Dagur - 20.12.1995, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
Þrír í dómnefnd
Skipulagsnefnd hefur samþykkt
að leggja til að fulltrúar Akur-
eyrarbæjar í dómnefnd skipu-
lagssamkeppni um Naustahverfi
verði Gísli Bragi Hjartarson, for-
maður skipulagsnefndar, Stefán
Jónsson og Guðmundur Jó-
hannsson. Arkitektafélagi ís-
lands hefur verið send beiðni um
skipun tveggja dómnefndar-
manna. Skipulagsstjóri verður
ráðgjafi dómnefndar.
Bensínstöð við Viðjulund
Á sama fundi skipulagsnefndar
var lagt fram bréf frá Vilhelm
Ágústssyni f.h. Hölds hfi, þar
sem ítrekuð er fyrirspum um lóð
fyrir bensín- og þjónustumiðstöð
við Viðjulund.
Erindi frá Rafeyri hf.
Á hafnarstjómarfundi var lagt
fram bréf frá Rafeyri hf. þar sem
sótt er um leyfi til þess að setja
upp auglýsingaskilti á ljósa-
stauramöstur á bryggjum Ákur-
eyrar. Hafnarstjóra var falið að
kanna málið.
Hönnun Giljaskóla
Á fundi framkvæmdanefndar 11.
desember var samþykkt að leita
samninga við eftirtalda vegna
hönnunar Giljaskóla:
- Arkitekt - Fanney Hauksdóttir.
- Rafhönnun - Rafteiknistofan
Kaupangi.
- Burðarvirki - Verkfræðistofa
Sigurðar Tlioroddsen.
- Lagnir og loftræsting - Verk-
fræðistofa Norðurlands.
Menningarmálanefnd
ráðstafar fé
Menningarniálancfnd hefur sam-
þykkt eftirfarandi skiptingu á
óráðstöfuðu fé til gjaldfærðs
stofnkostnaðar: Davíðshús vegna
framkvæmda við íbúð kr. 100
þúsund, Amtsbókasafn vegna
breytinga á afgreiðslu 200 þús-
und og Listasafn vegna tækja-
kaupa o.fl. 200 þúsund krónur.
Styrkir úr Menningarsjóði
Menningarmálanefnd hefur sam-
jrykkt eftirfarandi styrki úr
Menningarsjóði: Geymslufé
vegna gjafa til Matthíasarsafns
140 þúsund krónur og erindi frá
Sumartónleikum á Norðurlandi
kr. 70 jrúsund.
Hugmyndir Arnar Inga
Á fundi menningarmálanefndar
5. desember var lagt fram bréf
dags. 10. nóvember sl. þar sem
hann kynnir hugmyndir sínar um
útvíkkun á starfsemi sinni í
þriggja ára myndlistarskóla ann-
ars vegar og viðameiri starfsemi
sumarlistaskóla og óskar eftir
viðræðum um þessar hugmyndir.
Menningarmálanefnd samþykkti
að beina því til bæjarráðs að
mótuð verði framtíðarstefna um
stuðning bæjarins vegna nárns
og námskeiðahalds í myndlist og
öðrum listgreinum. Bæjarráð
samþykkti 14. desember sl. að
vísa erindinu til skóla- og menn-
ingarfulltrúa til skoðunar.
Miðvikudagur 20. desember 1995 - DAGUR - 3
Samland á Akureyri aðili að stærsta
innkaupafyrirtæki landsins:
Markmiðið að ná
sem hagstæðust-
um innkaupum
Nú um áramótin mun nýtt inn-
kaupafyrirtæki, Búr ehfi, hefja
starfsemi. Að fyrirtækinu standa
flest stærstu kaupfélög landsins,
Olíufélagið ESSO og Nóatúns-
búðirnar í Reykjavík. Markmið
fyrirtækisins er að annast inn-
kaup og birgðahald á nýlendu-
vörum fyrir hluthafana og ná
fram sem lægstu innkaupsverði
frá erlendum jafnt sem innlend-
um framleiðendum í krafti
stærðarinnar og jafnframt að
annast birgðahald og dreifmgu
með sem ódýrustum hætti.
Stærsta sambærilega fyrirtækið
hér á landi hefur verið Baugur
hfi, sem er innkaupafyrirtæki
Hagkaupa og Bónuss, en nýja
fyrirtækið mun verða svipáð að
stærð ef ekki stærra. Samanlögð
velta þeirra fyrirtækja á mat-
vörumarkaði sem standa að
Búri ehf. mun vera um 10 millj-
arðar á ári.
