Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1995, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1995
27
Messur
Árbæjarkirkja: Laugard.: Sumarferð
barnastarfsins að Vindáshlíð í Kjós. Farið
verður frá Árbæjarkirkju kl. 10 árdegis.
Sunnud.: Guðsþjónusta kl. 11. Ath. breytt-
an messutíma. Prestarnir.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Messudag-
ur Félags Snæfellinga og Hnappdæla og
samvera í safnaðarheimili Áskirkju eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Ðreiðholtskirkja: Messa með altarisgöngu
kl. 14. Að messu lokinni verður haldinn
aðalfundur Breiðholtssóknar. Samkoma
ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jón-
asson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Pálmi Matthíasson.
Digraneskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Þor-
bergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Minningarguðsþjónusta kl.
11. Minnst að 50 ár eru liðin frá lokum
síðari heimsstyrjaldarinnar I Evrópu. I upp-
hafi athafnar flytur forsætisráðherra, Davið
Oddsson, ávarp. Biskup Islands, hr. Ólafur
Skúlason, prédikar. Dómkirkjuprestarnir
þjóna fyrir altari. Kammerkór Dómkirkj-
unnar syngur. Barnastarf I safnaðarheimil-
inu kl. 11, lok vetrarstarfsins og í Vestur-
bæjarskóla kl. 13. Sr. María Ágústsdóttir.
Anglikönsk messa kl. 14. Prestur sr. Ste-
ven Mason.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Gylfi Jónsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
prédikar, sr. Hreinn Hjartarson þjónar fyrir
altari. Lögreglukór Reykjavíkur syngur
undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar. Bar-
naguðsþjónusta á sama tíma. Prestarnir.
Frikirkjan í Hafnartirði: Barnaguðsþjón-
ustakl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Aðalsafn-
aðarfundur verður haldinn í safnaðarheim-
ilinu að lokinni guðsþjónstu. Einar Eyjólfs-
son.
Frikirkjan í Reykjavík: Vorferðalag barn-
anna. Farið verður frá kirkjunni kl. 11.15.
Heimkoma áætluð um kl. 16.15. Guðs-
þjónustuhald i kirkjunni fellur niður. Cecil
Haraldsson.
Grafarvogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Ath. br. messutíma. Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Messa kl. 11 (ath. breyttan
tíma). Prestursr. HalldórS. Gröndal. Kaffi-
sala Kvenfélags Grensássóknar kl. 14.30-
17.00.
Hallgrimskirkja: Barna- og fjölskyldu-
messa kl. 11. Lok barnastarfsins. Mótettu-
kór Hallgrímskirkju syngur. Sr. Karl Sigur-
björnsson.
Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Messa kl. 14. Sr. Helga Soffia Konráðs-
dóttir.
Hjallakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Barna-
guðsþjónusta á sama tíma. Bryndís Malla
Elldóttir.
Hvalsneskirkja: Guðsþjónusta kl. 16. Að-
alsafnaðarfundur Hvalsnessafnaðar hald-
inn eftir guðsþjónustuna. Sóknarnefnd.
Kópavogskirkja: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Litli kór Kársnesskóla syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra.
Börn úr barnastarfinu syngja. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
Mosfellsprestakall: Messa I Lágafellskirkju
kl. 11. Athugið breyttan messutíma. Jón
Þorsteinsson.
Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands bisk-
ups. Guðsþjónusta og ferming kl. 11.
Fermdur verður Auðunn Ingi Sverrisson,
Karfavogi 35. Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Gradualekór Langholtskirkju
syngur. Kaffisopi eftir messu.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Barnakór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Bjargar Ólínudóttur. Ingrid Karls-
dóttir leikur á fiðlu. ðlafur Jóhannsson.
Neskirkja: Sunnudagaskólinn: Vorferð
sunnudagaskólans. Lagt af stað kl. 11.
Farið að bænum Grjóteyri I Kjós eða í
Sæfiskasafnið í Höfnum á Reykjanesi. Sr.
Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl.
11. Ath. breyttan tíma. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Guðsþjónusta kl.
14. Aðalsafnaðarfundur Innri-Njarðvíkur-
safnaðar haldinn eftir guðsþjónustuna.
Sóknarnefnd.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Félags eldri þorgara á Suðurnesjum
syngur við athöfnina ásamt kirkjukórnum.
Aðalsafnaðarfundur Ytri-Njarðvíkursafn-
aðar haldinn eftir guðsþjónustuna. Sókn-
arnefnd.
