Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1995, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1995, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995 óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJOLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjórl: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700 FAX: Auglýsingar: (91)563 2727 - aðrar deildir: (91)563 2999 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot. mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga Í50 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Eyrarbyggð er bezt Þrjár leiðir þarf að fara samhliða til að draga úr líkum á mannskaða og eignatjóni af völdum snjóflóða og skriðu- falla á landinu. Þær miða í fyrsta lagi að vemdun fólks á hættusvæðum, í öðm lagi að verndun mannvirkja og í þriðja lagi að mun strangari skipulagsreglum. Meðan fólk býr í húsum, sem standa í brekkum undir bröttum fjallshlíðum, er einfaldast að herða á því ferli, sem leiðir til brottflutnings þess til hættuminni staða, þegar varað er við snjóflóðum. í flestum tilvikum þarf að flytja fólk úr brekkuhúsum í hús úti á eyrum. Þetta er gert núna. Um 800 Vestfirðingar hafa flutt úr húsum sínum til hættuminni staða. Þetta er engin óska- lausn, en tekur þó tillit til fjárfestinga í húsum á glæfra- legum stöðum. Með hertu og bættu mati á snjóflóða- hættu er hægt að hindra mannskaða að verulegu leyti. Jafnframt þessu þarf að reisa mannvirki til að veija sjálf brekkuhúsin. Of dýrt er að verja heilu byggðirnar á þennan hátt. En framkvæmanlegt er að reisa mann- virki, sem beina snjóflóðum eftir landslagi í aðra far- vegi. Þarf þá oft að fóma sumum húsum fyrir önnur. Fjármagna þarf kerfi, sem felur í sér, að keypt verði hús, sem verst standa, og jafnframt tryggt, að þau verði mannlaus. Snjóflóðum sé beint í átt til þeirra frá öðrum húsum, sem betur standa og áfram verður búið í. í hverju byggðarlagi þarf að ganga skipulega að þessu. Loks þarf að hætta að byggja hús í brekkum undir bröttum úallshlíðum. Byggð í þröngum fjörðum á aðeins að vera úti á eyrum og við fjarðarbotna. Eyrarbyggð er betri kostur en botnabyggð vegna betri hafna. í nágrenni Súðavíkur er til dæmis nokkuð góður staður á Langeyri. Víðar á VestQörðum er hægt að nýta vanbyggðar eyr- ar til stækkunar á byggðum. Annars staðar verður hrein- lega að hverfa frá einnar eða tveggja hæða húsum og byggja háhýsi úti á eyrum til að geta dregið byggðina úr hættulegum brekkum út á tiltölulega öruggt land. Fyrr á öldum var fjarðarbyggð einkum úti á eyrum og við fjarðarbotna. Það byggðist á reynslu kynslóðanna. Fólk vissi, að hætta á snjóflóðum og skriðufóllum var einkum í brekkunum milh eyra og botna. Þannig vörð- ust forfeður okkar óviðráðanlegum náttúruöflum. Fyrr á öldum og áratugum voru aðeins skráð í heimild- ir þau snjóflóð, sem féllu á byggð og ollu tjóni. Hin voru ekki skráð, af því að enginn vissi af þeim eða af því að þau skiptu ekki máh. Snjóflóðamat, sem byggist á sagn- fræðilegum heimildum, hefur vanmetið brekkusvæðin. Mestum árangri með minnstum kostnaði má ná með því að fara allar þrjár leiðimar samhliða. Síðasta leiðin horfir til framtíðar, af því að hún fjallar um hús og önn- ur mannvirki, sem enn eru ekki risin. Hún er bezt, en dugar ekki ein, af því að lausnir þarf hér