Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1994, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1994, Blaðsíða 17
17 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLl 1994 Feyenoord vill fá 154 milljónir - tvíburarnir ræða við forráðamenn Númberg 1 vikunni Feyenoord hefur farið fram á að fá 3,6 milljónir marka, eða um 155 milljónir króna, fyrir Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni, samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV. Niirnberg frá Þýskalandi vill fá þá báða, eftir að hafa fengið þá til sín til reynslu fyrir skömmu, en við- ræður Þjóðverjanna við Feyenoord hafa gengið treglega. Samningar þeirra við hollenska félagið runnu út þann 1. júlí. Upphæðin sem Feyenoord setur upp er ekki í neinu samræmi við þau tækifæri sem tvíburarnir fengu hjá félaginu þau tvö ár sem þeir voru samningsbundnir því. Amar lék í kringum tíu deildaleiki en Bjarki engan og lengst af var hlutskipti þeirra að spila með varaliðinu. Arnar og Bjarki eru komnir til Þýskalands og munu ræða við for- ráðamenn Nurnberg í þessari viku, og ef málin leysast og hægt verður að ganga frá samningum hefja þeir æfingar með þýska hðinu fljótlega eftir helgina. Bjarki Gunnlaugsson. ! France: yrstur í 6. sérleið 224,5 km löng. 189 keppendur hófu keppni í Tour de France sem haldið er í 81. skipti en nokk- ur hluti þeirra hefur helst úr lestinni af ýmsum ástæðum. Slys koma þar inn í og einnig þreyta og þá sérstaklega þegar keppnin hófst i Ólpunum. gur ársins í kringlukasti Bogason, FH, náði einnig sínu besta kasti í ár, 59,06 metra, og kúluvarparinn Pétur Guðmundsson úr KR kastaði kringlunni 55,26 metra, sem er einnig hans besta. Guðmundur þeytti sleggjunni 65,26 metra, sem er aðeins 20 sentímetrum frá íslandsmetinu sem hann setti í fyrra. Aganefnd KSÍ úrskuröaöi: Fjðrir leikmenn í 1. deild dæmdir í eins leiks bann Fjórir leikmenn úr 1. deild karla voru í gærkvöldi úrskurðaðir í eins leiks bann af aganefnd KSÍ vegna fjögurra gulra spjalda. Það voru Eyjamennirnir Bjarnólfur Lárusson og Dragan Manojlovic, Skagamaður- inn Ólafur Þórðarson og KR-ingur- inn Heimir Guðjónsson. Leikbönnin taka gildi á hádegi á fóstudag þannig að þeir geta allir spilað með liðum sínum í 10. umferð 1. deildarinnar annað kvöld. Eyja- mennirnir verða því í banni gegn Grindavík í bikarnum, Heimir gegn Breiðabliki í bikarnum, en Ólafur verður þá ekki með Skagamönnum í 1. deildar leiknum við Fram 28. júlí. Ólafur fékk tveggja leikja bann Ólafur Stígsson, sóknarmaðurinn efnilegi úr Fylki, fékk tveggja leikja bann fyrir brottreksturinn gegn Þrótti R. í 2. deildinni í fyrrakvöld. Hann verður því hvorki með í topp- leiknum við Grindavík á föstudags- kvöld né í bikarleiknum við Stjöm- una á mánudag. Aðrir leikmenn 2. deildar í eins leiks banni eru Guðjón Ásmundsson og Ingi Sigurðsson úr Grindavík, Bjarki Bragason úr KA og Selfyss- ingarnir Grétar Þórsson og Ingólfur Jónsson, og þeir taka allir bönnin út á föstudaginn. Úr neðri deildunum eru eftirtaldir í eins leiks banni: Steinar Ingimund- arson, Fjölni, Arnar Sigtryggsson, Ármanni, Haukur Þórðarson og Ól- afur Ólafsson úr Neista á Hofsósi, Anthony Stissi úr Reyni S., Sveinn Steingrímsson úr SM, Smári Eiríks- son úr Tindastóli, Orri Hreinsson úr Þrym og Jóhann Rúnar Pálsson úr Völsungi. Þá voru tvær konur, Þórunn Sig- urðardóttir, þjálfari og leikmaður Dalvíkur, og Edda Björk Eggertsdótt- ir úr ÍBV, úrskurðaðar í eins leiks bann. Ólafur Þórðarson leikur ekki með Skagamönnum gegn Fram 28. júlí. Páll tekur við þjálfun á B36 4. deildin: Magnús Jónasson, DV, Egilsstöðum; Huginn frá Seyðisflrði náði í gærkvöldi forystunni í D-riðli 4. deildarinnar í knattspyrnu með 2-2 jafntefli gegn Einherja á Vopnaflrði. Björn Björnsson og Sigurjón Björnsson skoruðu fyrir Einherja en Daði Vilhjálmsson og Vilhelm Adolfsson fyrir Hug- in. Staðan í D-riðli: Huginn...... 8 5 1 2 20-12 16 KVA.......... 7 5 0 2 17-8 15 Sindri...... 6 4 0 1 21-7 13 KBS......... 6 3 12 17-13 10 Einherji.... 