Dagur - 17.11.1995, Blaðsíða 7
Föstudagur 17. nóvember 1995 - DAGUR - 7
Stórtónleikar til styrktar Flateyringum
Eins og fram hefur komið verða
Stórtónleikar til styrktar Flateyr-
ingum í íþróttahöllinni á Akureyri
næstkomandi sunnudag, 19. nóv-
ember. Fram kemur fjöldi af
þekktu tónlistarfólki, alls um 140
manns, sem allt gefur vinnu sína
og ýmis fyrirtæki í bænum hafa
greitt kostnað sem óhjákvæmilega
hlýst af þessu þannig að hver ein-
asta króna sem fólk greiðir í að-
gangseyri rennur óskipt í söfnun-
ina Samhugur í verki.
Áður en sjálfir tónleikamir
hefjast mun sr. Pétur Þórarinsson,
sóknarprestur í Laufási, flytja
stutta hugvekju. Fyrir hlé mun
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
leika og með lienni syngur Rann-
veig Fríða Bragadóttir, ópem-
söngkona. Einnig syngur kór Tón-
listarskólans.
Eftir hlé koma fram: Tryggvi
Hiibner, Borgardætur, Tjarnar-
kvartettinn, Cigarettes, KK, dúett-
inn Piltur og stúlka, sem Ingunn
Gylfadóttir og Tómas Hermanns-
son skipa, og Pálmi Gunnarsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 16.00
og aðgangseyrir er 1000 kr. Stefnt
er að því að fá 2000 gesti þannig
að hægt verði að safna 2 milljón-
um króna. Kynnir á tónleikunum
verður Valdimar Örn Flygenring.
HA
Hinn eini og sanni KK.
Tjarnarkvartettinn mun syngja á tónlcikunum.
Micahel Jón Clark stjórnar kór Tónlistar-
skólans.
Pálma Gunnarsson þarf varla að kynna.
Borgardætur eru með nýjan geisladisk.
Guðmundur Óli Gunnarsson,
stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands.
Cigarettes með söngkonuna Heiðrúnu Önnu Björnsdóttur í fararbroddi,
nýtur mikilla vinsæla um þessar mundir. Hún verður væntanlcga með efni
af nýrri plötu, Double Talk.
Rannveig Fríða Bragadóttir syngur með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands:
Ein okkar allra besta
Rannveig Fríða Bragadóttir,
messóssópran, er óumdeilanlega
ein okkar allra besta söngkona.
Hún tekur um þessar mundir þátt
í uppfærslu íslensku óperunnar á
Madama Buttertly, en mun korna
norður gagngert til þess að taka
þátt í tónleikunum til styrktar
Flateyringum á sunnudaginn. Þar
mun hún syngja nokkur íslensk
einsöngslög með Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands.
Rannveig hefur getið sér mjög
gott orð sem söngkona á undan-
förnum árum, nú er hún sem fyrr
segir að syngja f Madame Butt-
erfly og þá er hún líka að fara að
Rannvcig Fríða Bragadóttir.
söngkona
syngja í uppfærslu á hinu þekkta
ævintýri Hans og Gréta hjá ís-
lensku Óperunni. Þar mun hún
syngja Hans.
Rannveig var í fjögur ár hjá
Vínaróperunni en hefur verið
„frieelance“ eða í lausamennsku,
eins og það er kallað, sl. 2-3 ár
og sungið víða, bæði hér á landi
og erlendis. „Svo er ég með tvo
iitla syni, sem hafa tekið sinn
tíma,“ sagði Rannveig. Hún bjóst
við að verða hér á landi a.m.k.
frant í febrúar en síðan eru ýmis
verkefni sent bíða, bæði á vett-
vangi ljölskyldunnar og söngs-
ins. HA
Sængurfataverslunin VKKpP auglýsir
Isabelía t Krónuntii, Hafnarstræti 97, Akureyri
hefur tekið að sér umboðssölu á hinum landsþekktu
damask sængurverasettum okkar
Margar gerðir og litir - Sérsaumum eftir máli, t.d. lök og fleira
Velkomin að skoða úrvalið • Opið laugardag frá kl. 10-14
N
Isabella
Hafharstræti 97 • Sími 461 1209
/T
HOTEL KEA
í samvinnu við Skotveiðifélag
Eyjafjarðar halda sitt árlega
Villibráðarkvöld
nk. laugardagskvöld
og hefst með borðhaldi kl. 20.00
Húsið opnað kl. 19.00
Allar hugsanlegar tegundir
villibráðar á glæsilegu hlaðborði
Veislustjóri: Flosi Ólafsson
Dinnertónlist: Karl Olgeirsson og Jón Rafnsson
Hljómsveitin
HERRAMENN
heldur uppi fjörinu fram eftir nóttu
Ath! aðeins örfá borð laus fyrir matargesti.
Borðapantanir í síma 462 2200
%
JASSVEISLA
sunnudagskvöld
Paul Weeden, Björn Thoroddsen og
Ámi Scheving ásamt einvala liði jassleikara í
sannkallaðri jassveislu sem hefst kl. 21
HOTEL
KEA
Sími 462 2200
-.. JJ