Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Qupperneq 6
22
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 1995
ngar
Sýningar
Ásmundarsafn
Þar stendur yfir samsýning á verkum
Asmundar Sveinssonar (1893-1982)
og Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals
(1885-1972) undir yfirskriftinni „Nátt-
úra/Náttúra" þar sem sýnt er fram á
sérstæð tengsl þeirra við íslenska nátt-
úru I verkum sínum. Sýningin stendur
til 14. maí og er opin daglega kl. 13-16.
Baðhúsið
Ármúla 17
Hildur Waltersdóttir myndlistarkona
hefur opnað sýningu á nýjum verkum
i Baðhúsinu. Verkin eru unnin bæði í
oliu á striga og kol á pappir.
Café Mílanó
Faxafenill
Garðar Jökulsson sýnir 15 olíu- og
vatnslitamyndir af íslensku landslagi.
Sýningin stendur fram i miðjan mai og
er opin kl. 9-19 mánudaga, kl. 9-23.30
þriðjud., miðvikud. og fimmtud., kl. 9-1
föstud. og laugard. og kl. 9-23 sunnud.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu
Axelsdóttur, Helgu Ármannsdóttur, El-
inborgar Guðmundsdóttur. Sigrúnar
Gunnarsdóttur og Margrétar Salome.
Galleriiö er opið alla virka daga kl.
12-18.
Galleri Fold
Laugavegi118d
I Gallerí Fold eru til sýnis verk eftir
ýmsa listamenn. Galleriið er opið alla
daga kl. 10-18 nema sunnudaga kl.
14-18.
GalleriGreip
Hverfisgötu 82
Þar stendur yfir myndlistarsýning Önnu
Jóu. Sýningin er tileinkuð Esjunni. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14-18 og stendur
til 30. april.
Galleri Guðmundar
Ánanaustum 15, simi 21425
Galleriið er opið virka daga kl. 10-18.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18
nema laugardaga kl. 11-14. Sýningar
í gluggum á hverju kvöldi.
Galleri Regnbogans
Þar stendur yfir málverkasýning á verk-
um Tryggva Ólafssonar. Á sýningunni
verða málverk Tryggva auk frummynda
af myndskreytingum hans í Ijóðabók
Thors Vilhjálmssonar, Snöggfærðum
sýnum. Gallerí Regnbogans er ávallt
opið þegar kvikmyndasýningar standa
yfir.
Gallerí Sólon íslandus
Þar stendur yfir sýning Hólmfriðar Sig-
valdsdóttur á verkum unnum úr sam-
settum viði, silfur- og blaðgulli. Verkin
á sýningunni eru unnin veturinn
’94-'95. Sýningin verður opin á sama
tima og Café Solon Islandus til 30. april.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Páskarnir og andi þeirra eru undirtónn-
inn á myndlistarsýningu sem stendur
yfir í Galleríi Sævars Karls. Alls taka 27
myndlistarmenn þátt í þessari samsýn-
ingu. Sýningin stendur til 3. maí og er
opin mánudaga til föstudaga frá kl.
10-18 og á laugardögum frá kl 10-14.
Gallerí llmbra
Amtmannstig 1, Rvík
Þar stendur yfir sýning bandarísku lista-
konunnar Marcia Widenor. Þar sýnir
hún það sem hún kallar Pappirs Sam-
setningar eða Paper Quilts. Sýningin
stendur til 10. mai og er opin þriðju-
daga til laugardaga kl. 13-19, sunnu-
daga kl. 14-19.
Hafnarborg
Textílfélagið er 20 ára um þessar mund-
ir og sýnir af því tilefni verk félags-
manna i Hafnarborg. Sýningin stendur
til 17. apríl og er opin frá kl. 12-18
alla daga nema þriðjudaga.
Kjarvalsstaðir
Á Kjarvalsstöðum standa yfir þrjár sýn-
ingar. I vesturforsal er sýning er ber
heitiö I hlutarins eöli þar sem starfandi
arkitektum og hönnuðum er boðið að
sýna verk sin á hliðstæöum forsendum
og listamönnum I öðrum greinum sjón-
lista. I miðsal verður sýning á verkum
Magnúsar Tómassonar og í vestursal
sýningin Islensk abstraktlist - endur-
skoðun. Sýningarnar standa til 7. mai
og eru opnar kl. 10-18.
Kringlan
I tilefni af nýútkominni bók, Strendur
Islands, hefur verið opnuð liósmynda-
sýning Guðmundar P. Ölafssonar.
Stækkaðar hafa verið upp Ijósmyndir
úr nýju bókinni ásamt myndum úr bók-
um hans, Perlum Islands og Fuglum
Islands. Sýningin stendur til 24. apríl.
