Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1994, Side 5
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994
Kóramót í
Perlunni
Allumfangsmikið kóramót
verður í Perlunni tvær helgar í
desember. Hátt í tvö þúsund
manns munu syngja á mótinu.
Dagana 3. og 4. desember syngja
um eitt þúsund börn frá 24 kór-
um. Dagana 10. og 11. desember
syngja kórar fullorðinna og eru
þar á meðal kirkjukórar, starfs-
mannakórar og kórar eldri borg-
ara. Þetta er annað árið í röð sem
Perlan býður upp á kóramót sem
þetta.
Kvennakór
Reykjavíkur í
Hallgríms-
ldrkju
Kvennakór Reykjavíkur heldur
aðventutónleika í Hallgríms-
kirkju í kvöld, fóstudagskvöld, kl.
20.30. Auk kórfélaga koma fram
smærri hópar, félagar úr Karla-
kórnum Fóstbræörum, Sönghóp-
urinn Vox Feminae ásamt ein-
söngvurum, þeim Björk Jónsdótt-
ur, sópran, og Þorgeiri Andrés-
syni, tenór. Á efnisskránni verður
íslensk jóla- og aðventutónlist frá
ýmsum tímum.
ísafjörður:
Jólatorgssala
Sigurjón J. Sigurösson, DV, ísafiröi:
Hin árlega jólatorgssala Styrkt-
arsjóðs húsbyggingar Tónlistar-
skóla Ísaíjarðar verður haldin á
Silfurtorgi á laugardag kl. 15.15.
Barnakór Tónlistarskólans syng-
ur nokkur jólalög með aðstoð fé-
laga úr Sunnukórnum. Á meðan
geta menn gætt sér á heitu kakói
og lummum. Verið er að prenta
jólakort sem seld verða til styrkt-
ar byggingu tónlistarskólahúss
og verða þau seld á laugardag.
Sturlungu-
dagur
Stofnun Árna Magnússonar
efnir til Sturlungudags í Árna-
garði við Suðurgötu á laugardag
í framhaldi af lestrum úr Sturl-
ungu og umQöllun um hana í
Þjóðarþeli Ríkisútvarpsins.
Kl. 14-18 verður opin sýning á
Sturlungahandritum frá ýmsum
öldum og kl. 16 verða fluttir þrír
stuttir kynningarfyrirlestrar í
stofu 201 í Árnagarði. Á sýning-
unni gefst gestum kostur á að
skoða útgáfubækur stofnunar-
innar og festa kaup á þeim þenn-
an dag með 25% afslætti.
Djass í Perl-
unni
Samtök um tónlistarhús standa
fyrir djasstónleikum í Perlunni í
kvöld, föstudagskvöld, kl. 21. Þar
koma fram margir af helstu
djasstónhstarmönnum landsins
ásamt Niels-Henning Örsted Ped-
ersen sem kemur sérstaklega til
landsins til að spOa á þessum tón-
leikum.
íslensku listamennirnir eru
hljómsveit Guðmundar Stein-
grímssonar með Andreu Gylfa-
dóttur, Bubba Morthens, Ragnari
Bjarnasyni og fleiri. Sigurður'
Flosason kemur með Rythma-
sveit FÍH-skólans, einnig hljóm-
sveit Tómasar R. Einarssonar og
Guðmundur Andri Thorsson
söngvara.
Þjóöarbókhlaóan:
Opið hús
Opið hús verður í nýopnaðri
Þjóðarbókhlöðu á laugardag og
sunnudag frá kl. 10-18 báða dag-
ana. Almenningi gefst kostur á
að skoða hið nýja húsnæði ásamt
því verða námsmenn frá Stúd-
entaráði Háskóla íslands með
tónlistaratriði og upplestra frá kl.
13-17.
