Dagur - 20.10.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 20. október 1995
FRÉTTIR
Ólafsfjöröur:
Bæjarstjórn felldi til-
lögu um flóttamenn
Á fundi bæjarstjórnar Ólafsfjarðar sl.
þriðjudag tók Björn Valur Gíslason til máls
utan dagskrár og lagði fram tillögu um að
Ólafsfjörður lýsi yfir vilja sínum til að taka
við erlendum flóttamönnum. Eftir nokkrar
umræður var tillagan felld með atkvæðum
meirihlutans í bæjarstjórn gegn atkvæðum
minnihlutans.
Orðrétt segir í tillögunni: „Bæjarstjórn Ól-
afsfjarðar lýsir yfir vilja sínum til að taka við
erlendum flóttamönnum og felur embættis-
mönnum bæjarins í samráði við bæjarráð að
kanna hjá viðkomandi ráðuneyti hvernig best
sé að standa að slíku. Slík könnun felur þó
ekki í sér neina skuldbindingu fyrir bæjar-
stjórn hvorki fjárhagslega né aðra.“
„Við töldum að þetta væri ekki tímabært.
Hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu taka
málið þá upp á síðari stigum ef menn vilja,“
sagði Þorsteinn Ásgeirsson, forseti bæjar-
stjórnar.
Flutningsmaður tillögurnnar, Bjöm Valur
Gíslason, sagði að afgreiðsla meirihlutans
hafi vissulega valdið sér vonbrigðum. „Menn
töluðu um að það væri óþarfi að flytja inn
vinnuafl í bæinn, en tillagan var ekki huguð
sem slik. Rfkisstjórnin hefur sem kunnugt er
ákveðið að taka við 25 flóttamönnum og ís-
firðingar hafa lýst yfir áhuga á að taka við
einhverjum. Hugmyndin var að við myndurn
taka kannski við einni til tveimur fjölskyidum
og eins ef að við tækjum á þessu með Isfirð-
ingum þá myndu fleiri sveitarfélög fylgja í
kjölfarið. Við höfum auðvitað alls ekki staðið
okkur í málefnum flóttamanna.
Mér finnst ltka áfall fyrir Ólafsfjarðarbæ
að menn skyldu ekki vera tilbúnir að skoða
málið, en það var það eina sem farið var
framá í tillögunni. Meirihlutinn var hins vegar
ekki tilbúinn til þess og gerði góðlátlegt grín
að okkur fyrir þetta. Hvað býr að baki get ég
ekki sagt, en fólk hefur ýmislegt á móti út-
lendingum, án þess að ég vilji gera mönnurn
upp neinar skoðanir. Við erum auðvitað með
fólk hér í Ólafsfirði frá þessum löndum sem á
að fara að taka við flóttamönnum frá, þ.e.
löndum fyrrum Júgóslavíu. Tveir reyndar eru
knattspyrnumenn en það kannski lítur öðru-
vísi út,“ sagði Bjöm Valur. HA
Félagsmálaráðuneyti skortir lagaheimild til að setja fjallskilanefnd Þórshafnarhrepps aftur til starfa:
Ákvarðanir hreppsnefndar eru
ofar ákvörðunum fjallskilanefndar
- segir Páll Pétursson, félagsmálaráðherra
Félagsmálaráðuneytið hefur úr-
skurðað í kærumáli, sem Ágúst
Guðröðarson á Sauðanesi, Mar-
ínó Jóhannsson í Tunguseli og
Sverrir Möller á Efra-Lóni, vís-
uðu til ráðuneytisins eftir að
hreppsnefnd Þórshafnarhrepps
hafði sett fjallskila- og riðunefnd
hreppsins af, en þeir þremenn-
ingar sátu í nefndinni og töldu
að brotið hefði verið á rétti
þeirra. Úrskurður ráðuneytisins
var sendur kærendum og
hreppsnefnd Þórshafnarhrepps í
gær.
