Tindastóli á Sauðárkróki, til undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í Atlanta í Bandaríkjunum næsta sumar. Jón Arnar fær samtals um 6,7 milljónir króna og veitti hann fyrstu greiðslu viðtöku í gær. Það eru Ólympíunefnd Islands, Frjálsíþróttasamband Islands, Sauðárkróksbær, Búnaðarbanki Islands Sauðárkróki, Fiskiðjan Skafgfirðingur hf., Steinullarverk- smiðjan hf. og Kaupfélag Skag- firðinga sem munu styrkja Jón Amar og má segja að þetta sé tímamótasamningur í íþróttasögu íslands. „Þctta ætti að gera honum kleift að stunda sína íþrótt og ná sem bestum árangri með það fyrir augum að hann verði í toppformi í Atlanta á næsta ári. Ég man ekki til þess að áður hafi verið staðið að svona verkefni sem hér er gert. Allir leggja eitthvað til þannig að Jón Amar og hans þjálfari geti stundað íþróttina á þeim stað sem heppilegust er á hverjum tíma,“ sagði Júlíus Hafstcin, formaður Ólympíunefndar Islands, vió þetta tækifæri. „Nú get ég einbeitt mér að æf- ingunum. Þetta verður mín vinna og má segja að ég sé orðinn at- vinnumaður,“ sagði Jón Arnar eft- ir að hafa veitt fyrstu krónunum viðtöku. Jón Arnar hefur skipað sér á pall með fremstu tugþrautar- mönnum heims og miklar vonir eru bundnar við hann á Heims- mcistaramótinu sem hefst í Gauta- borg í Svíþjóð um helgina. Þar mun Jón Amar spreyta sig gegn sterkustu tugþrautarmönnum heims en þessi samningur gcrir honum kleift aö æfa og keppa á sama grundvelli og aðrir bestu tugþrautarmenn veraldar. „Ég veit ckki til þess að neinn af þessum sem ég er að berjast við hafi þurft að vinna með sínum æfingum. Með þessum styrk tel ég mig geta gert svipaða hluti og þeir eru að gera. Það kemur síðan í Ijós hvemig ég stend mig,“ sagði Jón Arnar. Ólympíuleikamir í Atlanta fara fram frá 19. júlí til 4. ágúst á næsta ári og gildir samningurinn viö Jón Amar til loka ágúst 1996. SH Aundanförnum mánuðum hafa orðið allmörg alvarleg slys í umferðinni þar sem fólk hefur kastast út úr bílum með alvarlegum afleiðingum. í þeim tilvikum hefði notkun bflbelta getað breytt miklu. Umferðaráð hvetur ökumenn og farþega í bílum til að nýta sér þennan ein- falda og áhrifaríka öryggisbún- að sem bflbeltin eru. I fréttatilkynningu frá Um- ferðaráði kernur fram að tæplega 15% ökumanna voru ekki meö bílbelti í umferðarkönnun sem lögregla geröi fyrir skömmu um allt land. Líkurnar á að þeir sem ekki spenna beltin slasist í um- ferðarslysum eru mjög miklar en um 38% þeirra sem slasast í slys- um nota ekki bílbelti. Einnig er mælanlegt að þeir sem ekki nota bílbelti hættir miklu meira til aö lenda í slysum og óhöppum og helmingur ökumanna sem lenda í óhöppum eru ekki með belti þó svo að yfir heildina séu beltislaus- ir ökumenn mun minna hlutfall, eða 15% eins og fyrr segir. Sé hugað að bílbeltanotkun far- þega í framsæti kemur í ljós að hún er rúmlega 88%. Tæp 70% fullorðinna farþcga í aftursæti hafa beltin spennt sem er hærra hlutfall en áður hefur mælst. 90% barna sem sátu í aftursæti voru í belti, í bílstól eða á bílpúða og af þeim 80 bömum sem sátu í fram- sæti bíla þegar könnunin var gerð reyndust 7 vera laus eða 8,75%. Aberandi er að bílbeltanotkun er mun minni í þéttbýli utan höf- uðborgarsvæðisins en á höfuð- borgarsvæðinu og í dreifbýli. Þétt- býlisstaðir á Norðurlandi komu þó nokkuð vel út í könnuninni miðað við meðaltal. A Blönduósi voru 96.7% ökumanna og 76.7% far- Heimsmeistaramót íslenskra hesta í Sviss: Baldvin Ari langefstur í flokki sjö vetra og eldri K VEÐRIÐ Norðlendingar þurfa ekki að kvarta yfir kulda í dag. Á Noróurlandi vestra er spáð suðvestan golu eða kalda, smá skúrum og 12-15 stiga hita. Á Norðurlandi eystra verður nokkru hlýrra, eóa 15-22 stig og skýjað með köflum en helst sennilega þurrt. Það er því vissara að hafa stuttbuxurnar hand- hægar. eppni á heimsmeistaramóti .