Veggspjöld og
ljósmyndir
í tilefni þess að hálf öld er liðin frá
lokum síðari heimsstyrjaldarinnar
verður veggspjalda- og ljósmynda-
sýning opnuð í húsakynnum MÍR,
Vatnsstíg 10, á laugardag kl. 15. Við
opnun sýningarinnar flytur sendi-
herra Rússlands á íslandi, Júríj Res-
hetov, ávíup og Baldvin Halldórsson
leikari les upp ljóð.
Sýning þessi er sett upp í samvinnu
Félagsins MÍR og rússneska sendi-
ráðsins. Hún samanstendur af ljós-
myndum sem teknar voru á austur-
vígstöövunum og fleiri myndum.
Einnig eru sýnd sovésk veggspjöld,
áróðurs- og hvatningarspjöld sem
gerð voru á stríðsárunum, kynning-
arspjöld um sovéskar kvikmyndir
sem sækja efni sitt til styrjaldarátak-
anna, myndir af heiðursmerkjum frá
þessum tíma og fleiri sýningarefni
tengd styrjöldinni. Sýningin verður
opin fram í maímánuð, um helgar
kl. 15-18 og á virkum dögum kl. 17-18.
Olíumálverk og
teikningar
Myndlistamaðurinn Alexander penna- og blýantsteikningar. Þetta
Ingason opnaði á dögunum myndlist- er þriðja sýning Alexanders í Reykja-
arsýningu á veitingastaðnum Ara í vík en hún verður opin daglega á
Ögri. Á sýningunni eru olíumálverk, sama tíma og kafflhúsið.
Grafíksýning í Útvarpshúsinu
Núna stendur yfir sýning á verk-
um grafíklistakvennanna Elínar P.
Kolka, Grétu Mjallar Bjarnadóttur
og Grétu Óskar Sigurðardóttur í Út-
varpshúsinu, Efstaleiti. Myndimar
em unnar í kopar og ál og þrykktar
á pappír.
Gallerí Úmbra:
íslensk list er
íslenska óperan:
Vestur-í slensk
óperusöng-
kona
Hingaö til lands er væntanleg
óperusöngkonan vestur-íslenska,
Valdine Anderson. Hún heldur tón-
leika ásamt Steinunni Bimu Ragn-
arsdóttur píanóleikara í íslensku
óperanni 23. apríl kl. 17.
Valdine kemur í boði menntamála-
og utanríkisráðuneytanna. Valdine
hefur komið fram með flestum stór-
hljómsveitum í Kanada og sungið við
helstu óperuhúsin þar við mjög góð-
ar undirtektir. Hún hefur unnið til
styrkja og hlotið ýmsar viðurkenn-
ingar, ekki síst fyrir flutning og túlk-
un á nútímatónlist. .
Valdine Anderson.
afar falleg
- segir bandaríska listakonan Marcia Widenor
Bandaríska listakonan Marcia
Widenor opnaði í gær sýningu í Gall-
erí Úmbru á Bernhöftstorfu. Á sýn-
ingunni er það sem hún kallar papp-
írssamsetningar eða Paper Quilts. í
samtali við DV sagðist Widenor fá
aðstöðu til þess að gera pappírinn
sjálf. Verkin eru þrívíð og unnin úr
handgerðum pappír sem listakonan
útbýr sjálf.
„Þetta er í annaö sinn sem ég kem
til íslands en fyrsta sýning min hér
á landi. Mér finnst íslensk hst afar
falleg og að mínu mati hafa kven-
listamenn staðið sig vel og skiliö eft-
ir sig mjög fallega vinnu. Ég fæ nátt-
úrlega nýjar hugmyndir með því að
koma hingað. Þegar ég horfi á lands-
lagið á íslandi hugsa ég ósjálfrátt um
þessa frábæm hti sem er að finna á
himni og í fjöllum," segir Marcia
Widenor þegar hún kom til landsins
á miðvikudag.
Widenor býr og starfar á Long Is-
land í New York fylki. Hún hefur
haldið margar einkasýningar og tek-
ið þátt í fjölda samsýninga. Marcia
hefur hlotið fjölda viðurkenninga
fyrir list sína og meðal annars prýðir
verk eftir hana vegg Hvíta hússins í
Washington. Listakonan veröur við-
stödd opnunina. Sýningin stendur tfl
10. maí og er opin þriðjudaga til laug-
ardaga kl. 13-19 og sunnudaga kl.
14-19.
Sýningar
Listasafn Einars Jónssonar
Njaröargötu, simi 13797
Safnið er opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30-16. Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Inngangur er frá
Freyjugötu.
