Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1995, Page 9
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995
9
Stuttar fréttir
I
^ y
»
I
»
Jettsinrædur
Jeltsín segist hafa fulla stjórn á
hernaðaraðgerðum í Tsjetsjeníu
og vill stöðva blóðsúthellingar
fljótt,
Sprengja Grosní
Rússarhalda áfram að sprengj a
Grosni. Vopnahlé er ólíklegt.
Setjaskiiyrði
Christopher,
utanríkisráð-
herra Banda-
ríkjanna, vill
styðja um-
bótaáætlun í
Rússlandi og
býður cfna-
hagslega hjálp.
Hann segir þó aö stríösbröltið í
Tsjetsjeníu komi í veg fyrir slíkt.
Vopnahiéíhættu
Vopnahléið í Bosníu er í mikilli
hættu. Leyniskytta særði ungl-
ingspilt frá Sarajevo alvarlega í
gær og stríðandi fylkingar und-
irbúa sig fyrir hardaga á ný.
Clinton vill hjálpa
Bill Chnton reynir að afla hjálp-
aráætlun sinni við Mexíkó fylgi.
Hann segir fall pesosins ógnun
við Bandaríkin og heiminn.
Páfi misskilinn
Páfi segir að
samfélagiö mis-
skilji afstöðu
kaþólsku kirkj-
unnar til
kvenna. Hann
sagöi þó að
móðurhlut-
verkiö væri
mikilvægasta hlutverkið og lagði
ekki blessun sína yfir kvenpresta.
Balladurtilkynnir
Baráttan um forsetaembættið í
Frakklandi er hafin fyrir alvöru.
Bahadur forsætisráðherra til-
kynnti um framboð sitt í gær.
MannráníTyrklandi
Líbönsk samtök hafa rænt
bandarískum hermanni og syni
hans í Tyrklandi. Reuter
Útlönd
Um 250 þúsund heimilislausir í Kobe eftir jarðskjálftann líða skort:
Vatn og matur fyrir
aðeins þriðjunginn
Fullorðin kona gengur eins og í leiðslu um brunarústirnar í Kobe i Japan þar sem jarðskjálfti varð rúmlega þrjú
þúsund manns að bana og eyðilagði tugþúsundir húsa. Simamynd Reuter
Gífurlegir eldar brutust út í aðal-
verslunarhverfi jaröskjálftaborgar-
innar Kobe í Japan í gærkvöldi. Upp-
tök eldsins má rekja til mikihar
sprengingar sem varð í Sannomiya-
hverfinu í hjarta borgarinnar. Að
minnsta kosti tuttugu litlar bygging-
ar urðu eldinum að bráð.
Slökkviliðsmenn náðu tökum á
bálinu eftir þriggja klukkustunda
baráttu en tókst ekki að slökkva það
alveg vegna vatnsleysis.
Fjöldi látinna í jarðskjálftanum
sem varð á mánudagskvöld er nú
kominn á fjórða þúsundið. Enn er sex
hundruð manna saknað og leita her-
menn að þeim í húsarústunum. Von
er á tólf sérþjálfuðum hundum frá
Sviss til að aðstoða við leitina.
Heilu hverfin í Kobe eru rústir ein-
ar og vegir eru undnir og snúnir.
Ástandið þykir minna á jarðskjálft-
ann árið 1933 sem var á annað hundr-
að þúsund manns að bana.
Nærri tvö hundruð og fimmtíu
þúsund heimilislausir áttu heldur
kalda nótt í flóttamannamiðstöðvum
sem komiö var á fót í skólum og
íþróttahúsum. Eftirskjálftar og sír-
enuvæl frá neyðarbílum röskuöu ró
þeirra. Mönnum var kalt vegna þess
að teppi voru ekki nægilega mörg og
skrúfað var fyrir gasleiðslur.
Fólkið sagðist vilja heitan mat,
vatn og upplýsingar um ættingja sem
það hafði ekki fundið.
Ung kona sagði við sjónvarpsstöð-
ina NHK: „Ég vil umfram allt fá föt
en það berast engin.“
Illa gekk að koma vistum til flótta-
mannabúðanna þar sem nær óger-
legt var að komast leiöar sinnar um
verst leiknu hverfin vegna skemmda
á gatnakerfinu, braks úr húsum og
slitinna símahna.
Yfirvöld viðurkenndu að þau hefðu
aðeins mat og vatn fyrir þriðjung
hinna heimilislausu við höndina.
Að minnsta kosti 21586 byggingar
ýmist eyðilögðust eða uröu fyrir
skemmdum í jarðskjálftanum sem
mældist 7,2 stig á Richter.
Reuter
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI