Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1995, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 12. MAI1995
K VI KMYgDA
DJÍMJiYII
Háskólabíó - Dauðataflið:
Hver drap riddarann?
Dauðataílið (Uncovered) er sakamálamynd sem býr yfir heillandi og
mystÍ8kum söguþræði sem minnir um margt á klassískar
sakamálasögur fyrri ára, sögur sem hafa margar persónur og hefjast á
morði og í hægt sígandi spennu er verið að leita að morðingjanum,
sem finnst aldrei fyrr en í lokin.
En það verður að segjast eins og er að þrátt fyrir að Dauðataflið hafi
áhugaverðan söguþráð er gallinn við úrvinnsluna að með lítilli
fyrirhöfn er hægt að sjá út hver morðinginn er og þar með er hálf
skemmtunin fokin út í veður og vind.
Dauðataflið gerist í kiassísku umhverfi Barcelonaborgar sem er góður
bakgrunnur fyrir sakamálsögu sem að miklu leyti fjallar um gamalt
og verðmætt málverk af tveimur mönnum sem sitja að tafli. Það
uppgötvast að undir yfirborði málverksins er skrifað „Hver drap
riddarann?“ og er setningin á latínu. Þessi setning verður til þess að
§etja af stað flókna atburðarás, sem þó reynist að sumu leyti gegnsæ.
I myndinni er í raun verið að segja tvær sögur. Ung stúlka, sem hefur
fengið það verk að lagfæra málverkið, heillast af gátunni og byrjar að
púsla saman atburðarás sem átti sér stað fyrir mörgum öldum, en
lendir á sama tíma sjálf í morðmáli þegar elskhugi hennar er drepinn.
Einhvem veginn held ég að Dauðataflið hefði orðið betri mynd hefði
verið meira gert úr því sem gerðist fyrr á öldum. Nútímasagan, sem
að vísu tengist óbeint gamla málinu, er allt of ruglingsleg og
ósannfærandi. Til að mynda er lokaatriðið hálfmisheppnað og
langdregið. Leikur allur er nokkuð yfirborðskenndur, en hin unga
Kate Beckinsale stendur sig þó nokkuð vel í stærsta hlutverkinu.
Leikstjóri: Jim McBride. Handrit: Michael Hirst, Jim McBride og
Jack Baran. Kvikmyndun: Affonso Beato. Tónlist: Philippe Sarde.
Aðalhlutverk: Kate Beckinsale, John Wood, Sinead Cusack og
Michael Gough.
-Hilmar Karlsson
Bíóborgin - Strákar til vara:
Stelpur á ferðalagi
Strákar til vara eftir hinn gamalreynda leikstjóra Herbert Ross
slengir saman þremur ólíkum konum á ferðalagi frá austurströnd
Bandaríkjanna til vesturstrandarinnar, konum sem eiga það
sameiginlegt að vera að flýja undan einhveriu. Söngkonan Jane, svört
lesbía (Goldberg), er að stinga af frá stöðnun í starfi og vonast eftir að
finna frægð og frama í Los Angeles. Alnæmissmitaða
fasteignasölukonan Robin (Parker) er á flótta undan sjálfri sér og
vandræðagemlingurinn Holly (Barrymore), ólétt eftir kærastann sem
hún kálaði af slysni, er á flótta undan löngum armi laganna.
Stúlkumar komast aldrei á upphaflegan áfangastað en það skiptir
minnstu máli því á hinni löngu leið um þjóðvegi Bandaríkjanna finna
þær hver aðra og sjálfa sig, eignast fjölskylduna sem þær þráðu en
áttu ekki.
Mynd þessi er eins konar sneið af lífinu, kannski aðeins ýkt, ekta
sápuópera með fullt af vandamálum, ástarmálum og löggumálum og
ekki laust við að lopinn sé stundum teygður óhóflega, einkum eru
atriðin út á þjóðvegunum oft óþarflega löng. En Herbert Ross og
félagar hans bjarga þessu yfirleitt alltaf fyrir horn og þegar best tekst
upp er ekki laust við að viðkvæmar sálir þurfi að seilast eftir
vasaklútnum. Væmnin fær þó aldrei að taka öll völd.
Það er ekki síst góðum samleik leikkvennanna þriggja að þakka að
myndin nær að verða þokkalegasta skemmtan. Þær standa sig líka vel
hver í sínu homi og vert er að geta góðs söngs Whoopiar, hvort sem er
í hröðu blúsrokki eða viðkvæmnislegri ballöðu.
Leikstjóri: Herbert Ross.
Handrit: Don Roos.
