Dagur - 16.09.1995, Blaðsíða 12

Dagur - 16.09.1995, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 16. september 1995 DÝRARÍKI ÍSLANDS Fuglar 67. þáttur Húsönd (Bucephala islandica) Húsöndin er af ættbálki gásfugla eða andfugla, eins og t.d. gæsir og álftir. Hún er síðan af andaættinni, sem hefur að geyma um 140 teg- undir fugla. Andaættin er tegundaflesta fuglaættin hér á landi. Alls eru um 25 tegundir árvissar og þar af 18 þeirra reglubundnir varpfuglar. Þær skiptast í gráendur (sem einnig eru nefndar buslendur, gras- endur, eða hálfkafarar) og kafend- ur. Húsöndin tilheyrir hinum síð- arnefndu og er einna stærst ís- lenskra andategunda, 42-53 sm á lengd, 800-1200 g á þyngd og með 67-84 sm vænghaf. Hærri tölurnar miðast við steggina. Karlfugl í varpbúningi er svart- ur og hvítur tilsýndar með áber- andi skilum. Höfuðið er áberandi stórt, blásvart á lit, að því undan- skildu, að á milli goggróta og augna er segllaga blettur, hvftur. Og ekki mun það ofsagt að vanga- svipurinn sé dálítið einkennilegur, því ennið er mjög bratt og hátt og vangarnir gúlpast út frá ávölum, hliðflötum kolli. Bakið er svart, frá herðum og aftur í stélþökur, en vegna axlafjaðranna, sem eru mis- litar (svartar og hvítar, á aðfelld- um vængjum) sýnist það með 6-7 „fingraförum", hvítum skellum í beinni röð. Spegillinn er hvítur, tvískiptur langsum af dökkri rák. Stuttur hálsinn, bringa og kviður hvítur. Stélið móbrúnt, bogadreg- ið. Goggur stuttur og aflíðandi fram (þ.e.a.s. hæstur við rótina), blásvartur (nöglin dekkri); augu gul; fætur roðagulir. Kvenfuglinn er hins vegar mun snautlegri: höfuðið kaffibrúnt, búkur dökkgrár, kviður þó ljós. Spegill er eins og á karlfuglinum og fætur lfka. Stélið grábrúnt. Augu ljósgul. Steggur í hamskiptum líkist kollu, en heldur blettinum (sem þó er fölari nú) milli goggs og augna. Meginstofn þessarar andarteg- undar er að finna í NV-Ameríku (frá Alaska til Colorado); þaðan hafa fuglar svo borist til A-Kan- ada, SV-Grænlands og Islands og numið land. Þar verpa nú einangr- aðir stofnar, fremur litlir. Deiliteg- undir eru þó engar. íslenska húsöndin er einkum bundin við Mývatn og Laxá í Lax- árdal sem varpfugl. Stofninn er talinn vera um 800 pör. Þetta er mjög félagslynd önd og því oft að finna í afar stórum hópum, nema á sjálfri eggtíðinni. Tilhugalífið byrjar strax á haustin og því fylgir mikill darr- aðardans, er stendur alveg fram á vor. Sjálfur varptíminn er í fyrri part maí. Hreiðrinu, sem er kopp- ur, fylltur heyrusli og stráum, og klæddur innst miklum dúni, er (á íslandi) yfirleitt komið fyrir næiri vatni í hraunholum og sprungum eða öðrum álíka fylgsnum (undir steinum, eða í hlöðnum grjót- veggjum bæja), svo og í þéttum gróðri, útihúsum og jafnvel tilbún- um varpkössum. I N-Ameríku verpir fuglinn mikið í holurn trjám. Eggin eru oftast 9-12 talsins, ljósblágræn. Útungun tekur 28-30 daga og sér kollan ein um ásetuna og svo um uppeldið. Ungarnir eru hreiðurfælnir og geta strax farið að afla sér matar. Þeir verða fleyg- ir um tveggja og hálfs mánaða gamlir (þetta ræðst mikið til af fæðuskilyrðum) og kynþroska tveggja ára. Fullorðnar húsendur lifa á margs konar botndýrum, en ung- amir virðast kjósa bitmýslirfur umfram flest eða allt annað. Húsöndin er fugl áa og stöðu- vatna og er yfirleitt þögul. í N- Ameríku er hana að finna allt upp í 3.000 m hæð yfir sjávarmáli, en þó aðallega neðan 1.000 m (mest í 200-500 m hæð). Þeir fuglar hafa vetursetu á sjó, á íslausum strand- svæðum. En á Islandi er húsönd eingöngu á