Dagur


Dagur - 20.10.1995, Qupperneq 8

Dagur - 20.10.1995, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 20. október 1995 LESENDAHORNIÐ Er umhverfisnefnd í tilvistarvanda? Svona eyða geltir fresskettir tímanum. og þvo hann. Ekki var samt nein trygging fyrir því að þvotturinn slyppi næst þegar hann var hengd- ur út. Þær húsmæður sem kannast við þennan vanda frá þessum ár- um mættu gjarnan minnast hans og láta frá sér heyra um hann. Það væri til upplýsingar þess- um reglugerðarsmiðum um afleið- ingamar sem gætu orðið ef verkið þeirra yrði samþykkt í bæjarstjórn. Framantalinn vanda leystu kett- irnir þegar þeim fjölgaði aftur. Það sem mér finnst undirstrika athugasemd mína um hvað reglu- gerðin er vanhugsuð er ákvæði sem vantar í hana. Þeir sem halda ketti sem gælu- dýr ættu að láta vana þá, og er það ákvæðið sem vantar í reglugerð- ina. Ógeltir fresskettir eru ekki skemmtileg gæludýr en breytingin á þeim til hins betra við þessa að- gerð er ótrúleg. Kettir sem hafa verið vanaðir halda sig mest á lóðinni við sitt heimili og fara ekki mikið um. Þeir hanga ekki í húsagörðum annara í bið eftir læðu sem er svo kannski á pillunni. Þeir veikjast mikið síður vegna þess að þeir eru inni hjá sér stóran hluta úr nóttinni en ekki í kulda og trekk á lóðaríi. Að loka ketti inni á nóttinni eða tjóðra þá á lóðinni við heimili sín lýsir ótrúlegri heimsku og þar eru sett á tímamörk. Ég sé fyrir mér nokkurn hóp íbúanna í leit að köttum sínum til þess að koma þeim inn fyrir þessi opinberu tímamörk. Ágætu reglugerðarsmiðir, ég er með tilögu að nýrri reglugerð sem mundi leysa vandann og koma í veg fyrir að starfsmenn bæjarins lentu í tilfinningastríði við katta- eigendur. Hún mundi líka koma í veg fyrir fjölgunarvandamál á öðrum sviðum dýraríkisins í bæn- um. Reglugerðin ætti að hafa eitt ákvæði sem sagt að vana alla fressketti sem fólk heldur. Þá er hægt að láta kattaeigendur ráða því hvort kettimir þeirra eru úti eða inni á nóttinni. Við umhverfisnefnd vil ég segja þetta: Ef nefndin er í vanda vegna verkefnaskorts þá vil ég til að byrja með benda henni á að götumar í bænum eru skítugar og ætti hún að byrja á að koma því til leiðar að þær væru þvegnar. Hún gæti fengið sérfræðingana sem em tilgreindir í kattarverkefn- inu til þess að styðja við bakið á sér við það verkefni. Þeir gætu hugsanlega frætt bæjarfulltrúana um hvenig vind- og sólþurkaðir sýklar verka í vitum og hálsi manna. Bæjarfélag sem skilgreinir sig sem skóla-, ferða- og matarfram- leiðslubæ getur ekki komist hjá að þvo götur sínar. Hugsanlega á ég fleiri nauð- synleg verkefni fyrir nefndina þegar hún er búin að sannfæra bæjarfulltrúana um þessa nauð- syn. Ég er nokkuð þekktur að því að vera fundvís á svoleiðis mál. Um það gæti vitnað heilbrigðis- fulltrúinn. Skrýtnar viðtökur á veitingahúsi Við komum nokkrar saman fyrir stuttu inn á veitingastaðinn Café Olsen á Akureyri þar sem okkur fannst við fá skrýtnar viðtökur. Strax og við vorum sestar kom til okkar afgreiðslukona og ætlaði að vísa okkur út. Við sögðumst ætla að panta og gerðum það. Við pöntuðum franskar kartöflur en þegar við báðum um að fá vatn þá sagði hún okkur að vatnsglasið kostaði 50 kr.! Þetta