Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1995, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1995, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1995 19 Hús og garðar '^yfllt í blóma Sigurvina í búð sinni, Vörufelii, en þar fæst ýmislegt í garðinn. Vörufell: Aðallinn tjamir, styttur og gosbrunnar A Hellu, að Heiðvangi 4, er paradís þeirra sem vantar styttur, gosbrunna eða tjarnir í garðinn sinn. Þar hefur Sigurvina Samúelsdóttir rekið versl- un sína, Vörufell, síðan 1983 en hafði áður„verið í fjögur ár í Mosfellssveit. Flutningur á næsta leiti Sigurvina er í þröngri aðstöðu í bílskúr og gróðurskála heima hjá sér en það stendur til bóta því hún hefur fengið lóð undir verslunina hinum megin við þjóðveg 1, ef svo má að orði komast, og flytur nú í sumar. Auk þess að vera með áðurtaldar vörur á boðstólum er Vörufell eini söluaðili sumarblóma og runna á Hellu og hyggst Sigurvina stórauka úrval í alls konar plöntum eftir að flutt verður. Sérstaklega langar hana að auka úrvalið af plöntum sem falla vel aö tjörnum og lækjum. margar sögufrægar persónur, m.a. úr goðafræöinni, verið vinsælar fyr- irmyndir. Einnig hafa skrautlegir rauðklæddir dvergar í ýmsum stærð- um gerst íbúar í mörgum görðum hér á landi undanfarin ár. Sigurvina mælir með því aö stytt- urnar séu teknar inn yfir vetrarmán- uðina en einnig er hægt að skýla þeim. Þetta er hvort tveggja gert úti en hér eru veður öllu vályndari. Ef stytturnar hafa oröið fyrir ein- hverjum skemmdum er hægt að fá viðgeröarefni og málningu hjá Vöru- felli. Einnig er hægt aö fá þar nú svarta tjarnarmálningu þannig að þeir garðeigendur sem eiga sund- laugargrænar tjarnir úti í garði geta málað þær svartar ef vilji er fyrir hendi. Margar stærðir og gerðir af dælum eru til hjá Vörufelli frá því að gefa eina stóra bunu og í það að vera með margar litlar og ýmist með eða án lýsingar. Margt fleira sniðugt er hægt að fá hjá henni Sigurvinu en sjón er sögu ríkari og ættu áhugasamir að leggja leið sína um Heiðvanginn ef þeir koma til Hellu. Ýmsar stærðir og gerðir Þótt ýmislegt sem viðkemur garð- inum sé til í Vörufelli er þó aðallinn tjarnir, gosbrunnar og styttur. Vörur þessar eru bandarískar og heita Henri Studio. Tjarnirnar eru úr gúmmíplasti, dökkar á lit (einnig til ljósar), og mjög eölilegar. Tjarnirnar eru til í möfgum stærðum og gerðum og er einnig hægt að fá fossa og flúð- ir í sama efni. Uppsetning þeirra er ekki meira mál en svo að flestir ættu að geta gert það sjálfxr en vanda þarf að sjálfsögðu til verksins (m.a. grafa niður á frostfrítt). Við framkvæmd eins og að setja tjörn í garðinn er kostnaðurinn oft þaö sem fólk horfir í. Ef fengin er minnsta tjömin, ágætis stytta og lítil dæla má komast af með minna en 20.000 kr. plús vinnu og undirbygg- ingarefni. Þeir sem vilja fá sér dúk í tjörn hjá sér geta einnig leitað til Vörufells en þar er umboð fyrir dúka í tjarnir og er hægt að fá þá soðna saman eftir máli. Stytturnar Stytturnar eru steyptar og eru til í ýmsum litum. Bæði eru til styttur sem eru gosbrunnar og einnig sjálf- stæðar styttur. Undanfarið hafa ÁBURÐARVERKSMIÐJAN HF. Blómin þurfa nœringu Blómanœring hentar öllum stofublómum, útiblómum og jurtum í garðhúsum. Blómancering gefur kröftugan vöxt og stuðlar að heilbrigði plantnanna, blómgun verður betri og útlitið fallegra. Fáðu upplýsingabœkling á naesta sölustað. . B A C K M A N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.