Dagur - 16.09.1995, Síða 13
Laugardagur 16. september 1995 - DAGUR - 13
POPP
MAGNÚS CEIR ÚUÐMUNDSSON
ÁSTRALSKA TRÍÓID SlLVERCHAIR:
Unclingspiltar á leid
TIL HEIMSFRJEGÐAR
Eyjaalfa, Ástralía og Nýja Sjá-
land, hafa átt og eiga í dag þó
nokkuð marga tónlistarmenn, sem
náð hafa að slá í gegn á heims-
vísu. INXS, AC/DC og Midnight
Oil eru dæmi um Ástrala sem
slegið hafa í gegn og Nick Cave
og Kylie Minougue um Nýsjá-
lendinga.
Um þessar mundir er svo rokk-
sveit frá Ástralíu, Silverchair, að
vekja mikla athygli með fyrstu
plötunni sinni, Frogstromp. Það
sem menn stöldruðu ekki hvað síst
við fyrst þegar nafn Silverchair
varð áberandi fyrir skömrnu, var
lágur aldur piltanna þriggja, Chris
Joannu bassaleikara, Daniel Johns
gítarleikara og söngvara og Ben
Gillies trommuleikara. Eru þeir
aðeins 15 ára gamlir, en hafa þó
nú þegar spilað saman í þrjú ár.
Fyrst kölluðu þeir sig Innosenl
Criminals, en í aðdraganda þess
að þeir tóku þátt í samkeppni þar
sem ungum sveitum var boðið að
senda inn lög, fyrir rösku ári,
breyttu þeir nafninu í Silverchair.
Voru verðlaunin í þessari hæfi-
leikasamkeppni ekki aðeins að
taka upp lag í hágæðahljóðveri,
heldur líka að gera myndband við
lagið við bestu aðstæður.
Ævintýrin gerast enn
Ekki þarf að taka fram að platan
hefur gengið mjög vel í heima-
landinu og í Bandaríkjunum er
svo heldur betur ævintýri að ger-
ast fyrir drengina ungu. Frog-
stromp náði nefnilega gullsölu á
aðeins einum mánuði, 500.000
eintök seld og nú þegar þetta er
ritað nálgast platan óðum platin-
umsölu, 1.000.000 eintaka. Hafði
hún náð upp í 17. sæti Billboard
sölulistans síðast þegar fréttist og
var enn á uppleið. Fylgir það síð-
an líka sögunni að salan á Frog-
stromp sé hraðari nú en á nýjustu
afurð poppkóngsins sjálfs, Micha-
el Jackson, History, hvorki meira
né minna. Gerist þetta þrátt fyrir
að hljómsveitin hafi auðvitað
aldrei komið til Bandaríkjanna til
tónleikahalds, en slíkt hefur nán-
ast verið undantekningarlaust skil-
Silverchair. Þrír ungir drengir frá Ástraiíu að verða heimsfrægir. Þcir konia
frá bæ sem heitir því kunnuglega nafni Newcastle.
yrði fyrir erlendar sveitir til að hygli þar. Tónlist Silverchair er í
eiga nokkra von um að vekja at- anda „Grunge“/rymrokksins og
Sigurvegarar
Tóku samtals 790 hljómsveit-
ir/einstaklingar þátt í keppninni og
er skemmst frá því að segja að
þeir Silverchairdrengir komu sáu
og sigruðu með laginu Tomorrow.
Ákváðu þeir í kjölfarið að nota
verðlaunin til að taka það upp að
nýju og gera síðan myndbandið
við það. Er ekki að orðíengja það
að vegna þeirrar miklu athygli
sem samkeppnin vakti, varð lagið
eitt það vinsælasta í Ástralíu og
hefur þar eiginlega síðasta árið
eða svo ríkt „Silverchairæði".
Myndbandið gerði það svo að
verkum að Sony-risasamsteypan
gerði við drengina plötusamning
og kom Frogstromp (nafnið teng-
ist víst eitthvað hinum vinsælu en
vafasömu teiknimyndaþáttum um
Beavis & Butt-Head á MTV) út í
sumarbyrjun, fyrst í heimalandinu,
nokkru síðar í Bandaríkjunum og
er nú rétt komin út í Bretlandi og
víðar.
Bylting frá Akureyri er nieð plötu á prjónunum.
Bylting býdur
Það er alltaf ánægjulegt þegar
fréttist af norðlenskum hljómsveit-
um í athafnahug, en svo er einmitt
tilfellið með hljómsveitina Bylt-
ingu héðan frá Akureyri. Þeir
Tómas Sævarsson hljómborðsleik-
ari, Valur Halldórsson trommari,
Bjami Valdimarsson bassaleikari,
Ný plata og neikvjed ord
Eftir að Chicagofjóreykið sér-
stæða, Smashing Pumpkins, sló í
gegn árið 1993 með plötunni Si-
amese Dream eftir að hafa reynt
fyrir sér í mörg ár með litlum ár-
angri, hefur hljómsveitin verið
hátt skrifuð og hún hafin til skýj-
anna af „tónlistarspekingum" jafnt
sem tónlistarunnendum (mikið af
há-um í þessari setningu). Bíða
menn nú spenntir eftir nýju
plötunni, Melon Collie And The
Infinite sadness, sem nú mun vera
væntanleg í lok október. Liggur
nú sveitinni mikið á hjarta sem
aldrei fyrr, því ekki verður um
venjulega einfalda plötu að ræða,
heldur tvöfalda að lengd. En það
er enn meira sem hvílir á Smash-
ing Pumpkins þessa dagana en að
koma með svona veglega plötu,
allavega á einum meðlimi sveitar-
innar sérstaklega, Jaines Iha gítar-
leikara. Er hann heldur stúrinn og
raunar hundfúll út í „kollega“ sína
í rokkinu og gildir það bæði um
breska og ameríska. „Allir hér
vilja bara hljóma eins og Nirvana,
misjafnlega vel dulbúið og bresku
sveitimar eru svo uppteknar við
að hljóma sem mest „enskar“ með
öllu bullinu sem því fylgir („við
emm jafngóðir og þið Kanarnir"
og allt það), að allt annað kemst
bara ekki að,“ segir Iha og er
greinilega ekki par hrifinn af
framvindu mála.