Listasafn Íslands
Á efri hæð Listasafns Islands stendur
yfir sýningin Náttúrustemningar Ninu
Tryggvadóttur 1957-1967. Sýningin
stendur til 7. maí og er opin daglega
nema mánudaga kl. 12-18.
Listasafn Kópavogs-
Gerðarsafn
Hamraborg 4, simi 44501
Síðasta sýningarhelgi málverkasýning-
ar Elíasar B. Halldórssonar. Á sýning--
unni eru rúmlega 100 olimálverk, ab-
straktverk og litlar landslagsmyndir.
Sýningin er i öllum þremur sölunum í
Listasafni Kópavogs. Sýningin er opin
alla daga nema mánudaga kl. 12-18.
Listasetrið Kirkjuhvoll
Merkigerði 7, Akranesi
Páll á Húsafelli sýnir verk sín í Listrasetr-
inu Kirkjuhvoli. Á sýningunni eru högg-
myndir, olíumálverk, vatnslitamyndir og
teikningar. Sýningin stendur til 7. maí
og er opin daglega frá kl. 16-18 og
um helgar kl. 15-18.
Listhús39
Strandgötu 39, Hafnarfirði
Ljósmyndasýning Jean-Yves Courage-
ux framlengist til sunnudagsins 23.
april. Myndirnar á sýningunni eru allar
úr ferðum Jean-Yves til suðurhluta Als-
irs. Sýningin er opin virka daga kl.
10-18, laugardaga kl. 12-18 og sunnu-
daga kl. 14-18.
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17, sími 680430
Þar stendur yfir myndlistarsýning á
verkum eftir Sjofn Har. Sýningin ber
yfirskriftina „Islensk náttúra, islenskt
landslag". Sýningin er opin virka daga
kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16.
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Gerðubergi 3-5
Þar stendur yfir myndlistarsýning Pét-
urs Arnars Friðrikssonar. Þar hefur verið
sett upp „tilraunastofa" þar sem gerðar
verða athuganir á Ijósi og ýmsum eigin-
leikum þess, sem framkvæmdar verða
af tölvuvæddum átjándualdar vísinda-
manni. Sýningin er opin kl. 13-19
mánudaga -fimmtudaga og kl. 13-16
föstudaga - sunnudaga. Sýningunni
lýkur 23. apríl.
Mokka
Ljósmyndarinn Malika hefur unnið
sérstakt verkefni fyrir Mokka sem er að
skrásetja hin mismunandi afbrigði
sadómasókisma í undirheimum New
York. Á sýningunni verða einnig verk
eftir súpermasókistann Bob Flanagan
og drottnara hans, Sheree Rose. Sýn-
ingin stendur til 22. apríl.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið samkvæmt samkomulagi.
Upplýsingar í síma 611016.
Norræna húsið
Þar stendur yfir sýning á verkum Björns
Birnis, Hafsteins Austmanns, Helga
Gíslasonar og Valgerðar Hauksdóttur.
Sýningin stendur til 23. apríl og er
opin daglega kl. 9-19 nema sunnudaga
kl. 12-19. I anddyri Norræna hússins
hefur verið sett upp sýning á verkum
danska listamannsins Niels Macholms.
A sýningunni eru málverk, litógrafíur
og útskornar myndir. Sýningin stendur
til 1. maí.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarl., simi 54321
Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15-18.
Saf n Ásgríms Jónssonar
Bergstaðastræti 74
Sýning á vatnslitamyndum Ásgríms
Jónssonar. Sýningin stendur til 7. maí
og er opin laugardaga og sunnudaga
frá kl. 13.30-16.
Útvarpshúsið
Þar stendur yfir grafiksýning þar sem
grafiklistakonurnar Elin P. Kolka, Gréta
Mjöll Bjarnadóttirog Gréta Ósk Sigurð-
ardóttir sýna verk sln. Myndirnar eru
unnar i kopar og ál og þrykktar á pappír.
Veitingastaðurinn Ari í
Ögri
Ingólfsstræti
Þar stendur yfir myndlistarsýning Alex-
anders Ingasonar. A sýningunni eru
ollumálverk, penna og blýantsteikning-
ar. Sýningin verður opin daglega á
opnunartíma kaffihússins. Sýningunni
lýkur í byrjun maí mánaðar.
Við Hamarinn
Strandgötu 50, Hafnarfirði
Þar stendur yfir sýning Birgirs Snæ-
bjarnar Birgissonar á málverkum. Verk
Birgis eru óður til sakleysislegrar heims-
myndar barna. Sýning Birgis stendur
til 30. apríl og er opin alla daga frá kl.
14-18.