Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1995, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1995
Sviðsljós
Þorri
blótaður í
Hollandi
Eyþór Eðvarðssan, DV, Hollandi;
Árlegt þorrablót vinafélags ís-
lands og Niðurlanda var haldið í
Amsterdam sl. laugardagskvöld.
Á annað hundrað gestir, jafnt ís-
lendingar sem Hollendingar,
nutu þar saman góðrar hefð-
bundinnar íslenskrar máltiðar
sem var íramreidd af Axel Jóns-
syni, matreiöslumeistara hjá
Matarlyst í Keflavík. Eggert H.
Kjartansson, framkvæmdastjóri i
Keflavik, stjórnaði borðhaldinu
og fjöldasöngur var í höndum
Rúnars Óskarssonar saxófón-
leikara.
„Twolips from Amsterdam" sá
um stuðið en þá hljómsveit skipa
nokkrir af efnilegustu tóniistar-
nemum íslands enda enginn hör-
gull á efnilegum íslenskum tón-
listarmönnum sem og annars
konar listamönnum í Hollandi.
Af þekktum íslendingum á blót-
inu má nefna athafnakonuna
Geröi Pálma, Jón Kristinsson
prófessor, Bubba Morthens og
Rúnar Þór en þeir síðarnefndu
eru aö vinna að plötu sem mun
koma út í vor.
Mikil eftirvænting ríkir ætíð
fyrir „hollensku" þorrablótin
enda slikan mat aðeins að fá á 365
daga fresti í Hollandi. Að sjálf-
sögðu var dansað og sungiö fram
á rauðanótt og skálað fyrir fóður-
löndunum í íslensku brennivíni.
Sími 99-1750
Verð kr. 39,90 mínútan
Dregið daglega og
gjafakort með uttekt á
þrem myndbands-
spólum frá Bónus-
vídeó fyrir þá heppnu!
Munið að svöíin við
spurningunum er að
fínna í blaðauka DV
um dagskrá, mynd-
bönd og kvikmyndir
sem fylgdi DV síðasta
fimmt
immtudag.
BðNUSVÍDEÖ
Nýbýlavegl 16
f»ra
síml 564-4733
Opið virka daga frá 10-23.30 -
laugard. og sunnud. frá 12 - 23.30
McDonald’s í
ILEI K U R 1 N N
9 9 • 1 7 • 5 0
Verð kr. 39,90 mín.
Dregið daglega og
stjörnumáltíð fyrir tvo frá
McDonald's fyrir þá heppnu!
Munið að svörin við
spurningunum er að finna í
blaðaukanum DV-helgin
sem fylgdi DV síðasta
fóstudag.
Kenneth Branagh:
Leikarar framtíðar-
innar tölvugerðir
Breski leikarinn og leikstjórinn
Kenneth Branagh þykir fremstur
meðal jafningja sinna, hvort sem það
er í flóðljósum kvikmyndanna í
Hollywood og víðar eða á fjölum en-
skra leikhúsa. Hann er hins vegar
ekki sérlega bjartsýnn á framtíð
leikarastéttarinnar, að minnsta kosti
ekki í kvikmyndum, og segir að þess
verði ef til vill ekki langt að bíða að
tölvugerðar verur komi í stað alvöru-
leikara.
En kannski var Kenneth bara að
gera að gamni sínu. Hann var jú að
kynna nýjustu myndina sína, Frank-
enstein, þegar hann lét þessi orð
falla. Því hvað er Frankenstein ann-
að en samsetningur, að vísu ekki
gerður með aðstoð tölvu, enda tölvur
ekki til á þeima tíma er sagan á að
gerast. En sjálfsagt væri nútíma
Frankenstein-óskapnaður gerður
með aðstoð tölvutækninnar.
„Tækniframfarir í kvikmyndunum
eru ótrúlegar. Ég hef ekki hugmynd
Kenneth Branagh er ekki bjartsýnn á framtíð leikarastéttarinnar.
um hvort kvikmyndir munu enn tölvum, “ sagði Branagh í viðtali við
notast við leikara eftir nokkur ár. portúgalskt tímarit í síðustu viku.
