Dagur - 08.02.1996, Page 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 8. febrúar 1996
LEIÐARI------------------------
Á að stíga skrefið?
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGISÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK- SÍMIÁ SKRIFSTOFU 464 1585,
FAX 464 2285. HEIMASÍMI BLAÐAMANNS 464 3521
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
Með reglubundnum hætti hefur á undanförnum árum
komið upp á yfirborðið umræða um að selja hlutabréf
Akureyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akureyringa hf., því
félagi sem er einn af máttarstólpum í atvinnulífi bæj-
arins. Þegar vel hefur árað í rekstrinum hefur minna
bólað á þessari umræðu en þegar þrengra er í ári í at-
vinnulífinu vaknar eðlilega sú spurning hvort ekki sé
eðhlegt að sveitarfélagið losi sitt fjármagn og reyni
að koma því þannig fyrir að það geti orðið að gagni
við að skapa ný störf í bænum.
Þátttaka bæjarfélaga í atvinnulífi er fullkomlega
réttlætanleg enda er grunnforsenda þess að bæjar-
sjóðir geti staðið undir þjónustu við borgarana að at-
vinnulífið sé sterkt. Þátttaka Akureyrarbæjar í Út-
gerðarfélagi Akureyringa hefur verið fyrirtækinu mik-
ill styrkur á undangengnum árum en eignin hefur
farið stigminnkandi þar sem bæjarfélagið hefur ekki
tekið þátt í hlutafjárútboðum í fyrirtækinu. Nú er
eignin komin niður undir 50% og spurningin er sú
hvort stíga á skrefið til fulls og selja eignarhluta bæj-
arins allan eða að hluta.
Sterk viðbrögð eru jafnan frá Akureyringum þegar
sala á eignarhluta bæjarins í Útgerðarfélagi Akureyr-
inga ber á góma og þau eru afskaplega eðlileg í ljósi
þess hversu mikilvægur hlekkur félagið er í atvinnu-
lífinu. Oft heyrast þau sjónarmið að stjórnun í félag-
inu geti fjarlægst hendur bæjarbúa ef meirihlutaeign
bæjarins verði fórnað. Þau sjónarmið eiga fullan rétt
á sér því eignarhlutir í fyrirtækjum geta skipt um
hendur í viðskiptalífinu á íslandi og gera það nánast
daglega. Eí á annað borð á að taka þá póhtísku
ákvörðun að selja hlutinn í fyrirtækinu hlýtur að vera
eðlilegast að gera það á þann hátt að sem allra hæst
verð fáist fyrir bréfin og að hluti Akureyrarbæjar
verði seldur fleiri en einum aðila. Og grundvaUarat-
riðið og stefnan hlýtur að vera sú að þó svo að bæjar-
félagið færi úr sinni meirihlutaeign yrði félagið áfram
af þeim styrkleika og það verið hefur, og helst sterk-
ara.
Krafan hlýtur samt að vera sú að bæjarbúum verði
gerð grein fyrir, þegar og ef þar að kemur, hvemig
nýta á það fjármagn sem losnaði með sölu bréfanna í
ÚA. Það atriði skiptir kannski stærstu í þessari
ákvörðun.
varla góðri lukku að stýra í sam-
Forráðamenn Reykdælahrepps,
Bárðdælahrepps og Ljósavatns-
hrepps í Suður-Þingeyjarsýslu
hafa sent bæjarstjóm Húsavíkur
og fjölmiðlum athugasemd við
ályktun bæjarstjómar Húsavíkur
um vegamál og ummæli Einars
Njálssonar, bæjarstjóra á Húsavík,
í Degi laugardaginn 3. febrúar síð-
astliðinn:
„Það sætir undrun okkar sem
búum í innsveitum S-Þing. hvern-
ig bæjarstjórn Húsavíkur lætur
vegna lagningar nýs vegar yfir
Fljótsheiði. Hún lætur eins og
framtíð Húsavíkur velti á því að
ekki komi nýr vegur yfir Fljóts-
heiði.
Ef sveitarfélög eiga að geta
unnið saman þá þýðir ekki hugsa
ævinlega bara um eigið skinn. Það
verður líka að taka tillit til ann-
arra, það getur borgað sig.
Þessi togstreita Húsvíkinga um
að fá bundið slitlag á Kísilveginn
og nefna þá nær alltaf nýjan
Fljótsheiðarveg sem einhvem
þröskuld í því sambandi kann
starfi sveitarfélaga í S-Þing. Kísil-
vegurinn er þó ekki nema síðan
1968 þ.e. tæplega þrítugur, eða
helmingi yngri en vegurinn á
Fljótsheiði, sem byggður var fyrir
60 árum með hjálp hests og kerru.