Góð bók í Geysishúsinu:
Upplestur úr
nýjum bókum
Á laugardag kl. 14 verður opnuð
sýning á nýjum íslenskum bókum
og bókagerð í Geysishúsinu við Aðal-
stræti. Það er Bókasamband íslands
sem stendur fyrir sýningunni. Rit-
höfundar lesa þar upp úr verkum
sínum fyrir gesti og verður lögð sér-
stök áhersla á upplestur fyrir börn.
Sýndir verða ýmsir gripir sem tengj-
ast bókum og bókaútgáfu, meðal
annars fágætar prentvélar. Gefið
hefur verið út veggspjald sem hefur
verið sent skólum, bókasöfnum og
bókaverslunum.
„Við erum að reyna að benda á það
að bók er fyrir alla lesendur en ekki
einhvern sérstakan hóp. Það er at-
vinnuskapandi starfsemi sem þarna
á sér stað, iðnaður sem veltir miOj-
örðum. Þetta skiptir þjóðhagslega
miklu máli því við viðhöldum menn-
ingu okkar í gegnum bækur t.d. með
því að lesa fyrir börn,“ segir Ingi
Bogi Bogason, stjórnarmaður í Bóka-
sambandi íslands.
Á sýningunni verða handrit rithöf-
undarins Einars Kárasonar til sýnis
eða frá því hann byrjaði að skrifa og
fram tU dagsins í dag. Einar byrjaði
að skrifa í stílabækur en er nú
tölvuvæddur eins og flestir aðrir.
Á laugardag kl. 15 verður dagskrá
fyrir börn þar sem Elías Snæland,
Guðjón Sveinsson, Iðunn Steinsdótt-
ir, Olga Guðrún Ámadóttir og Stein-
unn Jóhannesdóttir koma fram og
lesa úr nýjum verkum sínum. Á
sunnudag hefst dagskráin kl. 15 með
því að Árni Bergmann, Nína Björk
Árnadóttir, Páll Pálsson, Pétur
Gunnarsson og SUja Aðalsteinsdóttir
flytja úr verkum sínum. Sýningunni
lýkur 11. desember," segir Ingi Bogi.
Viðamikil bókasýning verður opnuð á morgun í Geysishúsinu. DV-mynd GVA
Þórdís Arnljótsdóttir er höfundur og
leikstjóri.
Hlaðvarpinn:
Björt ogjóla-
sveina-
fjölskyldan
Á laugardag verður opið hús í
Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3. Dag-
skráin er sérstaklega hugsuð fyrir
börn og foreldra. í boði verður graf-
ikkennsla í GrafikkjaUaranum þar
sem foreldrar geta unnið með börn-
um sínum undir leiðsögn lista-
manna. í Stígamótum verður opið
hús frá 12-17 en þar verður boðið upp
á fræðslu og viðtöl, sem og almennar
upplýsingar um starfsemi Stígamóta.
í Kaffileikhúsinu hefjast síðan sýn-
ingar á laugardag á jólasýningunni
Björt og jólasveinafjölskyldan. Þór-
dís Arnljótsdóttir leikkona er höf-
undur og leUcstjóri jafnframt því sem
hún leikur öU hlutverkin í sýning-
unni. Sýningar verða kl. 14 og 16
þennan dag.
Litla stúlkan Björt týnist í jólaös-
inni og gömul kona bjargar henni.
Sú gamla segir henni frá því hvemig
jólin vom í gamla daga og fer með
þulur og kvæði um hana Grýlu.
Langur laugardagur:
Tilboð í tilefni dagsins
Langur laugardagur verður á
morgun á Laugaveginum. Kaup-
menn við Laugaveg og Bankastræti
standa fyrir löngum laugardögum
fyrsta laugardag hvers mánaðar.
Fyrirhugað er að fá harmonikuleik-
ara úr Harmonikufélagi Reykjavíkur
til að leika fyrir vegfarendur. Cote
d’or fillinn verður fyrir utan Hag-
kaup í Kjörgarði og gefur vegfarend-
um góðgæti. Bangsaleikurinn verður
í gangi ásamt mörgu fleiru. Verslanir
verða opnar frá kl. 10-18 og á sunnu-
dag kl. 13-17.