og nú. Önnur leiðin felur í sér ný vamarmannvirki og nýtt áhættumat, sem saman fela í sér, að hárfestingu í sumum húsum verði fómað til að vemda fjárfestingu í öðrum. Bæta verður húsin, sem fómað verður. Þessi lausn tekur líka tíma, en ekki eins langan og framtíðarlausnin. Sú leið, sem fyrst var nefhd, er raunar þegar hafm. Fólk flytur úr húsum sínum, þegar hætta er á ferðum. Bæta þarf þá lausn með virkara aðvörunarkerfi og harð- ara mati á, hver séu hættusvæðin. Þetta kostar ekki annað en bættar almannavamir og töluvert umstang. Reynslan er til að læra af henni. Harmleikurinn í Súðavík á að vera okkur hvatning til að taka af festu og hraða á hættunni af snjóflóðum og skriðuföllum. Jónas Kristjánsson Heimilisdýrin - ýmist sem réttháir fjölskyldumeðlimir eða óþurftarkvikindi og ónæðisvaldar, segir m.a. i grein- innir- Dýrahald í fjölbýli Hverjar eru hinar almennu regl- ur um húsdýr og breytast þær eitt- hvað varðandi þau dýr sem fyrir eru við gildistöku nýju laganna? Hagsmunamat látið ráða Samkvæmt lögum um fjöleignar- hús er hunda- og kattahald í húsinu háð samþykki allra eigenda eða a.m.k: þeirra, sem hafa sameigin- legan inngang, stigagangeðaannaö sameiginlegt húsrými. Svipaðar reglur hafa gilt alllengi um hunda- hald víðast hvar í þéttbýh. Þetta er hins vegar nýlunda varðandi ketti. Þessar takmarkanir á dýrahaldi í fjölbýhshúsum voru ekki upphaf- lega í frumvarpinu um íjöleignar- hús. Ákvæði þessa efnis var bætt inn í frumvarpið af félagsmála- nefnd Alþingis samkvæmt ábend- ingu eða tilmælum frá Samtökum gegn astma og ofnæmi. Var um það einhugur í nefndinni. í þessu efni vegast á andstæð sjónarmið eða hagsmunir. Annars vegar þeirra sem vilja halda hunda og ketti í íbúöum sínum og telja þau sjálfsögð mannréttindi og innifahð í venjulegum eignarráðum. Og hins vegar hagsmunir fólks, sem vih ekki verða fyrir óþægindum, ama og ónæði, frá nágrönnum sínum umfram það, sem er óhjákvæmilegt og eðhlegt. Það er ljóst að dýr, einkum kett- ir, geta valdið fólki margvíslegum óþægindum og ama og jafnvel vald- ið eða magnað upp sjúkdóma eins og ofnæmi og astma. Síðarnefnda fólkið, sem ég held að sé í miklum meirihluta, telur ekki sanngjarnt og eðhlegt að það þurfi gegn vilja sínum að þola slíkt og umlíða dýra- hald nágranna. Það ber hka fyrir sig mannréttindi og telur að eignar- réttur þeirra og heimilisfriður eigi að vera vemdaður fyrir slíku. Löggjafinn vó þessa hagsmuni saman og taldi hagsmuni og sjón- armið þeirra síðarnefndu þyngri á metunum og lét það ráða lagaregl- unni. Alþingi samþykkti þessar takmarkanir einum rótni. Hér var hagsmunamat látið ráöa Kjallariim Sigurður Helgi Guðjónsson hrl., framkvæmdastj. Hús- eigendafélagsins að þessar hömlur séu að öhu virtu eðlilegar og réttlátar eða kannski öllu heldur ill nauðsyn. Spyrja má, hvers vegna dýraeig- endum var ekki gefinn lengri frest- ur og aðlögunartími? Því er til að svara að lögin voru samþykkt á Alþingi í marsmánuði sl. með gild- istökufresti í 9 mánuði rúmlega eða fil sl. áramóta. Þessi tími var húgs- aður og ætlaður til aðlögunar og kynningar, sem átti að vera vönduð og rækileg. Samkvæmt lögunum á félagsmálaráðuneytið að annást þessa kynningu en getur fahð það Húsnæðisstofnun eða öðrum aðila. Því miður hefur þessi kynning ver- ið lítil sem engin nema af hálfu