Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1995, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1995, Side 5
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1995 5 Fréttir Islensk stúlka í nýmaskiptaaðgerð 1 Bandaríkjunum: Heff ur tekið mjög á stelpuna - segir móðirin, Vilborg Benediktsdóttir „Viö erum að vona aö Ásta taki nýranu vel því það mun geta ger- breytt lífi hennar. Systir hennar fékk nýra þegar hún var eins árs og hefur lifaö eins og hvert annað barn í níu ár. Ég þori ekki einu sinni að hugsa þá hugsun hvað gerist ef Ásta hafnar nýja nýranu. Það yrði alveg hræði- legt,“ sagði Vilborg Benediktsdóttir, móðir Ástu Árnadóttur, 13 ára stúlku sem nú býr sig undir nýrnaskiptaað- gerð í Boston í Bandaríkjunum. Þar dvelur hún ásamt móður sinni, föð- ur, Árna Hjaltasyni, og móðurömmu. Amman ætlar að gefa Ástu nýra og freista þess að þaö megi verða til að bæta heilsu hennar. „Ásta fékk nýra frá föður sínum 20. nóvember 1984 og hefur notast við það eitt síðan þá. Það nýra var tekið á dögunum og nú þarf hún þijár vikur til þess að jafna sig áður en hún getur tekið við því nýja. Að- gerðin tókst mjög vel og Ásta er nú komin heim. Tuttugasta júlí fara þær svo saman í aðgerð og þá fer flutning- urinn fram. Aðgerðin núna tókst mjög vel og Ásta er komin heim. Hún þarf að fara í nýmavél þrisvar í viku en verður annars bara heima, svo fremi reyndar að ekkert komi upp á.“ Vilborg segir Ástu hafa fengið sýk- ingu 1988 og upp úr því króníska undirliggjandi höfnun sem hafi vald- ið því að hún hafi orðið mjög við- kvæm fyrir öllum flensum. Hún hafi t.a.m. þornað upp við saklausa ælu- pest. Ekki vaxið eðlilega „Þetta hefur tekið mjög á stelpuna. Hún hefur ekki vaxið eðlilega og þótt hún sé orðin 13 ára er hún aðeins 139 sentímetrar á hæð. í eitt ár fékk hún vaxtarhormón og þá rauk hún upp um tíu til tólf sentímetra en eftir að nýrun fóru að bila meira hættu hormónin að hafa áhrif. Lyfin og bil- uðu nýrun spila þar sameiginlega rullu." Vilborg sagði Ástu eiga aöra systur sem einnig hafi verið með bilað nýra. Hún hafi gefið henni nýra úr sér þegar stelpan var eins árs. Þessi sam- eiginlegi sjúkdómur systranna sé þó ekki í ættinni. „Þetta er bara óheppni. Menn vita ekki af hverju þetta er en einhver spurning er þó um biluð sameiginleg gen sem hittast í börnunum. Mér er sagt að þetta komi frá forfeðrunum vegna þess hversu mikið íslendingar eru skyldir." Aðspurð hvemig hægt sé að standa undir þeim mikla kostn- aði sem svona ferðalagi og aðgerð fylgir segir Ásta það vera erfitt en ættingjar þeirra hafi þó hjálpað þeim vegna aðgerðarinnar geta lagt inn mikið. framlag á Höfuðbók 05 nr. 39450 í Þeir sem vilja styðja foreldrana Landsbankanum í Bankastræti. -SV Ljúftsem lamb.. Lambagrillkjötið frá Höfn eru sælkeramatur, tilbúið beint á grillið. Leiktu öruggan leik og veldu Ijúffengt, marinerað lambakjöt frá HÖFN á griliið - það er leikur einn! G/illpylsur Skrirsx lkefa Árni Hjaltason og Vilborg Benediktsdóttir ásamt dóttur sinni Ástu sem fer í nýrnaskiptaaðgerð i Boston innan skamms. Skóladeilan 1 Mývatnssveit blossar upp aftur: Sunnvetningar hafna hugmynd hreppsnefndar - nú verður barist til þrautar, segir sveitarstjórinn Hin harðvítuga deila um grunn- skólamál í Mývatnssveit hefur blossað upp aftur en sátt ríkti síð- astliðinn vetur. Deilan snýst um það að íbúar sunnan Mývatns vilja áfram skóla á Skútustöðum en aðr- ir íbúar hreppsins og skólayfirvöld vilja að skólinn verði í Reykjahlíð. Um þetta urðu mikil átök í fyrra. Sæst var á að hafa skólahald á Skútustööum síðastliðinn vetur. í vor var svo sett nefnd í máliö til að finna viðunandi lausn. í nefnd- inni voru fulltrúar beggja deiluað- ila og menntamálaráðuneytisins. Niðurstöður nefndarinnar urðu þær að næstu tvö ár yrði staðan óbreytt. Skólahald yrði á báðum stöðunum. Næstu 2 ár þar á eftir yrði allt skólahald í Reykjahlíð. Að loknum þessum íjórum árum yrði málið í heild skoðað upp á nýtt. Þann 22. júní var haldinn hrepps- nefndarfundur þar sem þessi hug- mynd var samþykkt samhljóða. Þó með því skilyrði að samtök for- eldra, kennara, skólanefndin og aUir aðrir aðilar, sem koma aö málinu, samþykki þetta. Þeim var gefinn frestur til 4. júlí að svara. Nú eru öU svör komin. Þau eru öll jákvæð nema svör foreldra barna fyrir sunnan Mývatn. Þeir hafna þessu. „Við höfnum þessu samkomulagi vegna þess að við vUdum hafa reynslutímann fimm ár. Fjögur fyrstu árin eins og samið var um en fimmta árið viljum við að verði sama fyrirkomulag og á fyrstu tveimur árunum. Við teljum að ef það verður ekki verði erfitt að fá skólastarf á Skútustöðum aftur í gagn,“ sagði Böðvar Pétursson, bóndi í Baldursheimi í Mývatns- sveit, í samtaU við DV. Sigurður Rúnar Ragnarsson sveitarstjóri sagði í samtali við DV að nú væri ekki um annað að gera en að setja upp hjálmana og berj- ast. Sveitarstjórnin ætlar að taka máUð fyrir aftur og afgreiða það þannig að skólahald verði bara á einum stað, í Reykjahlíð, hvað sem íbúar sunnan vatns segja. Sveitar- stjórnin er studd af menntamála- ráðuneytinu og hæpið að sunn- vetningar fá leyfi frá ráðuneytinu til að halda uppi skólahaldi eins og síðastliðinn vetur. Það eru heldur ekki líkur á þeir fái styrk frá ráðu- neytinu tft að halda uppi einka- skóla. Böðvar segir að í nýju grunnskóla- lögunum, sem taka gUdi á næsta ári, sé heimfidarákvæði um að for- eldrar geti ráðið því til hvaða skóla jöfnunarsjóðsframlag með þeirra barni fer. Hvað verði í skólamálum Mývatnssveitar þangaö tU sé ekki hægt að segja tíl um á þessari stundu. Splunkunýtt plunkunýtt plunkunýtt lunkunýtt ^^lunkunýtt unkunýtt ■nkunýtt nkunýtt kunýtt :unýtt unýtt ■nýtt nýtt ýtt Vtt Paö er svo geggjað... Opið um helgina frá kl 14*17 /ÉLHJÓLIÐ SEM ALLA LAN6AR í! Verð kr. 84.000.- á götunafyrir 15 ára og eldri. I Ingvar Helgason hf. Sœvarhöfða 2 Stmi 525 8000 tnm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.