Oddakirkja á Rangárvöllum: Messa
sunnud. kl. 14. Aðalsafnaðarfundur Odda-
sóknar að messu lokinni. Kirkjukaffi I um-
sjá Kvenfélags Oddakirkju. Sóknarpestur
- Sóknarnefnd.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Val-
geir Astráðsson prédikar. Arnesingakórinn
syngur. Kaffisala Árnesingafélagsins í
safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjón-
ustu. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Prestur
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Barna-
starf á sama tíma.
Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 11. Ferming
og altarisganga.
HM í handknattleik:
Riðlakeppninni
lýkur um helgina
- stórleikur laugardagsins er viðureign Islands og Sviss
íslendingar mæta Svisslendingum
í síðasta leik riðlakeppninnar á HM
í handknattleik á morgun. Eftir
þennan leik verður ljóst í hvaða sæti
Islendingar lenda í riðhnum en 16-
Mða úrslitin hefjast síðan á þriðju-
daginn.
Eftir leik íslands og Sviss hafa
margir beðið með mikilh eftirvænt-
ingu en segja má að þetta sé úrslita-
leikur riðilsins.
Viðureignir þjóðanna í gegnum tíð-
ina hafa ávaMt verið jafnar og spenn-
andi. Á morgun verður barist til síð-
asta blóðdropa enda mikiö í húfi. ís-
lenska Mðið þarf á stuðningi að halda
sem aldrei fyrr en í gær stefndi aMt
í það að uppselt yrði á leikinn.
Á undan viðureign íslands og Sviss
leika Þýskaland og Alsír og hefst sá
leikur klukkan 14.
í Kópavogi leika Rúmenía og Japan
klukkan 14 og á sama stað klukkan
16 leika Danmörk og Frakkland.
Á sunnudag klárast öll riðlakeppn-
in og verða þá eftirtaldir leikir á dag-
skrá:
Hafnarfjörður:
Ungverjaland - Túnis.........kl. 13
Slóvenía - Marakkó...........kl. 15
Króatía - Kúba...............kl. 17
Rússland - Tékkland...........kl. 20
Kópavogur:
Suður-Kórea - Bandaríkin....kl. 13
Danmörk - Japan..............kl. 15
Frakkland - Þýskaland.....kl. 17
Alsír - Rúmenía..............kl. 20
Akureyri:
Brasilía - Kúveit............kl. 15
Svíþjóð - Spánn..............kl. 17
Egyptaland - Hvíta-Rússland ...kl. 20.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn:
Fjör í Laugardalnum
„Fjölskyldugarðurinn verður
formlega opnaður l.júní og er rekinn
í þijá mánuði á ári, júní, júlí og ág-
úst. Honum er hins vegar aUtaf start-
að aðeins fyrr á vorin og eins er opið
nokkrar helgar í september ef veðrið
er gott. Núna um helgina er svo kom-
ið að því að prufukeyra og þá verður
opið fyrir almenning. Ekki eru hins
vegar öll tækin komin út en verið er
að koma hlutunum í gang. Á morgun
og sunnudaginn verður opið frá kl.
10-18 og það verða örugglega margir
kátir með það,“ segir Þóra Björk
Schram, kynningarfuMtrúi í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í Laug-
ardal.
Húsdýragarðurinn er hins vegar
opinn árið um kring og þar gefst fólki
kostur á að panta sér leiðsögn. Þar
er margt að sjá og má t.d. benda á
að fyrir fáeinum dögum komu þar í
heiminn grísír, lömb og hreindýrs-
kálfur. í sumar verða ýmsar uppá-
komur en Fjölskyldu- og húsdýra-
garðurinn á fimm ára afmæli síðar í
mánuðinum og til stendur að opna
veitingahús við „brúna" þar sem
selja á léttar veitingar.
Vortónleikar Álafoss -
kórsins í Mosfellsbæ
Heiðará
dömukvöldi
Heiðar Jónsson snyrtir verður
með tveggja tíma dagskrá á vor-
fagnaði Kvennaklúbbs íslands á
Café Royale í Hafnarflrði annað
kvöld. Simbi hársnyrtir veröur
líka á staðnum og þá verða
óvæntar uppákomur.
Álafosskórinn heldur sína árlegu
tónleika í Bæjarleikhúsinu í Mos-
fellsbæ á sunnudaginn kl. 20.30.
Söngstjóri er Helgi R. Einarsson og
undirleikari Daníel Arason.
Lagaval er fjölbreytt, innlend og
erlend dægurlög, ættjarðarlög,
negrasálmar og Jónasar-syrpan „líf-
ið er lotterí".