Húseigendafélagsins. Þess vegna hefur þessi þýðingarmikh aðlögun- artími ekki gagnast sem skyldi og að var stefnt. Menn hafa líka spurt, hvers vegna löggjafinn hafi ekki sýnt hér „Löggjafinn vó þessa hagsmuni saman og taldi hagsmuni og sjónarmið þeirra síðarnefndu þyngri á metunum og lét það ráða lagareglunni. Alþingi sam- þykkti þessar takmarkanir einum ✓ • n romi. og skarið tekið af, og í slíkum tilvik- um þar sem einum hagsmunum er fórnað fyrir aðra, þá eru það gömul og ný sannindi að reiði og sárindi fylgja í kjölfarið. Einkum þar sem tilfinningar ráða miklu eins og í þessu máh. Það sem einmitt gerir þetta mál erfitt eru þær tilfinning- ar, sem fólk ber einatt th dýra sinna en það htur á þá sem réttháa fjöl- skyldumeðlimi. En aörir líta á þá sem óþurftarkvikindi og ónæðis- valda. Skýr lagaskil Eftir að hafa um árabil haft af- skipti af málefnum fjölbýlishúsa og orðið vitni að ótal dæmum um ónæði, ama og ilhndi, sem hafa leitt af dýrahaldi, þá er það skoöun mín, thhliðrun þannig að menn fengju að hafa dýr sín meðan þau lifa. Það hefur sennilega þótt erfitt í fram- kvæmd og ekki næghega afgerandi th að vernda þá hagsmuni, sem vernda á með þessum takmörkun- um. Eins og fjöleignarhúslögin eru úr garði gerö að þessu leyti þá eru lagaskilin skýr. Það gildir éitt og hiö sama um öll dýr eða öllu heldur eigendur þeirra. Menn eða dýr hafa ekki hefðað aukinn tilvistarrétt í þessu efni þótt hundur eða kettir hafa verið til staðar í fjöleignarhúsi við ghdistöku laganna um sl. ára- mót. Sem sagt: Lögin gera ekki ráð fyrir neinum hefðarköttum eöa hundum. Sigurður Helgi Guðjónsson Skoðanir aimarra Til Kína um Tævan „Ég er þeirrar skoðunar, að við íslendingar eigum að móta stefnu gagnvart Tævan, sem tekur mið af óskum stjórnvalda þar um verðuga viðurkenningu á alþjóðavettvangi. Þá á að benda íslenskum fyrir- tækjum á kosti þess að að nýta sér leiöina um Tæ- van inn á meginland Kína. í því efni er skynsamleg- ast að rækta frekar en nú er tengshn við kaupendur á sjávarafurðum héðan. Þá samvinnu má þróa á marga lund með hhðsjón af vextinum í sírandhéruð- um meginlándsins og vaxandi áhuga á fiskeldi þar.“ Björn Bjarnason alþm. í Mbl. 18. jan. Fiskveiðistjórnun og rannsóknir „Dehur hafa staðið um fiskveiðistjórnunina og th- hneiging er th þess að kenna henni um aht sem miður fer í sjávarútveginum. Kvótakerfið er ekki gahalaust, en þó er það staðreynd að ekki hefur ver- ið bent á neitt heildstætt kerfi sem getur komið í staðinn, og þrátt fyrir miklar yfirlýsingar hefur það verið fest í sessi á kjörtímabilinu fremur en hið gagn- stæða.“ Úr forystugrein Tímans 17. jan. Ráðherrarnir gengu of langt „Það var grátbroslegt aö fylgjast með orðahnipp- ingum sjávarútvegs- og utanríkisráðherra varðandi heimsókn kanadíska sjávarútvegsráðherrans, Brians Tobins, í síðustu viku. Hér verður ekki kveð- inn upp dómur um það hvor ofangreindra íslenskra ráðherra hafði á réttu að standa í máhnu, en á hinn bóginn er öllum það ljóst að ráöherrarnir gengu báöir of langt í yfirlýsingum sínum. Og á endanum virtist sem kanadíski sjávarútvegsráöherrann og hans gjörningur í Noregi væri orðinn að aukaatriöi máls, svo uppteknir voru íslensku ráðherrarnir við að troða ihsakir hvor við annan.“ Úr forystugrein Viðskiptablaðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.