Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 23 DV Messur Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Prestarnir. Áskirkja: Vegna sumarleyfa starfsfólks er bent á messu í Laugarneskirkju kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtskirkja: Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Ferming, altarisganga. Prest- ur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari Kjartan Sigur- jónsson. Fermd verður Helga Dís Árnadóttir, Holtagerði 58, Kópavogi. Eftir messuna verður bænastund á ensku. Fella- og Hólakirkja: Guðs- þjónusta - helgistund kl. 20.30 í umsjón Ragnars Schram. Organisti Guð- mundur Sigurðsson. Prest- arnir. Grafarvogskirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Guðjón Halldór Óskarsson. Prestarn- ir. Viðeyjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 14.00. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari Kjartan Sigurjónsson. Báts- ferð úr Sundahöfn kl. 13.30. Grensáskirkja: Lokað vegna viðhalds og viðgerða. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Organisti Douglas A. Brotc- hie. Ensk messa kl. 14.00. Sr. Örn Bárður Jónsson. Orgel- tónleikar kl. 20.30. Hans Uwe Hielscher, organisti frá Wi- esbaden, Þýskalandi, leikur. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Organisti Pavel Manasek. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Hjallakirkja: Helgistund kl. 11. Bryndís Malla Elídóttir. Kópavogskirkja: Helgi- og bænastund kl. 11 í umsjá sr. Gylfa Jónssonar. Orgelleikari Örn Falkner. Molakaffi eftir stundina. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Langholtskirkja: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Organisti Þóra V. Guð- mundsdóttir. Kaffisopi eftir messu. Laugarneskirkja: Sumarferð Laugarnessafnaðar. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 9.00 ár- degis og farið í Skálholt. Áætluð heimkoma milli kl. 16 og 17. Ekkert fargjald. Hafið nesti meðferðis. Ölafur Jó- hannsson. Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson. Gróðursetningarferð í Heið- mörk kl. 12.30. Seljakirkja: Kvöldguðsþjón- usta kl. 20. Altarisganga. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir préd- ikar. Gunnar Gunnarsson leikur einleik á flautu. Organ- isti Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Helgi- stund kl. 11 í umsjá sóknar- nefndar. Organisti Kristín Jónsdóttir. I Elliðaárdalnum er tilvalið að renna fyrir lax og njóta veðurbliðunnar. DV-mynd GVA Útivera um helgina: Gullfallegar náttúru- perlur í Reykjavík „Það sem gerir Heiðmörkina eins skemmtilega sem útivistarsvæði og raun ber vitni eru göngustígamir sem eru nokkurra kílómetra langir. Fólk kemur hingað allan ársins hring til að ganga um svæðið sem er um 2800 hektarar, skoða trjágróð- urinn og njóta kyrrðarinnar," sagði Ásgeir Svanbergsson, starfsmaður Skógræktarfélags Reykjavíkur. í Reykjavík eru mörg skipulögð útivistarsvæði sem tilvalin eru til íþróttaiðkunar, skoöunarferða eða til að njóta náttúrunnar. Falleg náttúra Heiðmörkin hefur verið vinsæl til útiveru um langan tíma. Þar eru eins og áður sagði heilmargir göngustígar en jafnframt er fjölskrúðugt fuglalíf og hægt er að veiða í Elliðavatni. Einhver fegursta náttúruperla höf- uðborgarinnar er Elhðaárdalurinn. Fjölskyldan ætti að eiga þar góðan dag í fallegri náttúru og getur sinnt áhugamálum í leiðinni. Smábátahöfn er við Elliðavog, íþróttasvæði, at- hafnasvæði hestamannna er á Víði- völlum og hundamir eiga sér sama- stað á Geirsnefi. Fyrir þá sem vilja fara í siglingu er upplagt að taka ferjuna í Viðey. Saga eyjunnar er merkileg en forn- leifar sem þar hafa fundist benda til þess að þegar hafi verið búið í eyj- unni á 10. öld. Hægt er að sjá merki um þessa fyrstu byggð norðan Við- eyjarstofu. í Viðey er ljósmyndasýn- ing sem lýsir lífinu á Sundabakka en þar var þorp sem fór í eyöi 1943. Hestaleiga er á staðnum en þaö sem er eflaust mest heillandi við eyjuna er stórbrotin strandlínan og útsýni yfir Reykjavík. Fjöldi svæða Fjölmargir aðrir athyglisverðir staðir eru á höfuðborgarsvæðinu. Á Seltjarnarnesi er hægt að skreppa út í Gróttu á íjöru og þar rís nú upp braggahverfi vegna kvikmyndar sem Friðrik Þór Friðriksson vinnur að. Grasagarðurinn í Laugardal hefur að geyma sýnishorn af stórum hluta íslensku flórunnar og eitt besta út- sýnissvæði Reykjavíkur er Öskju- hlíðin. Reykvíkingar ættu því ekki aö þurfa að leita langt yfir skammt séu þeir að hugsa um að eyða helginni í faðmi náttúrunnar. ými Fjölskyl hátíð SÁÁ Um helgina stendur SÁÁ fyrir fjöl- skylduhátíð í Árskógi. Hátíðin hefst á fostudagskvöld og stendur fram á sunnudag. Boðið verður upp á margs konar