Dagur - 20.10.1995, Side 5

Dagur - 20.10.1995, Side 5
FRETTIR Föstudagur 20. október 1995 - DAGUR - 5 Mikið hefur verið að gera í vinnslu grásleppuhrogna hjá Strýtu að undanförnu. Pau eru fengin hjá trillukörlum vítt Og breitt um landið. Mynd: Sigurður Bogi. Ný vinnslulína hjá Strýtu hf. tekin í notkun: Góður gangurog mikið að gera Mikið hefur verið að gera hjá Strýtu hf. á Akureyri að undan- förnu og unnið er sex daga vik- unnar frá kl. 6 að morgni og fram til kl. 10 á kvöldin. Mest hefur verið að gera í rækju- vinnslu fyrirtækisins, en nýlega var tekin í notkun vinnslulína, þar sem rækjunni er pakkað í neytendaumbúðir og slíkt trygg- ir hærra skilaverð frá verslun- um. Rækja frá Strýtu er einkum seld á Bretlandsmarkað til stórra verslunar- keðja þar. Strýta og Söltunarfélag Dalvíkur hafa með sér samvinnu á ýmsum sviðum. Einnig útvegar Sam- herji hf. á Akureyri, sem er meðal hluthafa að Strýtu, hráefni til vinnsl- unnar. Aðalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Strýtu, segir að hin sterka kvótastaða Samherja sé lykill- inn að góðum gangi rækjuvinnslu síns fyrirtækis og Söltunarfélagsins um þessar mundir. Er rækjuvinnslan í landinu rekin með nokkrum hagnaði nú, en síðustu undangengin ár hafa þessari atvinnugrein ekki verið hag- stæð. Einnig hefur mikið verið að gera við vinnslu síldar sem og kavíars, sem unninn er úr grásleppu- hrognum. Það hráefni er keypt hjá trillukörlum vítt og breitt um landið. Hin nýja pökkunarlína í rækju- vinnslunni sem sett var upp fyrir skömmu hefur mikla þýðingu fyrir Strýtu hf„ segir Aðalsteinn Helgason. Nokkrir þingmenn stjórnar- flokkanna á Alþingi hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að leyfður verði rekstur tollbúð- ar við Akureyrarhöfn. Frum- varpið er nú til meðferðar á þingi. I greinargerð með frumvarpinu segir að sumarið 1994 hafi alls 23 Bæði tryggja smærri pakkningar hærra verð á markaði og verðið er ekki eins sveiflukennt og ella væri. Þá hefur samstarf Strýtu, Söltunarfélags Dalvíkur og Samherja við The Royal Greenland í Nuuk opnað fyrirtækjun- um dyr inn á markaði sem áður voru skemmtiferðarskip komið til Akureyr- ar með samtals 11 þúsund farþega. I áhöfn voru 5.900 manns. Þá höfðu skemmtiferðaskip víða annarsstaðar viðkomu á landinu. Flutningsmenn frumvarpsins segja jafnframt að búast megi við fjölgun ferðamanna sem koma til lands með skemmtiferðaskip- um - og því sé nauðsynlegt að geta boðið þeim fjölbreytt vöruúrval. Auk þess komi fjöldi erlendra sjómanna á fiskiskipum til hafnar vítt og breitt um landið og enginn vafi leiki á að þeir muni nota sér þann möguleika sem tollfrjáls verslun býður uppá. „Af því sem að framan greinir má ljóst vera að hér gæti verið um að ræða áfranga á leið til markaðssetn- ingar íslenskrar framleiðslu," segir í greinargerðinni. -sbs. Leiðrétting Bærinn Ystafell í Kinn er látinn í grein í DEGI 18. október sl. fóstra stofnfund Kaupfélags Þingeyinga, elsta kaupfélags landsins, og það sagt hafa gerst árið 1881. Stofnfundurinn var hins vegar haldinn að Þverá í Lax- árdal 20. febrúar 1882. Ýmsir hafa hins vegar haldið því fram að umræddur stofnfundur hafi verið haldinn að Grenjaðarstað í Aðal- dal en enginn dómur skal hér lagður á sannleiksgildi þess. Að Ystafelli var aftur á móti Samband íslenskra sam- vinnufélaga (SÍS) stofnað árið 1902 og þess minnst á 50 ára afmæli þess árið 1952 með því að reisa súlu mikla á grunni gamla íbúðarhússins í Ysta- felli. GG Bíiasala Sigurðar Valdimarssonar á Akureyri: Tilboðsdagar á notuðum bílum í dag hefjast hjá Bílasölu Sig- urðar Valdimarssonar (BSV) á Akureyri það sem fengið hefur nafnið, 5 tilboðsdagar á notuðum bílum. Um er að ræða notaða bíla í eigu Ingv- ars Helgasonar hf., sem BSV hefur umboð fyrir, og hafa bíl- ar verið sendir að sunnan með skipi af þessu tilefni. Bætast þeir við bíla sem fyrir eru á bílasölunni. „Við höfum gert þetta héma fyrir sunnan og höfum fengið fyrirspumir að norðan hvort ekki væri mögulegt að bjóða einnig upp á sambærilega þjónustu á Akureyri. Við erum því að svara