Hlini í Kram-
húsinu
Hlini kóngsson verður sýndur í
Kramhúsinu kl. 14 á sunnudag.
Furðuleikhúsið frumsýndi leikritið
fyrr á þessu ári og hefur það verið
sýnt í leikskólum að undanförnu.
Núna gefst öðrum en leikskólabörn-
um tækifæri á að koma og sjá þetta
íslenska ævintýri. Margrét Kr. Pét-
ursdóttir, Eggert Kaaber og Ólöf
Sverrisdóttir leika hlutverkin í sýn-
ingunni.
Hlini kóngsson verður í Kramhús-
inu.
Hulda Jónsdóttir, sópran, leikur
Maríu og Jósef syngur Halldór
Björnsson, baríton. DV-mynd ÞÖK
Tónlistarskóli Kópavogs:
Hinfyrstujól
Óperuiðja Tónlistarskóla Kópa-
vogs flytur söngleikinn Hin fyrstu jól
eftir Englendinginn Michael Hurd í
Kópavogskirkju á laugardag kl. 14
og á sunnudag kl. 11 í tengslum við
fjölskyldumessu.
Það eru söngnemar Tónhstarskól-
ans sem munu flytja söngleikinn sem
þau Anna Sigurkarlsdóttir og Magn-
ús Guðjónsson þýddu yfir á íslenskt
mál. Verkið segir frá fæðingu Jesú
Krists. Alls taka þrettán söngnemar
og kór þátt í helgileiknum. Leikstjóri
er Anna Júlíana Sveinsdóttir.
25
Þjóðleikhúsið
Vaid öriaganna
sunnudagkl. 20.00
Snædrottningin
sunnudag ki. 13
Gauragangur
laugardag kl. 20.00
Litlasviðiö
Dóttir Lúsifers
laugardag kl. 20.30
Smíðaverkstæðið
Sannar sögur af sálarlffi systra
sunnudagkl. 20.00
Borgarleikhúsið
Stóra sviðið
Leynimelur 13
laugardag kl. 20
Hvaö um Leonardo?
föstudag kl. 20
Litla sviðið
Óskin
laugardag kl. 20
Islenska óperan
Hárló
fostudag 11 24
laugardag kl. 23.
Frú Emilía
Kirsuberjagarðurinn
föstudag kl. 20
sunnudag kl. 20
Kaffileikhúsið
Eítthvaö ósagt
föstudag kl.21
Jólasýning fyrlr börn
laugardag kl. 14.00 og 16.00
Eitthvaó ósagt
laugardag kl. 21
Möguleikhúsi
Aðventutón-
leikar
Fílharmóníu
Aðventutónleikar Söngsveitarinn-
ar Fílharmóníu verða haldnir á
sunnudag kl. 17 og mánudag kl. 21 í
Kristskirkju, Landakoti. Flytjendur
auk söngsveitarinnar eru Ingibjörg
Guðjónsdóttir, sópran, og nokkrir
hljóðfæraleikarar. Stjórnandi er Úl-
rik Ólason og raddþjálfari Elísaþet
Erlingsdóttir. Flutt verður flölbreytt
dagskrá íslenskra og erlendra tón-
verka sem mörg tengjast aðventu og
jólum.
Bamabókasýn-
ing á Akureyri
Barnabókasýning verður opnuð í
Deiglunni á Akureyri á morgun kl.
14. Á sýningunni er lögð áhersla á
myndskreytingar í barnabókum og
mikilvægi þess að hinn sjónræni
þáttur barnabókmennta sé vandað-
ur. Sýndar verða valdar barnabækur
og frumteikningar nokkurra hsta-
manna.
OÍMA
ijjlf !f|fjLjjf=5_g
9 9*17*00
Verð aðeins 39,90 mín.
11 Dagskrá Sjónv.
St. 2
rásar 1
4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
(U Myndbandagagnrýni
Isl. listinn
-topp 40
7] Tónlistargagnrýni