Dagur - 01.06.1996, Síða 10

Dagur - 01.06.1996, Síða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 1. júní 1996 Sjómannadagsblað Austurlands 1996: Kemur út ídag í dag, laugardag, kemur út Sjó- mannadagsblað Austurlands 1996, sem er 100 blaðsíður að stærð og eru í því á annað hundrað Ijósmyndir. Að vanda er efni blaðsins fjölbreytt og kemur frá nær öllum þéttbýliskjömum á Austurlandi og víðar að. Greinahöfundar eru um 20 talsins. Meðal efnis má nefna: Hug- leiðingu og „söguskoðun“ spakvitringa eftir Vilhjálm Hjálmarsson, Mjóafirði, „Sjó- sókn - minnisgreinar um sjó- sókn í Vopnafirði á 19. öld“ eftir Gunnar Sigmarsson á Vopnafirði, „Njósnarinn“ í Neskaupstað - frásögn Óskars Bjömssonar í Neskaupstað, „Fyrsta vertíð Loðnuvinnsl- unnar hf. á Fáskrúðsfirði" - eftir Magnús Ásgrímsson á Fá- skrúðsfirði, „Veiðar úr van- nýttum fiskistofnum" - eftir Bjöm Bjamason Reykjavík, „Kveðja til sjómanna" - eftir Þorstein Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, „Sjóstangaveiði" - eftir Pálma Stefánsson í Nes- kaupsstað, „Úr reynsluheimi viðvanings“ - eftir sr. Bryn- hildi Óladóttur, Bakkafirði, „Gamlir bátar“ - eftir Guð- mund Sveinsson, Neskaupstað, „Sjóferðasaga“ eftir Vilhjálm Einarsson á Egilsstöðum, „Pistill af pilti“ eftir Pjetur St. Arason á Egilsstöðum, „Smá- saga“ eftir Guðjón Sveinsson á Breiðdalsvík, „Sögur af Jósa- fat Hinrikssyni, athafnamanni í Reykjavík", „Smygl á Fá- skrúðsfirði“, Á síldveiðum 1939“ - eftir Hávarð Berg- þórsson á Eskifirði o.fl. Utan Austurlands verður blaðið selt í verslunum Ey- mundsson í Reykjavík og bókaverslunum á Akureyri, Húsavík, Vestmannaeyjum, ísafirði og víðar. Um prentun, litgreiningu og umbrot sá Skákprent í Reykjavík. Rit- stjóri er Kristján J. Kristjáns- son í Neskaupstað. óþh Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 461 2080 Listviðburðír á Akureyri firá Listahátíð í Reykjavík Femir tónleikar verða á Akureyri nú í fyrri hluta júnímánaðar þar sem fram koma listamenn sem komnir eru til landsins til að vera á Listahátíð í Reykjavík. Fimmtudaginn 6. júní kl. 20.30 verða tónleikar ungverska píanó- leikarans András Schiff og japanska fiðluleikarans Yuuko Schiff. Þau hjónin leika verk eftir J.S. Bach og F. Schubert. Síðar það sama kvöld eða kl. 22 leikur Sigurður Flosason ásamt alþjóðlega jasskvintettinum. Laugardaginn 8. júní kl. 16 verður Fílharmoníukvartett Berlínar með tónleika þar sem leikin verða verk eftir J. Haydn, B. Bartok og L.v. Beethoven. Miðvikudaginn 12. júní kl. 20.30 leikur Den danske Trio verk eftir N.W. Gade, Atla Heimi Sveinsson, H.H. Nordström og D. Shostakovich. Allir tónleikamir verða í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju nema tónleikar Alþjóðlega jasskvintettsins sem verða í Deigl- unni. Yuuko Shiokawa fæddist í Tokyo, þar sem hún hóf fiðlunám á fimmta aldursári. Hún nam síðar hjá frægum fiðluleikurum á Vest- urlöndum, meðal annarra Eugen Cremer, Wilhelm Stross og San- dor Vegh. Á 19. aldursári vann hún til verðlauna þýsku tónlistar- skólanna sem kennd eru við Mendelsohn og í kjölfarið hélt hún tónleika um gjörvalla Evrópu. Hún hefur komið fram sem ein- leikari með mörgum af frægustu hljómsveitum veraldar. Við þau tækifæri hefur hún leikið undir sprota heimsþekktra hljómsveitar- stjóra s.s. Karajans