Dagur - 04.08.1995, Blaðsíða 4

Dagur - 04.08.1995, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 4. ágúst 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SlMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285), SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir). LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 LE5ENDAHORNIÐ - LEIÐARI------------------------ Baríst fyrír bifreiðaeigendur Félag íslenskra bifeiðaeigenda kynnti í vik- unni samanburð á iðgjöldum bifreiðaeig- enda á íslandi og í nágrannalöndunum þar sem kemur fram hrópandi mismunur, ís- lenskum bifreiðaeigendum í óhag. Skýrsla FÍB birti sannarlega ekki ný tíðindi því fyrir nokkrum árum höfðu svipaðar tölur komið fram og samanburðurinn nú staðfestir að- eins fyrri tölur en segir um leið að engin breyting hefur orðið á þessum tíma. Spurn- ingin sem stendur upp á íslensk trygginga- félög nú er sú hvort verið geti að samkeppni milli þeirra sé ekki næg og sé svo mun það fyrr en síðar verða til þess að hörð sam- keppni við þau kemur erlendis frá. Sagan sem er að gerast á sviði olíufélaganna þar sem sterkt erlent fyrirtæki er að hasla sér völl á íslenskum markaði getur hæglega átt eftir að bírtast á tryggingasviöinu. Vandi íslenskra bifreiðaeigenda í gengum árin hefur kannski heíst verið sá að fyrir þá hefur ekki verið sterkur málsvari. í ljósi þess að hér er um að ræða þann útgjaldalið fjöl- skyldna og einstaklinga sem er stærstur í daglegum rekstri, þá er mikið hagsmunamál að spyrnt sé fast við fótum, bæði hvað varð- ar skattlagningu á bíla, bensínsverð og tryggingaverð. Þó íslendingar hafi tilhneíg- ingu til að líta á bíla sem stöðutákn og margir fjárfesti í bílum samkvæmt því þá er engu að síður stór hópur þjóðarinnar bund- inn mikilli notkun á fjölskyldubílnum og kostnaður við þann lið skiptir mjög miklu. Þetta á t.d. við um barnafjölskyldurnar og þykir kannski mörgum sem stakkur þeirra sé nógu þröngur fyrir. Félag íslenskra bifreiðaeigenda ýtti með skýrslu sinni af stað þarfri umræðu en tryggingarnar eru aðeins einn af mörgum liðum sem þarf að fara aö skoða í útgjalda- reikningum bifreiðaeigenda. Þar er af nógu að taka. Ein með öllu gefiur u.þ.b. 800 þúsund í aðra hönd „Ein með öllu“ skrifar. 1 síðustu viku fengu allir lands- menn eldri en 16 ára álagningar- seðilinn sinn. A vinnustað mínum sem er rík- isstofnun með starfsmenn á öllum aldri ríkti mikil eftirvænting eftir þessum seðlum. Flestir bjuggust við glaðningi frekar en hinu. Þar sem laun hjá ríkinu eru ekkert til að hrópa húrra yfir áttu því flestir von á barnabótaauka og/eða vaxtabótum. A föstudaginn var svo aðal um- ræðuefnið í vinnunni, innihald seðlanna hjá hinum ýmsu starfs- mönnum. Og þá kom hið furðulega í ljós. Ég sem er einstæð móðir með tvö börn kom verr út úr viðskiptavin- um mínum við ríkið en hann Jón sem vinnur með mér, en hann er giftur ágætis konu og eiga þau tvö böm. Hvernig stóð á þessu? Alltaf er talað um að við þessar einstæöu mæóur komum manna best út úr vióskiptum okkar vió ríkið. Við Jón erum samkvæmt jafn- réttislögum á sömu launum. Ars- laun okkar fyrir síóasta ár voru 1.105.290 kr„ af þeirri upphæð borgaði ég 178.726 kr. í skatta. Jón borgaði ekki neina skatta þar sem konan hans er heimavinnandi og hann nýtir persónuafslátt henn- ar ekki að fullu. Um 50.000 kr. var ónýttur á síóasta ári. Aætla mætti að þetta jafnaði sig út með hinum „gífurlegu" bamabótum sem einstæðir foreldr- ar fá. Jú, samanlagt fékk ég 178.824 kr. í barnabætur en Jón og frú 98.392 kr. Þama hafði ég 75.432 kr. betur en þau. Það vegur þó engan veginn upp á móti þeim 178.726 kr. sem ég greiði ríkinu í skatta. Og þá er komið að barnabóta- aukanum. Þar fæ ég samkvæmt