Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Síða 14
30
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 1995
Tækni - Hljómtæki
Lifestyle:
Herbergi fullt af tónlist í
stað herbergis fulls af tækjum
Það er dásamleg tilfinning að vera í
herbergi með fullkomnum hljóm-
tækjum og hlusta á góða tónlist. En
ef herbergið er ekki mjög stórt taka
góð hljómtæki yfirleitt allt of mikið
pláss og vilja þau stundum stjórna
útliti herbergisins. Þetta á ekki við
um Lifestyle línuna frá Bose, en Life-
style hefur vakið mikla athygli á
undanförnum árum og fengið frá-
bæra dóma í fagtímaritum. Lifestyle
kollvarpar þeirri kenningu að til að
fá góðan hljóm þurfir þú að hafa
stóra hátalara, fyrirferðarmikil
hljómtæki og flókinn búnað til að
Hér er stofa sem er með Lifestyle tæki og hafa þau engin áhrif á hönnunina. Það sem minnir á að hljómtæki eru
i stofunni eru hátalarar i loftinu.
FULLKOMIN
SURROUND-HLIÓMTAKI
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR:
• Digital FM/MW/LW útvarp
með 30 minnum
•140 watta magnari
• Surround-hijóðkerfi
• Tímastilling og vekjari
• 3ja diska geislaspilari
með 30 minnum
• Superbassa-, bassa- og
diskantstilling
• Tvöfalt Dolby segulband
með síspilun
• Innstunga fyrir heyrnartól
• Fullkomin fjarstýring
• 200 watta hátalarar
SfeósmaitPSRfliBsrÖBiN
SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90
stjórna tækjunum.
Lifestyle, sem framleitt er í þremur
línum, 10, 5 og 3, er plötuspilari og
útvarp sem eru samtengd, stærðin
er 38x20x6,4 sentímetrar (Lifestyle 5).
Fjórir hátalarar í tvískiptum stæð-
um, og er hver hátalari varla hærri
en vinglas. Sérstakur bassahátali,
með magnara, sá hátalari er mun
stærri og á að vera falinn. Þessu fylg-
ir svo fjarstýring, sem er þannig að
þú getur stjórnað tækjunum hvar
sem er og er þykkur veggur engin
hindrun. Er Bose eina fyrirtækið á
markaðinum með radíóíjarstýringu
fyrir samstæður, auk þess er fjar-
stýringin mjög einföld í notkun.
Lifestyle línan er hönnuð á þann
veg að hljómurinn verði eins og á
tónleikum, að víðfeðmi hljómsins,
sem oft vill tapast frá hljómleikum
yfir á plötu, verði nánast það sama.
Tvískipting hátalaranna er einn lið-
ur í þessu dæmi en það er aðeins
hluti hljómsins sem kemur beint á
þann sem hlustar, hluti hljómsins er
einnig endurkast frá veggjum og því
vísar efri hluti hátalaranna í vegg-
inn. Bassinn sem er stærsti hlutur
settsins er með innbyggðum magn-
ara og skiptir í raun engu máli hvar
sá hátalari er, þess vegna er hentug-
ast að hafa hann falinn einhvers
staöar í herberginu. ágætt er að
koma honum fyrir í einhverju horni,
bak við gluggatjöld eða undir stól.
Þeim sem vilja nánari upplýsingar
um Lifestyle er bent á Heimilistæki
hf. sem eru umboðsaðili Bose og hafa
Lifestyle 5 til sölu.
Lifestyle 5. Eins og sjá má þegar borið er saman við geislaplötuna, fer
ekki mikið fyrir þessum tækjum. Á myndina vantar bassahátalarann, en
hann er hægt fela hvar sem er án þess að það skipti nokkru máli fyrir
hljóminn.
Stór hljómur í
lítilli samstæðu
Eins og margoft hefur sannast seg-
ir stærð í hljómtækjum ekki allt um
gæði og nú þegar einfaldleikinn er í
heiðri hafður er vert að gefa gaum
því smæsta sem er á boðstólum.
AudioSonic er fyrirtæki sem fram-
leiðir meðal annars litlar hljóm-
tækjasamstæður. Audiosonic TXCD
960 heitir nýjasta microsamstæðan
en hún er í smæsta flokki hljóm-
tækja eins og nafniö bendir til. Vegna
smæðar sinnar leit hún ekki út fyrir
að gera stóra hluti en annað kom á
daginn. Þessi hljómtækjasamstæða
er 28,5 sentímetrar á lengd, 17,5 sentí-
metrar á haeð og 15,5 sentímetrar á
dýpt.
Audiosonic TXCD 960 er með lausa
hátalara sem eru 50 vött (músík-
vött). Stæðan þykir hafa góðan hljóm
og ótrúlegt að hægt sé að ná slíkum
hljómi úr slíku kríh. Þeir hjá Audio-
Sonic lögðu áherslu á þessa stæðu
og er hún helsta tromp þeirra. í stæð-
unni er stafrænt útvarp með stöðva-
minni og þremur bylgjum, kassettu-
tæki, 1 bita geislaspilari, forstilltur
tónjafnari, auka bassahljómstilhr
sem kallast BBS (Bass Boost Sound
System), upplýstur skjár og heyrnar-
tólatengi. Fjarstýring fylgir svo sam-
stæðunni. Verð á AudioSonic TXCD
960 er 29.900 staðgreitt. Innflutnings-
aðih er Radionaust á Akureyri en
umboðsmenn eru um aUt land.
AudioSonic TXCD 960 er ekki stór en vel hönnuð og með mörgum mögu-
leikum.