Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Qupperneq 7
23 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 1995 Tækni - HLjómtæki Áskell Másson: Er enginn dellukarl en reyni að fylgjast með „Eg er búinn að eiga þau hljóm- tæki sem ég er með nokkuð lengi. Það er nú svo að ég skipti ekki um fyrr en ég er alveg orðinn hundrað prósent viss um að það sé betra en það sem ég á fyrir. Ég er með JVC magnara og útvarp, Sansui geisla- spilara. Tvö kassettutæki er ég með, eitt tvöfalt frá Sherwood og eitt gam- alt en mjög gott JVC kassettutæki sem ég tengi stundum við, plötuspil- ara af gerðinni Sansui og tvo JBL hátalara L100, en þeir eru fyrsta módelið af JBL sem framleitt var fyrir almennan markað," segir Askell Másson, tónskáld og tónlistar- gagnrýnandi. Áskell segist vera haldinn söfnun- aráráttu: „Eg er með nokkur þúsund plötur heima hjá mér, þótt ég sé bú- inn að gefa hljómplötusafnið mitt þrisvar, og nokkur hundruð geisla- plötur. Ég hef einnig haft mjög gam- an af að safna nótmn og nótnabókum en það er mun kostnaðarsamara en að safna plötum og er ekki auðvelt að vera shkur safnari." Áskell sagði aðspurður að hann notaði mikið kassettutækið til að hlusta á eigin tónlist: „Ég hef oft fengið sendar kassettur af mínum verkum þegar þau hafa verið flutt í útlöndum og á marga tugi af kassett- um með eigin verkum. Annars spila ég nokkuö jöfnum höndum á geisla- spilarann, plötuspilarann og kass- ettutækið. En það má segja að maður sé alltaf að auka notkunina á geisla- spilaranum enda er mikið mn áhuga- verðar endurútgáfur." Tvennt er það sem ÁskeU er að hlusta á þessa dagana: „Það sem ég er að hlusta á eru sinfóníur Bohuslav Martinu, tékknesks tonskálds sem var uppi á þessari öld. Þetta eru í heildina sex sinfóníur. Þá er ég nýbú- inn að fá allar sinfóniur Beethovens í glæsilegri útgáfu. Á þessari upp- töku eru allar sinfóníurnar níu leiknar á sömu hljóðfæri og þegar Beethoven var á lífi. ÁskeU sagði þegar hann var spurð- ur hvort hann fylgdist með þróun- inni í hljómtækjum: „Ég reyni aUtaf eitthvað að fylgjast með en ég er eng- inn dellukarl. Ég hef aðeins lagt áherslu á að.vera með góð hljómtæki sem skila því sem ég vfi fá út úr þeim.“ Jón Stefánsson leikur þessa dagana stóru verkin á hljómtæki sín. DV-mynd BG Jón Stefánsson: Er með hugann við Jóhannesarpassíuna „Ég er með geislaspUara frá JVC, magnara og útvarp frá Sansui, með þessu á ég gamlan Pioneer plötuspU- ara og gamla hátalara og ennþá eldra kassettutæki frá JVC, en þetta tæki var á sínum tíma bylting. Það er í dag orðið nokkuð þreytt og lúið en ég nota það samt töluvert enn,“ segir Jón Stefánsson, orgeUeikari og kór- stjóri Langholtskirkjukórs. „Ég spila á kassettutækið aUs kon- ar upptökur sem maður hefur sjálfur verið að taka upp. PlötuspUarinn er ekki mikið notaður, en það kemur samt stundum upp sú staða að það er sett plata á fóninn, þá er það tón- Ust sem ég á ekki á geislaplötu. TU að mynda á ég mikið af verkum eftir Bach á plötmn sem ég hlusta á, en með stærri eign af geislaplötmn verður notkunin á plötuspUaranum minni.“ Jón sagði að það væri aðaUega tvennt sem hann hlustaði á þessa dagana: „Ég er mikið með hugann við Jóhannesarpassíuna og hlusta á hána og ástæðan er að Langholtskór- inn ætlar að sviðsetja hana í Lang- holtskirkju um páskana, sem er sögulegur viðburður. Þá hlusta ég einnig mikið á messu eftir Rossini, Petite, missa solenne sem er aUs ekki lítil eins og nafnið bendir til, heldur um 90 mínútna löng. Ástæðan er að ég kem til með kenna og stjórna verkinu á norrænu kóramóti í Sví- þjóð í sumar. Þama verða tólf kór- stjórar sem stjóma hver sínum hópi og ég verð með hóp sem kemur tíl með að flytja hluta úr þessu verki. Jón sagðist ekki fylgjast mikið með nýjungum í hljómtækjum: „Ég fylg- ist vel meö þegar byltingar eiga sér stað, eins og tíl að mynda þegar staf- ræna tæknin kom og urðum við í kómum fyrstir til að gefa klassíska tónUst eingöngu út á geislaplötu hér á landi og man ég að fólk var undr- andi á að við skyldum ekki gefa tón- Ustina einnig út á plötu." DV-mynd GVA Áskell Másson notar geislaspilara, kassettutæki og plötuspilara jöfnum höndum. AICAI FULLKOMIN SURROUND-HUÓMTÆKI MX-92 ___ ALVÖRU HLJÓMUR! TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR: • Digital FM/MW/LW útvarp með 19 minnum •100 watta magnari • Forstilltur tónjafnari með 5 stillingum • Geislaspilari • Tvöfalt Dolby segulband • Innstunga fyrir heyrnartól og hljóðnema • Fullkomin fjarstýring • Surround-hljóðkerfi • 100w hátalarar SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.