Félagsmálaráðuneytið mun
ekki telja sig hafa lagaheimild til
þess að setja fjallskilanefnd Þórs-
hafnarhrepps aftur til starfa en
meirihluti hreppsnefndar leysti
nefndina frá störfum í byrjun sept-
embermánaðar, þar sem hún taldi
fullreynt að hún gæti starfað
vegna ósamkomulags og innbyrð-
is deilna nefndarmanna.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
hrerra, segist hafa frætt Ágúst
Guðröðarson um niðurstöðu fé-
lagsmálaráðneytisins í grófum
dráttum og hann geti aðeins sagt á
þessari stundu að ákvarðanir
hreppsnefndar séu ofar ákvörðun-
um fjallskilanefndar. Hann vilji
ekki að málsaðilar lesi um niður-
stöðuna í fjölmiðlum áður en
skýrslan berist þeim í pósti.
Ágúst Guðröðarson, bóndi á
Sauðanesi og einn þriggja bænda
sem kærðu ákvörðun hrepps-
nefndarinnar til félagsmálaráðu-
neytisins, segir að hans skoðun sé
sú að ráðuneytið hafi ekki úr-
skurðað um það hvort ákvörðun
hreppsnefndarinnar hafi verið rétt
eða röng, til þess hafi skort laga-
stoð.
„Það kemur hins vegar fram í
úrskurðinum að það hafi verið
brotið á kærendum inni í nefnd-
inni með því að meina okkur að
kjósa varaformann og ritara og
boða ekki til fundar fyrir nóvem-
berlok 1994 þrátt fyrir ítrekaðar
óskir um það og bókun í nefndinni
um þá ósk. Málið er því enn opið
að mínum dómi,“ sagði Ágúst
Frjáls verslun:
Hagnaði KEA
breytt í 476
milljóna tap
í nýútkominni skrá Frjálsrar
verslunar yfír 100 stærstu fyrir-
tækin er Kaupfélag Eyfirðinga
sagt hafa tapað 476 milljónum
króna á síðasta ári fyrir skatta.
Þetta er alrangt. Hið rétta er að
KEA hagnaðist á síðasta ári um
41 milljón fyrir skatt og um 16
milljónir eftir skatta. Um er að
ræða afkomu KEA og dótturfé-
laga.
í frétt frá Frjálsri verslun í gær
eru forráðamenn KEA beðnir af-
sökunar á þessum mistökum og
tekið er fram að þessi villa sé farin
að skaða KEA og breiðast út í
fjölmiðlum.
Guðröðarson. Hvort sáttaleiðin
væri næsta skref í málinu segir
Ágúst að á það hafi aldrei reynt,
heldur hafi hreppsnefnd Þórshafn-
arhrepps sífellt hert tök sín í þessu
máli. Líklegt væri að sáttaleiðin
yrði reynd og undir það tók
Marínó Jóhannsson. GG
Grímsey:
Aflinn með
eindæmum
lélegur
„Þetta er algert hörmungar tíð-
arfarfar og aflinn með eindæm-
um lélegur. Ég held að allt stefni
í að þetta slái út haustið í fyrra,
sem þó var ekki gæfulegt,“ sagði
Þorsteinn Orri Magnússon, hjá
Fiskmarkaði Grímseyjar, að-
spurður um aflabrögð Grímseyj-
arbáta.
Hann sagði að menn kenndu
óhagstæðu tíðarfari um, en jafnvel
þó bátar komist á sjó sé afli afar
•lítill. „Þetta var ágætt f maí og
fram í miðjan júní en eftir það
hefur þetta verið lélegt. Það kem-
ur í mesta lagi einn og einn dagur.
Færabátar hafa verið að fá 400-
500 kíló eftir daginn og niður í
100. Línubátar hafa verið að fá
40-50 kg á bala en í dragnót er ná-
kvæmlega ekki neitt að hafa. Það
virðist vera algerlega fisklaust fyr-
ir öllu Norðurlandi og engar nýjar
göngur hafa komið í sumar. Auð-
vitað lifir maður bara í voninni
um að eitthvað fari að gerast."
Hann segir hafa verið rólegt á
fiskmarkaðinum af þessum sök-
um, algert met í síðustu viku þeg-
ar ríflega 20 tonn fóru í gegn, en
yfirleitt hafi þetta verið 5-10 tonn
á viku. „Síðan geta menn lent í
því að ef gefur á sjó þá sé bannað
að veiða. Það er staðföst skoðun
mín að undanfarin ár hafi veðrið
alveg séð um að skammta króka-
bátum sína banndaga," sagði Þor-
steinn. HA
Meinatæknir
Staða meinatæknis við Rannsóknadeild F.S.A. er
laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur um stöðuna ertil 1. nóvember.