fannst okkur skrýtið því við höfðum oft áður komið á þennan stað og fengið vatn með mat án þess að þurfa að borga fyrir það. Á sama tíma kom inn kona sem pantaði sér mat og fékk vatnsglas en við gátum ekki séð að hún þyrfti að borga neitt fyrir það. Þegar við báðum um vatnsglas þá sagðist konan auð- veldlega sjá að við ætluðum bara að fara fram á klósett til að fá okkur vatn. Því miður verðum við ungling- ar oft vör við fordóma í okkar garð en við getum ekki sætt okkur við svona lagað þegar engin ástæða er til. Katrín Sigurðardóttir, Isól Einarsdóttir. Aðvörun Við systurnar urðum fyrir því óláni að frá okkur var stoíið mikl- um peningum í KA-heimilinu miðvikudaginn 11. október sl. Við vorum á æfingu og höfðum gleymt hversu mikla peninga við höfðum á okkur. Þegar við vorum búnar á æfingunni áttuðum við okkur á að þessum peningum hafði verið stolið frá okkur. Við erum náttúrlega mjög vonsviknar og viljum við þess vegna benda fólki á að vera alls ekki með pen- inga og önnur verðmæti á svona stöðum. Sigurbjörg Yr og Guðrún Hildur Guðmundsdætur. Toyota Touring XLi 4x4, árg. ’92, álf., ek. 55 þús. Verð: 1.180.000,- Toyota Corolla XL 5 dyra, árg. ’92, MMC Colt GLXi, árg. ’93, ek. 34 þús. Verð: 820.000,- ek. 25 þús. Verð: 1.070.000,- Bflaskipti • Bflasala MMC Lancer EXE HB, árg. ’92, ek. 58 þús. Verð: 1.000.000,- MMC Lancer GLX, árg. ’89, ek. 60 þús. Verð: 650.000,- Huyndai Sonata GLSi, árg. ’95, ek. 10 þús. Verð: 1.500.000,- Bílasala • Bflaskipti Toyota Landcruiser II B, árg. ’87, ek. 155 þús. Verð: 1.000.000,- Toyota 4-Runner A/T, árg. ’91, ek. 72 þús. Verð: 2.200.000,- Einnig 4-Runner árg. ‘94 DT. Vantar • Vantar • Vantar Allar gerðir vélsleða á skrá og á staðinn Nýlega bíla af flestum gerðum 4x4 bíla af öllum gerðum Stór og góður sýningarsalur Toyota Coaster diesel 20 manna, árg. '81, ek. 180 þús. Verð: 600.000,- Einn eig. ^rílasáunn I öldur hf. B í L A S A L A við Hvannavelli Símar 461 3019 & 461 3000 Bflasala • Bflaskipti Brynjólfur Brynjólfsson skrifar: Þegar lesin eru frumdrög þau sem hafa verið gerð til reglugerðar um kattahald í Akureyrarkaup- stað, kemur það ósjálfrátt uppí hugann. Ætla mætti einnig að þeir ein- staklingar sem samið hafa þessa reglugerð, séu ekki mjög fróðir um ketti, og þann heim sem þeir lifa í. Gagnsemi af köttum og þá ekki síst næturrölti þeirra getur ekki heldur verið þessum reglu- gerðarsmiðum ljós. Fyrir rúmum tuttugu árum var mikið af köttum að minnsta kosti á brekkunni. Mikið fár kom upp í köttunum svo þeim fækkaði mjög mikið. Tilviljun var að þeir sæust á ferli nokkuð lengi á eftir. Músum og þröstum fjölgaði aftur á móti mjög mikið og sáust þéttar slóðir eftir mýsnar í snjón- um eftir hverja nótt. Nokkuð var um að þær sæktu inní fbúðarhús og allstaðar þar sem þær gátu fundið sér skjól. Þetta var viðvarandi vandi þar til köttunum fjölgaði á ný. Þröstum fjölgaði svo að hús- mæður voru í vandræðum að þurrka þvott úti því þrestirnir sátu gjaman á snúrunum og drituðu á þvottinn. Algengt var að þær þyrftu að taka þvottinn inn aftur M/m \ 7NT Á/anO*3 Heilræði Hvar er barnið þitt að leika sér? FIMMTUÐAGS-. FflSTUDAGS- DB LAUGARDAGSKUÖLD

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.