í Salzburg og Rafaels Kubelik sem reyndar sá til þess að hún fengi fiðlu föður síns til afnota, en sá dýrgripur var smíðaður af Stradivariusi árið Þau hjónin Yuuko Schiff og András SchilT leika á tónleikum í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Þessir tónleikar eru stórkostlegur listviðburður sem unnendur klassískrar tónlistar ættu ekki að láta framhjá sér fara. 1715 og gengur undir gælunafn- inu „Keisarinn“. Ándrás Schiff fæddist í Búda- pest og nam þar við Liszt Aka- demíuna og síðar hjá George Malcom í London. Verkefnaval hans er óvenju víðfeðmt. Mest lof hefur hlotið fyrir túlkun sína á Bach og Mozart en nýlega flutti hann allar Mozart sónöturnar á tónleikum í Þýskalandi, Austurríki og Ungverjalandi. Óhætt er að segja að hér sé á ferðinni einn af fremstu píanóleikurum samtíðar- innar. András Schiff hefur m.a. komið fram sem einleikari með Fílharmoníuhljómsveit Vínarborg- ar undir stjóm landa síns Sir Ge- orge Solti og innan skamms er að vænta ávaxta þeirrar samvinnu á geisladiski þar sem heyra má fyrsta píanókonsert Brahms. Auk Fílharmoníukvartett Berlínar kem- ur fram á tónleikum í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju laugardag- inn 8. júní. glæsilegs ferils sem einleikari hef- ur hann átt gjöfult samstarf við stórsöngvara á borð við Peter Schreier og Cecilia Bartoli. I Fílharmoníukvartett Berl- ínar eru fiðluleikaramir Daníel Stabrawa óg Christian Stadel- mann, Neithard Reisa lágfiðlu- leikari og Jan Diesselhorst selló- leikari. Þeir em leiðandi hljóð- færaleikarar úr Fílharmoníusveit Berlínar. Kvartettinn hefur um árabil getið sér gott orð víða um heim fyrir framúrskarandi flutning á kammerverkum. Hann einskorð- ar sig ekki við ákveðinn stíl eða stefnu heldur leitar stöðugt nýrra leiða til að kalla fram eiginleika tónverkanna hverju sinni af ná- kvæmni og fádæma snilld. Bak við nafnið Den danske Trio felast nöfn þriggja tónlistar- manna sem markað hafa djúp spor í danskt tónlistarlíf, en þeir eru Rosa- lind Bevan, píanóleikari, Bjame Hansen, fiðluleikari, og Svend Winslpv, sellóleikari. Listamenn- imir höfðu starfað saman af og til í mörg ár en stofnuðu síðan Den danske Trio árið 1993 með aðsetur í Óðinsvéum. Tríóið blandar gjaman saman eldri tónlist og nútímatónlist og hefur flutt margar perlur eftir klassísk tónskáld og pantar verk frá núlifandi tónskáldum. Á tónleikum Sigurðar Flosa- sonar og Alþjóðlega jasskvin- tettsins verður flutt ný tónlist fyrir jasskvintett eftir Sigurð. Daginn eftir verða þeir félagar með tón- leika í Reykjavík en í kjölfar þess- ara tónleika mun hljómsveitin hljóðrita geisladisk með sama efni fyrir Jazzís útgáfuna. Sigurður hefur valið fjóra meðleikara sem allir eru þekktir í heimalöndum sínum og víðar. TÓNLIST Ádegí jazzins Alþjóðlegi jazzdagurinn var 25. maí. 1 tilefni dagsins var efnt til ánægjulegs tónlistaratburðar á Ak- ureyri. Fjórir tónlistarmenn, sem komið hafa mjög við sögu í jazzi í bænum og víðar á undanfömum árum, þeir Karl Olgeirsson, píanó- leikari, Gunnar Ringsted, gítar- leikari, Jón Rafnsson, bassaleikari og Karl Petesen, trommuleikari, komu saman á Café Olsen við Ráðhústorg og fluttu jazz frá klukkan 13:00 til 15:00. Þessir tónleikar voru með sér- stökum hætti. Félagarnir fjórir hugsuðu sér ekki að vera einir