Dagur - 16.09.1995, Blaðsíða 13

Dagur - 16.09.1995, Blaðsíða 13
Laugardagur 16. september 1995 - DAGUR - 13 POPP MAGNÚS CEIR ÚUÐMUNDSSON ÁSTRALSKA TRÍÓID SlLVERCHAIR: Unclingspiltar á leid TIL HEIMSFRJEGÐAR Eyjaalfa, Ástralía og Nýja Sjá- land, hafa átt og eiga í dag þó nokkuð marga tónlistarmenn, sem náð hafa að slá í gegn á heims- vísu. INXS, AC/DC og Midnight Oil eru dæmi um Ástrala sem slegið hafa í gegn og Nick Cave og Kylie Minougue um Nýsjá- lendinga. Um þessar mundir er svo rokk- sveit frá Ástralíu, Silverchair, að vekja mikla athygli með fyrstu plötunni sinni, Frogstromp. Það sem menn stöldruðu ekki hvað síst við fyrst þegar nafn Silverchair varð áberandi fyrir skömrnu, var lágur aldur piltanna þriggja, Chris Joannu bassaleikara, Daniel Johns gítarleikara og söngvara og Ben Gillies trommuleikara. Eru þeir aðeins 15 ára gamlir, en hafa þó nú þegar spilað saman í þrjú ár. Fyrst kölluðu þeir sig Innosenl Criminals, en í aðdraganda þess að þeir tóku þátt í samkeppni þar sem ungum sveitum var boðið að senda inn lög, fyrir rösku ári, breyttu þeir nafninu í Silverchair. Voru verðlaunin í þessari hæfi- leikasamkeppni ekki aðeins að taka upp lag í hágæðahljóðveri, heldur líka að gera myndband við lagið við bestu aðstæður. Ævintýrin gerast enn Ekki þarf að taka fram að platan hefur gengið mjög vel í heima- landinu og í Bandaríkjunum er svo heldur betur ævintýri að ger- ast fyrir drengina ungu. Frog- stromp náði nefnilega gullsölu á aðeins einum mánuði, 500.000 eintök seld og nú þegar þetta er ritað nálgast platan óðum platin- umsölu, 1.000.000 eintaka. Hafði hún náð upp í 17. sæti Billboard sölulistans síðast þegar fréttist og var enn á uppleið. Fylgir það síð- an líka sögunni að salan á Frog- stromp sé hraðari nú en á nýjustu afurð poppkóngsins sjálfs, Micha- el Jackson, History, hvorki meira né minna. Gerist þetta þrátt fyrir að hljómsveitin hafi auðvitað aldrei komið til Bandaríkjanna til tónleikahalds, en slíkt hefur nán- ast verið undantekningarlaust skil- Silverchair. Þrír ungir drengir frá Ástraiíu að verða heimsfrægir. Þcir konia frá bæ sem heitir því kunnuglega nafni Newcastle. yrði fyrir erlendar sveitir til að hygli þar. Tónlist Silverchair er í eiga nokkra von um að vekja at- anda „Grunge“/rymrokksins og Sigurvegarar Tóku samtals 790 hljómsveit- ir/einstaklingar þátt í keppninni og er skemmst frá því að segja að þeir Silverchairdrengir komu sáu og sigruðu með laginu Tomorrow. Ákváðu þeir í kjölfarið að nota verðlaunin til að taka það upp að nýju og gera síðan myndbandið við það. Er ekki að orðíengja það að vegna þeirrar miklu athygli sem samkeppnin vakti, varð lagið eitt það vinsælasta í Ástralíu og hefur þar eiginlega síðasta árið eða svo ríkt „Silverchairæði". Myndbandið gerði það svo að verkum að Sony-risasamsteypan gerði við drengina plötusamning og kom Frogstromp (nafnið teng- ist víst eitthvað hinum vinsælu en vafasömu teiknimyndaþáttum um Beavis & Butt-Head á MTV) út í sumarbyrjun, fyrst í heimalandinu, nokkru síðar í Bandaríkjunum og er nú rétt komin út í Bretlandi og víðar. Bylting frá Akureyri er nieð plötu á prjónunum. Bylting býdur Það er alltaf ánægjulegt þegar fréttist af norðlenskum hljómsveit- um í athafnahug, en svo er einmitt tilfellið með hljómsveitina Bylt- ingu héðan frá Akureyri. Þeir Tómas Sævarsson hljómborðsleik- ari, Valur Halldórsson trommari, Bjami Valdimarsson bassaleikari, Ný plata og neikvjed ord Eftir að Chicagofjóreykið sér- stæða, Smashing Pumpkins, sló í gegn árið 1993 með plötunni Si- amese Dream eftir að hafa reynt fyrir sér í mörg ár með litlum ár- angri, hefur hljómsveitin verið hátt skrifuð og hún hafin til skýj- anna af „tónlistarspekingum" jafnt sem tónlistarunnendum (mikið af há-um í þessari setningu). Bíða menn nú spenntir eftir nýju plötunni, Melon Collie And The Infinite sadness, sem nú mun vera væntanleg í lok október. Liggur nú sveitinni mikið á hjarta sem aldrei fyrr, því ekki verður um venjulega einfalda plötu að ræða, heldur tvöfalda að lengd. En það er enn meira sem hvílir á Smash- ing Pumpkins þessa dagana en að koma með svona veglega plötu, allavega á einum meðlimi