Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1995, Side 12
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1995
SAGA-BÍÓ Sími 78900'
Rlkkl ríki **
Það er sjálfsagt draumur hvers barns að geta veitt sér allt sem
hugurinn girnist. Barnastjama Macauley Culkin sýnir okkur hvað
hægt er að gera í þeirri aðstöðu. Ágæt skemmtun fýrir börn á
öllum aldri. -HK
Slæmir félagar **
CIA reynir að ná yfirhöndinni í njósnaíyrirtæki í einkaeign. Köld
mynd um kaldar manneskjur, ágætlega gerð og vel skrifuð en
nokkuð innantóm.-HK
Táldreginn ***
Linda Fiorentino sýnir klassaleik í hlutverki hættulegustu konu
sem sést hefur lengi á hvíta tjaldinu. Myndin er auk þess vel
skrifuð og spennandi og býr yfir kynngikrafti sem erfitt er að losna
frá. -HK
Konungur Ijónanna * * *
Enn einu sinni tekst snillingunum hjá Disney að gera hina
„fullkomnu" teiknimynd. Sagan er ljúf og skemmtileg og íslenska
raddsetningin tekst mjög vel. -HK
Afhjúpun **l/2
Afhjúpun er fín skemmtun þrátt fyrir nokkra hnökra í
atburðarásinni. Michael Douglas er í sömu sporum og í Fatal
Attraction og Basic Instinct og Demi Moore er svöl. Atriðið sem
allir vita um er sterkt í mynd og í tali. -HK ~
BÍÓBORGIN Sími 11384
í bráðrl hættu **l/2
Spennandi og vel gerð mynd um afleiðingarnar þegar
bráðdrepandi vírus verður laus. Dustin Hoffman er góður en
ofleikur í einstaka atriðum og myndin missir aðeins flugið í lokin.
-HK
BÍÓHÖLLIN Sími 78900
Banvænn lelkur **
Sean Connery leikur lagaprófessor við Harvard sem tekur að sér
að sanna sakleysi ungs blökkumanns í Flórída en útkoman er
fremur bragðlaus og lítt spennandi kvikmynd. -GB
HÁSKÓLABÍÓ Sími 22140
Höfuð upp úr vatnl **l/2
Sérlega vel úthugsuð saga um morð sem var kannski ekki morð.
Leikarar hefðu mátt vera meira sannfærandi í túlkun sinni. -HK
Orðlaus **
Ást á milli tveggja ræðusmiða vísar ekki á gott þegar þeir vinna
fyrir sinn hvorn frambjóðandann. Rómantísk gamanmynd sem
hefur sínar góðu hliðar, en einnig slæmar. -HK
Eln stór fjölskylda *
Það leynist skemmtilegur húmor í myndinni en óvönduð
vinnubrögð og viðvaningslegur leikur koma í veg fyrir að hann
komist upp á yfirborðið. Með vandaðri vinnubrögðum hefði mátt
gera betur.-HK
Nell **
Jodie Foster er stjarna þessarar fremur dauflegu myndar um unga
konu sem hefur ekki haft samneyti við umheiminn frá þvf hún
fæddist og tilraunir vísindamanna til að skilja hana og jafnvel
siðmennta.-GB
Forrest Gump ***
Einstaklega ljúf og mannleg kvikmynd sem lætur engan ósnortinn.
Undravérðar tæknibrellur og stórleikur Tbms Hanks er það sem
hæst ber. -HK
LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075
Helmskur, helmskari **
Stendur og fellur með Jim Carrey sem fær góða aðstoð frá Jeff
Daniels. Mynd uppfull af atriðum sem eru misfyndin, en
aðdáendur Carreys verða ekki fyrir vonbrigðum með kappann.-HK
Inn um ógnardyr * * *
Ein besta hryllingsmynd í langan tíma. John Carpenter hefur gert
magnaða mynd þar sem bilið á milli raunveruleikans og
skáldskaparins er nánast ekkert og tækni er beitt til hins
ýtrasta - HK
REGNBOGINN Sími 19000
Pret-a-Porter * *
Það er engin ástæða til að örvænta um Robert Altman þótt
Pret-a-Porter valdi nokkrum vonbrigðum. Altman tekur á þeirri
gerviveröld sem tískuheimurinn er af krafti en myndin er of
ruglingsleg. - HK
Rita Hayworth og Shawshank fangelslð ***l/2
Áhrifamikil kvikmynd sem virkar ósköp venjuleg í byrjun en
vinnur á með hverri mínútunni. Tim Robbins og Morgan Freeman
sýna stórleik í hlutverkum tveggja ólíkra fanga. -HK
Himneskar verur ****
Áhrifamikið listaverk þar sem þungamiðjan er vinskapur þar sem
ímyndunaraflið er óbeislað og blandast raunveruleikanum méð
alvarlegum afleiðingum. Stórfenglegt myndmál sameinast
frábærum leik og gerir myndina að eftirminnilegri reynslu. -HK.