dagskrá; varðeld, fótboltaleik, sameiginlegt útigrill, sjóstangaveiði og fleira. Á laugardagskvöldið leikur hljómsveitin Bylting á balli. Ef svo ólíklega vildi til að veðurguðimir brygðust er á staðnum húsnæði til inniskemmtunar. Stafafell í Lóni: Útivistardagar Ferðaþjónustan Stafafelli stendur fyrir útivistardögum í Lóni um helg- ina. Veitt verður frí leiðsögn í göngu- ferðum um Stafafellsfjöll. Á laugar- dag verður gengið um Framfjöll en Innfjöll gengin á sunnudag. Báða dagana verður boðið upp á fylgd í tindaklifri. Þessa daga verður veittur afsláttur á tjaldstæðum og jeppaferðum. Á laugardagskvöld verður grillað, leik: in tónlist undir berum himni og varðeldur verður tendraður. Hananú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt verður af stað frá Gjábakka, Fann- borg 8, kl. 10. Boðið verður upp á nýlagað molakaffi. artúninu. Árbæjarsafn: Hestar og harmoníka Utivistog FI: Ferðir um helgina Afmæli Raufarhafnar: Allt á fullu þessa dagana Þórhallur V. Emarsson, DV, Raufcrhöfn: Undirbúningur að hátíðarhöldum í tilefni 50 ára afmælis Raufarhafnar er nú í fullum gangi. Dagskrá fyrir hátíðarhöldin, sem veröa frá fóstu- degi fram á sunnudag, er mjög viða- mikil. Þar má nefna að gömlum síldar- bragga hefur verið breytt í líki stór- hvelis og meiningin er að atriðin flæði út um gin hvalsins. Einnig er verið að gera kvikmynd um lífið á Raufarhöfn og er þar blandað saman nútíð og fortíð. Það er Örn Ingi, fjöl- listamaður frá Akureyri, sem er upp- spretta þessara hugmynda og hefur hann haft veg og vanda af undirbún- ingi og dagskrá afmælishátíðarinnar í samvinnu við heimamenn. Frú Vigdís Finnbogadóttir kemur í heimsókn 22. júli en þann dag verð- ur dagskráin mjög efnismikil. Fisk- iðja Raufarhafnar og Jökull hf. bjóða öllum hátiðargestum til sjávarrétta- veislu. Um kvöldið mun hljómsveit Geirmundar leika fyrir dansi. Myndlistarsýningar listamanna, sem sérstaklega koma á staðinn og mála í tilefni afmæhsins, verða settar upp. Þá verða sýndir leikþættir og útvarp verður starfrækt dagana fyrir hátíðina. Einnig er áætlað að fyrri hluti kvikmyndarinnar verði frum- sýndur í félagsheimilinu. Það er búist við fjölda gesta á þessa hátíð og er ljóst að vel verður tekið á móti þeim. Að vepju stendur Ferðafélag ís- lands fyrir nokkrum helgarferðum nú um helgina. Farið verður til Land- mannalauga og Hrafntinnuskers og verður m.a. gengið á íshellunni og víðar á svæðinu. Jafnframt verður ferð í Þórsmörk og Fimmvörðuháls genginn. Á sunnudag verður farið í dagsferð til Þórsmerkur og á Hveravelli. Gengið verður frá Grófinni að Kistu- felh í Brennisteinsfjöllum og niður Grindaskörð. Einnig verður Ketil- stígur genginn. Útivist Á laugardag verður 4. áfangi Fjaha- syrpunnar genginn og að þessu sinni verður gengið á Búrfell í Þjórsárdal. Sama dag verður ganga í Ámes, eyj- una við Þjórsá. Þar verður skoöaður fom dómhringur og gengið verður að Búðafossi og Hestfossi. Á sunnu- dag verður Leggjabijótur genginn. Helgarferðir verða tvær að þessu sinni. Gengið verður um fáfarnar slóðir frá Tröllakirkju að Holta- vörðuheiði. Einnig verður farið í Þórsmörk. Það verður nóg að gera á Árbæjar- safninu á sunnudaginn. Hestamenn úr Fáki mæta á túnið við Árbæinn þar sem nesti verður borðað. Ef vel viðrar veröur slegið upp dansibahi og það verður Karl Jónatansson sem þenur nikkuna. Krakkar fá að skreppa í reiðtúr á Fáksgæðingunum frá 15 th 16 við aðaltorgiö. Margt fleira verður til gamans gert. Pétur Þórarinsson söðlasmiður sýnir í gömlu skemmunni frá 14 th 17 og þar verða einnig gömul reiðtygi til sýnis. Gullsmiður og útskurðarmað- ur verða að störfum í Suðurgötu 7 og sjómaður ríður net við Nýlendu. Hinar einu sönnu lummur verða á boðstólnum í Árbæ ásamt rjúkandi Rió-kaffi frá 13-15 og roðskór verða búnir th á baðstofulofti Árbæjar. Hafnardagur á Reykjavíkurhöfn Á laugardag verður hinn árlegi hafnardagur Reykjavíkurhafnar haldinn. Dagskráin hefst kl. 10 að morgni og lýkur með bryggjubalh og flug- eldasýningu að kveldi. Dagurinn ber óneitanlega keim af höfn og hafi og ber þar hæst fiskmarkaðstjaldið. Þar verður boðið upp á fiskmeti af öllum tegundum, svo sem smokkfisk og krabbakjötssúpu. Gómsætið verður ekki aöeins á hafnarbakkanum því 14 veitingahús í miðborg Reykjavíkur ætla að bjóða upp á sér- stakan matseðh í thefni hafnardagsins. Kvölddagskrá hefst um níuleytið og þá ætla KK og Ellen Kristjánsdóttir aö skemmta. Þegar fiutningi þeirra lýkur tekur hljómsveitin Þöh og félagar við og dansinn mun duna th miðnættis. Hafnardeginum lýkur með flugeldasýningu á Það er margt að skoða fyrir yngstu kynslóðina á Hafnardegi. miðnætti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.