Dagur - 20.10.1995, Qupperneq 9
Frumsýningu fagnað
Frumsýningu Leikfélags Akur-
eyrar á Drakúla var fagnað í Ket-
ilhúsinu í Listagili síðastliðið
föstudagskvöld en þann dag var
jafnframt sett írsk menningarhá-
tíð á Akureyri sem nú stendur
sem hæst. Meðfylgjandi eru
myndir úr hófinu en á myndinni
hér til hliðar, sem tekin var í
leikhléi hjá LA, má meðal ann-
arra sjá Björn Bjamason,
menntamálaráðherra, og Stefán
Baldursson, þjóðleikhússtjóra,
auk annaiTa frumsýningargesta.
Hljómsveit hússins í hófinu í Ketil-
húsinu vakti lukku viðstaddra eins
og góðar hljómsveitir gera. Unga
stúlkan á myndinni var öðrum gest-
um fremri í danslistinni og lét tæki-
færi til nokkurra dansspora ekki
framhjá sér fara.
írarnir tveir, Michael Scott, leik-
stjóri, og Paul McCauley, leik-
inyndahönnuður, voru að vonum
ánægðir að frumsýningunni lokinni.
Hafa opnað Sjúkra-
nuddstofu Akureyrar
Hjónin Ámi Þór Ámason og At-
hena Spiegelberg, sem bæði eru
löggiltir sjúkranuddarar, hafa opn-
að sjúkranuddstofu að Glerárgötu
24 á Akureyri, í sama húsi og Vá-
tryggingafélag íslands hefur að-
setur. Fyrirtæki þeirra hjóna ber
heitið Sjúkranuddstofa Akureyrar.
Þau Ámi Þór og Athena stund-
uðu bæði nám í sjúkranuddi í Ont-
ario í Kanada og reyndar starf-
rækti Athena sjúkranuddstofu þar
ytra auk þess sem hún kenndi
sjúkranudd. Árni Þór, sem ekki
síst er þekktur fyrir knattspark í
meistaraflokki Þórs á Akureyri,
vann um tíma hjá Brynjólfi
Snorrasyni á Akureyri áður en þau
hjónin opnuðu eigin stofu.
Árni Þór segir að þau bjóði upp
á alhliða nudd, sjúkranudd, með-
ferð meiðsla og annað sem sjúkra-
nuddarar taka að sér. Hann segir
það vissulega dýrt að setja slíkt
fyrirtæki á stofn, húsnæðinu hafi
verið breytt umtalsvert og veru-
legur kostnaður liggi í tækjabún-
aði.
Árni Þór segir að þau komi
væntanlega til með að taka fólk í
sjúkranudd samkvæmt tilvísan
lækna, en að sjálfsögðu geti hver
sem er sótt sjúkranudd hjá þeim.
óþh
Eigendur sjúkranuddstofunnar,
þau Árni Þór Árnason og
Athena Spiegelberg.
: :
.
Föstudagur 20. október 1995 - DAGUR - 9
I
HOTEL KEA
Laugardagskvöld
Lokað
vegna
einkasamkvæmis
★
Villibráðar-
kvöld
Erumfarin að taka við
pöntunum fyrir
villibráðarkvöld
laugardaginn 18. nóvember
HÓTEL
KEA
Sími 462 2200
• •
PMM
- fyrir þig/
Tilboð
Egg 1 fl. 259 kr. kg
Ungaegg 198 kr. kg
Hringskorinn svínabógur 499 kr. kg
Mjúkís jarðarberja 1 lítri 269 kr.
Mjúkís nougat 1 lítri 269 kr.
Mjúkís heslihnetu 1 lítri 269 kr.
Skólaostur 585 kr. kg
Swiss Miss m/sykurpúðum 737 gr 333 kr. dós
Kraft þvottaduft 2 kg 499 kr. pk.
Flúx þvær og bónar 0,7 lítri 266 kr. brúsi
Knorr dagar
Tilboð á Knorr dögum
föstudag og laugardag
i Mánud.-föstud. kl. 10.00-19.30
» laugard. kl. 10.00-18.00