um flutning. Þeir vildu fá sem flesta í lið með sér. I fréttatilkynningu, sem þeir sendu frá sér, skomðu þeir á áhugamenn um jazz að mæta á staðinn og njóta tónlistar- innar, en ekki síður að taka þátt í flutningi hennar. Á nokkra var skorað með nafni, en því miður birtist fréttatilkynningin ekki í því formi, heldur sem almenn áskor- un. Nokkrir urðu þó við kallinu og má þar nefna saxafónleikarana Wolfgang Frosta Sahr og Ingva Vaclec Alfreðsson og söngkonuna Ingu Eydal. Undirritaður hafði því miður ekki tækifæri til þess að vera við tónleikana alla, en náði þó vel lokahluta þeirra. Forsprakkarnir fjórir fóru á kostum. Píanóleikar- inn Karl Olgeirsson var í stuði og tók hverja fagursyrpuna af annarri á hljómborðið. Hugmyndir Karls í sólóspuna eru oft djarflegar. Hann hefur það fyrir hátt að ráðast á garðinn þar sem hann kemur að honum og tekst langoftast að gera bæði skemmtilega og forvitnilega hluti. Gítarleikarinn, Gunnar Ringsted, átti ekki síður fallegan leik. Hann var heldur hóflegri í spuna sínum en falleg tök hans á gítarinn sýndu ljóslega getu hans á hljóðfærið. Jón Rafnsson skóp traustan bassagrunn í leik þeirra félaga og átti nokkur falleg sóló, en hefði á stundum mátt spinna lengur til þess að hitna enn frekar. Trommuleikarinn Karl Peterson sló taktinn á fjölbreyttan hátt og gætti sín jafnan vel á því að yfir- gnæfa ekki. Yfir öllum leik þeirra félaga sveif hinn sanni jazzandi; andi lífsgleði og þess fjörs og þeirrar sköpunar, sem einkennir jazz, þegar hann er leikinn af fingmm fram og verður til sem tjáning stundarinnar. Saxafónleikaramir Wolfgang Frosti Sahr og Ingvi Vaclec Al- freðsson hafa tekið miklum fram- fömm síðan undirritaður heyrði þá síðast. Jazztilfinnning þeirra hefur dýpkað og leikur þeirra er fyrir vikið orðinn innlifaðri og jazz- ískari en fyrr. Þeir félagar Ieika í sveitinni Akurjazz. Tími er kom- inn til þess, að hún láti frá sér heyra, svo að njóta megi hennar allrar. Inga Eydal söng þrjú lög: It’s only a Paper Moon, There will ne- ver be another You og There is no Greater Love. Inga Eydal á vissu- lega létt með það að tjá sig í söng og er túlkun hennar í jazzsöng þægilega dökk. í henni - einkum í fyrsta laginu - virtist bregða skemmtilega fyrir lítils háttar áhrifum frá Janis Joplin. Þessir tónleikar voru ánægjulegir og vekja löngun í meira af sama tagi. Aðstaðan á Café Olsen er mjög bærileg til tónlistarflutnings af þessu tagi. Vonandi verður þess ekki langt að bíða, að framvarðar- sveit jazzista á Akureyri endurtaki uppákomuna eða efni til annars tónlistaratburðar af svipuðu tagi. Haukur Ágústsson. Heilræði Kaffihlaðborð Verið velkomin í sunnudagskaffið í sumar, á milli kl. 14.30 og 17.00. Gisting - góður staður fyrir afmæli og minni samkomur. Gistiheimilið Engimýri í Öxnadal, sími 462 6838. TIL SÖLU er jörðin Keldur í Sléttuhlíð í Skagafirði ef viðun- andi tilboð fæst. Á jörðinni er lítið íbúðarhús ásamt bátaskýli. Hlunnindi: Reki og silungsveiði í sjó og Sléttuhlíðar- vatni. Nánari upplýsingar veita Stefán í síma 462 2295 og Sævar í síma 462 2868 á kvöldin og um helgar. Hestamenn! Verið vel á verði þar sem ökutæki eru á ferð. Haldið ykkur utan fjölfarinna akstursleiöa. Stuðlið þannig að auknu umferðaröryggi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.