þessum óskunt, þannig að menn þurfi ekki endilega að sækja þetta suður. Síðan verður bara að koma í ljós hvemig til tekst,“ sagði Helgi Eyjólfsson hjá Ingvari Helga- syni hf. Hann segir vera um að ræða tals- verða lækkun á bílunum og góð greiðslukjör í boði. Einnig fylgir ábyrgðartrygging í hálft ár og vetr- ardekk. Opið verður kl. 10-20 í dag, kl. 10-17 laugardag, 13-17 sunnu- dag og 10-18 mánudag og þriðju- dag. HA Þingmenn stjórnarflokkanna á Alþingi: Vilja tollbúð við Akureyrarhöfn Sameining Fiskiðjunnar-Skag- firöings og Hraðfrysti- húss Grundah fjarðar í bígerð Sameining útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjanna Fiskiðj- unnar-Skagfirðings hf. (FISK) á Sauðárkróki og Hraðfrystihúss Grundarfjarðar hf. (HG) er í undirbúningi en fyrrnefnda fyr- irtækið á meirihluta í Hrað- frystihúsi Grundarfjarðar hf. Einar Svansson, framkvæmda- stjóri hjá FISK, segir að ákveðnar tillögur verði iagðar fyrir stjórnir fyrirtækjanna í næsta mánuði en að þeim vinni auk hans Jón Viðar Jónsson, framkvæmdastjóri HG. Einar sagði ekki tímabært að ræða um einstök atriði sem telja yrði hag- kvæm ef til sameiningar kæmi en eng- ar áætlanir væm hins vegar uppi um breytingar á skipastólnum. Líklegt má telja að ef til sameiningar komi verði það gert í ársbyrjun 1996. Fiskiðjan- Skagfirðingur hf. á fjóra togara, Hegranes, Málmey, Skafta og Skag- fírðing, sem samtals voru með 6.627 þorskígildistonn í upphafi fiskveiði- ársins 1. september sl. en Hraðfrysti- hús Grundarfjarðar hf. rekur tvo tog- ara, Drang og Klakk, sem samtals eru með 2.882 tonna þorskígildiskvóta eða alls 9.509 þorskígildistonn. Með sameiningu yrði hið nýja fyrirtæki eitt af fjórum stærstu útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjum landsins. Drangur og Klakkur eru á hefð- bundnum ísfískveiðum, ekki síst í karfa enda í nágrenni einna gjöfulustu karfamiðanna, bæði á grunnslóð og djúpslóð. Málmey kom úr Smugunni í gær með tæp 200 tonn af frystum af- urðum, eða um 450 tonn upp úr sjó. FOB-verðmæti aflans gæti verið um 41 milljón króna. Málmey fer svo á karfaveiðar í íslensku lögsögunni. Hegranes, Skafti og Skagfirðingur eru á veiðum á heimaslóð fyrir vinnsluna í landi eða landa í gáma til útflutn- ings, og er uppistaða afla þeirra karfi. Pökkunarlína Fiskiðjunnar-Skag- firðings hf. gengur vel og búið er að sníða flesta byrjunarerfiðleika af, og verksmiðjan hefur náð þeim afköstum sem gert var ráð fyrir í upphafi. Um pökkun á fiski í neytendapakkningar er að ræða. Ekki hefur verið bætt við starfsfólki, en auðveldara hefur reynst að halda uppi stöðugri atvinnu og stýra vinnslunni milli daga. „Þetta hefur ekki þýtt neina aukn- ingu miðað við stöðu bolfiskvinnsl- unnar í dag en hún er ekki til að hrópa húrra fyrir. Atvinna sem byggir á þessari grein fiskvinnslunnar býður sannarlega alls ekki upp á neina aukn- ingu,“ sagði Einar Svansson. GG Tilboð á HP prenturum HP-3M0 HP-600 HP-660 ★ Sýndarveruleikl Nú verða allir að prófa TC LVUTÆIÍI Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 462 6100 k_______I_________Á Sveitarstjórnarmenn, forsvarsmenn fyrirtækja, félaga og stofnana Alþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra verða til viðtals dagana 24.-26. október 1995 sem hér segir: Þórshöfn þriðjudaginn 24. okt. kl. 12 í Félagsheimilinu Þórsver Raufarhöfn þriðjudaginn 24. okt. kl. 15 í Félagsheimilinu Hnitbjörgum Kópasker þriðjudaginn 24. okt. kl. 17 í Öxi Húsavík miðvikudaginn 25. okt. kl. 09 á Hótel Húsavík Mývatnssveit miðvikudaginn 25. okt. kl. 14 í Hótel Reynihlíð Laugar miðvikudaginn 25. okt. kl. 17 á skrifstofu hreppsins Grenivík miðvikudaginn 25. okt. kl. 20.30 í grunnskólanum Akureyri fimmtudaginn 26. okt. kl. 09 á Hótel KEA Ólafsfjörður fimmtudaginn 26. okt. kl. 15 á Hótel Ólafsfjörður Dalvík fimmtudaginn 26. okt. kl. 17 í Ráðhúsinu Þeir sem óska að nýta sér þetta hafi samband vð skrif- stofur ofangreindra sveitarfélaga eftir því sem við á og panti tíma eigi síðar en mánudaginn 23. október nk. Alþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.