Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Qupperneq 8
24 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 1995 Tækrd - Hljómtæki Heimilistæki hf RAÐGREIÐSLUR - hefur komið sér upp fullkomnu heimabíói Heimabíó er aö færast í vöxt og í hljómtækjaverslunum fæst mikið úrval af tækjum til að koma sér upp eigin bíói en með slíkum bún- aði er hægt að gera herbergi að góðum bíósal. í fullkomnu heima- bíói er hægt að ná útsendingum sjónvarps og nýta sér myndband, leysidiska eða geisladiska, en það er það nýjasta í þessari miðlunar- tækni. Þessir diskar eru nákvæm- lega eins og þeir geisladiskar sem fólk notar heima hjá sér, munurinn er að þeir gefa mynd. Einn þeirra sem hafa komið sér upp heimabíói er Gísli Einarsson, mikill kvik- myndaáhugaður, verslunareigandi og kvikmyndagagnrýnandi: „Það var fyrst og fremst áhugi á kvikmyndum sem gerði það að verkum að ég fór að koma mér upp heimabíói. Mér fannst alltof lítið að vera með venjulegan sjónvarps- skjá með slæmum hljómi og kvik- myndir á venjulegum VHS-spólum. Tæknilega séð er þetta ófullkomið í mínum augum og þá var bara að búa sér til betra. Ég byijaði að safna að mér hlutum áriö 1989 en það má segja að það hafi ekki verið fyrr en ég fékk mér 50 tommu skjá með hátölurum frá Hitachi fyrir rúmum tveimur árum sem einhver mynd komst á þetta. Ég hef síðan veriö að bæta inn í þetta í rólegheit- um og uppistaðan hjá mér fyrir utan skjáinn er Pioneer CCD-1450 myndspilari. Þá er ég með JVC HR-SG7000, VHS-myndbandstæki. Auk þriggja hátalara sem fylgja skjánum er ég meö tvo surround hátalara og einn lágtónahátalara (sub-woofer). Stefnan er að koma sér upp hljóðkerfi sem er fyrir utan skjáinn og ég vonast til að geta það fljótlega." Leysidiskur- inn bestur Gísli er mun hrifnari af leysidisk- um heldur en myndböndum. Hann hefur safnað úrvalskvikmyndum í slíku formi og á nú 87 kvikmyndir á íeysidiskum. „Það er mikill munur á VHS og leysidiskum. Upplausnin á VHS- bandi er hámark 250 línur á skján- um en á leysidisknum eru línurnar 450 þannig að myndin verður margfalt skýrari og htir betri og svo verður ekkert sht á myndinni eins og oft vih veröa á myndband- inu.“ Gísh sagði að það væri ekki mik- ið um að seldar væru kvikmyndir á leysidiskum hér á landi. „Það er ein búð, 2001, sem hefur eitthvað flutt inn af slíku efni. Yfir- leitt hef ég pantað efni í Bandaríkj- unum eða keypt þegar ég fer sjálfur til útlanda." Gísli er ekki með sjónvarpsrásir tengdar í tækin enn sem komið er: „Það kerfl sem ég er með er amer- ískt og til þess að geta tengt sjón- varpið viö það þarf tæki eins og til dæmis Aiwa er að framleiða, tæki sem getur tekið út hvaöa merki sem er og sent út hvaða merki sem er aftur í hvaða kerfi sem er. Þetta er ekki til í stereo eins og er hér á landi þannig að það verður smábið hjá mér í að fá mér slíkt tæki.“ Gísli er spurður hvort þetta sé ekki dýrt áhugamál. „Þetta er ekkert dýrara en hvaö annað sem maður fær dellu fyrir. Ég eyöi eins miklu í þetta og ég get, peningum sem hefðu aö öðru jöfnu farið í eitthvert annað áhuga- mál.“ Sérherbergi besti kosturinn Heimabíó verður best ef það er í sérherbergi sem er sérstaklega inn- réttað fyrir slík tæki. „Eins og er er ég með tækin í venjulegri stofu en ég er að inn- rétta herbergi sem er gluggalaust og þar mun ég koma tækjunum fyrir. Það er nauðsynlegt að vera með skjá eins og minn í glugga- lausu herbergi vegna þess að um myndvarp er að ræða. Eins og komið hefur fram kaupir Gísh eingöngu leysidiska. En eru geisladiskarnir ekki það nýjasta í þessum bransa? „Jú, og ég er ahtaf hrifmn af tækninýjungum en samkvæmt því sem ég hef kynnt mér er geisladisk- urinn eins og er ekki jafn fullkom- inn og leysidiskurinn en ef af því verður skipti ég að sjálfsögðu yfir i geisladiskinn." Alhr sem eitthvað eru í hljóm- tækjum eiga sér einhvern draum og Gísh er þar engin undantekning: „Draumur minn er að eiga heima- bíó sem fær THX-stimpil. Ég er búinn að sjá eitt shkt í blaði. En það er ekki nóg að vera með tæki frá THX-fyrirtækinu, innréttingin þarf hka að fá THX-stimpilinn og þann stimph fær ekkert húnæði nema það sé sérstaklega hannað fyrir þann hljóöstaðal sem settur er af THX. Þetta er fjarlægur draumur en kannski raunsær í framtíðinni." Gísli Einarsson ásamt systur sinni, Áslaugu Einarsdóttur, með 50 tommu skjáinn í baksýn. DV-mynd: GVA jr MAGNAHI ' 2x60W 240W P.M.P.O MatrixSurround Extra bassi 5 banda elektrónískur tónjafnari meö föstum stillingum UTVARP 30 stööva minni FM/MW Klukka „Smart Program" minni KASSETTUTÆKI Auto Reverse, Dolby B High Speed Dubbing ofl GEISLASPILARI 1 bita og 8x oversampling 20 laga minni ofl. Gísli Einarsson: Draumur- innað vera með heimabíó ÍTHX

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.