Upplýsingar veitir yfirmeinatæknir í síma 463 0234.
STmiiiiinmiminiimmimimiiiiimiiiiiiinniiiniimmmiiiimimiiiiimimiinmiiiiiimnnimniminmmniju'
| Bókmenntir [
I í Deiglunni
I Laugardag kl. 14.
1 Sigurður A. Magnússon talar um James Joyce og |
1 Ódysseif og Karl Guðmundsson talar um Seamus |
| Heanie.
I Sunnudag kl. 14.
| Fjölvi kynnir nýja bók um Dublin og írland eftir |
I Sigurð A. Magnússon.
| Listasafnið á Akureyri.
•íiiimiiiiminuiniiiiuiiiiiiimiiimiiiiiiiiuuiiniiumiiiimiuiniinmiimiuiiiiniiiiiuiiiiumiiiimimmiiiuiir.
Akureyri:
Punktar úr
bæjarráði
Styrkumsókn hafnað
Á fundi bæjarráðs í gær var
tekin fyrir styrkumsókn frá
Svæðafélagi Hundaræktarfé-
lags íslands á Norðurlandi til
þess að koma upp aðstöðu í
landi Blómsturvalla til þjálfun-
ar hunda. Bæjan áð hafnaði er-
indinu. Guðmundur Stefánsson
(B) óskaði bókað: „Ég tel að
erindi þetta sé óljóst og hefði
þurft að undirbúa betur af
hálfu umhverfisdeildar áður en
það kæmi til umfjöilúnar bæj-
arráðs. Ég greiði því ekki at-
kvæði um það.“
Ekki styrkur til
hátíðarfundar
Á fundinum var lagt fram er-
indi undirritað af Ragnhildi
Vigúsdóttur f.h. óformlegs
hóps kvenna, sem undirbúa há-
tíðarfund á Akureyri í tilefni
þess að liðin eru 20 ár frá
kvennafrídeginum 1975. í
bréfinu er sótt um styrk úr
bæjarsjóði í þéssu skyni.
Bæjarráð bókaði að það gæti
ekki orðið við erindinu, en tók
fram að jafnréttisnefnd sé
heimiit að ráðstafa fé af fjár-
veitingu til jafnréttismála til
greiðslu kostnaðar við hátíðar-
fundinn.
Staðgreiðsla skatta af
fjárhagsaðstoð
Lögð var fram greinargerð
sem félagsmálastjóri hefur tek-
ið saman í tilefni þess að fjár-
málaráðuneylið hefur með
reglugerð fellt niður undan-
þágu á staðgreiðslu af fram-
færslustyrkjum frá sveitarfé-
lögum. Jafnframt var kynnt
bréf sem Samtök félagsmála-
stjóra á íslandi hafa ritað fjár-
málaráðherra af þessu tilefni.
Þar er þess farið á leit að stað-
greiðsla skatta af fjárhagsað-
stoð sveitarfélaga verði hætt
og færð rök fyrir því. Bæjarráð
lét bóka að það tæki undir það
sjónarmið sem kæmi fram í
bréfinu.
Tilnefning í starfshóp
um sumarháskóla
Eins og fram hefur komið í
Degi samþykkti atvinnumála-
nefnd að setja á stofn fímm
manna starfshóp um sumarhá-
skóla á Akureyri. Nefndin ger-
ir ráð fyrir að í honum verði
skóla- og menningarfulltrúi
bæjarins, fulltrúi atvinnumála-
nefndar, fulltrúi Háskólans á
Akureyri og tveir fulltrúar
bæjarstjómar. Bæjarráð vísaði
í gær tilnefningu í starfshópinn
til bæjarstjómar.
Bréf frá héraðsnefnd
Lagt var fram bréf frá héraðs-
nefnd Eyjafjarðar og því fylgdi
drög að fjallskilasamþykkt og
gögn og tillaga um hugsanlega
sameiningu almannavama-
nefndar Akureyrar og al-
mannavamanefndar Dalvíkur.
Bæjarráð samþykkti í gær að
vísa drögum að fjallskilasam-
þykktinni til umhverfisnefndar
til skoðunar.