Dagur - 11.04.1996, Blaðsíða 5

Dagur - 11.04.1996, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 11. apríl 1996 - DAGUR - 5 Samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri: Páll Skúlason með fyrir lestur á laugardag - í Safnaðarsal Glerárkirkju kl. 14.00 Næstkomandi laugardag, 13. apríl, kl. 14, mun Samhygð - sam- tök um sorg og sorgarviðbrögð, standa fyrir opnum fundi í safn- aðarsal Glerárkirkju á Akureyri. Páll skúlason, prófessor við Há- skóla íslands, mun þar flytja hug- leiðingu sem hann nefnir „Um gleði og sorg“. Páll Skúlason er prófessor við heimspekideild Háskóla íslands. Hann er fæddur á Akureyri 1945 og lauk stúdentsprófi frá MA 1965. Heimspekinám stundaði hann við Université Cat- holique de Louvain í Belgíu á árun- um 1965-1973, en frá árinu 1971 hefur hann kennt heimspeki við HI. Páll hefur haldið fjölda fyrirlestra og gefið út athyglisverðar bækur. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta og hlýða á fyrirlestur Páls á laugardag. Aðalfundur Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni verður haldinn að Bjargi fimmtudaginn 18. apríl kl. 20. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á 28. þing Sjálfsbjargar l.s.f. Önnur mál. Kaffiveitingar. Mætum vel. Stjórnin. Fyrírlestur um Stephan G. í kvöld - í Deiglunni á Akureyri kl. 20.30 þess í Markerville í Albertafylki í Kanada. Ráðstefnuna sóttu leik- menn og fræðimenn víðs vegar að frá Kanada, Bandaríkjunum og ís- landi, en þaðan fóru átta fyrirles- arar og var Haraldur einn þeirra. I fyrirlestri sínum mun Harald- ur leitast við að sýna fram á hvemig Stephan G. notar vísanir í (goð)sögur til þess að gæða yrkis- efni sín aukinni dýpt og jafnframt þeirri vídd sem hvorki tími né rúm setja neinar skorður. Allir eru velkomnir á fyrirlest- urinn í Deiglunni í kvöld. í kvöld, fimmtudaginn 11. apríl, kl. 20.30, heldur Haraldur Bessason, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, fyrir- lestur í Deiglunni á Akureyri á vegum Félags áhugafólks um heimspeki á Akureyri. Fyrirlest- urinn nefnir hann „Goðmögn Stephans G.“. I október sl. var haldinn fjöl- menn ráðstefna um Klettafjalla- skáldið Stephan G. Stephansson á heimaslóðum Akureyri: Námskeið fyrir full- orðin systkini fatlaðra Ferðafélag Akureyrar 1936-1996 60 ára afmælisfagnaður verður haldinn í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, 4. hæð, laugardaginn 13. apríl kl. 20. Ýmis skemmtiatriði og kaffiveitingar. Félagar og aðrir velunnarar eru hvattir til að fjölmenna. Miðaverð kr. 1.000,- Stjórnin. Næstkomandi laugardag, 13. apríl, kl. 8.30 til 16 stendur FFA, Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur, fyrir námskeiði að Glerárgötu 26 á Akureyri. Námskeiðið er haldið í sam- vinnu við Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Norðurlandi eystra, Foreldrafélag barna með sérþarfir, Styrktarfélag vangef- inna og Sjálfsbjörg á Akureyri. Þetta námskeið er ætlað systk- inum fatlaðra, 18 ára og eldri, og verða fyrirlesarar úr röðum systk- SKÁK ina og fagfólks. Áhersla verður lögð á hópvinnu þar sem þátttak- endum gefst tækifæri til að skoða eigin tilfinningar, hlutverk og ábyrgð og miðla reynslu til ann- arra systkina. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Foreldrafélagsins og Styrktarfélags vangefinna í síma 461-2279. Enn er hægt að skrá sig á námskeiðið „og eru systkini fatl- aðra hvött til að nýta sér þetta tækifæri", segir í frétt frá aðstand- endum námskeiðsins. Skákfélag Akureyrar: Rúnar sigurvegari á Páskahraðskákmótinu Skákmenn hafa ekki setið auð- um höndum um páskana og hjá Skákfélagi Akureyrar var keppt á Páskahraðskákmóti þar sem veitt voru páskaegg í verðlaun. Rúnar Sigurpálsson bar sigur úr býtum með 12 vinninga af 14 mögulegum. Hart var barist á Páskahrað- skákmótinu því Þórleifur K. Karlsson var aðeins hálfum vinn- ingi á eftir Rúnari, fékk 11,5 vinn- inga. I þriðja til fjórða sæti urðu svo Ólafur Kristjánsson og Smári Ólafsson með 11 vinninga. I flokki 15 ára og yngri hlaut Egill Öm Jónsson stærsta páska- eggið eftir aukakeppni við Stefán Bergsson sem varð 2. Sverrir Arn- arsson varð í þriðja sæti. Nýlega fór fram 15 mínútna mót hjá Skákfélagi Akureyrar og sigraði Ari Friðfinnsson þar, fékk 5 vinninga af 6. Smári Ólafsson varð annar, einnig með fimm vinninga og í þriðja sæti varð Þór Valtýsson með fjóra vinninga. Loks fór fram 7 mínútna mót þann 6. apríl og þar sigraði Þór Valtýsson með 12,5 vinninga af 14.1 öðru sæti varð Magnús Teits- son með 12 vinninga og í þriðja sæti varð Jón Ámi Jónsson með 11 vinninga. JÓH Skákfélag Akureyrar: Atskákkeppní hefst í kvöld í kvöld kl. 20 hefst í Skákheimil- inu að Þingvallastræti 18 helgar- mót í atskák. Tefldar verða þrjár umferðir en það ræðst af ijölda keppenda hvenær næstu umferðir fara fram. Veitt verða peningaverðlaun til þeirra sem skipa þrjú efstu sæti en auk þess verða hefðbundin verð- laun. Verðlaunapeningar eru fyrir þrjú efstu sætin í flokki 15 ára og yngri. JÓH Ódýrt - Ódýrt V 1. flokkur Eik nature 14 mm ........ 3.070 kr. stgr. 2. flokkur Eik nature 14 mm ........ 2.890 kr. stgr. 2. flokkur Beyki nature 14 mm ........ 2.780 kr. stgr. 2. flokkur Birki rustic 14 mm .........2.680 kr. stgr. 2. flokkur Merbau 14 mm ........ 3.300 kr. stgr. & BVSGINGAIIÖRUR LONSBAKKA•601 AKUREYRI mr 463 0321,463 0326, 463 0323 Gólfefnadeild Sími 463 0324

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.