Samkvæmt talningu Vegagerð-
arinnar fara að meðaltali 437 bílar
yfir Fljótsheiði á dag yfir sumar-
tímann. Um Kísilveginn fara 191
á sama tíma. Þrátt fyrir það að
Fljótsheiðin hafi verið lokuð
lengst af yfir vetrartímann er árs-
umferð yfír hana 253 bflar á dag
að meðaltali, en 129 um Kísilveg-
inn. (Tölur frá 1993)
Einar Njálsson, bæjarstjóri,
bendir á að Fljótsheiðarvegur
verði áfram erfiður vegna snjó-
þyngsla þrátt fyrir að þar komi nýr
vegur og af því má álykta að þar
eigi hann við að vegna þess hvað
vegurinn liggi hátt yfir sjó verði
erfitt að halda honum færum á
vetuma. Staðreyndin er sú að nýr
vegur yfir Fljótsheiði fer hæst í
LESEN DAHORN IO
Lesum
Passíusálmana
Jón Helgi Þórarinsson, Daivík,
skrifar:
Þann 5. febrúar, sem var fyrsti
virki dagur í níu vikna föstu, hófst
hinn árlegi lestur Passíusálmanna
í útvarpinu, og má hlýða á hann á
kvöldin kl. 22.20 á Rás 1. Að
þessu sinni er það Gísli Jónsson,
menntaskólakennari, sem les. Með
þessum orðum vil ég eindregið
hvetja alla til að taka fram Passíu-
sálmana sína og hlusta á Gísla
lesa, eða lesa sálmana sjálfir eigi
þeir ekki kost á því að hlýða á
lesturinn í útvarpinu.
Eg hefi í all mörg ár lesið Pass-
íusálmana á föstunni, einn sálm á
degi hverjum, og fullyrði að ég
hefi ekkert það lesið, hvorki bund-
ið mál né laust, sem hefur verið
mér til jafn mikillar trúarlegrar
uppbyggingar og sálmar Hall-
gríms.
Vera má að einhverjum þyki
málfar Passíusálmanna eða fram-
setning trúarinnar á stundum
nokkuð framandi, en það breytist
hins vegar fljótt við lestur þeirra.
Sálmarnir verða brátt auðlesnir og
auðskildir, enda er svo margt í
hverjum sálmi sem allir skilja og
geta tekið til sín. Auk þess sem
Passíusálmamir em meistaraverk
frá sjónarhóli skáldskapar
innihalda þeir fjölmarga sálma
sem sungnir em oft í kirkjum
landsins sem og vers sem bömum
em kennd. Hver þekkir ekki vers-
ið úr 44. sálmi:
Vertu guð faðir, faðir minn
ífrelsarans Jesú nafni.
Hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Þannig mætti nefna fjölmörg
dæmi. Að gefa sér 5 mínútur á
dag til að lesa þann mikla fjársjóð
sem Passíusálmarnir eru, veitir
sérhverjum manni mikla blessun
og styrkir trú hans.
Nemendur í eldri blásarasvcit Tónlistarskólans á Akureyri.
Mynd: Norðurmynd
um eigið skinn
Að líkja því saman
að allt eins megi
byggja hringveginn
í kring um Hofs-
jökul eins og að
ætla honum að
liggja yfir Fljóts-
heiði er slík lítils-
virðing við þá íbúa
sem búa hér sitt
hvoru megin við
Fljótsheiði að með
ólíkindum er.
270 m, Kísilvegurinn fer hæst í
380 m, Víkurskarðið í 325 m hæð,
Mývatnsheiði 335 m, Námaskarð í
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Telur
mikilvægt
að fá bundii
slitlagá
Kísilveginn
Sæjarstjórn Húsavíkur hefui
ályktað um það að mjög mikil
vægt sé að byggja um leiðin:
nilli Austurlands og Norður
Tilefni athugasemdar fjórmenning-
anna er þessi frétt í Degi sl. laugar-
dag.
410 m, Möðrudalsheiði 600 m og
Öxnadalsheiði 540 m svo bent sé
á hæð annarra fjallvega sem eru í
sama landshluta og Fljótsheiðin.
Varla ætti að vera erfiðara að
halda þessum tæplega 10 km
langa vegarspotta færum á vetrum
en þessum fjallvegum.
Að líkja því saman að allt eins
megi byggja hringveginn í kring-
um um Hofsjökul eins og að ætla
honum að liggja yfir Fljótsheiði er
slík lítilsvirðing við þá íbúa sem
búa hér sitt hvoru megin við
Fljótsheiðina að með ólíkindum
er.
Það er trú okkar að nýr vegur
yfir Fljótsheiði efli samstarf sveit-
arfélaga í S-Þing. og bendum við
á að blómlegar sveitir er ein af
megin undirstöðum atvinnulífs á
Húsavík.“
Benóný Arnórsson,
oddviti Reykdælahrepps.
Skarphéðinn Sigurðsson, odd-
viti Bárðdælahrepps.
Helga A. Erlingsdóttir,
oddviti Ljósavatnshrepps.
Gísli Sigurðsson,
varaoddviti Ljósavatnshrepps.
Safna fyrir
Skotlandsferð
Nemendur í eldri blásarasveit í
Tónlistarskólanum á Akureyri eru
nú að undirbúa hljómleikaför til
Skotlands næsta vor. Einn liður í
fjáröflun fyrir ferðina er að föstu-
daginn 9. febrúar nk. kl. 15-18
mun sveitin halda kökubasar í
verslunanniðstöðinni Sunnuhlíð.
Meðlimir sveitarinnar verða með
hljóðfæri sín á staðnum og munu
leika nokkur létt lög fyrir gesti og
gangandi milli kl. 16 og 18.
Sveitina skipa um 30 efnilegir
hljóðfæraleikarar og stjórnandi
hennar er Jón Halldór Finnsson.