Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1995, Blaðsíða 6
li
l-Kin.JUDACUK 7. KKIiKÚAK 1 í)í).r»
Neytendur dv
Talsmenn tryggingafélaga svartsýnir:
Ekki svigrúm til lækk-
unar bifreiðatrygginga
® : a I
£i*\
=-§» ffife
"1< .......
ríssaæ
Talað er um hagstæða þróun í tjónum á bílum en öðru máli gegnir um slys á fólki.
DV-mynd GVA
Samkeppni tryggingafélaganna er
mikil og á þaö ekki síst viö um bif-
reiöatrvggingar. Meö aukinni sam-
keppni er getum aö því leitt aö iö-
gjöldin muni lækka en ekki vildu
talsmenn tryggingafélaganna. sem
DV leitaði til. þó endilega taka undir
þá fullyrðingu. Athugun blaösins
leiddi ennfremur í ljós aö svigrúm
til lækkunar er ekki talið vera mikið
og að fremur sé hægt aö koma til
móts viö viðskiptavinina meö meiri
sveigjanleika viö greiðslur. Þá er
einnig talaö um „leiðréttingar" á
gjaldskrám og er þá oftar en ekki
veriö að bregöast viö því sem keppi-
nautarnir eru að gera. En heyrum
hvaö fólkiö hjá tryggingafélögunum
haföi um hugsanlega lækkun að
segja.
Há iðgjöld
„Verðið hefur breyst frá mánuöi til
mánaðar og verðið i dag er örlítið
lægra heldur en það var í síðasta
mánuöi. Það niunar mjög litlu og
lækkunin er einhverjir hundraðkall-
ar ef það nær því,“ sagði Reynir
Þórðarson, forstöðumaður marks-
sviðs einkatrygginga hjá Sjóvá-
Almennum hf., og bætti við að svig-
rúm til lækkunar væri mjög lítið.
„Ég tel ekki vera svigrúm til lækk-
unar en það getur verið að einhver
hafl það svona út af samkeppninni.
Við erum alltaf að skoða þessi mál
og manni er haidið við efnið því
vissulega eru þetta há iðgjöld. Fyrir
fjölskyldufólk sem er með tvo bíla
er þetta farið að kosta mikið,“ sagði
Ágúst Ögmundsson, framkvæmda-
stjóri vátryggingasviðs hjá Trygg-
ingu hf., og bætti við að miklu skipti
líka að ekki væri komin reynsla á
nýju skaðabótalögin út af slysaupp-
gjörum.
Aukin tjónatíðni í slysum
„Verðið hjá okkur lækkaði um 5%
á ábyrðartryggingu einkabíla en
annars hefur þetta verið óbreytt í
langan tíma. Hækkanir vegna vísi-
tölu koma alltaf inn en þær eru sára-
litlar eins og alþjóö veit. Mitt mat er
það að gagnvart ábyrgðartryggingu
bíls sé það nú lítið svigrúm því að
slysatjón hafa verið söm við sig,“
segir Jóhann Björnsson, forstjóri hjá
Ábyrgð hf.
„Ég held nú að afkoma bifreiða-
trygginganna á sl. ári hafi verið afar
slöpp. Það er aukin tjónatíðni í slys-
um en ég get ómögulega svarað fyrir
aöra. Við erum náttúrlega alltaf að
skoða þessi mál. Það hefur orðið
mjög hagstæð þróun í munatjónum
bíla en það hefur orðið sprenging í
slysum og þau eru okkur miklu erfið-
ari heláur en þessi munatjón. Með-
alárekstur kostar innan við 130 þús-
und en tífalt meira ef það eru slys á
Þau Sigurður Helgi Guðjónsson og
Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir hjá
Húseigendafélaginu halda áfram að
svara spurningum lesenda DV varð-
andi nýju lögin um fjöleignarhús og
húsaleigu. Þeir sem vilja spyrja
hringi í síma 99 1500 og velji 2 fyrir
neytendur. Svörin birtast hér á síð-
unni næstu þriðjudaga og föstudaga.