Kvikmyndataka: Donald E. Thorin.
Leikendur: Whoopi Goldberg, Mary-Louise Parker, Drew Barrymore, Matthew
McConaughey, James Remar, Billy Wirth, Auita Gillette.
Guölaugur Bergmundsson
Laugarásbíó - Háskaleg ráðagerð:
★
Þrír hrekkjalómar
Snemma beygist krókurinn. Vinimir þrír, sem Háskaleg ráðagerð segir
frá, voru miklir prakkarar á unga aldri, rétt eins og flestir strákar eru
á meðan þeir em enn innan við ferm ingu. Þremenningarir vaxa hins
vegar ekki upp úr hrekkjunum og þegar sagan sem hér um ræðir gerist
em þeir komnir undir tvítugt. Þeir ákveða að fremja prakkarastrik
aldarinnar til að ná sér niðri á pabba eins þeirra. Prakkarastrikið felst
í því að fremja þykjustumorð fyrir utan banka í litlum syfjulegum bæ.
Það flækir hins vegar málin allnokkuð að tvö illmenni ætla að fremja
alvömbankarán í sama banka á nákvæmlega sama tfma. Þessum
tveimur hópum lýstur því saman, með ófyrirséðum afleiðingum.
Hér er ekki verið að hætta sér út fyrir hinar vel troðnu sióðir. Það er
sosum allt í lagi ef afurðin er góð, sem ekki er í þessu tilfelli.
Persónumar em gamalkunnar. Vinirnir þrír sam anstanda af
menntamanninum tilvonandi, töffaranum og foringjanum sem aldrei
komst frá kmmmaskuðinu og loks skugga foringjans sem gerir eins og
honum er sagt. Bófarnir em svipaðrar gerðar. Annar samviskulaus
fantur sem baunar út úr sér fimmauraspekinni í gríð og erg, hinn
kolklikkuð undirlægja. Það er því varla von á góðu þegar svona gaurar
etja kappi hver við annan.
Af ofbeldinu er nóg í mynd þessari en einstaka sinnum er reynt að slá á
léttari strengi, eins og þegar verið er að bíða eftir að stund glæpsins
renni upp, stílfærðir bófar í jakkafótum, með bindi, hatt og sólgleraugu,
eða þegar móðir eins piltanna heldur áfram að búa til
kirsubeijabökuna eins og ekkert sé á meðan eiginmaður hennar
úthúðar syninum fyrir að stela fina kádiljáknum hans. Það sem annars
hrjáir mynd þessa mest er spennuleysið, þar sem þetta á að vera
spennumynd.
Leikstjórí: Paul Warner.
Handrít: Steve Alden og Paul Skemp.
Kvikmyndataka: Mark Gordon.
Leikendur: Stephen Baldwin, Sheryl Lee, Mickey Rourke, Jason London, David
Arquette, Jonah Belchman.
Guölaugur Bergmundsson
DV
Úr Lipstick Lovers í Lipstikk. Á myndina vantar Sævar Þór bassaleikara og Anton Má grtarleikara. DV-mynd ÞÖK
Lipstick Lovers kalla sig nú:
Lipstikk
- ný plata væntanleg í verslanir um næstu mánaðamót
Hljómsveitin hefur starfað saman í
tæp fjögur ár, átt lög á safhplötum (nú
síðast í kvikmyndinni Ein stór fjöl-
skylda) og fyrir tveim árum gaf hún
út plötuna My dingaling. Platan var
öll á engilsaxnesku. Um næstu mán-
aðamót kemur hins vegar út önnur
plata sveitarinnar, en hún nefnist
Dýra-líf. „We’re'singin’ in icelandic
now“ útskýrir Bjarki Kaikumo,
söngvari sveitarinnar.
Á íslensku
Enn fremur útskýra hljómsveitar-
menn að þeir hafi ekki sest niður og
ákveðið að hætta að syngja á ensku.
„Venjulega prófum við bæði íslenska
og enska texta við lögin okkar og not-
um síðan það sem kemur betur út. í
þetta skiptið varð íslenskan fyrir val-
inu,“ segir Bjarki. „Ef við tökmn Næt-
urdætur sem dæmi þá varð það til fyr-
ir rúmu ári síðan og eins og áður seg-
ir kom íslenskan bara betur út.
