Dagur - 11.04.1996, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 11. apríl 1996
LEIÐARI-----------------------
Öryggi eða óöryggi?
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
Sl'MI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGISÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK- SÍMI Á SKRIFSTOFU 464 1585,
FAX 464 2285. HEIMASÍMI BLAÐAMANNS 464 3521
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
Samræmt öryggiskerfi undir nafninu Neyðar-
línan hefur verið í gildi um ríflega þriggja
mánaða skeið hér á landi og á þeim tíma hafa
komið upp tilfelli þar sem boð misskildust eða
misfórust þannig að viðbrögð við slysi urðu
ekki eins snör og annars hefði orðið. Skömmu
fyrir páska kom upp tilfelli þar sem eldur kom
upp í sumarbústað í Fnjóskadal en boðun
slökkviliðs á staðinn var hins vegar ekki rétt
af hálfu stjórnstöðvarinnar í Reykjavík. Þetta
tilfelli sem og fleiri sem komið hafa upp á
fyrstu mánuðum kerfisins vekja eðlilega upp
spurningar í huga fólks um áreiðanleika slíkra
kerfa.
Þegar byggt er upp kerfi á borð við Neyðar-
línuna hlýtur að vera fyrsta skilyrðið að upp-
bygging þess sé með þeim hætti að öryggið
sé í fyrirrúmi og að fólk eigi að geta treyst því
á neyðarstundu að því berist örugglega hjálp
þeirra aðila sem næstir eru. Sannarlega geta
átt sér stað mannleg mistök en þau geta verið
dýrkeypt á stundum sem þeim þegar á hjálp
Neyðarlínunnar þarf að halda og einmitt þess
vegna geta vankantanir sem upp hafa komið
rýrt það traust sem fólk setur á kerfið. Ekki
síst út um landið þar sem Neyðarlínunnni var
jú ætlað að vera hvað mesta skrefið í öryggis-
átt. Öll þau tilfelli þar sem eitthvað hefur mis-
farist bera þess merki að undirbúningur kerf-
isins hafi ekki verið sem skyldi og það er
óásættanlegt þegar um jafn mikilvæga þjón-
ustu er að ræða. Okkur íslendingum hættir
stundum til að framkvæma fyrst og hugsa svo
og það á kannski full mikið við um uppbygg-
ingu Neyðarlínunnar. Ekki skal á móti mælt að
kerfið getur verið af hinu góða en þá eru vítin
til að varast þau og mistökin til að læra af
þeim. Bent hefur verið á að þjálfun starfsfólks
þurfi að vera betri til að það geti tekið að sér
jafn ábyrgðarmikið verkefni og kerfið er.
Dæmin sýna að eitthvað er til í þessari gagn-
rýni og á meðan mistökin koma upp er ekki
við því að búast að fólk treysti fullkomlega
þessari þjónustu.
Oft hefur maður hrifist af söng
Sigurðar Ólafssonar, þar sem
hann syngur um „Fjallið eina“.
Fjallið töfrar, seiðir og heillar.
Þegar maður er ungur, vaknar sú
spuming hvað býr að fjallabaki.
Þegar þeirri þrá er svalað, fær
fjallið sjálft síaukna athygli og hin
sérkennilega fagra lögun þess.
Mig langar að vitna hér í orð
Sigurðar Kristjánssonar, sem lengi
var skrifari hjá KÞ á Húsavík.
Hann var skemmtikraftur og ágæt-
ur upplesari. Eitt sinn hlýddi ég á
hann á fundi á Skútustöðum. Nið-
urlagsorð hans voru: „...og hinar
fögru línur Hverfjalls skýrðust vel
í mildu skini kvöldsólarinnar."
Þessi orð eru mér ógleymanleg.
Flesta daga lít ég til fjallsins og
skynja fegurð þess í síbreytileika,
hvemig Ijós og skuggar falla bæði
sumar og vetur.
í Morgunblaðinu árið 1994
birtist grein með fyrirsögn eitt-
hvað á þá leið að til stæði að
breyta nafni á fjalli í Mývatns-
sveit. Þar er átt við Hverfjall, sem
á að breyta í Hverfell. Ekki höfð-
um við eigendur fjallsins hug-
mynd um þessi áform, en fjallið
stendur í heimalandi Vogafjarðar
og fast við ræktunarlönd okkar.
Eignarétturinn því alger. Þá vitn-
ast það af tilviljun að maður nokk-
ur, ættaður héðan úr sveitinni, er
búinn að reyna að ná fram þessari
nafnbreytingu í fleiri ár. Mér sýn-
ist að hér sé um mjög gróft sið-
ferðislegt brot að ræða, þar sem
ráðist er inn á persónulegan eign-
arrétt manna og reynt að ná fram
breytingum á nafni á náttúmvætti,
sem stendur fremst í flokki mikil-
verðustu menja hér í Mývatns-
sveit. Einnig er Hverfjall heims-
þekkt og er sennilega einn af eftir-
sóttustu ferðamannastöðum hér í
sveit.
Við eigendur fjallsins mót-
mæltum þessari aðför og komum
þeim til Landmælinga íslands
bæði bréflega og með undirskrift-
um. Einnig vom ritaðar blaða-
greinar um málið. Rökstutt var að
alla þessa öld og sjálfsagt lengur
hefur ritmál þessa fjalls verið
Hverfjall. Okkar færustu vísinda-
menn og þar á meðal Sigurður
Þórarinsson, jarðfræðingur, færa
fram sterkan rökstuðning fyrir
Hverfjallsnafninu. í bókinni Nátt-
úra íslands, sem AB gaf út 1961,
segir Sigurður Þórarinsson m.a.:
„Frægasti og mest umskrifaði
sprengigígur er Hverfjall við Mý-
vatn og er mynd eða teikning af
honum í flestum handbókum í
eldfjallafræði, og hann tekinn sem
dæmi um þá gerð eldfjalla. Besta
íslenska heitið á slíku eldfjalli er
einmitt Hverfjall því fjalli sem
raunverulega er allt einn gígur, en
svo er um Hverfjall. Þetta form-
hreina fjall sem svo mjög setur
svip sinn á Mývatnssveit." Það
verður að teljast mikið virðingar-
leysi við minningu þessa vísinda-
manns að væna hann um ókunn-
ugleika og ónákvæmni.