1. Eiga íbúar í miðstigagangi einn-
ig að greiða viðgerð á göflum og á
miðstigagangurinn að greiða meira i
viðgerð á svölum ef þar eru fleiri sval-
ir? Meginreglan er sú að allt ytra
byrði fjölbýlishúss sé í sameign íbúð-
areigenda. Kostnaður við viðhald
utanhúss er sameiginlegur og skipt-
ist því á alla eftir hlutfallstölum
íbúða þeirra. Viðhald, framkvæmdir
og útlitsbreytingar á einum stiga-
gangi varða ekki eingöngu íbúðareig-
endur þar heldur eiga allir íbúðareig-
endur í öllum stigagöngunum rétt til
ákvörðunar þar að lútandi. Taka
verður ákvörðun um hinar sameig-
inlegu framkvæmdir á sameiginleg-
um húsfundi íbúðareigenda í öllum
stigagöngunum.
2. Skiptist hússjóður eftir fasteigna-
mati? Nei. Hlutfallstölur koma fram
í skiptasamningum eöa skiptayfir-
lýsingum og/eða í afsölum fyrir ein-
stökum eignarhlutum. Hafi þær ekki
veriö ákveðnar segja lögin að allir
séreignarhlutar séu jafnréttháir og
beri jafnar skyldur sem þýðir að
sameiginlegur kostnaður eigi að
skiptast að jöfnu án tillits til stærðar
íbúða.
3. Hvernig eiga húsfélög að bregðast
við nýju lögunum, tilkynna breyting-
ar á næsta aðalfundi eða boða auka-
fólki,“ segir Örn Gústafsson, fram-
kvæmdastjóri einstaklingssviðs hjá
Vátryggingafélagi íslands hf.
„Verðið hjá okkur hefur verið
óbreytt frá því í mars í fyrra. Við
vitum náttúrlega ekki hvað gerist en
við eigum ekki von á mikilli hækk-
un. Það er þá einungis vísitöluhækk-
un,“ segir Helga Aradóttir, deildar-
stjóri hjá Skandia hf„ en hún þorir
ekki að spá fyrir um lækkun eins og
staðan er í dag.
fund? Það er ljóst að húsfélög þurfa
að gera verulegar breytingar á
rekstri sínum og álagningu hús-
gjalda í samræmi við breyttar reglur
laganna. Sagðisérstaklega i lögunum
að fyrir 1. janúar sl. skyldu húsfélög
breyta atriðum t.d. varðandi skipt-
ingu sameiginlegs kostnaðar, hús-
sjóðsgjalda o.íl. Stjómir húsfélaga
verða því að afla sér upplýsinga um
lögin og breyta því sem breyta þarf
eftir fyrirmælum þeirra. Best væri
að tilkynna breytingarnar sem fyrst
á sérstökum fundi en einnig er hægt
að gera það bréfleiðis og með þvi að
senda sérprentun á lögunum til íbúð-
areigenda og taka máhð síðan upp á
næsta aðalfundi.
4. Er hægt að krefjast þess að merk-
ingar á bílastæðum við stóra blokka-
samstæðu séu teknar þar sem það
er nú ólöglegt að merkja bílastæðin
íbúðum? Bílastæði á lóð húss eru
sameiginleg og óskipt nema ákveðið
sé í þinglýstum heimildum að þau
fylgi ákveðnum séreignarhlutum.
Oskiptum bílastæðum veröur ekki
skipt nema allir eigendur samþykki
og skulu þá gerðar nauðsynlegar
breytingar á eignaskiptayfirlýsingu
og þeim þinglýst. Ekki er þó útilókaö
að meirihluti eigenda geti í einhv'erj-
um tilvikum tekið bindandi ákvörð-
un um einhvers konar óformlegri og
ekki varanlega afnotaskiptingu í
húsreglum eða sérstökum húsfélags-
samþykktum. Þó þarf lítið til að slík
ákvöröun útheimti samþykki allra.
