Dagur - 30.04.1996, Page 6

Dagur - 30.04.1996, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 30. apríl 1996 Arkitektasamkeppni um hönnun og skipulag Háskólans á Akureyri: Starfshópur tekur endanlega ákvörðun Eins og kom fram í Degi sl. laugardag var það niðurstaða dómnefndar í samkeppni um hönnun og skipulag Háskólans á Akureyri á Sólborgarsvæðinu, að engin til'aga hlyti fyrstu verð- laun, en aftur á móti skyldu tvær tillögur hljóta önnur verð- laun. Leggur dómnefnd til að starfshópur menntamálaráð- herra velji aðra 2. verðlauna til- löguna til frekari útfærslu. í dómnefnd voru tilnefndir af menntamálaráðherra Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, formaður, Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í fjármála- ráðuneytinu, og Örlygur Geirsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðu- neytinu. Tilnefndir af Arkitektafé- lagi íslands voru Baldur Ó. Svav- arsson, arkitekt, og Egill Guð- mundsson. I samkeppnislýsingu vakti dómnefnd sérstaklega athygli á eftirfarandi þáttum: 1. Háskólinn á Akureyri er ung stofnun og í stöðugri uppbygg- ingu. Mikilvægt er að hönnunin feli í sér sveigjanleika og mögu- leika á viðbyggingum og/eða ný- byggingum eftir því sem háskól- inn vex og þarfir hans eða sam- starfsstofnana breytast. 2. Lögð er áhersla á heiidar- lausn verkefnisins sem sameinar grunnhugmynd, innra skipulag, aðlögun að núverandi byggingum, útlit og umhverfi. 3. Háskólasvæðið er hugsað sem hluti af almennu útivistar- svæði Akureyrarbæjar. 4. Við hönnun nýbygginga(r) og heildarskipulag háskólasvæðis- ins ber eftir því sem við á að hafa hliðsjón af formi og gerð éldri húsa og staðsetningu þeirra í land- inu. Kynning á samstarfsáætl- unum Evrópusambands- ins á sviði menningarmála Kynningarfundur um samstarfsáætlanir ESB á sviði menningarmála verður haldinn í fundarsal mennta- málaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 4. hæð, þriðjudag 30. apríl nk. kl. 16. Eftirtaldar samstarfsáætlanir, sem íslendingar fá aðild að á grundvelli EES-samningsins, verða kynntar: „Ariane", sem hefur að markmiði að auka samvinnu aðila á sviði bókmenna. „Kaleidoscope", sem tekur til samstarfsverkefna á ýmsum sviðum lista og menningar í Evrópu. „Raphael", sem snýr að varðveislu menningararfsins, samstarfi safna og fagfólks á því sviði. Fundurinn er öllum opinn og munu upplýsingar og umsóknareyðublöð um styrki liggja frammi. Menntamálaráðuneytið, 24. apríl 1996. AKUREYRARBÆR Grasafræðingur/ Líffræðingur Umhverfisdeild Akureyrarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf grasafræðings/líffræðings við Lystigarð Akureyrar. Starfið felst m.a. í umsjón með plöntusafni garðsins. Umsjón með fræsöfnun og fræskiptum við erlendar og innlendar stofnanir, ritstýrir frælista, plöntuskrám og öðrum bæklingum og upplýsingaritum sem gefin eru út á vegum Lystigarðsins. Grasafræðilegar rannsóknir, bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra eru hluti af starfinu. Starfinu fylgir verkstjórn yfir sumarið og staðgengils starf forstöðumanns Lystigarðsins. Ráðið verður í starfið frá 1. júlí 1996. Upplýsingar um starfið gefa umhverfisstjóri Akureyr- arbæjar í síma 462 5600 og starfsmannastjóri í síma 462 1000. Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur- eyrarbæjar í Geislagötu 9, Akureyri. Starf sman nastjóri. H i Hér eru höfundar þeirra tveggja tillagna sem fengu önnur verðlaun ásamt Þorsteini Gunnarsyni, háskólarektor, og Birni Bjarnasyni, menntamálaráðherra. Mynd: BG 5. Við hönnun bygginga skal fylgt kostnaðargát og stefnt að lægri verktakakostnaði en 500 milljónum króna. 6. Allur frágangur bygginga skal vera vandaður, ekki síst hvað varðar ýmsa þætti sem hafa áhrif á viðhaldskostnað. Ellefu tillögur bárust í sam- keppnina. Höfundar þeirra voru eftirfarandi: 1. Hugverk hönnunarþjónusta - Stefán Ingólfsson, arkitekt. 2. HJ teiknistofa Akureyri - Birgir Jóhannsson, arkitekt, Bragi Blumenstein, arkitekt, Einar ÓI- afsson, hönnuður, Halldór Jó- hannsson, landslagsarkitekt, og Sveinn Traustason. 3. Finnur Björgvinsson, arki- tekt, og Hilmar Þór Björnsson, arkitekt. 4. Sigurður Gústafsson, arki- tekt. 5. Kanon arkitektar ehf. - Hall- dóra Bragadóttir, arkitekt, Helgi B. Thóroddsen, arkitekt, og Þórð- ur Steingrímsson, arkitekt. 6. Ölöf Flygenring, arkitekt, Jon Nordstein, arkitekt, og Ævar Harðarson, arkitekt. 7. Ólafur Tr. Mathiesen, arki- tekt, Kím sf. - Ami Kjartansson, arkitekt, Sigbjöm Kjartansson, arkitekt, Gláma sf. - Jóhannes Þórðarson, arkitekt, og Sigurður Halldórsson, arkitekt. 8. Ormar Þór Guðmundsson, arkitekt, Örnólfur Hall, arkitekt, Garðar Guðnason, arkitekt, Öm Sigurðsson, arkitekt, og Yngi Þór Loftsson, landslagsarkitekt. 9. Guðfinna Thordarson, arki- tekt, Thomas J. Stankiewicz, arki- tekt. 10. Finnur Birgisson, arkitekt, Gísli Kristinsson, arkitekt, og Páll Tómasson, arkitekt. Allir eru þeir frá Akureyri. 11. Kolbrún Ragnarsdóttir, arkitekt. Eins og áður segir fengu tvær tillögur önnur verðlaun og búist er við að önnur þeirra verði endan- lega fyrir valinu til útfærslu. Tillaga Sigurðar Önnur þessara tillagna er hug- mynd Sigurðar Gústafssonar. Um hana segir dómnefnd að heildaryf- irbragð hennar sé sannfærandi. Hún ber að mati dómnefndar með sér tíðarandann, er létt og nútíma- leg og horfir til framtíðar. Hug- myndin feli í sér ákveðna og sýni- lega aðgreiningu eldri bygginga og nýbygginga í formi og efnis- vali. Innra skipulag segir dóm- nefnd að byggi á tengibyggingum milli nýbygginga og eldri bygg- inga. Hins vegar er tekið fram að tengsl deilda og sérrýma séu yfir- leitt vel leyst. Gönguleið frá and- dyri háskólans til bókasafns sé ekki viðunandi enda gengið í gegnum matsal nemenda. „Sam- notarými nemenda milli kennslu- byggingar og rannsóknarrýma er skemmtilega leyst með afgerandi hallandi vegg og gefur fyrirheit um líflegt rými og er einnig í rök- réttum tengslum við aðrar eining- ar háskólans." í áliti dómnefndar kemur fram að byggingakostnaður miðað við þessa tillögur Sigurðar Gústafssonar sé áætlaður yfir meðallagi. Tillaga fimmmenninganna í umsögn dómnefndar um tillögu arkitektanna Ólafs Tr. Mathiesen, Árna Kjartanssonar, Sigbjöms Kjartanssonar, Jóhannesar