7 2 2 3 19-17 8 NeístiD..... 6 114 11-19 4 Langnesing ..6 0 0 6 6-35 0 í kvöld 4. deild í knattspyrnu: Njarðvik-GG................20 Langnesingur - KBS.........20 KVA - Sindri...............20 Páll Guðlaugsson hefur verið ráð- inn þjálfari stærsta knattspyrnufé- lags Færeyja, B36, en pólskur þjálfari hætti störfum hjá félaginu 1. júlí í kjölfar slaks árangurs. Páll þjálfaði landslið Færeyja þegar það sló í gegn fyrir fáum árum en lét af því starfi Páll Guðlaugsson. í september 1993 og hefur síðan þjálf- að 2. flokks Uð. „Þetta er mjög krefjandi verkefni því B36 er með svipaða stöðu í Fær- eyjum og KR er með á íslandi. Félag- ið er geysilega öflugt og er með 35 lið í öllum flokkum, og á meistaraflð í yngri flokkunum ár eftir ár, en meistaraflokkurinn hefur ekki orðið færeyskur meistari síðan 1962,“ sagði Páll við DV í gær. B36 byrjaði mjög vel í vor og var efst að loknum flmm umferðum, en hefur síðan ekki unnið leik og er nú í fjórða sæti. Eftir níu umferðir er B71 með 16 stig, HB er með 15, GÍ 15 og síðan kemur B36 með 9 stig. „Markmið númer eitt er að halda sér í deildinni, en síðan yrði bónus að ná Evrópusæti, þó það virðist ekki raunhæft eins og er. Félagið er með 4-5 ungUngalandsliðsmenn og ég vil byggja á þeim til lengri tíma en B36 hefur gert of mikið að því að fá til sín leikmenn frá öðrum félögum og það hefur ekki gengið upp,“ sagði Páll. ______________íþróttir Hafsteinnvann íBorgarnesi Hafsteinn Hafsteinsson, GMS, sigraði á opna Gevaliamótinu í goFi sem haldið var á Hamars- veUi i Borgarnesi á laugardaginn, bæði í keppni með og án forgjaf- ar. Hann lék á 80 höggum, en næstir komu Siguröur Gunnars- son, GJÓ, og Viðar Héðinsson, GK, á 83 höggum. Með forgjöf lék Hafstemn á 66 höggmn, eins og IUugi Björnsson, GK, sem varð annar. Sigurður bestur íSandgerði Sigurðúr Sigurðsson, GS, sigr- aði á opna Bláalónsmótinu núm- er tvö í golfi sem fram fór á Vall- arhúsavellí í Sandgerði. Hann lék á 69 höggum en Guðmundur R. Hallgrímsson, GS, varð annar á 71 höggi eftir bráðabana við Aðal- stein Ingvarsson, NK, og Guð- mund Sigurjónsson, GS. í keppni með forgjöf sigraði Kristján Örn Sigurðsson, GR, á 64 höggum. Gotfmótunglinga HaldiðáHúsavík Golíklúbbur Húsavíkur heldur opið 18 holu unglingamót, Pepsi- mótið, á laugardaginn. Það kem- ur i staöinn fyrir unglingaflokk- inn sem átti að vera á opna Húsa- víkurmótinu 6.-7. ágúst, en þá stendur yfir unglingameistara- mót íslands. Keppt er í flokkum 15-18 ára og 14 ára og yngri, með og án forgafar. Skráning er í síma 96-41000 til kl. 19 á föstudag. Hjóna-ogpara- keppni á Hellu Golíklúbbur Hellu heldur opna hjóna- og parakeppni á Strandar- velli á sunnudaginn kemur. Spil- aðar verða 18 holur og bæði slá upphafshögg en síðan er betri boltinn valinn og slegið til skipt- is. Skráning er í síma 98-78208. SyndafráReykja- víktilAkraness Sgurður Sverrisson, DV, Akranesi; Hópur sundfólks úr Sundfélagi Akraness ætlar að synda frá Reykjavík til Akraness i fjáröfl- unarskyni á sunnudaginn. Alls munu 10-12 sundmenn þreyta sundið til skiptis. Enginn hefur synt þessa leið frá þvi Eyjólfur sundkappi Jónsson gerði það fyrir margt löngu. Sund hans tók 13 klukkustundir en forráðamenn Sundfélags Akra- ness reikna með því að sundið taki 8-10 stundir aö þessu sinni. Sundfólkið klæðist svokölluðum blautbúningum til þess að verjast kælingu. Viðri illa á sunnudag verður sundið þreytt við fyrsta tækifæri. Firmakeppni íMosfellsbæ Afturelding heldur firma- keppni i knattspyrnu á grasvöll- unum að Tungubökkum í Mos- fellsbæ um næstu helgi. Leikið er i sjö manna liðum og skráning er í síma 666754. Egillenná fulluíFæreyjum Egill Steinþqrsson, sem um ára- bil lék með Ármanni en einnig með Þrótti, R, er enn á fúllu í færeySku knaítspyrnunni þar sem hann hefm- lengi leikið. Eg- il), sem er orðinn 37 ára, er markahæsti leikmaður VB frá Vogi, sem féll í 2. deild í fyrra en er þar i toppbaráttu i sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.