álagningarseðli 132.461 kr. í bamabótaauka með mínum tveim bömum en Jón og frú 186.328 með sínum tveim. Samtals fékk ég því 127.461 kr. í plús út úr viðskiptum mínum við ríkið en Jón og frú 284.720 kr. Það skal þó tekið fram að í þessari tölu minni er ekki meö talið um 35.000 í mæðralaun sem ég fékk á síöasta ári aö frádregnum skatti. Ennfremur hefur vaxtabótum og mismuni þeirra hjá mér og þeim hjónum ekki verið bætt inn í dæmið. Ég get fengið aö hámarki 181.212 kr. í vaxtabætur en Jón og frú 233.015 kr., munurinn er um 28,5%. Ég hef nú hugsað málið vel. Ég hef komist aó því að ég er hinn besti kvenkostur. Auk þess að mér fylgi tvö yndisleg böm, húsgögn, heimilistæki, íbúð, bíll, vídeó og ýmsir góðir eiginleikar, mun ég einnig sem heimavinnandi hús- móðir koma meó um 800 þúsund krónur á ári í hcimilisbókhaldið í formi bamabóta, barnabótaauka; persónuafsláttar og meðlaga. I þessari upphæð eru þó ekki vaxta- bætur sem mér fylgja. Ég hef ákveðió aó kynna þetta fyrir honum Sigga héma. Hann er glöggur á peninga, hann gæti meira að segja örugglega reiknað út hvaða áhrif ég gæti haft á vaxtabætumar hans. Óþægindatrjágreimr Akureyringur hringdi. „í grónum hvcrfum í bænum háttar víða svo til að stór tré eru alveg út við gangstéttir og það hefur í för meó sér að trjágrein- amar skaga langt út á gangstétt- ina, þannig að oft á tiðum er crf- iðleikum bundið að komast leið- ar sinnar. Ég hef nú ekki látið þetta fara í taugamar á mér en hins vegar veit ég til þess að flestum líkar þetta ekki og á það hefur verið bcnt aó húseigcndum beri að klippa greinar trjáa sem skaga út fyrir garða. Ég aflaði mér upp- lýsingar um þetta atriði og í ljös kom að í lóðarskilmálum Akur- eyrarbæjar er skýrt kveðið á um þetta. Þar segir: „Sú kvöð hvílir á lóðinni, að ekki má gróðursetja tré eða runna það nálægt lóðar- mörkum, að það geti valdið tjóni eða óþægindum á nágrannalóð- um eða vegfarendum, þar sem lóð veit að götu.“ Einstæðu móðurinni þótti litið koma út úr samskiptum sínum við ríkið. Eílífa lífíð Einar Ingvi Magnússon skrifar. Þegar ég var á ferð í strætisvagni fyrir skömmu, sem átti leið fram hjá sjúkrahúsi í höfuðborginni, vatt sér að mér ung kona, sem sýnilega leið mikla sálarangist, og spurði mig að því hvort ég kviði fyrir að deyja. Þessi ókunnuga kona sagði fátt annað, en ég fékk samt ekki tækifæri til að segja við hana allt sem ég vildi, því hún var farin burt nánast á sama auga- bragði eitthvert út í mannþröng strætanna. Þó þessi unga kona eigi aldrei eftir aó lesa þessa grein mína, sem inniheldur að meginefni þau orð, sem ég vildi hafa sagt henni, veit ég að margir ala með sér kvíða í brjósti fyrir dauðanum, svo til þeirra beini ég þessum orðum mínum í þessu bréfi. Þegar ég heyri þennan kvíða hjá fólki, koma mér ætíð í hug orð Jesú Krists, Guóssonarins og frelsara mannkynsins, þegar hann sagði: „Hver sem trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja.“ (Jóh. 11:36) Ekki treysti ég mér til að skil- greina furður lífsins, þar sem kannski stærsta og mesta undrið er dauðinn sjálfur. En orðum frelsara míns trúi ég statt og stöðugt í full- komnu æðruleysi gagnvart dauð- anum, að sá sem trúir á hann mun aldrei að eilífu deyja. Ef þú sem lest þessar línur spyrð sjálfan þig stundum þessarar spumingar, hvort þú kvíóir dauðanum, hugleiddu þá þessi orð frelsarans. Þá vil ég líka segja þér, að ef þú trúir á Jesú Krist, þá hefur þú stig- ið frá dauðanum inn í lífið. Þú hefur byrjað göngu þína inn í ei- lífðina og þú munt aldrei deyja. Kvíðinn gagnvart dauðanum er kristnum mönnum því óþarfur, og hverjum þeim sem tekur þá ákvörðun að trúa á Jesú Krist. Það er stórkostlegra en orð fá lýst.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.