Kannski verða þeir allir búnir til í
Á Spáni eru menn í lifandi tengslum við fortíð stna og sögu. Að minnsta kosti íbúar þorpsins Bocairen sem ár
hvert setja á svið grimmar orrustur sem kristnir menn og Márar háðu i landinu á miðöldum. Eins og menn muna
réðu Márarnir yfir stórum hluta Spánar eitthvað fram eftir öldum. Það var þó ekki fyrr en á 17. öid að farið var
að minnast bardaganna með miklum skrautsýningum eins og þeirri í Bocairen og fleiri þorpum í Valencia-héraði.
Símamynd Reuter
Trúarhreyfing Bítils í vanda
George Harrison gaf Hare Krishna hreyfingunni glæsilegt óðalssetur i sveit-
inni. Nú flykkjast þangað 30 þúsund sanntrúaðir á ári og valda ibúum lítils
sveitabæjar ónæði.
íbúar smábæjarins Letchmore He-
ath í Englandi, sem hefur verið nær
óbreyttur frá 13. öld og haft mikið
aðdráttarafl fyrir ferðalanga, eiga nú
í deilum við Hare Krishna samfélagiö
í bænum en þeir sanntrúuðu hafa
dvaliö á stórglæsilegu óðalssetri við
bæinn í rúm tuttugu ár. íbúamir
segja að öllu bæjarlífi standi ógn af
nærveru Hare Krishnanna. Það er
nefnilega ekki nóg með að um 50
krúnurakaðir menn í appelsínugul-
um kuflum dvelji á setrinu heldur
koma um 30 þúsund manns þangað
árlega í pílagrímsferðir og leggja þeir
bæinn nánast undir sig sex sinnum
á ári þegar trúarhátíðir eru haldnar.
Öll umferð teppist í kringum bæinn
þegar hátíðimar eru haldnar. Fram-
tíð óðalsetursins er óráöin en barist
hefur verið fyrir lokun þess síðustu
fjögur árin.
Það vakti mikla athygli árið 1973
þegar Bítillinn George Harrison gaf
Hare Krishna hreyfingunni óðals-
setrið glæsilega, sem talið er vera
mjög verðmætt, en hann hafði átt það
um nokkurt skeið og lánað hreyfing-
unni. Harrison hafði sjálfur verið
virkur í Hare Krishna lu-eyfingunni
og átti stóran þátt í uppgangi hennar
í kringum 1970. Hann var hins vegar
oröinn leiður á hvernig þeir misnot-
uðu frægð hans til að auglýsa hreyf-
inguna og taldi sig því vera að losna
við liðiö með því að gefa þeim hús í
sveitinni.
Elton
fær orðu
Elton John, sá gamalkunni
skallapoppari, hefur sjálfsagttek-
ið á móti margri viðurkenning-
unni um dagana enda maður all-
fær á sínu sviði. Hvort sem það
er svo rétt eður ei er hann að
minnsta kosti búinn að fá eina
slíka sænska, svokölluð noröur-
skautsverðlaun, sem Stikkan
Anderson úr Abba-flokknum
stofhaði. En Elton var ekki einn,
þvi sellistinn Rostrópóvítsj var
líka heiðraður.
Isabella
fær lausn
Isabella Rossellini, dóttir Ingrid
Bergman og Robertos Rossellinis,
losnar undan samningi sínum hjá
snyrtivörafyrirtækinu Lancome
í lok þessa árs. Isabella hefur
verið aðalfyrirsæta fyrirtækisins
um árabil en vill nú snúa sér að
öðru í sama geira. Franska leik-
konan Juliette Binoche tekur við
af henni.
Michael
frestar enn
Það ætlar að ganga eitthvað
erfiðlega fyrir Michael okkar
Jackson að koma frá sér nýrri
hljómplötu. Til stóð að nýjasta
afurðin kæmi fyrir eyru aðdá-
enda í nóvember en því var þá
slegið á frest fram í febrúar og
enn er búið að fresta útkomunni.
Nú er platan væntanleg einhvern
tima með vorinu. Það sem verra
er, margir lagahöfundanna sem
Mikki hefur verið að vinna með
vita ekki hvort lög þeírra verða á
gripnum.
Vöðvafjallið
reiðist
Arnold Schwarzenegger,
tengdasonur Kennedy-íjölskyld-
unnar og Reagan-aðdáandi, varð
heldur betur reiður vestur i Was-
hington á dögunum þegar harrn
þurfti að bíöa í rúman klukku-
tíma eftir Marion Barry borgar-
stjóra. Þeir ætluðu aö borða sam-
an, ásamt fleira fólki, og ræða um
að halda íþróttamót fyrir illa
stæða unglinga í borginni.