Dagur


Dagur - 08.02.1996, Qupperneq 3

Dagur - 08.02.1996, Qupperneq 3
FRETTIR Fimmtudagur 8. febrúar 1996 - DAGUR - 3 Veiöieftirlit á Flæmska hattinum: Kostnaöur allt aö 700 þúsund á dag - segir Snorri Snorrason, formaöur Félags úthafsútgerða Reglugerð Sjávarútvegsráðu- neytisins frá 28. desember sl. um veiðar íslenskra skipa utan flsk- veiðilandhelgi íslands, þar sem segir að frá 1. janúar 1996 og þar til annað verður ákveðið af ráðuneytinu skal eftirlitsmaður á vegum Fiskistofu vera um borð í hverju skipi sem veiðir á Norðvestur-Atlantshafi, hefur vakið hörð viðbrögð Félags út- hafsútgerða eins og áður hefur komið fram. Samkvæmt reglugerðinni skal útgerð sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru að eftirlitsstörfum og ennfremur skal veita þeim endurgjaldslaust alla þá starfsaðstöðu og aðstoð sem þeim er nauðsynleg. Útgerðir nokkurra skipa sem hafa verið að veiðum í Flæmska hattinum lýstu því yfir að þær neituðu að taka við eftir- litsmönnum, töldu eftirlitsmenn NAFO (Norðvestur-Atlantshafs- fiskveiðistofnunin) sinna þeim störfum nægjanlega vel. Snorri Snorrason, útgerðarmaður Dal- borgar EA á Dalvík og formaður Félags úthafsútgerða, segir að kostnaður við að hafa eftirlitsmann um borð allt árið gæti numið allt að 7 milljónum króna, og það sé með öllu óásættanlegt. Það hafi hins vegar vakið furðu hans að heyra Fiskistofustjóra lýsa því yfir að gefnar yrðu út kærur á næstu dögum á hendur þeim útgerðum, sem ekki ætluðu að hlýta reglu- gerðinni. í álitsgerð Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. og Hróbjarts Jónatanssonar hrl., sem unnin var samkvæmt beiðni Félags úthafsút- gerða, segir að það brjóti gegn stjómskipulegri jafnræðisreglu að koma á eftirliti með þeim hætti að sá sem sætir því skuli bera af því kostnað. I íslenskum lögum sé ekki að finna heimild til að haga eftirliti með fiskveiðum þannig að eftirlitsmönnum sé viðvarandi og ótímabundið komið fyrir um borð í fiskiskipi og því sé útgerðum mismunað. I áliti ríkislögmanns, Jóns G. Tómassonar hrl., segir að það sé misskilningur að það brjóti gegn jafnræðisreglu að sá sem eftirliti sæti hverju sinni skulu bera af því kostnað; hér sé ekki um löggæslu að ræða sem ríkinu beri að standa straum af með skatttekjum sínum. Um misskilning eða mistúlkun sé að ræða af hálfu lögmanna Félags úthafsútgerða. Ríkislögmaður seg- ir að hafni útgerðaraðili eða skip- stjóri því að eftirlitsmaður Fiski- stofu komi um borð í skip lians geti það valdið sektum og upptöku afla og veiðarfæra. Snorri Snorrason segir það ekki tímabært að biðja ríkislögmann álits á því hver refsingin gæti orð- ið við því að neita að taka eftirlits- mann um borð. „Um leið og þeir vilja gefa okkur staðfestingu á því að við eigum ekki að greiða þetta eftirlit og bera af því kostnað, þá eru nrennimir velkomnir um borð, fyrr ekki. Það hefur verið ýjað að því að við getum sent reikning ef við tímum ekki að gefa mönnun- um að éta. Það er bæði heimsku- legt og kjánalegt að dæma okkur til að hlýta samþykktum gerðum erlendis en leiða má að því líkur að á næsta sumri verði um 50 veiðieftirlitsmenn í Flæmska hatt- inum og það má gera ráð fyrir að veiðieftirlitsmaðurinn kosti allt að 15 þúsund krónur á dag, eða um 700 þúsund krónur á flotann. Það eru ekki til peningar í ríkiskassan- um til að greiða þessa vitleysu, og það verður ekki gert. Ríkislögmaður er eins fjarri því að vera óháður í þessu máli eins og framast er unnt því hann á að verja hagsmuni ríkisins og skammarstrik embættismanna í ríkisgeiranum. Málið er kynnt með miklu offorsi,“ segir Snorri Snorrason, formaður Félags út- hafsútgerða. GG Treystum meiri- hlutanum ekki of vel - segir Sigríöur Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Alþýöubandaiagsins Á fundi bæjarstjórnar Akureyr- ar sl. þriðjudag um ijárhags- áætlun Framkvæmdasjóðs Ak- ureyrarbæjar sátu bæjarfulltrúar Alþýðubandalgsins hjá um til- lögu meirihlutans sem jafnframt var studdur af fulltrúum Sjálf- stæðisflokksins en létu bóka eft- irfarandi: „Bæjarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins standa ekki að fjárhags- áætlun Framkvæmdasjóðs Akur- eyrar árið 1996. Við munun taka afstöðu til sölu hlutabréfa í eigu sjóðsins hverju sinni en leggjum áherslu á að vandað verði vel til allra vinnubragða. Við setjum sér- stakan fyrirvara við sölu á hluta- bréfum í Útgerðarfélagi Akureyr- inga hf. og lýsum harðri andstöðu við að Akureyrarbær selji þau hlutabréf í einu lagi á árinu eins og ráða má af fyrirliggjandi fjár- hagsáætlun að meirihlutinn telji korna til greina að gera.