Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1994, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994
9
Utlönd
Grænlandsselur-
inneturfiská
viðtogaraflota
Grænlandsselurinn, sem Norö-
menn veiða í takmörkuön magni,
sporörennir álika miklum fiski og
alþjóðlegur floti fiskiskipa veiðir í
Noregshafi og Barentshafi.
Þetta eru niðurstöður rann-
sókna sem vísindamenn gerðu á
matarvenjum Grænlandssela
sem þeir voru með í sérstökum
kerum þar sem reynt var að líkja
eftir hitastigi og fleiru í náttúru-
legu umhverfi dýranna. í Ijós
kom að selurinn fær 6300 kaloríur
á dag.
Ekki er vitað nákvæmlega um
hversu mikið selurinn etur af
hverri fisktegund en reikna má
með að Grænlandsselurinn láti í
sig sem svarar 420 þúsund tonn-
um af þorski á ári sem er meira
en veitt var af norskum heim-
skautaþorski árið 1992.
Mikið var um sel við Noregs-
strendur á niunda áratugnum og
árið 1989 ákvaö norska rann-
sóknaráðið að hrinda í fram-
kvæmd sérstakri rannsóknará-
ætlun á dýrunum. Þeim rann-
sóknum er nú að ljúka.
Kohl villfáAust-
ur-Evrópuleið-
togaáfundi
Helmut Kohl,
kanslari
Þýskalands,
hefur lagt til að
leiðtogum ríkja
Austur-Evrópu
verði boðið aö
sitja leiðtoga-
fundi Evrópu-
sambandsins og aö það verði eins
konar áfangi á leið landanna inn
ÍESB.
Kohl sagði í vikubyrjun að
hann ætlaði að hefja máls á þessu
við leiðtoga lúnna ESB-rikjanna
en Þjóðverjar fara með forustu í
sambandinu þetta misserið.
Kanslarinn sagði að með því að
bjóða leíðtogunum til fundar
væri auðveldara að afla ESB fylg-
is innan fyrrum kommúnistaríkj-
anna.
Atvinnuieysi i
Finnlandifer
vaxandi á ný
Atvinnuleysi í Finnlandi jókst
á ný í júní þegar námsmenn
komu út á vinnumarkaðinn. Við
lok mánaðarins var rétt tæplega
hálf milhón manna án vinnu, eða
19,9 prósent vinnufærra.
Samkvæmt yfirliti frá atvinnu-
málaráðuneytinu jókst atvinnu-
leysið í júrú meðal næstum allra
hópa.
Atvinnulausu ungu fólki hefur
fjölgað um rúmlega átján þúsund
frá í maí og skýrist það af skóla-
fólki sem komið hefur út á vinnu-
markaðimt. Þá hefur langtímaat-
vinnuleysi einnig aukist.
NTB, Reuter, FNB
Norðmenn geta ekki gert kröfur í Smugunni:
íslendingar eru
of skammsýnir
Norðmenn geta ekki gert neinar
kröfur til Smugunnar í Barentshafi
þar sem hún er alþjóðlegt hafsvæði
og ber því nafn sitt með rentu.
Þetta er áht Arthurs Baste, tals-
manns norska utanríkisráðuneytis-
ins. Hann segir þó að engin launung
sé á því að norsk stjórnvöld séu vægt
sagt lítið hrifin af því að þar séu
stundaðar frjálsar og hömlulausar
veiðar.
„Það bitnar á öllum sem stunda
skynsamlegar veiðar með tilliti til
fiskstofnanna," sagði Baste. „Samt
sem áður er erfitt að setja Smuguna
á dagskrá í viðræðum milli Noregs
og annarra landa, til dæmis íslands."
Baste segir að ekki hafi farið fram
neinar viðræður við íslendinga um
Smuguna þar sem í raun sé ekkert
til að ræða um.
„Þetta er miklu fremur spurning
um að mælast til þess við íslendinga
að þeir fari að hegða sér skikkan-
lega. Þeir verða að taka tillit til lang-
tímahagsmuna sinna og vera ekki
jafn skammsýnir og þeir eru nú. Þeg-
ar íslendingar eru nú búnir að tæma
eigin „kæliskáp" fara þeir að heiman
til að tæma annarra," segir Baste.
