Dagur - 21.11.1995, Side 11

Dagur - 21.11.1995, Side 11
Þriðjudagur 21. nóvember 1995 - DAGUR - 11 Hvað eínkennir góðan skóla? Eitt af því sem foreldrar velta fyrir sér þegar þeir velja sér búsetu er skólinn í nýja hverfinu og hvaða orð fer af honum. Það er óhægt um vik að afla upplýsinga, engar skýrslur gefnar út og engir gæða- staðlar skráðir. Algengast er því að foreldrar leiti til vina og kunningja sem búa í hverfinu eða bænum með spurn- ingar sínar. Reynsla kunningjanna er vafalaust misjöfn og ræðst kannski fyrst og fremst af því hvernig kennara bömin hafa haft. Gott húsnæði er t.d. mikilvægt en hvað gagnar það ef agaleysi eða metnaðarleysi einkennir skólann? Allir ættu að geta tekið undir þá fullyrðingu að í góðum skóla líður nemendunum vel og þeir læra mikið. Fyrir nokkrum árum hélt Guð- jón Ólafsson sérkennslufræðingur erindi á aðalfundi SAMFOKS í Reykjavfk þar sem hann tíundaði ýmis einkenni á góðum skólum. Flann vitnaði í erlenda fræðimenn og rannsóknir þeirra en auk þess sagði hann frá persónulegri reynslu sem kennari, skólastjóm- andi og ráðgjafi á fræðsluskrif- stofu. Hér á eftir fara nokkrir punktar sem vöktu athygli undir- ritaðrar. Góðum skólum er haldið vel við og þar fá nemendur aðstöðu Ný saga er kominút Tímaritið Ný saga er komið út en áhersla er lögð á að þar séu stuttar greinar og rfkulega myndskreytt- ar. Meðal efnis í Nýrri sögu er frá- sögn um síldveiðar í Hvalftrði vet- urinn 1947 til 1948, grein um fornar menntir í Hítardal á 17. öld, siðferðilegar fyrirmyndir á 19. öld og frásögn um húsagerðarlist ný- frjálsrar þjóðar, það er hvernig hinni nýríku sjálfstæðiskynslóð Is- lendinga voru mislaðgar hendur við að móla hýbýli sín og um- hverfi. í ritinu er einnig þátturinn Sjónarhóll, þar sem áhugamönn- um um sagnfræði gefst kostur á að segja skoðanir sínar um gildi og hlutverk sagnfræðinnar. Gestur þáttarins að þessu sinni er Björn Bjarnason- menntamálaráðherra og leggur hann í grein sinni, áherslu á að sagnfræðingar gegni með rann- sóknum sínum meginhlutverki við að skapa grundvöll að skynsam- legri stjórnmálaumræðu. Afgreiðsla Sögufélagsins, sem er Útgefandi Nýrrar sögu, er í Reykjavík og síminn þar er 551- 4620. fyrir sig. Þar er t.d. mataraðstaða, setkrókar, tómstundaaðstaða og fleira sem nemendur geta notað utan kennslustunda. Skólinn er fyrir nemendur og hurðir ekki harðlæstar. í góðuni skólum treystir skólastjórinn starfsfólkinu, sýnir umhyggju, fylgist vel með kennsl- unni og getur beitt valdi sínu ef með þarf. Hér á landi hefur verið nokkuð algengt að einhver úr hópi kennara verður skólastjóri í fyll- ingu tímans og það getur valdið vissum stjórnunarerfiðleikum þeg- ar taka þarf á viðkvæmum starfs- mannamálum. í góðum skólum er mikil samvinna kennara skylda. Þar er þróunarstarf mikilvægur hluti skólastarfsins og kennarar sam- ræma ýmsa hluti eins og t.d. skipulag heimanáms. Þar fá kenn- arar möguleika til að þroska hæfi- leika sína og allir kennarar bera sína ábyrgð og á þá er hlustað af stjórn skólans. I góðum skólum eru reglur sem tryggja að upplýsingar komast til skila bæði um það sem gerist innan skólans sem utan. í góðum skólum kenna kenn- ararnir fleiri en eina námsgrein og þar er lögð mikil vinna í verk- og listgreinar svo valfög nýtist nemendunum. I góðum skólum fá nemendur að spreyta sig á verkefnum sem hæfa getu þeirra og þroska. Kennararnir hafa trú á nemendum sínum og möguleikum þeirra. I góðum skólum er það á allra ábyrgð að kennslan sé góð og hegðun nemenda í lagi. Kenn- arar geta því ekki fríað sig ábyrgð með því að senda óþæga nemend- ur í skammarkrók til skólastjór- ans. I góðum skólum er starfslið stöðugt og fáar breytingar á skólaárinu. I góðum skólum er stöðug- leiki í ielagatengslum innan bekkja og rnilli