næringarríkum linda- vötnum, allan ársins hring. Eftir varp er þá haldið kyrru fyrir við Mývatn eða safnast á íslausar ár víðar á landinu, eins og t.d. Sog- inu. Hún er prýðilegur sundfugl og góður kafari og á létt með flug. A jörðu niðri kjagar hún, upp- rétt Islenska húsöndin er staðfugl, a.m.k. að langstærstum hluta. Vera má, að hún leiti eitthvað út úr landinu á haustin og þá vestur um, til Grænlands eða Labrador, en ekki hefur tekist að sýna fram á það með óyggjandi hætti. Um hámarksaldur þessarar teg- undar finn ég engar heimildir. Húsönd, steggur í sumarbúningi. (Hjálmar R. Bárðarson: Fuglar íslands. Reykjavík 1986.) Leiðbeiningarstöð heimilanna: „Hvemig á að sjóða hafragraut?" þeirra sem hringja þó karlarnir séu farnir að láta í sér heyra. Fyrir- spurnir, sem berast, skiptast í fjóra flokka: heimilistæki, blettahreins- un og þvottur, matreiðsla og fjórða flokkinn fylla félagsmál og annað sem ekki fellur undir fyrstu flokk- ana þrjá. Langmest er spurt um heimilistækin, t.d er leitað ráða um hvað sé best að kaupa. Eins er mikið spurt um alls kyns þrif og um matreiðslu og segir Steinunn að þær sem starfi á skrifstofunni reyni að veita allar þær upplýsing- ar sem þær geti. Frá upphafi hefur verið reynt að fá hússtjómarkenn- ara til að svara fyrirspumum en það hefur ekki alltaf verið hægt. Nú vinna á skrifstofunni tvær kon- ur, önnur í almennum skrifstofu- störfum og svo Steinunn sem er hússtjórnarkennari. Meira um vanþekkingu en áður Steinunn segist finna fyrir því að ungar konur nú á dögum hafi mjög litla undirstöðu í matreiðslu eða heimilisverkum miðað við það sem áður var. Nefnir hún dæmi að hún hafi fengið fyrir- spumir eins og: „Hvað tekur lang- an tíma að sjóða egg svo það verði linsoðið?", eða: „Hvernig á að sjóða hafragraut?“ Karlmennirnir sem hringja hafa yfirleitt svipaðar spumingar og konumar en þó segir Steinunn að ef konumar séu að spyrja um mat- argerð sé það frekar eitthvað sem Lesendur Dags hafa eflaust margir einhvern tíma rekið augun í aug- lýsingu frá Leiðbeiningarstöð heimilanna sem birtist af og til í smáauglýsingum blaðsins. Ekki er þó eins víst að allir átti sig á um hvers konar þjónustu sé að ræða og því þótti tilvalið að slá á þráð- inn og fræðast ofurlítið um þessa starfsemi. Það er Steinunn Ingimundar- dóttir, hússtjórnarkennari, sem svarar og er ekkert nema liðleg- heitin þegar beðið er um upplýs- ingar um Leiðbeiningarstöðina. „Kvenfélagasamband Islands hóf þessa starfsemi 1963 og hefur rek- ið miðstöðina síðan. Þetta er ókeypis símaþjónusta og er opin alla virka daga kl. 9-17.“ Upphaflegur tilgangur Leið- beiningarmiðstöðvarinnar var að sinna fræðslu og upplýsingastarfi fyrir húsmæður en tímarnir breyt- ast og nú eru það ekki einungis húsmæður heldur einnig karlmenn sem nýta sér þessa þjónustu. Steinunn segir að algengt sé að símtölin séu milli 10 og 20 á dag eða um 4000 á ári að meðaltali. Fjöldi símtala í fyrra hafi reyndar slegið öll met og voru þau tæplega 6000. Enn eru húsmæður í meirihluta Langmest er spurt um heimilistæki, t.d. leitað ráða um hvað best sé að kaupa. Á haustin tengjast margar fyrirspurnir sláturtíðinni. tilheyri gestakomum og fínni mat. Á þessum árstíma er líka mikið spurt um ber og á haustin tengjast einnig margar fyrirspurnir slátur- tíðinni. „Karlmennimir spyrja gjarnan spurninga sem eru meira almennar og einstöku karlmenn, sem búa einir, hringja oft hingað og spyrja um allt milli himins og jarðar," segir Steinunn. AI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.