Samkvæmt upplýsingum frá
norsku strandgæslunni eru níu tog-
arar nú að veiðum í Smugunni, flest-
ir þeirra íslenskir. Strandgæslan
fylgist með hversu mikið togararnir
fá en hún getur ekkert gert til að
stöðva veiðarnar á þessu alþjóðlega
hafsvæði.
Franski tískukóngurinn Givenchy kynnti þennan svarta og gagnsæja kvöld-
kjól á haust- og vetrartískusýningu sinni i París í gær. Ætla má að kjóllinn
sé helst til þunnur fyrir islenskan vetrarkulda. Simamynd Reuter
m 1
i. t
m. wk' ■ i
í*i-: y
Fjórir Smugutogaranna eru skráð-
ir á íslandi en hinir sigla undir henti-
fána. Vitað er að tveir þeirra eru í
eigu islenskra aðila en óljóst er um
hina þrjá en Norðmenn telja að ís-
lendingar standi einnig á bak við þá.
„Sum skipanna eru samvinnuþýð
og gefa upp aflann en við fylgjumst
grannt með hinum til að fá yfirlit
yfir veiði þeirra,“ segir Öystein
Wemberg, næstæðsti maður norður-
svæðis norsku strandgæslunnar.
Annað mikilvægt hlutverk strand-
gæslunnar á þessum slóðum er að
sjá til þess að togararnir stingi ekki
af og fari á verndarsvæðið við Sval-
barða.
NTB
Silvlo Berlusconi lét undan.
Simamynd Reultr
Berlusconiaft-
urkallar um-
deilda tilskipun
Silvio Berluscorú, forsætisráð-
herra Italíu, dró til baka í gær
umdeilda tilskipun þar sem völd
rannsóknardómara í spilhngar-
málum til að hneppa menn i varö-
hald voru mjög takmörkuð.
Þetta er stærsti ósigur forsætis-
ráðherrans frá því hann fór aö
hafa afskipti af stjórnmálum fyrir
sjö raánuðum.
Fjöldi manns, sem hafði safnast
saman i Róm og Napðlí til að
mótmæla tílskipuninni, fagnaði
ákaft þegar fréttir bárust um af-
nám hennar.
„Berlusconi barði höfðinu við
steininn og tapaði,“ sagði Ar-
mando Cossutta, leiðtogi flokks
harðlínukommúnista, í mótmæl-
unum í gær.
Berlusconi hefur reynt að taka
spihingu af lista yfir þá glæpi sem
dómarar mega beita gæsluvarð-
haldsúrskurðí við. Mótmælendur
óttuðust að með tilskipuninni
yrði dómurum gert erfitt um vik
að rannsaka spillingarmál.
Reuter
FERÐABÍLAR
í ÚRVALI
Suzuki Vitara JLX, 5 d., árg. 92, ek.
52.000 km. V. 1.750.000. Árg. ’92,
ek. 53.000 km, upphækkaður, 31"
dekk. V. 1.850.000.
Suzuki Samurai 413, árg. ’91, ek.
66.000 km. V. 795.000. Árg. '92, ek.
20.000 km. V. 990.000. Árg. ’93, ek.
9.000 km. V. 1.150.000.
Econoline E 350 4x4, 5 sæta, árg.
’85, ek. 92.000 km. V. 1.590.000. 35"
og 36" dekk. Driflæsingar.
Ford Bronco XLT, árg. ’87, ek.
80.000 km. V. 1.030.000.
Nissan king cab dísil, árg. ’91, ek.
36.000 km. V. 1.380.000.
Dodge Dakota 4x4, sjálfsk., árg. ’90,
ek. 34.000 km. Vsk-bíll. V. 1.450.000.
Góð
greiðslukjör
# SUZUKI
j iwy.
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 • SlMI 685100
wwwwwwvv
Þverholti 11 - 105 Reykjavík
Sími 91-632700
Bréfasími 91 -632727
Græni síminn: 99-6272
Fallegu brúóarkorselettin komin aftur
|) í stærðum 34-40, A-B-C og Ð skálar,
litir hvítt og húðlitur. m
Hinn vinsæli fyllti undrabrjósta- |
haldari kominn aftur, litir svart og
hvítt, stærðir 32-36, AogBskálar.
sem koma og vorsla moð úrklippj
jo y ^ r «, fá blátt eóa hvítt sokkaband frítt.
# .««Mto-Ép of? M
Vert 5.800 kr.