Reyfari **i/2
TöfF og smart Tarantino um undirheimalýð £ Los Angeles, ískalt en
ekki nógu gott. -GB
STJÖRNUBÍÓ Sími 16500
Ódauðleg ást * *l/2
Leit að stóru ástinni í lífi Beethovens í spennumyndastíl. Myndin
hrífur þótt ýmislegt megi finna að henni. Áhrifamikil
tónlistaratriði. -HK
Bardagamaðurinn *l/2
Yfirkeyrð slagsmálamynd sem lítið vit er í. Jean-Claude Van
Damme fer troðnar slóðir í leik sínum tilraunir hans til að vera
sniðugur misheppnast. -HK
Vindar fortíðar **l/2
Epísk stórmynd sem segir frá örlögum þriggja bræðra snemma á
öldinni. Lifandi persónur og góður leikur en mikill tilfinningahiti
skapar stundum fullmelódramatísk atriði. -HK
íSíSSSIIISWMíSSliapl
_____ ____
<”■
f ■ :
Bandaríkjunum
- helgina 28. til 30. apríl í millj. dollara -
i&X
Meg Ryan oi
; Kevin Kline leika aðalhlutverkin í French Kiss.
■"--------‘ur
-
Sandra Bullock og mynd
kvikmynd Lawrence Kasdan. Hefur French Kiss næstum á einni helgi
leikararnir Jean Reno og Francois Cluzet. French Kiss er rómantísk
1 (-) French Kiss
8,5
2(1) While You Were Sleeping 3,9
3 (2) Friday 2,9
4 (3) Bad Boys 2,4
5(-). Panther 2,2
6 (-) My Family 2,1
7 (4) Rob Roy 2,0
8 (6) A Goofy Movie 1,9
9 (5) Village of the Damned 1,6
10 (7) Kiss of Death 1,1
11(9) Don Juan De Marco 14
12 (8) Top Dog 1,9
13 (12) Tommy Boy 0,8
14 (10) Circle of Friends 0,8
15 (11) j»>» ■>»•» 0,7
16 (13) Outbreak 0,4
17 (21) Legend of the Fall 0,4
18 (14) Forrest Gump 0,4
19 (18) Majour Payne 0,3
20 (26) Pulp Fiction 0,4
http://www.tilan.is/startrek
Vi\" ’ ’i » t f*
komtlu ogskoðaöti í kisláá mína
(þíi gætir iinniö bol. eða miða á bíó)
HASKOLABIO 12. Maí
Stallone sem
dómarinn
Dredd
Þannig lítur Sylvester Stallone
út í nýjustu kvikmynd sinni
Judge Dredd, sem bráðlega verð-
ur frumsýnd í Bandaríkjunum.
Myndin gerist á 23. öld þegar
engir lögfræðingar eru til, engir
dómarar og þar af leiðandi eru
engin réttarhöld. En það eru til
menn sem eru allt í senn ákær-
andi, dómari og böðull og er
Judge Dredd sá hættulegasti af
þeim öllum. Með önnur hlutverk
í myndinni fara Armand
Assente, Diane Lane, Joan Chen
Jurgen Prochnov og Max Von
Sydow.
Brúðkaup
Muriel
Sú ástralska kvikmynd sem
hefur vakið hvað mesta eftirtekt
er Muriel’s Wedding, sem hefur
verið vinsælasta kvikmyndin í
Englandi að undanförnu. Aðal-
persónan í myndinni er Muriel,
sem heldur úr sveitinni til Sidn-
ey til að leita að draumaprinsin-
um sem hún er viss um að bíði
hennar þar. Mynd þessi er
frumraun leikstjóran P.J. Hogan
og skrifar hann einnig handritið.
Muriel’s Wedding verður sýnd í
'Háskólabíói í næsta mánuði.
Þjóðsagna-
persónan
Rob Roy
Háskólabíó mun einnig bráð-
lega taka til sýningar stórmynd-
ina Rob Roy sem hefur verið of-
arlega á bandaríska vinsældalist-
anum. Myndin er byggð á ævi
skosku frelsishetjunnar Robert
Roy MacGregor, sem uppi var á
sautjándu og átjándu öld. Aðal-
leikaramir eiga örugglega þátt í
vinsældum myndarinnar, en það
eru Liam Neeson sem leikur Rob
Roy og óskarsverðlaunahafinn
Jessica Lange. Fjöldi þekktra
leikara er í minni hlutverkum,
má nefria John Hurt, Tim Roth,
Eric Stolz og Brian Cox. Leik-
stjóri er Michael Caton-Jones.
Ferð Apollos 13.
Einhver dýrasta kvikmyndin í
ár er Apollo 13., sem Ron
Howard leikstýrir, en kostnaður
viö hana fór hátt í sextíu milljón-
ir dollara. En þegar vinsældir
Tom Hanks eru hafðar i huga, en
hann leikur aðalhlutverkið, þá
ætti sá kostnaður að skila sér,
auk þess sem myndin fjallar um
eina af áhugaverðustu og
dramatískustu geimferðum í sög-
unni, ferð Apollos 13., sem hófst
13. apríl 1970. Hanks leikur geim-
farann James Lowell, sem var
stjómandi ferðarinnar, Kevin
Bacon leikur Jack Swigert og
Bill Paxton leikur Fred Haise,
sem einnig vom um borð.
Spike Lee að
storfum í New
York
Spike Lee er um þessar mund-
ir að hefja tökur í New York á
Girl 6 og mun hann bæði leik-
stýra og leika í myndinni, sem
fjallar um unga leikkonu sem
berst fyrir lifibrauði i New York.
Til að hafa fyrir mat tekur hún
að sér að staífa hjá kynlífssíma-
linu. Theresa Rantlle leikur
stúlkuna, en meðal annarra leik-
ara era Halle Berry, John Turt-
urro, Madonna, Quentin Tar-
antino, Ron Silver, Peter Berg og
Naomi Campbell.