sveitar- innar sérstaklega, Jaines Iha gítar- leikara. Er hann heldur stúrinn og raunar hundfúll út í „kollega“ sína í rokkinu og gildir það bæði um breska og ameríska. „Allir hér vilja bara hljóma eins og Nirvana, misjafnlega vel dulbúið og bresku sveitimar eru svo uppteknar við að hljóma sem mest „enskar“ með öllu bullinu sem því fylgir („við emm jafngóðir og þið Kanarnir" og allt það), að allt annað kemst bara ekki að,“ segir Iha og er greinilega ekki par hrifinn af framvindu mála. Smashing Pumpkins á leiðinni ^ með nýja plötu. „Ekta" Þorvaldur Eyfjörð söngvari og gít- arleikari og Frímann Rafnsson einnig gítarleikari og söngvari, sem skipað hafa sveitina síðasta rúma árið, eru nefnilega komnir vel á veg með að hljóðrita plötu í Stúdíó Hljóðlist undir dyggri stjóm Krist- jáns Edelsteins. Mun platan nefn- ast Ekta og búast þeir Tómas og félagar, sem standa að útgáfunni sjálfir, við að hún komi út í lok október eða í byrjun nóvember. Verða allt að 13 lög á plötunni sem þeir hafa samið að mestu sjálfir auk þess sem Karl Olgeirsson hef- ur lagt nokkur til. Sama er að segja með textana, nema að þar hafa Byltingardrengir fengið Odd Bjama Þorkelsson, „Fantasíu- mann“ til að semja einnig fyrir sig texta. Örvar Atli Örvarsson úr Sál- inni leggur svo sína krafta til í einu laganna. Bylting hefur í sumar haft í nógu að snúast og m.a. sent frá sér lagið Kamelljón á safnplötunni Sandkurl. Nú er svo annað lag, Best of, farið að hljóma með þeim, sem forsmekkur af því sem koma skal. Verður sveitin síðan áfram á faraldsfæti í haust og vetur og er t.d. stödd í Reykjavík þessa helgina við skemmtanahald. hefur þeim tíðum verið líkt við Nirvana. Það viðurkenna þeir þó aðeins að litlu leyti og segja áhrif- in meiri frá Pearl Jam, Soundgar- den og síðar „harðneskju“/Hardc- oresveitinni frá New York, Hel- met. Hvað sem þeim áhrifum líður nákvæmlega, þá er ljóst að tónlist- in hefur hitt í mark og standa þessir kornungu drengir því að öllum líkindum á barmi heims- frægðarinnar. Segir það meira en mörg orð hvernig látið er með þá nú, að um mánaðamótin komu þeir fram á Readinghátíðinni frægu og þarf ekki að taka það fram að þeir eru yngsta hljóm- sveitin sem nokkru sinni hefur stigið þar á stokk. Þarf ekki heldur að taka það fram að þeir drengir eru enn í skóla og búa enn í for- eldrahúsum, saklausir og lítt reyndir. Þeir taka þó hlutunum með ró og ætla í fullu samráði við foreldra sína að vinna úr þeim á sem bestan og mest ánægjulegast- an hátt. Eitt er þó alveg á hreinu hjá þeim sem ekki þarfnast ráðlegg- inga frá öðrum. „Ekkert sukk og svínarí hjá okkur," og vísa með vanþóknun til harmleiksins með Kurt Cobain. W Nú aðeins rúmti ári eftir að stórsveitin The Velvet Underground snéri aftur, er gítarleikari hennar, Sterling Morrison, horfinn yfir móð- una miklu. Lést hann á heimili sínu í New York 30. ágúst sl. og var hann 53 ára að aldri. Dánarorsökin var svonefnd „non Hodgekins lymphoma“, sem samkvæmt helsta sér- fræðingi Poppsíðunnar í lækn- isfræðum útleggst sem ill- kynja æxli í eitlavef. Ein af mest framsækn- ustu og spennandi hljómsveit- um Bretlands þessa stundina er Skunk anasie, með söng- konuna þeldökku og nauða- sköllóttu, Skin, í broddi fylk- ingar. Eru þau Skin og félagar hennar ófeimin við að tjá skoðanir sínar og hafa potað í ýmsa viðkvæma staði á breska þjóðarlíkamanum. Skunk an- asie er nú um þessar mundir að gefa út jómfrúarverk sitt og nefnist það Paranoid And Sunbumt. Er það á vegum One Little Indian sem platan kemur út, fyrirtæki Sykurmol- anna og síðan Bjarkar í Bret- landi eins og kunnugt er. Á þriðjudaginn var, 12. september, var öld liðin frá fæðingu hins góða listamanns Freymóðs Jóhannssonar, sem einmitt nefndi sig höfundar- nafninu 12. september. Frey- móður sem var norðlenskur í húð og hár, Eyfirðingur og Þingeyingur í bland, fæddur á Árskógsströnd og samdi bæði lög og texta sem teljast til perla í íslenskri dægurlaga- sögu. Má þar nefna sem dæmi Litli hljómlistarmaðurinn, Blikandi haf og Litla stúlkan við hliðið. Þá var Freymóður einnig góður listmálari sem kunnugt er.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.