Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1995, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1995
25
Hús og garðar
Harpa:
Gefur lífinu lit - og góð
ráð við málun húsa
Málningarverksmiðjan Harpa hef-
ur hannað og framleitt málningu
fyrir íslendinga í meira en hálfa
öld. Gæði og litaúrval eykst og í dag
getur hún boðið upp á sömu liti úti
og inni og í flestum tilfellum einnig
í þakmálningu og viðarvörn.
Góðráð
Þeir hjá Hörpu voru boðnir og
búnir að gefa þeim góð ráð sem
hyggja á málningarvinnu. Eitt af
grundvallaratriðunum viö málun
(og margt annað) er að fara eftir
leiðbeiningum framleiðanda. Og er
þá sérlega mikilvægt að fylgja leið-
beiningum um áborið magn. Á þaö
ekki síst viö um undirmálningu
ýmiss konar, s.s. grunna og sílan-
efni.
Val á litum á stór hús getur verið
erfitt. Litir á húsum fylgja tískunni
en hafa verður í huga að málning
endist mun betur en tískan og ætti
því að íhuga vel áður en ákvörðun
er tekin. Dempaðir litir venjast yf-
irleitt betur og upplitast síður en
sterkir og skærir litir. Oft á tíðum
stendur valið milli nokkurra lita
og er þá tilvalið aö kaupa lítra af
þeim litum sem um ræðir og mála
nokkrar prufur, til dæmis kringum
glugga, til að sjá hvernig liturinn
kemur út á húsinu. Þetta getur
verið afar þýðingamikið við val á
lit.
Þvo vel
Áður en að sjálfri máluninni er
komið þarf að undirvinna húsið.
Skoða þarf veggina með tilliti til
leka eða steypuskemmda. Ef grun-
ur leikur á að um skemmd sé að
ræða er vissara að leita til fag-
manna og fá álit þeirra á því.
Grundvallaratriði er að þvo húsið
vel áður en það er málað. Best er
að háþrýstiþvo það, reynsla er.af
því að háþrýstiþvottur eykur end-
ingu málningar og er hann því
mjög góð fjárfesting.
Alltaf ætti að gæta hreinlætis við
málun - það sparar vinnu og pen-
inga. Breiðið undir þá íleti sem
verið er að mála hverju sinni og
þrífið áhöld vel með tilheyrandi
efnum eftir hverja notkun.
Málning verndar aðra byggingar-
þætti og eykur endingu þeirra og
er einn mikilvægasti þáttur í við-
haldi fasteigna. Þá fleti hússins sem
eru hvað mest áveðurs þarf að
vanda sérstaklega, jafnvel að mála
einni umferð meira.
Tréverkið
Harpa hefur einnig á boðstólum
viðarvörn frá Flúgger. Viðarvörn-
inni má skipta í 3 flokka.
Flúgger tréolía er tilvalin þar sem
halda á upprunalegu útliti. Tréol-
ían er vatnsfælin og inniheldur
virk fúavarnarefni og mygluvörn
og ver viðinn gegn innþornun og
sprungumyndun. Tréolían er orðin
hvað algengust sem viðarvörn en
einn meginkosturinn við hana er
að hún flagnar ekki heldur drekkur
timbrið hana í sig. Bera þarf tréol-
íuna á a.m.k einu sinni á sumri.
Flúgger treolían er til bæöi glær
og grænlituð.
Einnig eru til þekjandi viðar-
varnir; Flúgger 97 sem er olíuviðar-
vörn og Flúgger 98 sem er hálfmött
vatnsþynnanleg viðarvörn.
Grunnfúavara þarf að nota á beran
við undir öll þekjandi efni.
Við málun á timbri þarf að gæta
þess að tréverkið sé þurrt og hreint
þegar borið er á það. Ekki er nóg
að yfirborðið sé þurrt heldur þarf
viðurinn að vera sem næst þurr í
gegn. Hjá Hörpu og víðar er hægt
I sumar er tækifæríð!
Álgluggar - Álhurðir - Rennihurðir - Fellihurðir - Sólstofur - Gróðurhús - Sólarplast - Ál og plastsmíði
Finestra
framleiðir allar
gerðir af gluggum,
hurðum og
gróðurhúsum úr áli.
Vönduð framleiðsla
úr viðhaldsfríum
álprófílum. Tökum
mál og sjáum um
uppsetningu.
Leitið tilboða.
g Finestra
ehf
Skútuvogi 4, sími 581 2140 & 568 7897
Háborg
selur og framleiðir úr
sólarplasti, gróðurhús
og sólskála. Allar
gerðir af tvöföldu
sólarplasti, báruplasti
og einföldu plastgleri.
Eingöngu veðurþolið
plast sem hleypir í
gegn sólargeislum.
Sögum niður eftir máli.
Háborg hf
að fá sérstakan rakamæli sem er
afar einfaldur í notkun og má raka-
stig tréverksins ekki fara yfir 17%
þegar málaö er.
MMúrval
afhellum
og steinum.
Mjöggottverð.
,-Áx
STÉTT
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700-FAX 577 1701