Dagur - 20.10.1995, Blaðsíða 15
Föstudagur 20. október 1995 - DAGUR - 15
IÞRÓTTIR
FROSTI EIÐSSON
Urslit
ÍA-Keflavík
Skallagrímur-Tindastóll
Grindavík-Haukar
Þór-Njarðvík
Valur-Breiðablik
A-riðill:
Keflavík
Haukar
Njarðvík
Tindastóll
ÍR
Breiðablik
B-riðill:
KR
Grindavík
Skallagrímur
Þór
ÍA
Valur
78 110
75 54
93 100
77 87
93 101
7 5 2663:586 10
7 5 2595:514 10
75 2619:552 10
7 5 2 554:544 10
7 34593:578 6
7 1 6 546:660 2
7 5 2653:620 10
7 43 654:564 8
7 4 3 556:542
7 3 4610:556
725 562:613
7 0 7 458:709
Ekki verður leikið í úrvals-
deildinni um helgina en næsta
fimmtudag fer fram heil um-
ferð. Þá mætast meðal annars
Tindastóll og Þór á Sauðár-
króki.
Handknattleikur:
Grótta sigraði
Einn leikur fór fram í 1. deild
karla í handknattleik í gær-
kvöldi. Grótta sigraði Víking
25:23 í íþróttahúsinu á Sel-
tjamamesi.
Þórsarinn Fred Williams er hér í strangri gæsiu þeirra Kristins Einarssonar og Ronday Robinson í ieiknum í gær-
kvöid. Mynd: BG
Tap hja Þor og Tindastoli
Þórsarar vöknuðu af Þyrnirósar-
svefni í leikhléinu gegn íslands-
meisturum Njarðvíkur, þá sautj-
án stigum undir og það var full
seint. Hetjuleg barátta þeirra í
síðari hálfleiknum kom fyrir lít-
ið, Þórsarar náðu að minnka
muninn niður í tvö stig en
Njarðvík stóð uppi sem sigur-
vegari, 87:77.
Kristinn Friðriksson hélt Þórs-
urum á floti í fyrri hálfleik með
frábærum leik, hann skoraði sex-
tán stig og virtist eini leikmaður
liðsins sem var með greinilegu
lífsmarki. Njarðvíkurliðið hafði
tögl og haldir í hálfleiknum og
engu virtist skipta hvort Hrannar
Hólm þjálfari þess léti byrjunar-
liðið vera inná eða varamennina.
Hittnin var reyndar ekki góð hjá
Njarðvíkingum en hræðileg hjá
Þórsumm sem áttu í miklu basli
undir körfunni. í leikhléi munaði
sautján stigum á liðunum 54:37 og
það hefur líklega ekki hvarflað að
neinum annað en að síðari hálf-
leikurinn yrði formsatriði.
Það var hins vegar miklu meiri
hugur í Þórsurum í síðari hálf-
leiknum og þeim tókst smám sam-
an að saxa á forskot Njarðvíkinga,
munurinn var lengi 9-12 stig og á
lokamínútum skildu nokkmm
sinnum tvö stig liðin af. Segja má
að Njarðvíkingar hafi innbyrt sig-
urinn tveimur mínútum fyrir leiks-
lok þegar þeir skoruðu fimm stig
úr sömu sókninni, fyrst Teitur Ör-
lygsson með tveimur vítaskotum
og síðan Jóhannes Kristbjömsson
með þriggja stiga körfu. Þórsarar
náðu aldrei að brúa það bil, því
þrátt fyrir nokkur tækifæri voru
þeir óheppnir með skot í lokin.
Kristinn Friðriksson átti sann-
kallaðan stórleik. Fred Williams
hafði hægt um sig gegn Rondey
Robinson og það var ekki fyrr en
þeir voru báðir komnir með fjórar
villur að Fred fór að láta að sér
kveða. Konráð stóð fyrir sínu og
þá áttu þeir Bjöm Sveinsson og
Einar Valbergsson góða innkomu
í lokin.
Teitur Örlygsson og Rondey
Robinsson voru sterkastir í
Njarðvíkurliðinu sem mætti lítilli
mótspymu framan af.
Tindastóll sá aldrei til sólar
í Borgarnesi
Tindastólsmenn gerðu litla frægð-
arferð í Borgames í gærkvöld þeg-
ar þeir heimsóttu Skallagrím í úr-
valsdeildinni f körfuknattleik.
Nánast frá fyrstu mínútu var deg-
inum ljósara hvoru megin sigurinn
myndi lenda og vel studdir af
troðfullu húsi áhorfenda sigruðu
heimamenn með miklum yftrburð-
um, 75-54.
Það var aðeins rétt í byrjun
leiksins sem jafnfræði var með
liðunum, en fljótlega hrökk
Skallagrímsvélin í gang og keyrði
yfir gestina frá Sauðárkróki með
frábærum vamarleik. Áður en
Tindastólsmenn vissu af höfðu
heimamenn náð 10 stiga forystu
og í hálfleik var staðan 42-26.
í síðari hálfleik héldu Skalla-
grímsmenn áfram að skelfa Tinda-
stólsmenn sem sáu vart til sólar og
höfðu aldrei möguleika á að kom-
ast inn í leikinn. Munurinn jókst
og þegar upp var staðið skildi 21
stig liðin af.
Þessum leik vilja Tindastóls-
menn ömgglega gleyma sem fyrst.
Þeir voru einfaldlega á hælunum
allan leikinn og komust ekki
nægilega vel í takt við hann. Aftur
á móti voru Skallagrímsmenn að
spila sinn besta leik í úrvalsdeild-
inni til þessa og ef þeir halda upp-
teknum hætti ættu þeir að geta
gert fleiri liðum skráveifu á
heimavelli.
