Dagur - 04.08.1995, Blaðsíða 14

Dagur - 04.08.1995, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 4. ágúst 1995 Stígamót: Veggspjald gegn nauðgunum Stfgamót hafa gefiö út og dreift Meðal þess sem Stígamót veggspjaldi og fræðsluefni um segja um vamir gegn nauðgun- nauðganir og afleiðingar þeirra. um er að í því tilfelli þar sem um Samtökin verða að vanda með útihátíðir er að ræða eigi konur viðbúnað um verslunarmanna- að varast að verða viðskila við helgina eins og undanfarin ár en vinahópinn. Minni áfengisneysla þau hafa nokkrum sinnum þurft dragi líka verulega úr hættunni á að hafa afskipti af slíkum málum nauðgunum. um þessa mestu ferða- og útihá- Um verslunarmannahelgina tíðahelgi ársins. verður opið hjá Stígamótum Veggspjaldið ber sem fyrr milli kl. 9 og 19 og er sími sam- yfirskriftina „Nei þýðir Nei - nauðgun er glæpur". Meðal þess sem bent er á í efni Stígamóta er að nauðganir hafi í för með sér alvarlegar tilfinninga- og líkam- legar afleiðingar fyrir þann sem nauðgað er. Þolendurnir Iýsi henni sem því versta og alvar- legasta sem komið hafi fyrir þá. „Fyrstu viðbrögð við nauðgun geta verið breytileg, margar stúlkur/konur lýsa þeim sem til- finningalegum dóða, sumar verða ofsahræddar, aðrar sýnast afar rólegar og yfirvegaðar á yfirborðinu og enn aðrar missa alla stjóm á tilfinningum sínum. Það eru ekki til nein rétt við- brögð við nauðgun, þau eru með ýmsum hætti.“ nUinníngur: er tvöfaldur næst takanna 562-6868. — AKUREYRARBÆR Grunnskólar Akureyrar Lausar kennarastöður Giljaskóli, nýr skóli sem hefur starfsemi í haust. Staða bekkjarkennara yngstu deilda. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 462 5469, 462 1761 eða 462 5003. Barnaskóli Akureyrar. Lausar stöður við byrjenda- kennslu, almenna bekkjarkennslu, sérkennslu og heimilisfræði. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 462 4449 eða 462 4661. Oddeyrarskóli. Lausar stöður vió almenna bekkjar- kennslu og sérkennslu (% staða). Upplýsingar í síma 462 3496 eóa 462 5243. Glerárskóli. Lausar stöður við almenna bekkjar- kennslu og tónmennt ('A staða). Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 461 2666 eða 462 1521. Lundarskóli. Lausar stöður við tónmenntakennslu ('A staða) og heimilisfræði ('A staða). Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 462 4888 eða 462 1749. Síðuskóli. Laus staða við byrjendakennslu. Upplýs- ingar hjá skólastjóra í síma 462 2588 eða 461 1699. Gagnfræðaskóli Akureyrar. Laus staða við heimil- isfræði (% stöðu). Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 462 4241 eða 462 1018. Skólafulltrúi. J Kvöldstund í Davíðshúsi Miðvikudaga á þessu sumri er flutt dagskrá í Davíðshúsi á Akur- eyri. Þetta er í tilefni þess, að í ár er eitt hundrað ára fæðingaraf- mæli Davfðs Stefánssonar frá Fagraskógi og er þetta framtak einn þátturinn af mörgum á þessu ári í því að minnast skáldsins. Hólmfríður Benediktsdóttir, söng- kona, og Helga Bryndís Magnús- dóttir, píanóleikari, hafa komið fram mörg miðvikudagskvöldin og svo var 26. júlf. Svo sem vænta má eru öll ljóð sem flutt eru á dagskrá þeirra Hólmfríðar og Helgu Bryndísar eftir Davíð Stefánsson. Þau eru valin svo, að þau fjalla svo til öll um konur með einhverjum hætti en Davíð, sem og flestum öðrum skáldum, var talsvert tíðort um þær og með ýmsum hætti. Hólm- fríður söng flest ljóðin, en nokkur las hún, eða ljóðin Kvenlýsing, Þú ert ung og Abba labba lá, en hið síðast