Álafosskórinn er á leið til Dan-
merkur í júní og mun syngja í ýms-
um borgum, t.d. Álaborg, Hjallerup,
Thisted, sem er vinabær Mosfells-
bæjar, og endar svo í Árósum.
Kaupmenn við Laugaveginn eru komnir i sumarskap og þar verður væntanlega iðandi mannlif um helgina.
Höfnin og Laugavegurinn:
Uppákomur í miðbænum
í dag og um helgina verður ýmsar
uppákomur á Laugaveginum og við
Reykjavíkurhöfn. I tjaldi hafnarinn-
ar á Miðhakka verða sýningar og
kynningar alla dagana þar sem m.a.
gefur að Mta veiðarfæri og ýmislegt
annað sem tengist gamla árabátnum
og eins útbúnað handfærabáta í dag.
Af dagskrá morgundagsins á
Laugaveginum má nefna að Þjóð-
dansafélagið sýnir Mstir sínar og
Þórður sjóari spilar á harmóníkuna
sína frá kl. 14-16. Sexmenningarnir
í hljómsveitinni Karnival ætla Mka
að sjá um hljóðfæraleik á Laugaveg-
inum og þá mun hópur sjómanna
ganga vígreifur niður götuna meö
sjóhatta og tilheyrandi. Boðið verður
upp á kandís upp á gamla mátann
og harðfiskurinn verður á sínum
stað.
Fólk er hvatt til að klæðast upphlut
eða peysufötum svo og duggarapeys-
um og faMegum, litríkum hálsklút-
um. Vitaskuld verða svo ýmis freist-
andi tilboð í gangi.
Feröafélag íslands:
Fuglaskoð-
unarferð
Á morgun fer Ferðafélag ís-
lands í áiTega fuglaskoðunarferð
í samvinnu við Hið íslenska nátt-
úrufræðifélag. Frá 1967 hefur
verið farið í fuglaskoðunarferð
um Miðnes og Hafnarberg í maí-
mánuði þegar faifuglarnir eru
flestir komnir.
Brottíor er kl. 10 frá Umferð-
armiðstöðinni austanmegin og
Mörkinni 6. Þátttakendum er
bent á að æskilegt er að hafa með
sér sjónauka og einnig fuglabók
ef tök eru á.
Gengið á jökul
í dag er ferð FÍ á Snæfellsjök-
ul-Snæfellsnes og stendur hún í
tvo daga en á morgun verður
gengið á jökulinn (um 7 klst.
ganga). Gist er í svefnpokaplássi
á LýsuhóM.
Náttúruminjaganga
Á sunnudaginn kl. 13 verður
genginn 4. áfangi náttúruminja-
göngu Ferðafélagsins og liggur
leiðin frá EMiðavatni að Selgjá viö
Vííilsstaðahlíð.
Verðlauna-
einþáttungar
a Litla
sviðinu
Einþáttungamir Alhehnsferðir
Erna og Út úr myrkinu, sem
fengu fyrstu og öimur verðlaun í
leikritasamkeppni Landsnefndar
um alnæmisvarnir, veröa sýndir
á Litla sviði Borgarleikhússins
um helgina.
Höfundar þeirra eru Hlín Agn-
arsdóttir og Valgeir Skagíjörð en
leikendur eru Anna Elísabet
Borg, Ásta Amardóttir, Stemunn
Ólafsdóttir og Valdimar Örn
Flygenring, sem leika í Alheims-
ferðum, og Ingrid Jónsdóttir, Ól-
afur Guðmundsson og höfundur-
inn Valgen- Skagfjörð, sem leika
í Út úr myrkrinu.
Hvor einþáttungur tekur um 40
mínútur í flutningi en sýningar
báða dagana hefjast kl. 16.
La traviata
og Dökku
fiðrildin
Aukasýning og allra, allra síð-
asta sýning á óperu Verdis, La
traviata, verður í íslensku óper-
unni á morgun. í aðaMilutverkum
eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Ólaf-
ur Árni Bjarnason og Bergþór
Pálsson.
Þá er síðasta sýning á finnska
spennuleikritinu Dökku flðrild-
unum í Borgarleikhúsinu í kvöld
en það er gert eftir bók Leenu
Lander.
AÍllH
^jp|| p |jf
9 9-1 7-00
Verö aöeins 39,90 mín.
Krár
Dansstaöir
Leikhús
Leikhúsgagnrýni
:5j Bíó
6J Kvikmgagnrýni