Ég tel rétt að fá málið tekið upp á
fundi til endurákvörðunar og taka
síðan ákvarðanir um framhaldsað-
gerðir með hliðsjón af ákvörðun
fundarins.
Dýrt að hreinsa
buxur á Norð-
urlöndum
Samkvæmt niðurstöðu könn-
unar, sem birt er í febrúarhefti
Business Travcller, er ísland í 12.
sæti á lista yflr þau lönd þar sem
mest kostar að láta hreinsa bux-
ur. Samkvæmt könnuninnl kost-
ar slíkt 7,08 dollara hér á landi
en það eru um 475 krónur. í fyrra
var ísland í 8. sæti á sams konar
lista og hefm- því lækkað um
nokkur sæti.
Nágrannar okkar annars stað-
ar á Noröurlöndum eru ekki bet-
ur settir hvaö þetta varöar og
raunar er þar víðast dýrara að
notfæra sér þessa þjónustu.
Þannig er Svíþjóð t.d.'í þriöja
sæti á listanum en árið á undan
var dýrast að hreinsa buxur þar
í landi. Finnland er í sjöunda
sæti en var í fimmta árið á undan.
Enginn slær þó Norðmenn út
en þar er dýrast að fara með bux-
umar í hreinsun. Slíkt kostar
10,34 dollara þar í landi en þess
má geta aö Norðmenn voru í öðru
sæti á sams konar lista árið á
undan.
Þaö er dýrast að fara með bux-
urnar í hreinsun á Noröurlönd-
um.
Ráðvið
vindgangi
- leggið baunimar í bleyti
Aöalástæðan fyrir vindgangi er
að meltingarkerflð getur ekki
unnið úr vissum tegundum kol-
vetnis, er haft eftir lækni nokkr-
um við Texas-háskóla i Galves-
ton. Frá þessu er greint í Lækna-
bókinni en þar segir einnig að ef
manni þyki baunir og annað
grænmeti lostætí en þoli ekki af-
leiðingarnar sé til lausn á málinu.
Það er ljóst aö baunir og græn-
meti framkalla vindgang. Því
meir sem þessi matur er soöinn
þvi minni vanda veldur hann.
Svo virðist sem baunir valdi
minni vindgangi ef þær eru lagð-.
ar í bleyti.
Nokkurráð
við táfýlu
í Læknabókinni er einnig að
finna ráð við táfýlu og hér fylgja
nokkur þeirra.
Þvoðu þér oft. Notaðu heitt vatn
og sápu og þvoðu fætuma eins
oft og þörf krefúr, nokkrum sinn-
um á dag ef þú svitnar mikið eöa
finnur lykt. Skrúbbaðu varlega
meö mjúkum bursta, jafhvel á
milli tánna, og gættu þess aö
þurrka fæturna rækilega.
Einnig er bent á að nota svita-
eyði en lykillinn aö því að hafa
stjórn á lykt er að nota annað-
hvort svitaeyði eða svitalyktar-
eyði á fætuma.
Eitt ráöiö við táfýlu er þvo fæt-
uma oft á dag.
LBEX
Eftirlits- og öryggiskerfi,
úti og inni, fyrir allar aðstæður,
í Iit eða svart/hvítu
Meðal viðskiptavina
okkar eru sjúkrahús,
kirkjur, heilsugæslu-
stöðvar, verslunar-
fyrirtæki, vöruskemm-
ur, geymsluport, fisk-
vinnslur, skip og fl.
ELBEX kerfin eru frá stærsta framleiðanda í Japan og
gefa möguleika á nær óendanlegum stækkunarmögu-
leikum. Leitið upplýsinga hjá tæknimönnum okkar.
Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 622901 og 622900
Sérfræðingar svara spumingum lesenda um nýju lögin, m.a. um:
Merkingar á bílastæðum