nefnda söng hún einnig. Hólmfríður las þekkilega. Eitt ljóð, Konan sem kyndir ofninn minn, var flutt af hljóðupptöku af lestri Davíðs Stefánssonar sjálfs og var það vel til fundið. Annað lesið efni í dagskrá Hólmfríðar Benediktsdóttur og Helgu Bryndísar Magnúsdóttur, var lestur Helgu Bryndísar á stutt- um kafla úr ævisögu Páls ísólfs- sonar tónskálds, en hann og Davíð Stefánsson voru miklir vinir. í textanum sem Helga Bryndís las TONLIST HAUKUR ÁGÚSTSSON SKRIFAR sagði frá ferð þeirra félaga til Eyr- arbakka og Stokkseyrar. Helga Bryndís las fallega. Hún hefur breiða og lipra rödd sem fer vel við lestur. Vel til fundið var í dagskrá Hólmfríðar Benediktsdóttur og Helgu Bryndísar Magnúsdóttur að áheyrendur voru látnir taka undir í söng í nokkur skipti. I laginu við Góða veislu gera skal, tóku áheyr- endur undir í viðlagi en í Lapí, listamannaknæpa í Flórens, sungu allir í fjöldasöng. Hólmfríður söng fyrir í bæði skiptin og fórst henni það vel úr hendi. Undirtektir gesta á dagskránni voru talsvert góðar en hefðu þó gjarnan mátt vera heldur fjörlegri. AIIs söng Hólmfríður Bene- diktsdóttir tíu lög við ljóð Davíðs. Flutningur hennar var víða túlkun- arríkur og innilegur. Svo var til dæmis í lögunum Sigling inn Eyjafjörð eftir Jóhann Ó. Haralds- son, Mamma ætlar að sofna eftir Guðrúnu J. Þorsteinsdóttur og Söngur bláu nunnanna eftir Karl O. Runólfsson. Einnig tókst Hólmfríði vel að gæða nokkur laganna á efnisskránni fjöri og léttleika, svo sem lögin Góða veislu gera skal, sem er íslenskt þjóðlag, í dag skein sól eftir Pál Isólfsson og Capri Catarina, sem er eftir Jón Jónsson frá Hvanná. Hvað best tókst flutningur Hólmfríðar á lögunum Að skýja- baki eftir Karl O. Runólfsson og Sjá dagar koma eftir Sigurð Þórð- arson. I þessum lögum virtist rödd Hólmfríðar liggja hvað lipurlegast og vald hennar á henni vera í bestu lagi. í öðrum lögum ýmsum spillti það nokkuð flutningi hve harður skjálfti kom í röddina, einkum á nokkuð háum tónum. Á lægra sviði gætti þessa ekki eins. Undirleikur Helgu Bryndísar Magnúsdóttur var næmur og féll vel að. Hún átti stóran hlut í því að ná fram anda þeirra laga sem flutt voru og víða voru tök hennar allt að því glæsileg, svo sem í lag- inu Sjá dagar koma og Söng Bláu nunnanna. Það framtak að efna til kvöld- stunda í Davíðshúsi er lofsvert. Húsnæðið er reyndar ekki sem best fallið til tónleikahalds, en sá andi sem ríkir í stofum þjóð- skáldsins frá Fagraskógi gerir meira en að bæta upp óhentugar kringumstæður og gefur kvöld- stundinni dýpt sem gerir hana Ijúfa og eftirminnilega. Tónlist eftír Hafliða Hallgrímsson Hafliði Hallgrímsson sellóleikari og tónskáld opnaði sýningu á myndverkum sfnum í Listasafninu á Akureyri hinn 29. síðasta mán- aðar. Sýningin mun standa til 27. ágúst. Kærkomið er að eiga þess kost að kynnast þessari hlið Haf- liða, en ekki síður er ánægjulegt að í tengslum við myndlistarsýn- inguna hefur Hafliði skipulegt tvenna tónleika, þar sem einungis tónlist hans er flutt. Fyrri tónleik- arnir voru í Listasafninu á Akur- eyri miðvikudaginn 2. ágúst. Flytjendur voru úr forystusveit jreirra sem gefa sig að flutningi klassískrar tónlistar hér á landi. Þeir voru félagarnir í Tríói Reykjavíkur, þau Halldór Har- aldsson, píanóleikari, Guðný Guð- mundsdóttir, fiðluleikari, og Gunnar Kvaran, sellóleikari. Frammistaða þessara frábæru listamanna var stórgóð. í öllu var ljóst hve samæfðir þremenning- arnir eru og var