Hljómsveitarmeðlimir eru: Bjarki
Kaikumo (söngur), Ragnar Ingi
Björnsson (trommur), Sævar Þór
Kristinsson (bassi), Anton Már Gylfa-
son (gítar) og nýr meðlimur sveitar-
innar heitir Ámi Gústafsson og spil-
ar á gítar. En hvers vegna fá þeir inn
nýjan meðlim núna? „Bjarki spilaði á
gítar en hefur nú ákveöið að einbeita
Slash’s Snakepit The Smiths-Singles: Hootie and the Blowfish
- Ifs Five O’Clock Somewhere: ★★★★ -Cracked RearView:
★★★ Það er eiginlega ótrúlegt að hljómsveitin ★★★
Gítarhljómurinn á plötunni er þykkur skyldi afreka allt þetta á ekki lengri tima Það sem gerir gæfúmuninn fyrir Hootie
eins og vera ber og heildaryfirboröið hæfi- en raun ber vitni. and The Blowfish eru glæsilegar lagasmið-
lega hrátt. Sums staðar örlar meira að segja -SÞS ar og framúrskarandi hæfileikarikir ein-
á örlitlum blús. -ÁT The Chieftains — The Long Black Veil: Faith No More - King for a Day, Fool for a Lifetime: staklingar. -SÞS ti Bruce Springsteen - Greatest Hits: ★★★
Paddy Maloney, pródúsent plötunnar, sveigir alla gestina að sinni stefnu og tekst ★★★★ í heild er platan vitnisburður um fram- Þetta safn sannar það sem löngu var vit- að að Bruce Springsteen er bestur þegar rokkið er þanið og sér í lagi þegar hann hef-
það vel. Það er raunar erfitt að hrósa ein- sækni Faith No More í lagasmíðum og er ur sér tfl fulitingis hljómsveitina E-Street
um fremur en öðrum. jafnt fyrir gamla sem nýja aðdáendur. Band.
-ÁT -GB -ÁT
sér meira að söngnum," útskýrir Ámi
sem kom mjög óvænt inn í sveitina í
vinnslubyrjun. Ámi hefur meðal ann-
ars spilað í sveitinni Maat Mons ásamt
Bigga trommuleikara i Vinum vors og
blóma og Heiðu í Unun. Hugmynd um
endurvakningu þeirrar sveitar fyrir
eina tónleika í sumar er í vinnslu.
Dýra-líf
Platan Dýra-líf inniheldur 15 lög, en
sum laganna em ekki lengri en 20 sek.
„Lögin eru notuð inn á milli," segir
Ragnar. „Upptökur á styttri lögunum
fóm fram „live“ í hljóðveri og við not-
uðum aðeins einn míkrafón til að taka
þau upp, sem var mjög skemmtileg til-
breyting."
Nafnið Dýra-líf er sótt í texta eftir
Anton gitarleikara (frekari útskýr-
ingu er að finna í textanum). Meðlim-
ir segja plötuna innihalda persónu-
legri lagasmíðar en fundust á My
dingaling. í þeirra augum er þetta sál-
artónlist í eiginlegri merkingu orðs-
ins. „Við tókum okkur frí frá spila-
mennskunni um áramótin og einbeitt-
um okkur að gerð plötunnar. Eftir
langt æfmgatimabil var platan síðan
tekin upp á tveim vikum en hljóm-
sveitin sá sjálf um útsetningar ásamt
upptökumanninum Páli Borg. Við fór-
um allir inn með sama markmið í
huga, að gera góða plötu,“ segir Bjarki.
Að sjálfsögðu hefst spilamennska
aftur hjá hljómsveitinni í sumar með
útgáfútónleikum á Tunglinu upp úr
næstu mánaðamótum. Aðspurðir um
tónlistarstefnu segja strákamir: „Þú
verður bara að hlusta á plötuna."
Á síðustu tveim árum hefur hljóm-
sveitin spilað mjög stíft um allt land
og virðist hafa haft erindi sem erfiði.
Bjarki sér sjálfur um umboðs-
mennsku fyrir hljómsveitina. „Ég
held að fólk geri sér ekki almennilega
grein fyrir öllum rútuferðunum, hljóð-
verstímunum, símatímunum og hark-
inu sem fylgir tónlistarbransanum á
íslandi."
í harkinu
Lipstikk verður á fleygiferð í sum-
ar eins og við var að búast. Eins og
síðast stendur hljómsveitin sjálf í út-
gáfunni en eitthvert útgáfufyrirtækj-
anna mun taka að sér framleiðslu og
dreifmgu. My dingaling seldist vel upp
í kostnað og sjálfír seldu strákamir
meira en plötubúðimar.
Harkið heldur áfram og miðað við
þann dugnað, sem hljómsveitin hefur
sýnt á síðustu ijómm árum, má vel bú-
ast við áframhaldandi velgengni sem
vonandi smitast út í þjóðfélagið.
GBG