I leit að
góðri reynslu
Sigurbjörg Bergsdóttir er 19 ára
menntaskólamær og ein þriggja
stúlkna frá Akureyri senr taka
þátt í í keppninni Miss Fitness
95. Þetta er í fyrst sinn sem Sig-
urbjörg tekur þátt í keppni sem
þessari. Hún kveðst ekki kvíða
fyrir keppninni enda hefur hún
reynslu af sýningarstörfum. Ég
er ekkert feimin við að koma
fram á bikini því ég hef oft sýnt
undirföt á tískusýningum. En ég
kvíði dálítið fyrir ræðunni sem
ég þarf að flytja en hef þó æft
mig vel fyrir framan spegilinn
og fengið ágæta tilsögn. Ég
vona að mér takist vel upp í
dans- og þolfimiæfingunum því
ég hef sett saman dansatriði
sem ég er nýbyrjuð að æfa. Sig-
urbjörg ræðst því ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur. En
hvaða gildi hefur keppni eins
og þessi fyrir Sigurbjörgu?
Fyrst og fremst er ég að þessu
fyrir sjálfa mig. Aðaltakmarkið
er að ljúka keppninni með
Sigurbjörg Bergsdóttir, 19 ára
gönuil, þátttakandi { Miss Fit-
ness keppninni.
sóma. Auðvitað vilja allir sigra
en ég er aðallega í leit að góðri
reynslu sem ég tel þessa keppni
veita. Undirbúningur fyrir
keppnina er tímafrekur og segir
Sigurbjörg að hann hafi bitnað
á náminu. Við svo búið kvaddi
hún og hraðaði sér aftur í ís-
lenskutímann.
Sævar Árnason, Þór:
„Eigum að
geta komið
á óvart“
„Það má segja að mótið sé að
byrja hjá okkur. Við erum
reyndar búnir að spila tvo leiki
en síðan tók við þriggja vikna
hlé sem kom sér vel, því við
byrjuðum seint að æfa,“ segir
Sævar Árnason, þjálfari og Ieik-
maður 2. deildarliðs Þórs í
handknattleik.
Þórsarar leika fyrsta heimaleik
sinn á keppnistímabilinu gegn
Breiðbliki á morgun og hefst við-
ureign liðanna klukkan 13:30.
„Breiðablik var eina lið deild-
arinnar sem við náðum ekki að
vinna á heimavelli í fyrra og við
stefnum að því að breyta því. Það
má kannski segja að við séum
ekki með breiðan hóp og ég held
að bæjarbúar búist ekki við miklu
af okkur. Ég held hins vegar að
Sævar Árnason.
við eigum að geta komið á óvart
og vil hvetja fólk til að mæta á
leikinn.“
Þór-Njarðvík
- úrslit 77:87
Gangur lciksins: 4:2, 4:11, 10:13,
12:18, 18:19, 22:31, 24:43, 29:43.
37:54, 47:58, 57:69, 65:76, 75:77,
75:83, 77:87.
Stig Þórs: Kristinn Friftriksson 27,
Fred Williams 19, Konráö Óskarsson
11, Kristján Guðlaugsson 11, B jöm
Sveinsson 4, Birgir Öm Birgisson 3,
Einar Valbergsson 2.
Stig Njarftvíkur: Teitur Örlygsson
26, Rondey Robinson 22, Friðrik
Ragnarsson 8, Jóhannes Kristbjöms-
son 7, Jón Júlíus Ámason 7, Sverrir
Sverrisson 5, Örvar Kristjánsson 4,
Rúnur Árnason 4, Páll Kristinsson 4,
Kristinn Einarsson 1.
Dómarar: Einar Einarsson og Þor-
geir Jón Júlíusson. Sæmilegir.
UMFS-Tindastóll
- úrslit 75:54
Flest stig Skallagríms: Gunnar Þor-
steinsson 14, Bragi Magnússon 13,
Tómas Holton 12, Ari Gunnarsson
12 og Alexander Ermonlinski 11.
Flest stig Tindastúls: Jolm Torrey
15, Hinrik Gunnarsson 13 og Pétur
Guftmundsson 10.
Dómarar: Jón Bender og Kristinn
Albertsson. Höfðu mjög góð tök á
lciknum.
Teitur Örlygsson:
Drógum sigur-
inn í land
„Við vorum full kærulausir í
síðari hálfleiknum," sagði
Teitur Örlygsson, leikmaður
Njarðvíkur. „Eftir fyrri hálf-
leikinn héldum við að þetta
yrði mjög auðvelt, en þeir refs-
uðu okkur fyrir það og komust
aftur inn í leikinn. Við tókum
okkur á þegar við þurftum þess
á síðustu mínútunum og dróg-
um sigurinn á land.“
Aðalfundur hjá
Þórsurum í kvöld
Aðalfundur knattspymudeildar
Þórs fer fram í kvöld að Hamri og
hefst klukkan 20. Kosið verður í
stjóm, en síðan fara fram hefð-
bundin aðalfundastörf. Félagar em
hvattir til að mæta.
KA mætir IR í
fimmtu umferðinni
Handknattleikslið KA sem sigrað
hefur í fjórum fyrstu leikjum sín-
um á íslandsmótinu mætir ÍR á
sunnudagskvöldið og fer leikurinn
fram í Seljaskóla. Leikurinn hefst
klukkan 20 en þá fara jafnframt
fram leikir Hauka við Stjömuna,
Vals við KR, Selfoss við FH,
UMFA gegn Gróttu og Víkings
gegn ÍBV.
Afmœlis-
fagnaður
80 ára
Sjallanum
28. okt.