bekkja. I góðum skólum er skráð og óskráð stefnt að hreinskilni, samvinnu og samstöðu bæði meðal sto’ ísma...::, og starfs- • .aiina og foreldra og annarra sem tengjast skólastarfinu. í góðum skólum eru áhuga- samir kennarar með jákvæða afstöðu til menntunar og nem- enda. f góðum skólum er skóla- stjórinn faglegur leiðtogi og er mikilvægur í vinnunni við að skapa sameiginlegan starfsgrund- völl og jákvætt andrúmsloft. í góðum skólum eiga nem- endurnir foreldra og vini sem hafa álit á skólanum. Við þetta má lengi bæta. í góð- um skólum er öflugt og vel skipu- lagt foreldrastarf og í anda gæða- stjórnunar er m.a. lagt upp úr því að kvartanir foreldra séu teknar al- varlega og boðleiðir séu skýrar. Þetta er óþrjótandi umfjöllunar- efni og sjálfsagt fyrir foreldra, kennara og alla þá sem áhuga hafa á skólamálum að taka virkan þátt í gæðaumræðunni. Unnur Halldórsdóttir. Höfundur er formaður landssamtakanna Heim- ili og skóli. Akureyri: Kynning á ABC- hjálparstarfi í kvöld I kvöld, þriðjudag, verður kynning á ABC-hjálparstarfi í húsnæði KFUM og K í Sunnuhlíð á Akur- eyri. Sérstakur gestur kvöldsins verður Robert Salomon frá Ind- landi, en hann er fyrrverandi styrktarbarn Mission of Mercy, sem er einn af samstarfsaðilum ABC. Kynningarfundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. ABC-hjálparstarf er íslenskt samkirkjulegt hjálparstarf sem var stofnað 1988. Markmið þess er að veita bágstöddum börnum þriðja heimsins hjálp sem kemur að var- anlegu gagni, gefa fátækum börn- um kost á skólagöngu og heimilis- lausum börnum heimili. Um 1700 börn eru nú styrkt af íslenskum stuðningsforeldrum gegnum ABC-hjálparstarf; á Indlandi, Fil- ippseyjum, Úganda, Kambódíu og Madra, og er kostnaður á hvert barn á bilinu 500 til 1450 krónur á mánuði. Félag eldri borgara í Vestur-Húnavatnssýslu: Mótmælír skerðingu á kjörum eldrí borgara og öryrkja Fundur í félagi eldri borgara í Vestur-Húnvatnssýslu haldinn á Hvammstanga 11. nóvember sl. mótmælir harðlega allri skerðingu á kjörum eldri borgara og öryrkja, sem gert sé ráð fyrir í fjárlaga- frumvarpi næsta árs. „Þykir okkur súrt í broti, ef batnandi hagur í þjóðfélaginu á að koma fram með þessum hætti. Við neitum því eindregið að verða slit- in úr tengslum við verkalýðs- hreyftnguna í landinu," segir orð- rétt í samþykkt eldri borgara í Vestur- Húnavatnssýslu. Gullasmiðjan Stubbur Vegna frásagnar í blaðinu sl. föstudag af tréleikfangasmíði Ge- orgs Hollanders er rétt að taka fram að fyrirtæki hans heitir Gullasmiðjan Stubbur. Vinnustofa hans er í Laugalandsskóla í Eyja- fjarðarsveit. Lögmannavaktin Ókeypis lögfræðiráögjöf fyrir almenning í Safnaöar- heimili Akureyrarkirkju. IMæsta vakt verður miðvikudaginn 22. nóv. kl. 16.30-18.30. Tímapantanir í síma 462 7700 kl. 9-12 og kl. 14- 16 virka daga. Lögmannarélag íslands. Eiginmaður minn, JÓSTEINN FINNBOGASON, Garðarsbraut 7, Húsavík, lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur 17. nóvember. Jarðarlörin auglýst síðar. Þórey Sigmundsdóttir. Ástkær móðir okkar, fósturmóðir og amma, ÁGÚSTA GUNNLAUGSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Sverrir Árnason, Ragnar Árnason, Emma Árnadóttir, Haukur Árnason, Unnur Berg Árnadóttir, Hörður Sverrisson, Ágústa G. Garðarsdóttir, tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI MARINÓ ÓLAFSSON, Fjólugötu 11, Akureyri, sem lést á Hjúkrunarheimilinu Seli föstudaginn 17. nóvember, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 27. nóvem- berkl. 13.30. Kristín Ásgeirsdóttir, Hilmar Gíslason, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Hreiðar Gíslason, Sigríður Hjartardóttir, Marselía Gísladóttir, Ólafur Jónsson, Anna S. Gísladóttir, Hilmar Steinarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.