Dagur - 20.10.1995, Síða 7

Dagur - 20.10.1995, Síða 7
12, Akureyri, nk. sunnudag, 22. októ- ber, kl. 20.30, mun ung norsk söng- kona, S0lvi Helén Hopland, syngja trúarleg ljóð. Splvi hefur vakið athygli þeirra sem heyrt hafa til hennar fyrir næma og ljúfa túlkun hennar á fagnað- arerindinu um Jesúm Krist í söng sín- um. Hluti af dagskrá Splvi er frum- samið efni. Á samkomunni, sem er öllum opin, flytur Vilborg Jóhannes- dóttir hugvekju. Flóamarkaður NLFA Flóamarkaður Náttúrulækningafélags Akureyrar í Kjamalundi verður opinn á morgun, laugardag, kl. 14-17. Sem endranær verður á boðstólum úrval bóka, handavinnumuna af ýmsu tagi og fatnaðar á alla aldursflokka. Þá má geta þess að upplagt er að nýta þennan ódýra fatnað í hverskonar föndur, bútasaum, dúkkuföt o.fl. Bylting á Dalvík og Sauðárkróki Hljómsveitin Bylting spilar fyrir dansi á Sæluhúsinu á Dalvík í kvöld, föstu- dagskvöld, og annað kvöld, laugar- dagskvöld, á Hótel Mælifelli á Sauðár- króki. Þess má geta að Bylting hefur nú lokið við hljóðritun á geisladiski sem mun koma út 7. nóvember nk. Út- gáfutónleikar verða í 1929 30. nóvem- ber. Hraðskákmót hjá Skákfélaginu Skákfélag Akureyrar stendur fyrir hraðskákmóti í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20 í skákheimilinu við Þingvalla- stræti. Mótið er öllum opið. Quick and the Dead í Borgarbíói Borgarbíó frumsýnir í kvöld stór- myndina „The quick and the Dead“ með þau Sharon Stone og Gene Hack- man í aðalhlutverkum. Þetta er hörku- skemmtileg hasarmynd þar sem þessir stórleikarar fara á kostum. „Quick and the Dead“ verður frumsýnd kl. 21 í kvöld og hún verður sýnd á sama tíma næstu kvöld. Önnur stórmynd í Borgarbíói um helgina er Apollo 13 með m.a. stór- leikaranum Tom Hanks. Hún verður sýnd kl. 20.45 og 23.15 (ath. sýningar- tímann). Klukkan 23 verður síðan sýnd myndin Don Juan með Marlon Brando, Johnny Deep og Faye Duna- wayí aðalhlutverkum. Á bamasýningum á sunnudag kl. 15 verða sýndar myndimar Casper og Þymirós. Diddú og Anna Guðný með tónleika á Þórshöfn Næstkomandi sunnudagskvöld halda þær Sig- rún Hjálmtýs- dóttir (Diddú), sópran, og Anna Guðný Guð- mundsdóttir, pí- anóleikari, tón- leika í Þórsveri - félagsheimili Þórshafnar og nágrennis. Tónleik- amir hefjast kl. 20.30. Um er að ræða vxgslutónleika á nýjum flygli sem Kirkjukór Sauðaneskirkju hefur fest kaup á, en hann er af gerðinni Samvick. Flygillinn verður staðsettur í Þórs- veri og mun gefa ný tækifæri til allskyns tónlistarflutnings á Þórs- höfn. Kaupin á flyglinum er mikið fjárhagslegt átak fyrir ekki stærra byggðarlag en Þórshöfn og hefði ekki verið framkvæmanlegt nema fyrir velvild margra aðila s.s. Þórshafnarhrepps. Þeir sem standa að tónleikum þeirra Diddúar og Önnu Guðnýjar nk. sunnudagskvöld vilja koma á framfæri kæru þakklæti til Flug- leiða og Flugfélags Norðurlands fyrir þeirra stuðning. Miss Fítness ®S Sálin. Sjallanum I kvöld, föstudagskvöld, verður stóri salurinn í Sjallanum á Ak- ureyri lokaður vegna einkasam- kvæmis en á Góða dátanum heldur hljómsveitin Karakter uppi tjörinu. Annað kvöld, laugardags- kvöld, verður Miss Fitness keppnin haldin í Sjallanum, eins og fram kom í Degi fyrr í vikunni. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í tengslum við keppnina. Að henni lokinni spilar Sálin hans Jóns míns fyrir dansi fram á nótt. Föstudagur 20. október 1995 - DAGUR - 7 Suzuki Baleno BÁtENOj Fjölskyldubill t fullri stœrð Laufsásgötu 9, Akureyrí, sími 462 6300 föstudag kl. 10-20 laugardagkl. 10-17 sunnudagkl. 13-17 mánudag kl. 10-18 þriðjudag kl. 10-18 á notuðum bílum í eigu Ingvars Helgasonar hf. hjá B.S.V., Óseyri 5 (603 Akureyri) Þarfœrd þú notaðan bíl áfrábœru 111 í ) o 0.) v') í éí tngln ntboigun ogjafnvel fyrstu 6-8 mánuðina. Prí ábyrgðartrygging fyrsta hálfa árið og v1,1*8 rdekíi Bílasala Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 461 2960 - Akureyri fylgja bílnum Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 sími 567 4000 - fax 587 9577

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.