“ Sigríður Stefánsdóttir, bæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsins, segir það illa útskýrt í tillögu meirihlut- ans hvemig á að framkvæma söl- una á hlutabréfunum og það þurfi að fara mjög varlega í sölu hluta- bréfa bæjarins í Útgerðarfélagi Akureyringa hf. ef hún eigi að verða á annað borð. Það sé ansi hart aðgöngu að ætla að selja öll hlutabréf bæjarins á þessu ári og fulltrúar Alþýðubandalagsins séu alls ekki tilbúnir að skrifa upp á það að gert sé ráð fyrir því. „Þegar bærinn hefur selt sín hlutabréf eru þau komin á almenn- an markað og bærinn hefur þá engan yfirráðarétt yfir þeim. Það er óraunsæi að ætla að velja kaup- endur að bréfunum því það er ekki hægt að binda eignarréttinn við kaupandanum um næstu framtíð. Það þarf því að fara mjög varlega í þessum málum og ef bærinn selji, þarf að íhuga vel aðferðir og tíma- setningu og eins í hve stómm hlut- um. Við erum ekki á þessari stundu tilbúin til að samþykkja að öll hlutabréfin verði seld. Hlutur Akureyrarbæjar í Útgerðarfélaginu hefur farið minnkandi og er nú um 53%, og við höfum að undanfömu staðið að því að ekki væri tekið þátt í hlutafjáraukningu. Það skipt- ir ekki höfuðmáli hvort um liðlega eða tæplega helming er að ræða, hvernig spurning um það hvort bærinn vill hafa einhver áhrif þarna áfram með því að eiga full- trúa í stjórn. Sú hætta kom upp í fyrra þegar misvitur meirihluti ætl- aði að ráðstafa bréfunum og þar með fyrirtækinu í sína þágu. Eg tel að það sé eindreginn vilji bæjar- búa að mjög varlega sé farið í þessu máli. Það hefur verið mjög óljóst af hálfu meirihlutans hvað gera eigi við þá fjármuni sem fengjust við sölu hlutabréfanna, t.d. hvort greiða eigi niður skuldir eða hvort eigi að leysa öll vanda- mál á sviði íþrótta-, félags- og menningarmála eða nota eigi fjár- munina til atvinnuuppbyggingar. Verðmæti bréfanna í dag, 1.450.000.000 krónur, eru aðeins hluti verðmæta eigna Útgerðarfé- lagsins, bæði fasteigna og tækja í landi og skipanna auk kvótans sem metinn er á 3,6 milljarða króna. Ef þorskgengd er að aukast við landið og verðmæti að aukast er ekki rök- rétt að selja þetta allt í einu lagi,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir. „Við treystum meirihlutanum ekki of vel að fara með þessi hlutabréfamál því það hefur sýnt sig í umsýslu þeirra með fyrirtæki bæjarins að þeirn hafa verið ansi mislagðar hendur. Þar er ég bæði að tala unr nrálefni ÚA í fyrra og eins söluna á Krossanesverksmiðj- unni nýlega. Undirbúningur hefur ekki verið nógu góður og svolítið vaðið unr hugsanalaust. Við höf- um stutt það að hlutabréf bæjarins í ýmsum fyrirtækjum væru seld til að greiða upp skuldir enda voru kaupin á sínum tíma ekki hugsuð til langframa, heldur senr stuðn- ingur á erfiðum tírnurn," sagði Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins. GG VÍB opnar á Akureyri Verðbréfamarkaður íslands- banka opnaði fyrr í vikunni af- greiðslu verðbréfafulltrúa í úti- búi bankans við Skipagötu á Ak- ureyri. Þangað munu viðskipta- vinir geta leitað eftir ráðgjöf um kaup og sölu á innlendum og er- lendum verðbréfum. Edda Kristrún Vilhelmsdóttir verður verðbréfafulltrúi VÍB í útibúi ís- landsbanka á Akureyri. Síðastliðið þriðjudagskvöld héldu fulltrúar frá höfuðstöðvum VÍB í Reykjavík fyrirlestur á Ak- ureyri, þar sem tæpt var á ýmsu um verðbréfaviðskipti og fjármál einstaklinga. Fulltrúar VIB eru nú á hringferð um landið en fyrirtæk- ið er um þessar mundir að opna afgreiðslur í helstu útibúum bank- ans á Reykjavíkursvæðinu og á landsbyggðinni. Á fyrirlestrinum á þriðjudags- dagskvöld var boðið uppá veiting- ar og hér sjást fulltrúar VÍB við rjómatertu sem merkt var fyrir- tæki þeirra. Á myndinni eru eftir- taldir starfsmenn VÍB, frá vinstri talið, Gunnar Baldvinsson, for- stöðumaður sjóðareksturs, Sigurð- ur B. Stefánsson, framkvæmda- stjóri, Margrét Sveinsdóttir, for- stöðumaður einstaklingsþjónustu, og Sólveig Lilja Einarsdóttir, úti- búafulltrúi. Mynd: sbs. dagar eftir af útsölunni Dömudeild Herradeild Barnadeild og Sportvörudeild

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.