í bókinni íslenskt þjóðlíf í þús-
und ár frá 1908 ritar Daniel
Bruun. Þar talar hann um útsýnið
suður frá Reykjahlíð og um fjöllin
Bláfjall, Sellandafjall og Hver-
fjall. í bókinni „Eldar í norðri",
afmælisriti helgað Dr. Sigurði
Þórarinssyni 70 ára, er vitnað í
greinar í Náttúrufræðingnum. Þar
er a.m.k. sex sinnum getið um
Hverfjall. í íslandslýsingu Þor-
valdar Thoroddsen frá 1911, er
greinargerð um Hverfjall. í bók-
inni Náttúra Mývatns er mjög
greinargóð lýsing á Hverfjalli eftir
Kristján Sæmundsson. I bókum
Ólafs Jónssonar Ódáðahraun, í
þrem bindum sem komu út 1945,
talar Ólafur mjög víða um Hver-
fjall og myndun þess. Þar telur
hann Hverfjall eitt formfegursta
fjall á fs'andi. í stuttri lýsingu á
Þorlákur Jónasson.
„Mér sýnist að hér
sé um mjög gróft
siðferðislegt brot að
ræða, þar sem ráðist
er inn á persónuleg-
an eignarrétt manna
og reynt að ná fram
breytingum á nafni á
náttúruvætti, sem
stendur fremst í
flokki mikilverðustu
menja hér í Mý-
vatnssveit.“
Mývatnssveit til leiðbeiningar fyr-
ir ferðamenn eftir Gísla Pétursson
1948, fjallar hann um Hverfjall og
telur það sérkennilegasta fjall við
Mývatn. í bókinni Sveitin okkar
eftir Þorbjörgu Amadóttur próf-
asts frá Skútustöðum, segir hún
frá skemmtiferð á Hverfjall. Hún
virðist ekki vera í neinum vafa um
hið rétta nafn á fjallinu. Einnig
talar Ami Einarsson víða um
Hverfjall í ritinu Mývatn, sem
Náttúruvemdarráð gaf út 1988.
Nú á síðustu tímum fór að bera
á því að Hverfellsnafnið fór að
sjást á prenti og var það á mynd-
bandi sem Landgræðslan lét gera
um Dimmuborgir. Þama hafa ver-
ið viðhöfð óvönduð vinnubrögð
við umgjörð þessarar annars fal-
legu myndar og rýrir gildi hennar
mjög, þar sem á smekklausan hátt
er nafni Hverfjalls breytt, þrátt
fyrir að mörg skilti með hinu rétta
nafni séu þama víða á vettvangi.
Víða em göngustígar merktir fyrir
ferðamenn til aðgengis á fjallið, á
öllum merkingum stóð Hverfjall.
Sama er að segja um áningarstaði
við innkomu til sveitarinnar og
við útsýnisskífur við Dimmuborg-
ir og Námaskarð. Á öllum kortum
sem Landmælingar íslands gáfu út
frá árinu 1945 til ársins 1988 er
nafnið Hverfjall.
Að sjálfsögðu mega menn kalla
fjallið það sem þeir hafa hugarfar
til. En ritmál nafnsins hefur staðið
bjargfast í gegnum aldir og því
verður ekki breytt. Talmálið getur
aftur á móti breyst á löngum tíma.
Kemur þar ef til vill til óskýr eða
óljós framburður, latmælgi o.fl.
Vegurinn upp í Lúdent liggur
meðfram Hverfjalli. Daglegar
ferðir voru oft upp hjá fjalli. Um
áratugaskeið var heyjað í Lúdent,
einnig gekk sauðféð þama haust
og vor. Alltaf kom Hverfjall mjög
við sögu. Oft var aðeins talað um
fjallið. Ég fullyrði að ég hef aldrei
heyrt nokkum mann tala um fellið
eitt og sér, eða fara upp hjá felli.
Enda slík nafngift fráleit og kemur
við mann eins og skrattinn upp úr
sauðarleggnum. Hví má ekki eitt
frægasta fjall landsins eiga sitt
fjallanafn í friði? Hverfjall fellur
hér svo algjörlega inn í fjalla-
hringinn sem Sigurður skáld á
Arnarvatni orti svo fagurlega um í
kvæðinu Sveitin mín.
Landmælingar íslands hafa lát-
ið í ljós samstöðu við vilja heima-
manna. Hverjir eru heimamenn?
Heimamenn eru hér fyrst og
fremst eigendur fjallsins og ber
því Landmælingum að fara eftir
vilja og sannfæringu þeirra í þessu
máli.
Eigendur fjallsins munu aldrei
sætta sig við rangnefni á Hver-
fjalli, einni dýrustu perlu sveitar-
innar.
Þorlákur Jónasson.
Höfundur býr a8 Vogum í Mývatnssveit.
„Eigendur fjallsins munu aldrei sætta sig viö rangnefni á Hverfjalli, einni dýrustu perlu sveitarinnar,“ segir greinarhöfundur um þann sið að nefna Hverfjall
í Mývatnssveit Hverfell.