Smashing Pumpkins á leiðinni
^ með nýja plötu.
„Ekta"
Þorvaldur Eyfjörð söngvari og gít-
arleikari og Frímann Rafnsson
einnig gítarleikari og söngvari, sem
skipað hafa sveitina síðasta rúma
árið, eru nefnilega komnir vel á
veg með að hljóðrita plötu í Stúdíó
Hljóðlist undir dyggri stjóm Krist-
jáns Edelsteins. Mun platan nefn-
ast Ekta og búast þeir Tómas og
félagar, sem standa að útgáfunni
sjálfir, við að hún komi út í lok
október eða í byrjun nóvember.
Verða allt að 13 lög á plötunni sem
þeir hafa samið að mestu sjálfir
auk þess sem Karl Olgeirsson hef-
ur lagt nokkur til. Sama er að segja
með textana, nema að þar hafa
Byltingardrengir fengið Odd
Bjama Þorkelsson, „Fantasíu-
mann“ til að semja einnig fyrir sig
texta. Örvar Atli Örvarsson úr Sál-
inni leggur svo sína krafta til í einu
laganna. Bylting hefur í sumar haft
í nógu að snúast og m.a. sent frá
sér lagið Kamelljón á safnplötunni
Sandkurl. Nú er svo annað lag,
Best of, farið að hljóma með þeim,
sem forsmekkur af því sem koma
skal. Verður sveitin síðan áfram á
faraldsfæti í haust og vetur og er
t.d. stödd í Reykjavík þessa helgina
við skemmtanahald.
hefur þeim tíðum verið líkt við
Nirvana. Það viðurkenna þeir þó
aðeins að litlu leyti og segja áhrif-
in meiri frá Pearl Jam, Soundgar-
den og síðar „harðneskju“/Hardc-
oresveitinni frá New York, Hel-
met.
Hvað sem þeim áhrifum líður
nákvæmlega, þá er ljóst að tónlist-
in hefur hitt í mark og standa
þessir kornungu drengir því að
öllum líkindum á barmi heims-
frægðarinnar. Segir það meira en
mörg orð hvernig látið er með þá
nú, að um mánaðamótin komu
þeir fram á Readinghátíðinni
frægu og þarf ekki að taka það
fram að þeir eru yngsta hljóm-
sveitin sem nokkru sinni hefur
stigið þar á stokk. Þarf ekki heldur
að taka það fram að þeir drengir
eru enn í skóla og búa enn í for-
eldrahúsum, saklausir og lítt
reyndir. Þeir taka þó hlutunum
með ró og ætla í fullu samráði við
foreldra sína að vinna úr þeim á
sem bestan og mest ánægjulegast-
an hátt.
Eitt er þó alveg á hreinu hjá
þeim sem ekki þarfnast ráðlegg-
inga frá öðrum. „Ekkert sukk og
svínarí hjá okkur," og vísa með
vanþóknun til harmleiksins með
Kurt Cobain.
W Nú aðeins rúmti ári eftir
að stórsveitin The Velvet
Underground snéri aftur, er
gítarleikari hennar, Sterling
Morrison, horfinn yfir móð-
una miklu. Lést hann á heimili
sínu í New York 30. ágúst sl.
og var hann 53 ára að aldri.
Dánarorsökin var svonefnd
„non Hodgekins lymphoma“,
sem samkvæmt helsta sér-
fræðingi Poppsíðunnar í lækn-
isfræðum útleggst sem ill-
kynja æxli í eitlavef.
Ein af mest framsækn-
ustu og spennandi hljómsveit-
um Bretlands þessa stundina
er Skunk anasie, með söng-
konuna þeldökku og nauða-
sköllóttu, Skin, í broddi fylk-
ingar. Eru þau Skin og félagar
hennar ófeimin við að tjá
skoðanir sínar og hafa potað í
ýmsa viðkvæma staði á breska
þjóðarlíkamanum. Skunk an-
asie er nú um þessar mundir
að gefa út jómfrúarverk sitt og
nefnist það Paranoid And
Sunbumt. Er það á vegum
One Little Indian sem platan
kemur út, fyrirtæki Sykurmol-
anna og síðan Bjarkar í Bret-
landi eins og kunnugt er.
Á þriðjudaginn var, 12.
september, var öld liðin frá
fæðingu hins góða listamanns
Freymóðs Jóhannssonar, sem
einmitt nefndi sig höfundar-
nafninu 12. september. Frey-
móður sem var norðlenskur í
húð og hár, Eyfirðingur og
Þingeyingur í bland, fæddur á
Árskógsströnd og samdi bæði
lög og texta sem teljast til
perla í íslenskri dægurlaga-
sögu. Má þar nefna sem dæmi
Litli hljómlistarmaðurinn,
Blikandi haf og Litla stúlkan
við hliðið. Þá var Freymóður
einnig góður listmálari sem
kunnugt er.