íslenskra kynbótahrossa hófst í Winterthur í Sviss sl. þriðjudag. Islensku keppendunum gckk vcl þennan fyrsta dag mótsins og unnu til tveggja gullverðlauna. Baldvin Ari Guðlaugsson á Prúði sigraði í flokki eldri kynbóta- hrossa og Skafti Steinbjömsson í flokki yngri kynbótahrossa á Fána frá Hafsteinsstöðum. „Ég sýndi Prúð í eldri flokki stóðhesta og vann hann með mikl- um yfírburðum. Það var meirihátt- ar að fá fvrsta gullið hjá okkur Is- lendinguuum. Prúður fékk lang- hæstu hæfileikaeinkunn kynbóta- hrossa í flokknum, 8,60 fyrir hæfi- leika og 8,33 í aðaleinkunn en sá sem næstur kom var graðhestur frá þýskalandi með 7,80 í aðalein- kunn,“ sagði Baldvin Ari í samtali við blaðamann Dags. Aðspurður hvort hann væri ekki ánægður meó árangurinn sagði Baldvin: „Jú, maður cr al- veg í skýjunum, orðinn Akureyr- Baldvin Ari Guðlaugsson. armeistari, íslandsmeistari og heimsmeistari þannig að maður getur ekki kvartað yfir því.“ Baldvin sagði ennfremur að Prúður, sem er frá Neðra Ási, hafi vakið óskipta athygli, bæði meðal keppenda og áhorfenda á staðn- um. Öll aðstaða er til fyrirmyndar á mótsstað og veðrið leikur við mótsgesti. „Aðstæður eru alveg frábærar héma, það er búið að vera ofboðslega heitt að vísu, um og yfir 30 stiga hiti og sól en mót- svæóið er mjög flott og vellir góó- ir. Það er búist við 10.000 manns þannig að það er alveg troðið af áhorfendum.“ En hvaða áhrif skyldi þessi mikli hiti hafa á hrossin? „Við höfum þurft að passa þau alveg ofsalega vel, bæói með fóð- ur og eins að kæla þau reglulega með köldu vatni en ef maður er með öfluga og viljuga hesta eins og ég er meó þá er það auðveldara en ella. Það er töluverð vinna við að passa uppá hrossin, t.d. við að úóa þau og þvo með flugnavökva, hlutir sem maður þarf nú ekkert að vcra að bardúsa við heima.“ Á morgun tekur Baldvin svo þátt í opnum dómi og um helgina verður kynning á graðhestum og verðlaunaafhending. GH þega í framsæti í belti, á Akureyri voru 90.9% ökumanna spenntir og 92% farþega í framsæti og sam- svarandi tölur á Húsavík eru 94.9% og 95.8%. Fulltrúi Um- feróaráðs segir þó ástæðu til að hafa áhyggjur af minni þéttbýlis- stöðum á landinu en hér eru nefndir og nefnir sem dæmi að á Neskaupstaó hafi einungis 65% ökumanna verið með bílbeltin spennt. AI Beint flug frá Akureyri í haust Síðustu ár hafa Norðlendingar átt kost á að fara á haustin með beinu flugi frá Akureyri til borga í Evrópu og sama verður upp á teningnum í haust. Ferða- skrifstofan Úrval-Útsýn hefur þegar ákveðið að bjóða upp á beint flug til Glasgow/Edinborg- ar í Skotlandi og Ferðaskrifstof- an Samvinnuferðir-Landsýn verður með ferðir til Dublin á Ir- landi eins og í fyrra. Rannveig Ármannsdóttir hjá Úrval-Útsýn segir að farnar verði tvær ferðir til Edinborgar, 12.-15. október og 19.-22.október. Flogió verður til Glasgow á fimmtudegi og þaðan keyrt til Edinborgar þar sem hægt er að velja um gistingu á þremur hótelum. Verð er á bil- inu 26.140-28.140 krónur eftir því hvaða hótel er valió og er innifalið flug til Glasgow, akstur milli hótels og flugvallar, gisting í þrjár nætur með morgunverðarhlað- borði, íslensk fararstjóm og flug- vallaskattur. Ef greitt er með Visakorti er hægt að fá afslátt, mismikinn eftir því um hvers kon- ar kort er aó ræða. „I fyrra vorum við líka með ferð til Ámsterdam en ég veit ekki hvort við verðum með ferö þangað í haust, þetta er svona allt að skýrast þessa dag- ana.“ Samvinnuferðir-Landsýn áætl- ar ferðir frá Akureyri til Dublin. Fyrsta ferðin verður í fimm daga og verður flogið frá Akureyri 5. október en nánari upplýsingar um þær ferðir munu liggja fyrir fljót- lega. AI Allt fyrir garðinn í Perlunni við 0KAUPLAND Kaupangi v/Myrarveg, simi 23565

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.