Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 1995
29
Tækiú - HLjómtæki
Geislaplötur:
Hvað merkir A og
D á geislaplötum?
Að undanförnu hefur verið mjög
mikið um endurútgáfur á eldra efni
á geislaplötum og er skemmst að
minnast þess að í fyrra var stór hluti
af öllu því efni, sem gefið var út hér
á landi, endurútgáfur af efni sem
aðeins hafði verið til á vinylplöt-
unni. Á öllum geislaplötum er hægt
að sjá með hvaða tækni upptakan fer
fram ef viðkomandi þekkir merking-
amar sem em þrjár.
Það em tveir bókstaflr sem gefa til
kynna hvemig upptökutækni er not-
uð. Bókstafurinn A stendur fyrir
analogue eða hliðræna tækni en D
stendur fyrir digital eða stafræna
tækni. Skammstafanirnar þijár eru
DDD, ADD og AAD. Þessar skamm-
stafanir segja með hvaða tækni tón-
listin var hljóðrituð, hljóðblönduð og
á hvers lags hljóðband (mastertape)
hún var endanlega sett til yfirfærslu
á geislaplötu.
Nýjar geislaplötur geta haft tvær
skammstafanir, oftast er þó skamm-
stöfunin DDD, en þá er stafræn tækni
notuð alveg frá hljóðritun og þar til
platan er framleidd. Sé um gamla
endurútgefna tónhst að ræða stend-
ur yfirleitt ADD. Það þýðir að notast
hafi verið við hliðrænu tæknina við
upptökur en tónlistin endurhljóð-
blönduð og sett á hljóðband með staf-
rænni tækni. Nýjar geislaplötur geta
lika haft ADD skammstöfun í ramm-
anum.
Stundum getur endurútgefið efni
verið erfitt til yfirfærslu eða þótt lítið
spennandi fyrir þá sem hlusta á
geislaplötur og þá er ekki verið að
eyða miklum kostnaði í útgáfuna.
Upptakan er hliðræn og hljóðblönd-
unin hefur einnig verið hliðræn og
er ekki breytt. Þá er merkingin AAD.
Kaplar:
Tenging-
in skiptir
máli
Það er staðreynd að kaplar skipta
miklu máli ef góður hljómur á að
fást. Kaplar eru ávallt taldir með
aukahlutum í hljómtækjum en eru
þó mikilvægur hluti í boðskiptum á
milli tækja, sérstaklega á þetta við
um tengingu frá magnara yfir í hátal-
ara þar sem oft liggja langar leiöslur
á milli.
Hljómtæki eru tengd saman með
snúrum og köplum og reglan er sú
að því minni hmdranir sem verða á
vegi hljóðmerkja á leið þeirra um
snúrur og kapla því meiri upplýs-
ingar skila sér til hlustandans.
Hljómurinn verður betri. Langflestir
sem eiga hljómtæki hafa lítið hugsað
út í þessi mál, enda hljómtækin oft-
ast afþreying sem virðist skila því
sem til er ætlast, en þegar að er gáð
eru snúrur og kaplar, sem fylgja
hljómtækjum, yfirleitt ekki mjög
vönduð og því nokkrar hindranir á
leið tónsins frá upphafspunkti til
endapunkts.
Það má kannski segja að þegar um
ódýr hljómtæki er að ræða þá borgi
sig ekki að.vera að skipta um kapla
þar sem þeir gera þá ekki annað en
að sýna fram á að tækin eru ekki
nógu góð. En þegar um dýr og góð
tæki er að ræða er sjálfsagt að at-
huga snúrur og kapla. Meðal þeirra
fyrirtækja sem bjóða upp á góða
kapla er Taktur sem er með umboð
fyrir MonsterCable sem eru viður-
kenndir gæðakaplar.
Það getur skipt máli upp á hljómburð að hafa góða kapla sem tengja magnara við hátalara.
Fullkomin tæki í bílinn
Kenwood bíltæki er hægt að fá af mörgum gerðum í Takti,
Þróun hefur orðið nokkuð
ör á síðustu árum í hönnun
bíltækja. Nú er hægt að setja
í bílinn sterk og góö tæki
sem valda engum titringi
eða óþægindum þegar stiilt
er hátt. Taktur er ein þeirra
verslana sem bjóða upp á
góð bíltæki. Þar hafa þeir á
boðstólum Kenwood bíltæki
og Pyle hátalara og er úrval-
ið fjölbreytt.
Það þykir sjálfsagt að hafa
útvarp í bílnum og oftast
fylgir því kassettutæki og
hafa gæði þeirra tækja sem
fylgja nýjum bílum aukist
nokkuð. En það eru margir
sem vilja betri tæki og svo
er það ekki orðið algengt að
geislaspilarar séu fylgihlut-
ir, það er helst að farið sé
að setja þá í dýra bíla.
Margir tónelskir bíleig-
endur vilja þó fá stofusándið
inn í böinn sinn og með
þeirri tækniþróun sem orð-
ið hefur á undanfómum
árum er hægt að fá hvaða
hljómtæki sem er í bílinn
og með réttu vali á geisla-
spilara, magnara, hátölur-
um og réttri ísetningu má
verða sér úti um mjög góðan
hljóm.
Bíltæki frá Kenwood eru
til í mörgum gerðum, bæði
með og án geislaspilara.
Hægt er að fá mjög kraft-
mikinn magnara svo að
jafnvel þætti nóg um í
heimahúsum. Hátalaramir
frá Pyle eru til í öllum
stærðum og er nauðsynlegt
að valdir séu réttir hátalar-
ar við það tæki sem keypt
er, ei\til eru í Takti bílhátal-
arar af öllum stærðum og
gerðum, auk þess sem hægt
er að fá lágtónahátalara
(sub-woofer) í mörgum
stærðum. Nánari upplýs-
ingar um Kenwood bíltæki
og Pyle bílhátalara er hægt
að fá í Takti við Ármúlann.