Þórðar- sonar og Sigurðar Halldórssonar, sem einnig hlaut 2. verðlaun, segir að heildaryfirbragð tillögunnar sé mjög sannfærandi og vel unnið. Hún sýni einkar áhugaverða heild- armynd af háskólasvæðinu og möguleikum á framtíðaruppbygg- ingu skólans. Hún gefi fyrirheit um byggingar sem myndu sóma sér vel undir starfsemi háskólans. Hugmyndagrunnur tillögunnar er skýr, segir dómnefnd í umsögn sinni, og byggir á nýrri aðalað- komu um torg og innbyrðis teng- ingu allra deilda um „innigötu". Innra fyrirkomulag er í heildina vel leyst, að mati dómnefndar. Innbyrðis afstaða deilda er rökrétt, nýr inngangur skemmtilegur og öll yfirsýn auðveld. Ný staðsetn- ing stjómunarrýma er góð en þarf að skoða í samhengi við aðrar ein- ingar háskólans. Hins vegar telur dómnefnd að vinnurými kennara og matstofa nemenda sé nokkuð þröng og innra skipuiagi rann- sóknahúss sé ábótavant í einstaka tilfellum. Tekið er fram að þessi tillaga sé stór í samanburði við aðrar til- lögur, en það helgist m.a. af því að Stofnun Vilhjálms Stefánsson- ar sé sett í núverandi stjómunar- rými háskólans og sundlaugarrými sé óbreytt. „Tillagan eins og hún er sýnd með Stofnun Vilhjálms Stefáns- sonar og nýju rými fyrir stjómun- arálmu er of stór miðað við upp- gefna húsrýmisáætlun. Samkvæmt stærðarútreikningum ráðgjafa er hún stærri en fram kemur í gögn- um. Höfundur gerir grein fyrir aukinni stærð og bendir á aðra valkosti, sem minnka tillöguna töluvert. Heildarbyggingarkostn- aður yrði samt sem áður verulegur og kom það fram á heildarmati til- lögunnar.“ Sýning á tillögunum á Sólborg Vert er að geta þess að almenningi gefst kostur á að kynna sér allar 11 tillögumar sem sendar voru inn. Þær eru til sýnis á Sólborg í dag kl. 17-22, á morgun kl. 14- 17, á fimmtudag og föstudag kl. 17-22 og um næstu helgi, laugar- dag og sunnudag, kl. 14-17 báða dagana. Full ástæða er til að hvetja fólk til að kynna sér þær hugmyndir sem arkitektamir lögðu fram óþh Ferð á vélsleðahátíð til Svíþjóðar í byrjun júní verður boðið upp á þriggja daga ferð á mikla vél- sleðahátíð, sem haldin verður í Umeá í Svíþjóð, Hay Days Skandinavia. Áðal hvatamaður að henni er Sigurður Baldursson á Akureyri, vélsleðamaður með meiru. Vélsleðavertíðin hefur verið stutt hjá frændum okkar í Svíþjóð og ætla þeir að bæta úr því með fyrr- nefndri hátíð, sem á sér fyrirmynd í Bandaríkjunum. Meðal þess sem þarna verður í boði er formleg kynning á 1997 árgerðinni af vél- sleðum, spymukeppni á grasi, á annað hundrað aðilar kynna og selja vörur tengdar vélsleðum, sýning á sérsmíðuðum vélsleðum, hljómleik- ar og ýmsar fleiri uppákomur. Flogið verður með beinu flugi frá Reykjavíkurflugvelli með nýrri vél íslandsflugs föstudagsmorgun- inn 7. júní og til baka frá Umeá á sunnudag. Lent verður í Reykjavík um kl. 21 á sunnudagskvöld. Farar- stjóri verður Sigurður Baldursson, sem búið hefur í Umeá og mun vera nokkuð sleipur í sænsku. Hann veit- ir allar nánari upplýsingar í s. 854- 5313 og 462-2777. í boði eru 35 sæti og verða menn að bóka fyrir 10. maí. HA

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.