þar hvergi feyru að finna. Ekki síður var skemmti- legt að fylgjast með hæfni hvers um sig á hljóðfæri sitt. Þar mátti vart á milli sjá, enda njóta þessir tónlistarmenn viðurkenningar jafnt hér á landi sem erlendis, en þar hafa þeir allir komið fram iðu- lega og við góðan orðstír. Flutt voru sex verk eftir Haf- liða HaPgrímsson. Fyrst voru stór- skemmtilegar útsetningar hans á þrem íslenskum þjóðlögum fyrir píanó og selló. Eins og Gunnar Kvaran tók fram í aðfararorðum sínum að verkinu er hér í raun um meira en útsetningar að ræða, ekki síst í fyrsta þjéðlaginu Ljósið kemur langt og mjótt, þar sem Hafliði spinnur Iaglínu þjóðlags- ins sérlega lipurlega og skapar sjálfstætt verk þar sem hann gefur sköpunargáfu sinni fagurlega laus- TONLIST HAUKUR ÁGÚSTSSON SKRIFAR an tauminn. Annað verkið var Fimm svip- myndir fyrir píanó. Það er tileink- að Halldóri Haraldssyni, píanó- leikara. Verkið er tónlistarútfærsla á ljóðum eftir Hafliða sjálfan. Kaflar þess bera heitin Forspil, Ský, Speglun, Hillingar og Draumur. Yfir verkinu er líkt og draumkenndur drungi, sem er áhrifamikili og talandi. Þriðja verkið var einleiksverk fyrir selló, sem ber heitið Solita- ire, og er það tileinkað Gunnari Kvaran. Verkið er í fimm köflum, sem heita Ræða, Serenaða, Nætur- ljóð, Sorgarljóð og Dans. Hver kafli ber sín sérkenni, sem eru mjög í samræmi heiti hans. Sér- lega skemmtiiegur var annar kafl- inn, þar sem sellóið er plokkað og fær á sig gítarblæ. í lokakaflanum sleppir tónskáldið fram af sér beislinu og til verður fjörlegur og á stundum allt að því villtur dans, sem Gunnar Kvaran lék af innlif- un. Sex Norrænar svipmyndir fyrir fiðlu og píanó var fjórða verkið á tónleikunum í Listasafninu á Ak- ureyri. Verkið er samið fyrir unga fiðluleikara og í þvi líkir Hafliði eftir stíi norrænna tónskálda. Tón- skáldin eru Grieg, Síbelíus, Niels- en, Jón Leifs og Stehammar, en einn kaflinn er til heiðurs Heine- sen, sem reyndar er þekktastur fyrir ritverk sín. Verkið er lifandi og létt og gerir þeim, sem heiðra skal, góð skil. Næstsíðast á efnisskrá var verkið Offerto, sem er fyrir ein- leiksfiðlu og tileinkað Guðnýju Guðmundsdóttur. Verkið er samið til minningar um listmálarann Karl Kvaran. Það skiptist í fjóra hluta: Ritað í sand, Línur án orða, Flug tímans og Allt að þvf sálmur. Þetta er áhrifamikið verk, sem birtir greinilega söknuð höfundar að Karli Kvaran látnum. Kaflarir eru yfirvegun á erindi mannsins og kringumstæðum hans. Sérlega áhrifamikill er þriðji þátturinn, Flug tímans, þar sem á myndræn- an hátt er táknað hratt rennsli tím- ans, sem hrífur burt hverja stund af annarri úr lífi manns. Lokaverkið, Metamorphoses, er fyrir píanótríó og er samið til minningar um John Tunnell. Verkið er harmljóð og uppbygg- ing þess afar áhrifamikil. Það hefst á hljóðum nótum, en rís síð- an í átökum söknuðar og sorgar uns það aftur hnígur í lokin þar sem syrgjandinn jafnar sig á missi sínum en minningin varir sem huggandi og hvetjandi máttur. Þetta verk hefur sálfræðilegan undirtón, sem finnur sér enduróm í huga hvers þess, sem þurft hefur að sjá á bak kærum samferðar- manni. Aðrir tónleikarnir, þar sem leikin verða verk eftir Hafliða Hallgrímsson, verða í Listasafninu á Akureyri 13. ágúst. Þá verða á efnisskrá engöngu píanóverk og verður Helga Bryndís Magnús- dóttir við flygilinn. Það er full ástæða til þess að hlakka til þeirra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.