Meðal þeirra sem taka þátt í
hinu nýja fyrirtæki er Samland á
Akureyri, sem er í sameininlegri
eigu KEA, KÞ á Húsavík og
Kaupfélags Langnesinga, en Sam-
land er í raun sams konar fyrirtæki
og Baugur og Búr. Hannes Karls-
son, framkvæmdastjóri Samlands
og deildarstjóri matvörudeildar
KEA, situr í stjórn hins nýja fyrir-
tækis, ásamt Þorsteini Pálssyni frá
Kaupfélagi Árnesinga og Einari
Jónssyni frá Nóatúni. Hannes seg-
ir engar breytingar vera fyrirhug-
aðar á rekstri Samlands. „Það sem
er að gerast er að við erum að
Húsavík:
Mat hnupl- •
ganga inn í miklu stærra og öfl-
ugra samfélag. Ávinningurinn
verður fyrst og fremst sá að við
teljum okkur geta náð mun betri
innkaupsverðum, sem væntanlega
getur skilað sér í hagstæðara verði
fyrir neytendur.“
Birgðastöðvar fyrirtækisins
verða tvær, önnur á höfuðborgar-
svæðinu og síðan Samland á Ak-
ureyri og Hannes sagðist vonast til
að umsvifin muni aukast í fram-
tíðinni. „Samland er það fyrirtæki
af þessu tagi sem á hvað lengstan
starfsaldur hérlendis og það er
auðvitað geysileg þekking og
reynsla sem við höfum aflað okk-
ur. Með tilkomu Samlands á sín-
um tíma urðu þau fyrirtæki sem
að því standa mun samkeppnis-
hæfari á þessu sviði og sú reynsla
sent við búum að mun korna nýja
fyrirtækinu til góða. Menn hafa
mjög horft til þess sem hér hefur
verið að gerast og tekið mið af
þeim árangri sem við höfum náð.
Samland er þriðja stærsta heild-
sölu- og dreifingarfyrirtæki á
landinu og hefur sýnt verulega
veltuaukningu frá ári til árs,“
sagði Hannes. HA
•6 _ °
# # 9$ Í®| tjg
ðJÞ
d$
öfh
0
0 '
0
0
0
0
0
0
0
0 I
0
0000000
HRISALUNDUR
- fyrir þig!
- ódýrari en þig grunar
o
0
0
#
0
0
a$i
0
0
dfþ
0
3$
0
0
0,
dfD
Skíðagallar
kr. 5.900
Kuldaúlpur
3 í einni kr. 12.580
Mikið úrval af
barnafatnaði
herrafatnaði
kuldaskóm
kvenfatnaði
snyrtivörum
0
S á góðu verði
®iíí#dí)d5id!íiiSit^#igi(ííidtidtid3!idí€)##iS!dt1#'^#
0.0
KítchenAid
trilboð
að úr íbúð
- af svöngum veislugesti
nágrannans
Töluvert mikil ölvun var á
Húsavík um sl. helgi. Einn mað-
ur var settur í fangageymslu lög-
reglunnar sl. föstudagskvöld,
vegna ölvunar og slagsmála, og
annar á laugardagskvöld.
Snemma á sunnudagsmorgun
var kvartað yfir að orðið hefði
vart óvæntra mannaferða í íbúð í
bænum og hafði viðkomandi haft
á brott með sér matvæli úr ísskáp.
Óboðni gesturinn var staddur í
veislu í nágrannaíbúð þar sem
vant varð veislufanga undir morg-
uninn. Málið leystist fljótlega eftir
að lögregla kom á staðinn.
Aðfaranótt laugardags var brot-
in rúða í Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar að Garðarsbraut 9.
Lögregla hefur enn ekki upplýst
málið og þiggur upplýsingar frá
þeim sem hafa verið á ferðinni
þegar atvikið átti sér stað.
Tveir smáárekstar urðu í bæn-
um um helgina og talsvert hefur
verið um að lögregla hafi haft af-
skipti af ungum ökumönnum
vegna hraðaksturs. Að sögn lög-
reglu eru þar á ferð ökumenn sem
eru nýkomnir með próf og kunna
sér ekki hóf hvað umferðarhrað-
ann varðar. IM
Verð með hakkavél kr. 29.830,-
LÓNSBAKKA•601 AKUREYRI
•ct 463 0321,463 0326, 463 0323 /
CAY AGO 7